Morgunblaðið - 15.08.1984, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
15
Hafnarfjörður
Til sölu m.a.:
Kaldakinn
2ja herb. ibúö á aöalhæö í tví-
býlishúsi meö bílskúr. Laus
strax.
Móabarö
5—6 herb. einb.hús að hluta á 2
hæöum 170 fm alls. Mikið útsýni.
Álfaskeið
5—6 herb. 130 fm endaíb. á 1.
haBÖ í fjölbýlishúsi. Bílsk.réttur.
Álftanes
5 herb., mjög vandaö nýtt timb-
urhús 220 fm á einni hæö.
Bílskúr.
Mávahlíö — Rvk.
4ra—5 herb. 120 fm risíbúö.
Álfaskeið
4ra—5 herb. íb. á 2. hæö í fjöl-
býlishúsi. Nýjar innr. og teppi.
Bílskúrsréttur.
Selvogsgata
4ra—5 herb. efri hæð í tvíbýl-
ishúsi meö bílskúr.
Öldutún
4ra herb. íbúö á jaröhæö í þrí-
býlishúsi. Laus strax.
Hraunhvammur
3ja—4ra herb. efri haBÖ 96 fm.
Laus strax.
Hólabraut
3ja—4ra herb. íbúö á neöri
hæö. Allt sér. Bílskúr.
Grænakinn
3ja herb. risíb. 90 fm. Sérinng.
Miðvangur
3ja herb. endaíbúö á 5. hæö í
háhýsi.
Selvogsgata
2ja herb. íb. á efri hæð í stein-
húsi. Laus strax. Verö 1,3 millj.
Söluturn í Hafnarfirði til
sölu.
Fjöldi annarra eigna á
söluskrá.
FASTEIGNASALA
Árna Gunnlaugssonar
Austurgötu 10 - $: 50764
VALfiEfR KRISTINSSON, HDL.
Kveiuialist
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Myndlist
Valtýr Pétursson
Á Kjarvalsstöðum eru nú tvær
sýningar og önnur þeirra er ein-
göngu kvennaverk en aðeins einn
karlmaður á hinni. Það eru níu
sýnendur í vestursalnum, og
vinna þær í mismunandi efni.
Þær mála, vinna skúlptúr og
teikna. Enda þótt þessar lista-
konur vinni í svo ólík efni, eru
þær nokkuð á sömu bylgjulengd,
hvað stíl og viðhorf snertir í list-
inni. Þær hafa allar gengið í læri
hjá nútímakennurum og hyllast
þvi meira og minna að þeim til-
raunum, sem efst hafa verið á
baugi undanfarið. Nútímamál-
verkið á sterk ítök í þessum hópi,
og er það mjög svo skiljanlegt.
Það er hressilegur blær yfir
þessari sýningu 1 heild, og víða
eru nokkuð snörp átök. Aðallega
verður maður þessa var í lita-
meðferð og ég held, að ekki sé
ofsagt, að listakonurnar leggi
mesta áherslu á litameðferð og
minna á teikningu. Það má því
draga þá ályktun af þessum
verkum, að málverkið sjálft sé i
brennidepli hjá þessum hópi, ef
svo mætti að orði kveða.
Tvær af þessum konum hafa
nýlega haldið einkasýningu á
verkum sínum í Listmunahúsinu
við Lækjargötu, og ein hélt sýn-
ingu í Nýlistasafninu ekki fyrir
löngu. Þarna er því ekki nýgræð-
ingur á ferð í myndlist. Allur er
þessi hópur vel skólaður bæði
hér heima og erlendis, og þvi
ætti að vera kominn nokkuð
fastur svipur á hverja listakonu
fyrir sig.
