Morgunblaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
9
Afmælisþakkir
Hjartans þakkir sendi ég vinum mínum, félags-
systrum og allri fjölskyldu minnifyrir hina miklu
vinsemd sem mér var sýnd á afmælisdaginn
minn, þann 1. ágúst.
Lifið öll heil.
Margrét E. Schram,
Vesturgötu 52, Reykjarík.
HÁRGREIÐSLdSTOFAN
mmmm^rsöGu
Almenn hársnyrtiþjónusta.
Opiö mánudaga — föstu-
daga 9—18, laugardaga
9—12.
Tímapantanir í síma 21690.
^^"■■■■■■■^
Höggpressur
fyrirliggjandi
Njáll Þórarinsson
Heildverslun —
Vélaumboö.
Sími 31985.
Suðurlandsbraut 6.
□ VIÐGERÐAR OG
VATNSÞÉTTINGAR-
EFNI SEM GERA
MEIRA EN AÐ DUGA.
THORITE
Framúrskarandi viðgerðar-
efni fyrir steypugalla.
Þannig sparar það bæði
tíma og fyrirhöfn við móta-
uppslátt ofl. Thorite er til-
valið til viðgerða á rennum ofl.
ACRYL60
Eftir blöndun hefur efnið
tvöfaldan þenslueiginleika,
tvöfaldan þrýstieiginleika,
þrefaldan sveigjanleika og
áttfalda viðloðun miðað við
venjulega steypu.
WATERPLUG
Sementsefni sem stöðvar
rennandi vatn. Þenst út við
hömun og rýrnar ekki.
Þetta efni er talið alger bylt-
ing.
THOROGRIP
Thorogrip er sementsefni,
rýrnar ekki, fljótharðnandi.
Þenst út við þornun og er
ætlað til að festa ýmsa
málmhluti í stein og stein-
steypu.
!i steinprýöi
Stórhöfða 16, sími 83340 — 84780
TIMINN
Málsvar) tr)álalyndls,.
samvlnnu og fálagsliygjuu
Úlgefandi: Nútiminn h.f.
Ritstjórar: Magnús Ólatsson (ábm)
og Pórárinn Pórannsson
Ritstiórn. skritstofur og augiysmgar
Siðumúli 15, Reykjavik. Simi:
686300. Auglýsingasimi. 18300.
Kvöldsímar: 686387 og 686306.
Verð i lausasölu 25 kr.og 30 kr um
helgar
Askritt 275 kr.
iim oo umbrot: TufcnkroSS Nt.
Nýrdraumurum
ráðherrastóla
Ráöherrasósíalisminn
segir til sín
Hvenær sem forystumaður í Alþýöubanda-
lagi mundar penna drýpur ráðherrasósíal-
ismi á blað. Svavari Gestssyni og félögum
líöur illa utan stjórnarráös. Forystugrein NT
í gær telur Ólaf Ragnar Grímsson þyngst
haldinn af ráöherrasóttinni og mestan
áhugamann um stjórnaraöild Alþýöubanda-
lagsins. Staksteinar spegla í dag sjúkdóms-
einkennin, eins og þau koma framsóknar-
mönnum fyrir sjónir.
flokks, Bandalags Jafn-
Öngullinn og
homsflið
NT segir í forystugrein (
gær;
„Foringjum Alþýðu-
bandalagsins er Ijóst að
þeir munu ekki komast I
stjóm af eigin rammleik.
Þeir verða því að leita lið-
veizhi og helzt að samein-
ast einhverjum öðrum til
að fá styrk og tiltrú. í sam-
ræmi við þetta var gerð
breyting á lögum banda-
iagsins á flokksþingi þess
sl. vetur. Þessi breyting átti
að auðvelda öðram að ger-
ast þátttakendur í Alþýðu-
bandalaginu, án þess að
ganga endanlega í það.
Enn hefur þetta ekki
borið annan árangur en
þann að Fylkingin
svonefnda, sem er lengst
til vinstri, befur gerzt slik-
ur samstarfsaðili Alþýðu-
bandalagsins. Þetta þykir
að vonum rýr uppskera og
öfug við það sem til var
ætlast"
Alþýðubandaiagið réri
sumsé á þjóðarmið og
henti út samstarfskróki.
