Morgunblaðið - 15.08.1984, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGtJST 1984
Deilt um réttmæti þess
að nota plastkúlurnar
Belfut, NorAur-frlandi, 14. águal. AP.
AÐGERÐIR lögreglunnar gegn
mannsöfnuði á útifundi hér í borg, sem
ollu því að ungur maður lét lífið og 20
manns hlutu sár, hafa vakið upp deilur
um réttmæti þess að nota plastkúlurn-
ar sem öryggissveitir á Norður-írlandi
beita.
Petrosyan
látinn
Moskvu, 14. ágúst. AP.
SOVÉTMAÐURINN Tigran V. Petr-
osyan, sem var heimsmeistari í skák á
árunum 1963—1969, er látinn, 55 ára
að aldri. Tass-fréttastofan greindi frá
þessu í dag og sagði að hann hefði átt
við langvarandi vanheil.su að stríða.
Petrosyan er almennt álitinn einn
fremsti skákmaður þessarar aldar.
Hann vann heimsmeistaratitil sinn í
einvígi við Mikhail Botvinnik árið
1963 og sigraði áskorandann Boris
Spassky árið 1966. Þremur árum síð-
ar bar Spassky hins vegar sigurorð
af honum.
Tugir lögreglumanna réðust til at-
lögu við mannfjöldann og skutu
beint af augum á fólkið, sem ruddist
um og tróð niður skelfingu lostin
gamalmenni og börn.
Lögreglan sagðist hafa orðið fyrir
grjótkasti eftir að hún hafði gert
misheppnaða tilraun til að handtaka
bandaríska lögfræðinginn Martin
Galvin.
Ungi maðurinn sem lést af völdum
plastkúluskotsins var 15. kaþólikk-
inn, sem veginn er með þessum
skotfærum. Hundruð hafa slasast
eða særstaf þeirra völdum, og a.m.k.
60 einstaklingar alvarlega. Um
helmingur hinna slösuðu hafa verið
börn.
Norður-írlandsmálaskrifstofan
gaf þær upplýsingar, að breskar
varðsveitir hefðu hleypt af meira en
43.000 plast- eða gúmmíkúlum frá
árinu 1972, þegar skráning hófst.
Lögregla mótmælenda hefur hleypt
af meira en 20.000 plastkúlum frá
árinu 1978, er hún hóf að nota nær í
átökum við óeirðaflokka.
Margar kirkjudeildir og mann-
réttindasamtök hafa barist fyrir því
að hætt yrði að nota kúlurnar. Evr-
ópuþingið í Strassborg samþykkti í
maí 1982 bann við notkun kúlnanna í
löndum Evrópubandalagsins.
Laurence Rocke, yfirskurðlæknir á
Belfast’s Royal Victoria-sjúkrahús-
inu, þar sem hundruð fórnardýra
plastkúlnanna hafa verið til með-
ferðar, sagði að u.þ.b. þriðjungur
hinna særðu hefði hlotið höfuð-
áverka, enda þótt reglur mæltu svo
fyrir, að skotum skyldi beint niður
fyrir mittisstað.
Plastkúlurnar eru 31,75 mm I
þvermál og vega tæplega 150 grömm.
Er þeim skotið með meira en 160 km
hraða. Segja yfirvöld, að þær séu
ekki eins hættulegar og venjuleg
skotfæri.
Lögreglumönnum er svo fyrirskip-
að að skjóta á minnst 60 metra færi,
en á sunnudag horfðu fréttamenn á
lögreglumennina skjóta af stuttu
færi á mannfjöldann á útifundinum.
Fréttamenn sem urðu vitni að því,
þegar ungi maðurinn var skotinn,
sögðu, að lögreglumaðurinn, sem
valdur var að dauða hans, hefði skot-
ið á hann á aðeins fárra feta færi.
Frá Ólympíuleikunum í Los Angeles. Mynd þessi var tekin í upphafi leik-
anna.
Olympmleikunum hrós-
að í fjölmörgum löndum
„Áróðurssýning," segir Tass
New York, 14. ágúst. AP.
