Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
183. tbl. 71. irg.
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reagan í ólympíuliðið
AP.
Reagan, Bandaríkjaforseti, hafði í ger boð inni í Hvíta húsinu fyrir hetjurnar frá Los Angeles, bandaríska
ólympíuliðið, og var þar svo sannarlega glatt á hjalla. Voru gestirnir allir í einkennisjakkanum sínum og þótti
Reagan ótækt að vera að skera sig úr. Var þá fundinn jakki handa honum og fékk fimleikastjarnan Mary Lou
Retton það hlutverk að færa forsetann í.
Dómgreindin
brást okkur“
— segir Prior, Norður-írlandsmálaráðherra
London, 14. ágúst AP.
JAMES Prior, Norður-írlandsmálaráðherra bresku stjórnarinnar,
viðurkenndi í dag, að stjórninni hefðu orðið á alvarleg mistök þegar
hún bannaði bandarískum stuðningsmanni IRA, írska lýðveldis-
hersins, að koma tii Norður-írlands. Kvað hann sjálfan sig og
stjórnina gangast við ábyrgð sinni á atburðunum á sunnudag en þá
féll einn maður í árás lögreglunnar á mannfjölda.
„Stundum er dómgreindin
okkur fylgispök en stundum
bregst hún okkur,“ sagði Prior á
fréttamannafundi í London í dag.
„Ég segi þetta vegna þeirra mis-
taka, sem orðið hafa, og ég ber
fulla ábyrgð á.“ Einn maður lést
og 20 særðust þegar lögreglumenn
skutu gúmmíkúlum á mótmæla-
göngu 2.000 manna en það vakti
fyrir lögreglunni að hafa hendur í
hári bandarísks lögfræðings,
Martins Galvins að nafni, sem var
meðal göngumanna. Er hann for-
maður samtaka i New York,
Noraid, sem safnað hafa fé fyrir
írska lýðveldisherinn.
Þrátt fyrir eða kannski vegna
árásar iögreglunnar slapp Galvin
úr höndum hennar og er nú ekkert
vitað hvar hann er niðurkominn.
Ríkjasamband með
Marokkó og Líbýu
Rabat. Marokkó, 14. ágúst AP.
TILKYNNT var í Marokkó og Líbýu
í dag, að leiðtogar ríkjanna hefðu
undirritað samning um ríkjasam-
band, sem þeir sögðu fyrsta skrefið {
átt til sameiningar allra ríkjanna á
norðvesturströnd Afríku.
Samningurinn um ríkjasam-
bandið var undirritaður sl. mánu-
dag af þeim Hassan II, konungi
Marokkó, og Moammar Khadafy,
Líbýuleiðtoga, og segir í tilkynn-
Eistneski ráðherrann og kona hans:
Flýðu vegna aukinnar
kúgunar Sovétmanna
ingu frá þeim, að fullgilding hans
sé „háð samþykki almennings i
löndunum báðum". Embættis-
menn í Marokkó segja, að þar
muni verða efnt til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um ríkjasambandið
en óljóst er enn hvaða hátt
Khadafy mun hafa á. Segja þeir
þjóðarleiðtogarnir, að samningur-
inn sé gerður i anda arabískrar
einingar og stefnt sé að samein-
ingu allra Maghreb-rikjanna en
það eru Marokkó, Líbýa, Alsír og
Túnis.
Að lokinni undirritun samn-
ingsins fór Khadafy til Alsírs og
síðan til Túnis þar sem umræðu-
efnið hefur vafalaust verið þessi
nýju tíðindi. Libýumenn hafa áður
sameinast eða reynt að sameinast
öllum Arabaríkjunum í Afríku og
Sýrlandi einnig en þær mægðir
jafnan staðið stutt.
Stokkhólmi, 14. ígúsL AP.
SÆNSKA lögreglan staðfesti í dag, að Eistlendingurinn, sem beðist hefur
hælis í Svíþjóð sem pólitískur flóttamaður, heiti Valdo Randpere og sé
fyrrum aðstoðardómsmálaráðherra Eistlands. Er hann 26 ára gamall en kona
hans 23 ára, Leila Miller, alkunn poppsöngkona í landi sínu.
