Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 15. ÁGÚST1984
43
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Ólæti í kvikmyndahúsum
Logi skrifar:
Velvakandi góöur!
Fátt er það sem veitir mér meiri
ánægju en að bregða mér í kvik-
myndahús og sjá góða mynd. Því
miður er þó einn galli á gjöf
Njarðar, því sjaldnast fæ ég notið
myndarinnar til fulls og liggja til
þess tvær megin ástæður.
Lengi hefur brunnið á vörum
mér sú spurning, hvernig standi á
því að ölvuðu fólki er hleypt inn á
kvikmyndasýningar, með þeim af-
leiðingum að vart er flóafriður á
meðan á sýningunni stendur? Ölv-
að fólk er skiljanlega ekki í
ástandi til að sitja og þegja í tvær
klukkustundir og lætur því móðan
mása, öllum til mikillar armæðu.
Um daginn varð ég einu sinni
sem oftar fyrir því að sitja fyrir
framan drukkið fólk á sýningu í
einu af kvikmyndahúsum borgar-
innar. Fólkið var afar kátt og fór
enginn í grafgötur með það. Það
var sífellt að ónáða nærstadda
með ótímabærum aulabröndurum
og athugasemdum, og var mér
orðið ansi gramt í geði. Sakir þess
eins að myndin var á háspennu-
punkti og ekkert starfslið var sjá-
anlegt lét ég mér þetta lynda, eins
og ég og svo margir fleiri höfum
reyndar gert æði lengi. Líklegast
er ég of ragur til að þora að kvarta
undan slíku fólki og sama virðist
vera að segja um marga. Þvi greip
ég til þess ráðs að hella úr skálum
reiði minnar í dálkum Velvak-
anda.
Nú kunna vafalaust margir að
segja við sjálfan sig að miðasölu-
fólk kvikmyndahúsanna hafi í
öðru að snúast en að kanna líkam-
legt og andlegt ástand hvers kvik-
myndahússgests áður en hann fær
afgreiðslu. Því er til að svara að
það fólk, sem ég hef hingað til séð
ölvað í kvikmyndahúsum, hefur
verið það á mjög áberandi hátt.
Held ég að það geti vart farið
framhjá mönnum þegar fólk slag-
ar inn salinn með sköllum og lát-
um auk þess sem áfengisiyktin
kemur upp um viðkomandi á auga-
bragði, sé þefskyn nærstaddra í
sæmilegu lagi.
Nú skora ég á forráðamenn
kvikmyndahúsa borgarinnar að
taka þetta mál til athugunar, svo
að áhugasamir kvikmyndahúsa-
gestir fái notið kvikmyndanna til
fulls í ró og næði.
Með vinsemd.
Vegamál í miklum ólestri
Magnea skrifar:
Velvakandi kær!
f annað skiptið á skömmum
tíma finn ég mig knúna til að
geysast fram ritvöllinn og það af
miður skemmtilegum ástæðum.
Sífellt er verið að kvarta undan
slæmu ástandi hinna ýmsu mal-
arvega landsins og því oftast til
svarað af forráðamönnum vega-
gerðarinnar að horfa þurfi í hvern
eyri þegar fé er úthlutað til vega-
og gatnamála, eins og gera þarf
með svo margt annað. Er það vel.
Einn vegur hér í borginni er þó
að margra mati til háborinnar
skammar, svo ekki sé meira sagt.
Sá vegur liggur úr efra Breiðholti
yfir Vatnsendahæð, hjá Elliða-
vatni og yfir í Víðidal. Menn halda
máski að sá vegur sé úr alfaraleið,
en því er öfugt farið. Um þennan
veg er sífelld bílaumferð, því hann
nota allir sem eru með hesta í
Víðidal og eins þeir, sem eiga hús
við Elliðavatn. Ég telst í hópi
þeirra beggja og fer daglega um
veginn til að sinna hestum og
slappa af í sumarbústaðnum mín-
um.
Ætla mætti að þeir sem með
vegamál á svæðinu hafa að gera,
haldi að hestamenn ferðist um
bæinn á hestum sinum, því vegur-
inn lítur ekki út fyrir að vera ætl-
aður fyrir ökutæki.
Ég, sem og ótal margir aðrir, er
orðin langþreytt á því að hökta í
holum og hryggjum á þessum af-
dalavegi, og bíllinn minn, sem að
vísu er enginn „lystikerra", er að
hruni kominn.
Gefið nú hestamönnum í Víði-
dal og sumarbústaðaeigendum við
Elliðavatn grið og betrumbætið
umræddan veg.
Þessir hringdu . .
Villandi frásögn
7166—0028 hringdi og hafði
eftirfarandi að segja:
„Fyrir hönd fyrrverandi eig-
enda jarðarinnar Grænumýrar-
tungu langar mig til að koma
hér með athugasemd vegna
blaðaskrifa um jörðina.