Þegar upp var dreginn öng-
ullinn mátti líta horað
hornsfli, Fylkinguna.
Naumast dugar sá að-
göngumiðinn að stjórnar-
ráðinu.
Brúúr
smáflokkum
Alþýðubandalagið hefur
nú hannað brú úr smá-
flokkum sem teljast til
stjórnarandstöðu, sem það
hyggst ganga eftir inn f
stjórnarráðið. Um þá ráða-
gerð segir NT mjt í for-
ystugreininni:
„Hugmyndafræðingur
bandalagsins og mestur
áhugamaður um stjórnar-
þátttöku, Olafur Ragnar
Grímsson, fer því á stúfana
í síðasta laugardagsblaði
Þjóðviljans (11. ágúst) og
hvetur til myndunar
svonefndrar flokkakeðju
með þátttöku Alþýðu-
bandalagsins, Alþýðu-
aðarmanna, Kvennalistans
og Flokks mannsins, sem
fær hjá Ólafi skammstöf-
unina M.
Þessi flokkakeðja á að
mynda kosningabandalag,
sem á að ganga undir
skammstöfuninni A-A-BJ-
KL-M.
Markmiðið á að vera að
allir þessir aðilar komist i
ríkisstjórn. Þeirri hugsjón
er þannig lýst í grein Olafs
Ragnars:
„Á grundvelli víðtækrar
stefnuskrár um kerfis-
breytingar gæti flokkakeðj-
an A-A-BJ-KL-M stigið enn
lengra á samstöðubraut-
inni og lýst þvf yflr að
flokkarnir myndu standa
sameiginlcga að stjórnar-
myndun. Annað hvort færu
þeir allir saman í ríkis-
stjórn eða enginn. Slíkt
bandalag gæti ( krafti
styrkleika síns gert kröfu
til að fá stjórnarmyndunar-
umboðið á undan Fram-
sóknarflokknum og jafnvel
einnig áður en Sjálfstæðis-
flokkurinn kæmi til greina.
Umra*ður um nýja stjórn
landsins yrðu þá að frum-
kvæði þessarar flokka-
keðju. Framsóknarflokkur-
inn og Sjálfstæðisflokkur-
inn ættu þá bara um tvo
kosti að velja: Að sætta sig
við málefnalega forystu
flokkakeðjunnar eða
hanga áfram saman báðum
til skapraunar.“
Flokkunum A-A-BJ-KL-
M er hér vissulega sýnt
fram á, að ekki sé til lítils
að vinna með slíkri flokka-
keðju. A.m.k. einn þeirra,
Alþýöubandalagið, hcfur
sýnt sig að vera áhugasam-
ur um slíka keðju, enda
myndi bersýnilega sem
stærsti flokkurinn hreppa
stjórnarforustuna. Hinir
gætu samt fengið álitlega
ráðherrastóla."
Gatasígtið
Það befúr stundum veríð
sagt um Framsóknarflokk-
inn að hann sé opinn í
báða enda. Alþýðubanda-
lagið er hinsvegar gatasigti,
skoöanalega, og lekur
„hugsjónum" eins og hrip,
ef ráðherrasósíalisminn er
annarsvegar.
Alþýðubandalagið hefur
setið í þremur aðildar-
stjóraum að NATO og
varnarsamningi við Banda-
ríkin, þrátt fyrir stór orð
um hið gagnstæða. Það
hefur krakkað í umsamin
laun, fellt gengið og hækk-
að skatta, sem stundum
heitir „kauprán", oftar en
töhi verður á komið. Það er
í raun dæmigerðasti tæki-
færisflokkur Lslenzkra
stjórnmála, sem breytir um
lit og lögun eftir aðstæð-
um.