Talsmaður lögreglunnar segir,
að beiðni þeirra hjóna um landvist
sé nú til athugunar en Thord
Palmlund, yfirmaður sænsku inn-
flytjendaskrifstofunnar, segist
telja liklegt, að þau fái hana.
Sænsk yfirvöld vilja ekkert um
flóttann segja að öðru leyti en vit-
Sri Lanka:
Átök harðna
Anuradhapura. Sri Lanka, 14. ágúsL AP.
ÓÖLDIN á Sri Lanka færist 1 auk-
ana með degi hverjum og síðasta
sólarhringinn hefur 21 skæruliði
tamfla verið felldur.
Að sögn stjórnvalda hafa
rúmlega 170 skæruliðar fallið
fyrir stjórnarhernum síðan hann
hóf sókn gegn þeim á Norður-Sri
Lanka fyrir 10 dögum og mörg
þúsund manns eru heimilislaus
og á flótta.
að er, að hjónin komu til Sviþjóðar
með ferju frá Finnlandi. Höfðu
þau verið í eistneskri sendinefnd á
menningardögum í Kotka, vinabæ
Tallins, höfuðborgar Eistlands.
Ants Kippar, formaður í sam-
tökum eistneskra flóttamanna í
Svíþjóð, segir, að Valdo Randpere
og kona hans hafi ákveðið að flýja
vegna nýrrar herferðar Sovét-
manna gegn eistnesku þjóðerni.
„Sovésk stjórnvöld reyna að koma
i veg fyrir, að Eistlendingum tak-
ist að varðveita menningu sína,“
sagði Kippar, „og þau líta sömu
augum á allt, sem vestrænt er.
Þess vegna hefur poppsöngvurum
verið bannað að koma fram.“ Eftir
erlend yfirráð um aldir voru Eist-
lendingar sjálfstæðir um tveggja
áratuga skeið en Sovétmenn her-
námu landið og innlimuðu það á
dögum síðari heimsstyrjaldar.
Kippar segir, að Randpere hafi
fyrir nokkru verið fluttur úr emb-
ætti aðstoðardómsmálaráðherra
Pressens Bild.
Leila Miller er hér með eistnesku hljómsveitinni „Kontor“ en Leila var kunn
söngkona í landi sínu. Hún hefur nú beðið um hæli í Svíþjóð ásamt manni
sinum, fyrrum aðstoðardómsmálaráðherra Eistlands.
og verið fengið sæti í miðstjórn
Komsomol, æskulýðsfylkingar
eistneska kommúnistaflokksins.
Randpere og Leila skildu ársgam-
alt bam eftir heima en ekki er
ljóst hvort það er barn þeirra
beggja. Þau hjónin eru enn i felum
á heimili eistneskrar fjölskyldu í
Stokkhólmi en í Sviþjóð búa sam-
tals 10.000 Eistlendingar.
Los Angeles:
Sprengju-
tilræðið
sviðsett
Lns Angeles, 14. ágúsL AP.
LÖGREGLUMAÐUR, sem hafði
verið hylltur sem hetja fyrir að
finna sprengju í farangri tyrkn-
esku ólympíufaranna þegar þeir
voru að fara frá Los Angeles, hef-
ur viðurkennt að hafa komið
henni fyrir sjálfur.
Grunur féll á lögreglumann-
inn vegna ólíkindalegrar frá-
sagnar hans af þvi hvernig
hann gerði sprengjuna óvirka
og nú hefur hann viðurkennt að
hafa komið henni fyrir til að
vekja á sér athygli. Hryðju-
verkasamtök Armena, sem
heitast við Tyrki, höfðu áður
sagst bera ábyrgð á sprengj-
unni en þar hafa þau verið full-
fljót á sér.
Sjá fréttir af sprengjunni á
bls. 21.