SOVÉZKA fréttastofan TASS kall-
Tigran V. Petrosyan, fyrrum heims-
meistari í skák.
Veður
víða um heim
Akureyri 13 skýjaó
Amsterdam 26 heióskírt
Aþena 35 heióskirt
Ðarcelona 26 mistur
Berlin 25 heióskírt
BrUaael 26 heióskirt
Chícago 27 heióskírt
Dublin 16 ský|aó
Feneyjar 20 rigning
Frankfurt 24 heióskirt
Genf 24 heióskfrt
Helsinki 17 tkýjaó
Hong Kong 31 skýjað
Jerúsalem 29 heióskírt
Kaupmannahöfn 24 heióskirt
Las Palmas 25 Mttskýiaó
Lissabon 30 heióskfrt
London 24 heióskírt
Los Angeles 2931 heiðskirt
Lúaemborg 24 lóttskýiaó
Malaga 26 heióskirt
MaUorca 28 heiöskírt
Miami 30 skýjaó
Montreal 30 skýiaó
Moskva 16 skýjaó
New Vork 28 skýjaó
Óstó 25 rigning
París 24 skýiaó
Peking 31 skýiað
Reykjavfk 9 súid
Rió de Janeirö 34 skýiaó
Rómaborg 30 heióskírt
Stokkhólmur 19 háifskýjaó
Sydney 17 skýjaó
Tókýó 34 heióskfrt
Vínarborg 22 hsióskírt
Þórshöfn 14 skýjaó
aði í dag Ólympíuleikana í Los Ang-
eles „áróðurssýningu“. Fjölmiðlar í
mörgum löndum öðrum hafa hins
vegar hrósað leikunum mjög, enda
þótt þeim finnist sem þar hafí gætt
of mikillar verzlunarhyggju og and-
rúmsloftið á leikunum verið Banda-
ríkjamönnum of mikið í hag.
Stjórnarblaðið Izvestia í
Moskvu komst svo að orði í dag, að
flest gullverðlaun, sem Banda-
ríkjamenn hefðu náð að vinna á
fyrri Ólympíuleikum, hafi verið
Ógnun við
— segja kínversk yfirvöld
Peking, 14. igúst. AP.
KÍNVERJAR eru gramir og reiðir
stjórnvöldum í Suður-Kóreu, sem látið
hafa sex kínverska flugræningja lausa
og leyft þeim að fara til Taiwan þar
sem þeim hefur verið veitt hæli sem
pólitískir flóttamenn og þeir að auki
verið heiðraðir fyrir „hetjulega fram-
göngu“.
I yfirlýsingu frá kínverska utan-
ríkisráðuneytinu i dag segir að þessi
45, en i leikunum nú hafi þeir unn-
ið 83 gullverðlaun. Skýringin sé
augljós. „Það er fjarvera Sovét-
manna og fleiri þjóða frá leikun-
um og ekkert annað," segir
Izvestia.
Brezka blaðið The Standard
segir, að þrátt fyrir gagnrýni „beri
að þakka það eins og Guðs gjöf, að
þessir leikar, sem hlutu jafn
slæman fyrirboða og raun bar
vitni — hvort sem það var af
stjórnmálaástæðum eða af öðrum
orsökum — runnu skeið sitt á
enda í friði og vináttu."
flugöryggi
ákvörðun Suður-Kóreumanna stofni
alþjóðlegum flugsamgöngum í hættu
og sé brot á alþjóðlegum samþykkt-
um um flugmál.
Sexmenningarnir rændu kín-
verskri farþegaþotu, sem var 1 inn-
anlandsflugi, í maí í fyrra og neyddu
flugmanninn til að fljúga til Seoul,
höfuðborgar Suður-Kóreu. Þar voru
þeir handteknir og dæmdir í fangelsi
fyrir brot á lögum um flugöryggi og
fyrir að bera vopn í óleyfi.