Mjög villandi og röng frásögn
um sölu á jörðinni Grænumýr-
artungu birtist í Helgarpóstin-
um þann 9. ágúst sl. Þar segir að
kaupendur að jörðinni séu
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra og bróðir hans, Þórður
Hermannsson. Þetta er rangt,
það er hvorugur þeirra."
Ávallt opið
á sumrin
Selma Jónsdóttir, forstöðumað-
ur Listasafns íslands, hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
„í Morgunblaðinu sunnudag-
inn 12. ágúst sl. kvartar kona að
nafni Kristín Gestsdóttir yfir
því, að laugardag 4. ágúst sl. hafi
hún komið að luktum dyrum í
Listasafni Íslands og segir sér
hafa verið tjáð að „Listasafnið
væri í sumarleyfi“.
Listasafni Islands hefur aldrei
verið lokað vegna sumarleyfa, og
er að jafnaði opið daglega alla
sumarmánuðina, frá miðjum
maí til miðs september. Hins
vegar stóð svo á þennan um-
rædda dag að verið var að setja
upp eina af afmælissýningum
safnsins, á verkum fimm
danskra listamanna, sem nú
stendur þar yfir.
Virðist líklegast að Kristín
hafi eitthvað misskilið „stúlk-
urnar í fordyrinu", sem bornar
eru fyrir hinni röngu skýringu á
lokuninni, því að þær hlutu að
vita hina raunverulegu ástæðu.
Með þökk fyrir birtinguna."
Gáleysislegur
akstur bflstjóra
strætisvagna
1031—7738 hringdi og hafði
eftirfarandi að segja:
„Fyrir nokkrum árum var
ákveðið að auka rétt strætis-
vagna borgarinnar í umferðinni
og í því skyni límd græn og rauð
merki aftan á vagnana sem und-
irstrika það að strætisvagnar
eiga alltaf réttinn þegar þeir
ætla að aka inn á götur úr bið-
stöðvum sínum. Allt er þetta
gott og blessað og allt gert með
öryggi í umferðinni í huga.
Þó er eitt sem ekki fellur
mönnum eins vel í geð í þessu
sambandi. Það er að allmargir
bílstjórar strætisvagnanna eru
svo sannfærðir um rétt sinn í
umferðinni að oft á tíðum hirða
þeir ekkert um að gefa stefnuljós
heldur æða beint út á götu. Þau
eru ófá skiptin sem nærri hafa
hlotist slys af þessum völdum og
virðist manni þó sem að bílstjór-
ar gefi þessu aldrei gaum.
Auðvitað eiga þeir réttinn, það
vita allir og eiga að virða. Það
þýðir samt sem áður ekki, að bfl-
stjórar strætisvagnanna geti ætt
út á götu án þess svo mikið sem
að líta til hægri eða vinstri.
Varla er þessi réttur strætis-
vagnanna í umferðinni svo mik-
ilvægur, að þörf sé á því að
stofna lífi fólks í hættu, til að
framfylgja honum.
Hver er
höfundurinn?
Margrét Árnadóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
„Mig langar svo til að vita
nánari deili á kvæðabálki einum,
sem ég hef fyrsta erindið af, og
eins fýsir mig að vita hver höf-
undurinn er.
Ég læt fyrsta erindið fylgja í
von um að einhver geti liðsinnt
mér:
Þér kærar sendi kveðjur
þú kvaddir ekki mig,
þó kveðjan þín sé lítils virði
út af fyrir sig.
Bflstjórar strætisvagna mættu að mati bréfritara, sýna öðrum öku
mönnum í umferðinni meiri tillitssemi.
Til leigu í Vesturbænum
Stór og falleg íbúö á efri hæó í tvíbýlishúsi + bíl-
skúr, á besta staö í Vesturbænum til leigu.
íbúöin er tvær samliggjandi stofur, hol, bókaher-
bergi og gott eldhús, 2 svefnherbergi, baö og
snyrtiherbergi.
Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „A — 2701“
fyrir 20. ágúst.
ÚTSALA
ÚTSALA
mikil verðiækkun
Elízubúöin,
Skipholti 5.
QUEEN
hljómleikar í
London
Feröaskrifstofan Ævintýraferöir býöur sex daga
ferð til London þann 3. september fyrir kr. 14.380.
Innifaliö er: Flug, gisting, rútuferöir, miöi á hljóm-
leika Queen á Wembley og ísl. fararstjórn. Missiö
ekki af þessu einstaka tækifæri.
Uppl. í síma 12720.
Nokkur sæti laus. .„.„riSgSar,'.,,.
Bladburdarfólk óskast!
h !• i if-t.'""5 lÍLti
Austurbær Kópavogur
Bollagata Sunnubraut
Sjafnargata Þinghólsbraut
Bergstaöastræti
Vesturbær Tjarnargata 39 —