Morgunblaðið - 15.08.1984, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hór
segir:
HULL/GOOLE:
Dísarfell ........ 20/8
Dísarfell ........ 3/9
Dísarfell ........ 17/9
Dísarfell ....... 1/10
ROTTERDAM:
Dísarfell ....... 21/8
Dísarfell ........ 5/9
Dísarfell ....... 18/9
Dísarfell ........ 2/10
ANTWERPEN:
Dísarfell ....... 22/8
Disarfell ........ 6/9
Dísarfell ........19/9
Dísarfell ....... 3/10
HAMBORG:
Dísarfell ....... 24/8
Dísarfell ........ 7/9
Dísarfell ....... 21/9
Dísarfell ....... 5/10
HELSINKI/TURKU:
Hvassafell ...... 25/8
Hvassafell ...... 20/9
LARVIK:
Jan ............. 13/8
Jan ............. 27/8
Jan ............. 10/9
GAUTABORG:
Jan ............. 28/8
Jan ............. 11/9
Jan ............. 25/9
KAUPMANNAHÖFN:
Jan ............. 29/8
Jan ............. 12/9
Jan ............. 26/9
SVENDBORG:
Jan ............. 16/8
Jan ............. 30/8
Jan ............. 13/9
Jan ............. 27/9
ÁRHUS:
Jan ............. 16/8
Jan ............. 30/8
Jan ............. 13/9
Jan ............. 27/9
FALKENBERG:
Arnarfell ........ 139
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell ....... 238
Jökulfell ....... 31/8
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ...... 24/8
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavik
Sími 28200 Telex 2101
Fréttir úr Morgunblað-
inu lesnar á virkum
dögum kl. 19.50 á „Út-
rás“ FM 89,4.
|flor£TmI»Iaíiií>
Andri Már Ingólfsson og Halldór Lárusson.
Hás 2 kl. 15.00
Ótroðnar slóðir
Halldór Lárusson og Andri
Már Ingólfsson eru stjórnendur
þáttarins „Otroðnar slóðir“ sem
er um kristilega popptónlist og er
þátturinn á dagskrá rásar 2 í dag
kl. 15.00.
Kynnt verður tónlist með
Willy Hansson sem búsettur
var á fslandi í tólf ár en lést í
fyrra. Tónlist hans er létt
„gospel" tónlist, þ.e. kristileg
tónlist.
Þá verður kynntur banda-
ríski söngvarinn Barry McGu-
ire sem áður fyrr var þekktur
sem „mótmælasöngvari" og
söng þá um tilgangsleysi Víet-
ÍJtvarp kl. 11.15
Vestfjarðarútan
Stefán Jökulsson er umsjónar-
maður þáttarins „Vestfjarðarútan"
sem er á dagskrá útvarps í dag kl.
11.15. Þátturinn er sá fyrsti af
þremur um mannlíf og atvinnu-
þætti á Vestfjörðum.
Rætt verður við fjölda Vest-
firðinga og leitað svara við þeirri
spurningu hvort að þeir séu
„öðruvísi" en aðrir landsmenn á
einhvern hátt.
Þá verður fjallað um landbún-
að á Vestfjarðarkjálkanum og þá
sérstaklega í brennidepli, fram-
vindun byggðar við ísafjarðar-
djúp. Súðavík er tekin sem dæmi
um sjávarpláss og reynt verður
að kanna þær breytingar sem
þar hafa orðið siðan að togarinn
kom þangað fyrir tuttugu árum.
Loks verða horfurnar í at-
vinnumálum í fjórðungunum
reifaðar og leitað svara við ýms-
um spurningum varðandi þau
mál s.s. hvort að kvótafyrirkom-
ulagið í fiskveiðum hafi orðið
Sjónvarp kl. 22.20
/
Stefán Jökulsson.
þess valdandi að menn fóru að
velta fyrir sér hugmyndum um
að auka fjölbreytni í atvinnu-
vegi; hvort ástandið sé betra á
Vestfjörðum en Austfjörðum
o.s.frv.
namstríðsins svo eitthvað sé
nefnt. Nú, eftir að hann gerðist
kristinn, leikur hann hins veg-
ar alls kyns blandaða „gospel"
tónlist.
Leikið verður lagið „Why me
lord“ sem J.D. Sumner syngur
ásamt Elvis Presley. Sumner
hefur af ýmsum verið sagður
hafa dýpstu bassarödd sem um
getur í heiminum, að sögn
Halldórs Lárussonar, annars
stjórnanda þáttarins. Þá verða
leikin lög með tveimur banda-
rískum tónlistarmönnum,
Andrea Crouch og Keith
Green, sem lést fyrir tveimur
árum.
Berlin Alexanderplatz
f kvöld er fjórtándi og síðasti
þáttur þýska framhaldsmynda-
flokksins „Berlin Alexanderplatz",
sem gerður er eftir sögu Alfreds
Döbin í leikstiórn Rainer Werner
Fassbinders. í síðasta þætti lauk
hinni eiginlegu sögu Biberkopfs og
lokaþátturinn í kvöld er því eftir-
máli og ber yfirskriftina „Draumar
Fassbinders um drauma Biber-
kopfs“.