óháða blaðið Helsingi Sanomat
í Finnlandi kemst svo að orði, að
„hinn gullni orðstír ólympíuborg-
arinnar hvarf stundum í skuggann
af ákafri bandarískri föðurlands-
ást.“
Vestur-þýzka útvarpsstöðin
Deutsche Welle segir um leikana,
að með fjarveru sinni hafi Sovét-
ríkin ekki aðeins móðgað vini sína,
Los Angeles, 14. ágúst. AP.
JUAN Antonio Samaranch, forseti
Alþjóða Ólympíunefndarinnar, sagð-
ist í dag myndu ræða þá ákvörðun
að halda næstu Ólympíuleika í
Suður-Kóreu við sovézka embætt-
ismenn snemma í næsta mánuði.
Sagði Samaranch það vera ásetning
nefndarinnar að hagga ekki þeirri
ákvörðun að halda leikana f Seoul.
Myndi það engin áhrif hafa, þótt
Sovétríkin tækju ekki þátt í fyrir-
huguðum Ólympíuieikum þar.
„Við í Alþjóða ólympíunefnd-
inni erum alvarlega hugsandi fólk.
Þegar við undirritum samninga,
heldur einnig aukið á sigurhorfur
andstæðings síns, Ronalds Reag-
ans, í forsetakosningunum í
Bandaríkjunum í haust. „Sovét-
ríkin hafa sært vinaríki sín háska-
lega. Þessi ríki vildu senda
íþróttamenn sína til leikanna og
Austur-Þýzkaland sér í lagi gat
gert sér miklar vonir varðandi
leikana."
þá virðum við þá,“ var haft eftir
Samaranch í dag. Hann kvaðst
„viss um“, að öll aðildarríki
Ólympíuhreyfingarinnar myndu
taka þátt í leikunum í Seoul.
Heimsókn hans til Moskvu nú
hefði verið ákveðin fyrir ári, en þá
hefði hann verið beðinn um að
vera í forsæti á ráðstefnu til efl-
ingar á einingu innan ólympíu-
hreyfingarinnar.
„Þá var hvergi á það minnzt af
nokkrum manni að taka ekki þátt
í leikunum," var haft eftir Samar-
anch.
Naktar fyrirsætur leyfðar
í kínverskum listaskólum
Peking, 14. ágúet AP.
TÍU fiiyndli.starskólar í Kína munu
á komandi starfsári ráða til sín
fólk til að sitja nakið fyrir í æf-
ingateiknitímum nemenda. Frá
þessu var skýrt í grein í kínverska
kvöldblaðinu Beijing Wanbao f
dag.
Eftir byltingu kommúnista í
Kína árið 1949 hefur það ekki
tíðkast að fólk sæti nakið fyrir í
teiknitímum myndlistarnema,
en slíkt er alsiða í listaskólum í
flestum öðrum löndum. Hafa
kommúnistar í Kina litið svo á
að teikningar af nöktu fólki
væru klám.
í greininni i kvöldblaðinu er
almenningur hvattur til að lita á
teikningar af nöktum mannslik-
amanum nýjum augum og vera
ekki hleypidómafullur i garð
þeirra, sem fallast á að sitja
naktir fyrir. „Fram að þessu,"
segir í greininni, „hafa margir
kommúnistar verið andvigir
nöktum fyrirsætum og liggja til
þess tvær ástæður. Önnur er sú
að þeir hafa lítinn skilning á list
og hins vegar eru margir þeirra
enn bundnir hugsunarhætti
lénsskipulagsins."
Bent er á það í blaðinu að fyrir
tuttugu árum hafi Maó formað-
ur látið athuga þetta mál og
komist að þeirri niðurstöðu að af
listrænum ástæðum skyldu
naktar fyrirsætur heimilaðar í
myndlistarskólum og þær væru
að auki nauðsynlegar til að
þroska teiknigáfu nemenda.
Sex flugræningjar látnir lausir í Suður-Kóreu:
Haldiö verður
fast við Seoul
— sem vettvang næstu Ólympíuleika