Nýjasta snilldar-hug-
mynd Ólafs Ragnars um
„ilokkakeðjuna A-A-BJ-
KL-M“ sem „annaðhvort
færu allir saman í rikis-
stjórn eða enginn" er upp-
Ijómun sem segir sex. Nú á
að veiða annað og meira f
netið en horað hornsfli
Fylkingarinnar. Ráðherra-
sósíalisminn er ekki af
baki dottinn þegar stjórn-
arráðið er annarsvegar.
Þjóð sem hefur svoddan
skemmtikrafta upp á að
hlaupa varðveitir bros {
augum, þrátt fyrir fimm
vikna rigningu!
„Sumir þegar búnir að
fá þessa kauphækkun“
— segir Björn Arnþórsson, hagfræöingur BSRB
vegna 30% kauphækkunarkröfu BSRB 1. september
„Þær forsendur, sem Geir
Haarde virðist gefa sér í þeirri
verðbólguspá sem hann er með f
Morgunblaðinu í tilefni af kröfu-
gerð BSRB, eru að því er mér sýn-
ist þessar. í fyrsta lagi að allir
landsmenn fái 30% launahækkun
1. september, í öðru lagi að öll sú
hækkun fari beint út í verðlagið
og í þriðja lagi að gengið verði
fellt,“ sagði Björn Arnórsson,
hagfræðingur Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja, er Morgun-
blaðið bar undir hann orð Geir
Haarde, aðstoðarmanns fjármála-
ráðherra, fyrr í mánuðinum þess
efnis að verðbólgan verði 80% nái
kröfugerð BSRB fram að ganga.
„Að þessum forsendum gefn-
um fæst að sjálfsögðu gífurleg
skriða verðhækkana á síðasta
ársfjórðungi ársins í ár. Síðan er
reiknað með því að sama skriðan
haldist út allt næsta ár, sem
hlýtur að merkja það að kaup-
hækkanir eru að einhverju leyti
látnar halda sér út árið, þá til
dæmis með vísitölutryggingu
eða einhverju öðru,“ sagði Björn
ennfremur.
„Um fyrstu forsenduna er það
að segja að einhver hópur í þjóð-
félaginu er þegar búinn að fá
þessa Kauphækkun, samanber
frétt í Morgunblaðinu í dag,
þriðjudag, um kauphækkanir
hjá starfsfólki Sláturfélags Suð-
urlands.
Það má í öðru lagi fullyrða
það, að staða fyrirtækjanna í
landinu er almennt það góð, eftir
þá milljarðatilfærslu sem fram-
ALÞJÓÐLEGT skákmót ungl-
inga, undir 19 ára aldri, stendur
nú yfír í Zas van Gent í Hollandi,
en meðal þátttakenda þar er ís-
lenski skákmaðurinn Pálmi Pét-
ursson. Fimm umferðum er nú
lokið í mótinu og hefur Pálma
gengið fremur illa það sem af er,
gert tvö jafntefli og tapað þremur
skákum.
Fjórar umferðir eru nú eftir í
mótinu, sem lýkur á föstudaginn
kvæmd hefur verið frá launa-
fólki til atvinnurekenda, að frá-
leitt er að ætla að kauphækkanir
almennt fari beint út í verðlagið.
Munu til dæmis vörur frá Slát-
urfélaginu hækka sem svarar
fyrrnefndri kauphækkun.
Að síðustu er rétt að undir-
strika það að óvissan í gengis-
málum gerir allar verðbólguspár
nú mjög óvissar, þar sem gengið
hefur nú afgerandi þýðingu um-
fram kaupið," sagði Björn Arn-
órsson, hagfræðingur BSRB, að
lokum.
næstkomandi og eru nú efstir
Sahec frá Júgóslavíu og Bellotti
frá Ítalíu með fjóra vinninga og
biðskák. Pálmi sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að hann
væri afar óánægður með
frammistöðu sína í mótinu fram
til þessa, en kvaðst þó mundu
reyna að gera sitt besta í þeim
skákum sem eftir eru. I mótinu
taka þátt 28 ungir skákmenn
víðsvegar úr heiminum.
ECl-skákmótið i Hollandi:
Slæm byrjun Pálma