Erla Þórarinsdóttir sýnir að-
allega kritarmyndir og eru þær
til orðnar vitt og breitt. Sumar
frá París, aðrar frá New York og
fleiri stöðum. Hún hefur þrótt-
mikla litameðferð, en teikning
hennar er langt frá þvi að vera
markviss. Ragna St. Ingadóttir
vinnur með akryl á pappír og er
nokkuð snöggsoðin f litameðferð
sinni, en það er djarflega unnið
og nokkur spenna í myndum
hennar. Jóhanna Kristín Yngva-
dóttir, sem hélt glæsilega sýn-
ingu í Listmunahúsinu í vetur er
leið, á þarna nokkur verk, sem
því miður voru nokkuð þung i
litnum fyrir minn smekk, en
samt hafa þau vissa dulúðuga
tilfinningu, sem er áhrifamikil
og sannfærandi, en ekki sérlega
upplífgandi. Ég verð að játa, að
þessi verk ollu mér nokkrum
vonbrigðum. Steinunn Þórar-
insdóttir teiknar i steypuvír og
sýnir enn einu sinni, að hún veit,
hvað hún er að gera. Björg örvar
sýnir mikla litagleði, sem geislar
af lífskrafti, og hún notar ágæt
vinnubrögð við myndgerð sína.
Hún kom mér sannarlega á
óvart með þessum verkum. Sóley
Eiríksdóttir vinnur í steinleir og
portrett eru hennar viðfangs-
efni. Ásta Ríkharðsdóttir málar
með olíulitum á striga, nokkuð
hranaleg i litum en hressileg og
byggir verk sín á lógískan hátt.
Harpa Björnsdóttir vakti at-
hygli mína fyrir verk, sem unnin
eru með blandaðri tækni og hafa
til að bera mannlegar tilfinn-
ingar, sem speglast einna
sterkast i mjúkum og ffnlegum
litum. Að endingu er það Guðný
Björk Richard, sem sýnir
myndröð, gerða með olíulitum á
pappír.
Það er hressilegur blær yfir
þessari sýningu, og þarna er
margt að sjá. Það mætti eflaust
finna ýmislegt athugavert við
sum þessara verka, en látum það
lönd og leið hér. Það eru listræn
átök í sumum þessara verka,
önnur eru síðri, eins og svo oft
vill verða, þegar fólk tekur sig
saman og sýnir i stórum hópum.
Það mætti vera meiri lífsreynsla
í þessu samsafni, en hér eru ung-
ar konur á ferð og hver veit
nema tið og timi eigi eftir að
verða þeim sú uppákoma, sem
dugar til að gera meiri og betri
verk. Ég er ekki í neinum vafa
um, að þarna eru hæfileikar á
ferð, en það er gamla sagan,
hlutirnir verða að þróast og taka
á sig það snið, sem þroski á lista-
brautinni einn getur mótað.
Valtýr Pétursson
Dönsk héraðsblöð
hugleiða samstarf
um útgáfu sunnu-
dagsblaðs
TUTTUGU og tvö dönsk héraðsblöð
munu taka um það lokaákvörðun {
næsta mánuði, hvort þau ráðast í
sameiginlega útgáfu sunnudagsblaðs,
sem þá gæti orðið stærsta blað lands-
ins með um 400.000 eintaka upplag,
að sögn danska blaðsins Politiken.
Aðeins tvær af útgáfum fyrr-
nefndra blaða hafa sunnudagsblað
fyrir, en áskrifendur allra blað-
anna 22 eru samtals um 400.000
talsins.
Sunnudagsblað þetta gæti, ef af
verður, verið komið á götuna þegar
í haust. Um það verður tekin
ákvörðun á fundi útgáfustjórnanna
í septembermánuði, eins og fyrr
var sagt.
jHflr&mnfrlnfrffr
Áskriftarsiininn er 83033
Til sölu
Glæsilegt verslunar- iönaöar- og skrifstofu-
húsnæöi aö
Tryggvabraut 22, Akureyri.
Gólfflötur Lofthæó
Bakhús 315 fm 4,00 m
1. hæö 417 fm. 3,20 m
2. hæö 360 fm. 2,80 m
3. hæð 360 fm. 2,80 m
Valdemar Baldvinsson hf., Akureyri.
Upplýsingar:
Hólmgeir Valdimarsson 96-21344
Baldur Guövinsson 96-21344
Baldvin Valdimarsson 91-78633