Biberkopf er miður sín eftir að
hann fréttir að Reinhold hafi
myrt Mieze, unnustu hans, hann
sturlast og er settur á geðveikra-
hæli. Fassbinder kvikmyndar í
raun og veru óráðsdrauma Bib-
erkopfs, á myndmáli undirmeð-
vitundarinnar. í þessum draum-
um koma fram ýmsar persónur
úr þættinum og Fassbinder velt-
ir fyrir sér ýmsum möguleikum
um það hvað hefði getað gerst.
Lokaþátturinn er mun lengri
en hinir fyrri, eða um 110 mínút-
ur og að sögn Veturliða Guðna-
sonar, sem er þýðandi mynda-
flokksins, er þessi þáttur ekki
við hæfi barna.
Útvarp Reykjavik
A1IÐMIKUDAGUR
15. ágúst
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
I bítið. 7.25 Leikrimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: — Málfríður
Finnbogadóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Eins og ég væri ekki til“ eftir
Kerstin Johansson. Sigurður
Helgason les þýðingu sína (2).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynn-
ir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Vestfjarðarútan. Stefán Jök-
ulsson tekur saman dagskrá úti
á landi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Vinsæl lög frá sjöunda ára-
tugnum.
SÍÐDEGIÐ
14.00 „Við bíðum" eftir J.M.
Coetzee. Sigurlína Davíðsdóttir
les þýðingu slna (6).
14.30 Miðdegistónleikar. Sónata
nr. 1 í D-dúr op. 5 eftir Arcang-
elo Corelli. Yehudi Menuhin
leikur á fiðlu, George Malcolm
á sembal og Robert Donington
á violu da gamba.
14.45 Popphólfið. Jón Gústafsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. Píanó-
konsert í Es-dúr nr. 5 op. 73
eftir Ludwig van Beethoven.
Vladimir Ashkenazy og
Sinfóníuhljómsveitin í Chicago
leika; Georg Solti stj.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegisútvarp.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn. Stjórnandi
Gunnvör Braga.
20.00 Var og verður. Um íþróttir,
útilíf o.fl. fyrir hressa krakka.
Stjórnandi: Hörður Sigurðar-
son.
20.40 Kvöldvaka.
a. Verslun á Sauðárkróki á
æskuárum mínum. Auðunn
Bragi Sveinsson segir frá.
b. Kórsöngur. Skagfirska
söngsveitin syngur undir stjórn
Snæbjargar Snæbjarnardóttur.
Olafur Vignir Albertsson leikur
á píanó.
c. Tvö skáld. Guðrún Aradóttir
les Ijóð eftir Tómas Guð-
mundsson og Þorstein Valdi-
marsson.
21.10 Einsöngur: Margaret Price
syngur lög eftir Franz Schubert.
Wolfgang Sawallisch leikur á
píanó.
21.40 Útvarpssagan: „Vindur,
vindur vinur minn“ eftir Guð-
laug Arason. Höfundur les (15).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Aldarslamir. Úr stjórnfrels-
isbaráttu Islendinga 1904—
1908. Umsjón: Eggert Þór
Bernharðsson. Lesari með hon-
um: Þórunn Valdimarsdóttir.
23.25 fslensk tónlist. Tónlist úr
Gullna hliðinu eftir Pál ísólfs-
son. Sinfóníuhljómsveit íslands
leikur; Páll P. Pálsson stj.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJANUM
MIÐVIKUDAGUR
15. ágúst
18.00 Ólympíuleikarnir í Los Ang-
eles
íþróttafréttir frá Ólympíuleik-
um 1984. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
(Evróvision — ABC og Danska
sjónvarpið.)
19.35 Söguhornið
Litli draugurinn Laban
eftir Inger og Lasse Sandberg.
Sögumaður Þorbjörg Jónsdótt-
ir.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Friðdómarinn
Fimmti þáttur.
Breskur framhaldsmyndaflokk-
ur í sex þáttum.
Aðalhlutverk Peter Bowles.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.30 Ólympíuleikarnir í Los Ang-
eles
íþróttafréttir frá Ólympíuleik-
um 1984. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
(Evróvision — ABC og Danska
sjónvarpið.)
22.20 Berlin Alexanderplatz —
Lokaþáttur
Þýskur framhaldsmyndaflokk-
ur í fjórtán þáttum, gerður eftir
sögu Alfreds Döblins.
Leikstjóri Rainer Werner Fass-
binder.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
00.00 Fréttir í dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
15. ágúst
10.00—12.00 Morgunþáttur
Róleg tónlist. Fréttir úr ís-
lensku poppi. Viðtal. Gesta-
plötusnúður. Ný og gömul tón-
list.
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Sigurður Sverrisson.
14.00—15.00 Út um hvippinn og
hvappinn
Létt lög leikin úr ýmsum áttum.
Stjórnandi: Inger Anna Aik-
man.
15.00—16.00 Ótroðnar slóðir
Kristileg popptónlist.
Stjórnendur: Andri Már Ing-
ólfsson og Halldór Lárusson.
16.00—17.00 Nálaraugað
Gömul úrvalslög.
Stjórnandi: Jónatan Garðars-
son.
17.00—18.00 Tapað fundið
Leikin verður létt soul-tónlist.
Stjórnandi: Gunnlaugur Sig-
fússon.