Morgunblaðið - 15.08.1984, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
33
Mótettukór Hallgrfmskirkju:
í Kristskirkju í kvöld — til
Þýskalands á laugardaginn
Mótettukór Hallgrímskirkju
býður til tónleika í Kristskirkju í
Landakoti miðvikudaginn 15. ág-
úst og hefjast þeir klukkan 20.30.
Tilefni þessara sumartónleika er
ferð kórsins til Þýskalands dagana
18. ágúst til 2. september og eru
þeir lokaáfangi í undirbúningi
ferðarinnar. Hörður Áskelsson,
organisti Hallgrímskirkju, er
stjórnandi kórsins og var hann
spurður um tilefni Þýskalands-
ferðarinnar:
— Eftir að ég kom heim frá
námi í Dusseldorf hefur sú hug-
mynd blundað með mér að gaman
væri að heimsækja þessar slóðir
þegar ég væri kominn með svo
góðan kór að ég treysti honum til
þess. Stafar það ekki síst af því að
ég var sjálfur stjórnandi kórs þar
úti eitt ár eftir námið. Það má
kannski segja að við förum þessa
ferð fyrr en eðlilegt má teljast þar
sem kórinn er ekki nema tveggja
ára gamall, en öðrum þræði er
lagt útí þetta núna til að viðhalda
kynnum við vini og kunningja sem
eiga gott með að taka á móti svona
hóp.
Það sem ýtti okkur svo endan-
lega út í þetta var boð íslendinga-
félagsins í Dortmund. Inga Rós
Ingólfsdóttir, konan mín, og ég
vorum þar í hljómleikaferð í apríl
1983 og þegar þeir spurðu hvenær
við kæmum aftur spurði ég hvort
ég ætti ekki bara að koma með
kórinn. Það varð úr um leið og
Islendingafélagið var formlega
stofnað á liðnu hausti að kórinn
var beðinn að koma og taka þátt í
Islandsviku nú í ágúst og er þetta
fyrsta tiltæki þessa nýstofnaða ís-
lendingafélags. Auk þessa félags
hafa starfsbræður mínir í Duss-
eldorf og Margrét Bóasdóttir, sem
búsett er f Heidelberg, aðstoðað
við að skipuleggja og undirbúa
liðs við okkur. Hann mun leika þar
Chaconnu Páls Isólfssonar og
frumflutt verður verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, sem hann kallar
kirkjusónötu. Hún er samin fyrir
basetthorn, selló og orgel og eru
flytjendur Kjartan Óskarsson og
Inga Rós Ingólfsdóttir ásamt mér.
Sérstakir kammertónleikar
verða síðan í Dortmund. Þar flyt-
ur Margrét Bóasdóttir íslensk
sönglög, Hrefna Eggertsdóttir,
Inga Rós og Kjartan flytja klarin-
ettutríó eftir Brahms, þjóðlög í út-
setningu Hafliða Hallgrímssonar
og sónötu eftir Jón Þórarinsson.
Heimsókn á
Bach-námskeið
Hörður Áskelsson upplýsti að
fyrstu dagana hefði kórinn aðset-
ur í Heidelberg og 19. ágúst verða
fyrstu tónleikarnir í Speyer. Dag-
inn eftir heimsækir kórinn Bach-
-námskeið í Stuttgart, en því
stjórnar Helmut Rilling, kunnur
Bach-stjórnandi. Á þessum árlegu
námskeiðum eru æfðar nokkrar
kantötur, stjómendur, einleikarar
og einsöngvarar njóta tilsagnar
valinkur.nra leiðbeinenda og vinna
að einni kantötu í dag sem þeir
flytja ásamt atvinnukór á tónleik-
um að kvöldi. Sagði Hörður það
fróðlegt að geta litið við á nám-
skeiði sem þessu, en hann tók þátt
í stjórnendakennslunni þar á sl.
sumri.
Síðan eru tónleikar í Werdohl í
Sauerland og í Kamen. I Dort-
mund gistir kórinn hjá íslandsvin-
um og Bach-kórnum í borginni.
Þar syngur kórinn við opnun ís-
landsvikunnar og síðan á sérstök-
um hátíðartónleikum. Meðal ann-
arra atriða á íslandsvikunni má
nefna ræðu dr. Gylfa Þ. Gíslason-
ar og fjallað verður um islenskan
Mótettukór Hallgrímskirkju á æfingu í Kristskirkju
ferðina, en alls verða tónleikarnir
átta á 14 dögum.
*
Islensk og er-
lend tónverk
Ljóam. ól.K.M.
Hvaða tónlist á að bjóða Þjóðverj-
um að hlýða á?
— Við erum eiginlega með tvær
efnisskrár og notum eins konar
blöndu úr þeim á hverjum tónleik-
um. Af erlendri tónlist má nefna
mótettur frá ýmsum tímum eftir
Bruckner, Britten, Duruflé, Poul-
enc, Mendelssohn og Bach, en eftir
hann syngjum við Jesu, meine
Freude, sömu mótettu og við flutt-
um á íslensku á tónleikum í
Kristskirkju nú í vor. íslensk tón-
list er m.a. sálmalög og útsetn-
ingar við texta Hailgríms Péturs-
sonar. Einnig verður flutt verk
sem ég samdi fyrir nokkru við 84.
Davíðssálm fyrir kór og einsöngs-
rödd. Margrét Bóasdóttir sópran-
söngkona fer með einsöngshlut-
verkið en hún verður með okkur í
ferðinni.
En auk kórsins höfum við aðra
tónlistarmenn með í för, því bæði
eru atvinnutónlistarmenn í kórn-
um og fleiri slógust í hópinn. í
Neanderkirkjunni í Dússeldorf
göngum við inn í röð orgeltónleika
sem þar eru i sumar þar sem
Martein H. Friðriksson kemur til
á íslandi. Einnig má nefna að við
teljum okkur geta unnið landinu
gagn ef vel tekst til.
En er það ekkert bíræfið að
syngja Jesu meine Freude á þýsku
fyrir Þjóðverja og aðra kirkjutónlist
sem þeir þekkja út og inn?
— Vissulega má telja þetta
nokkra ögrun, því efnisskráin er
mikið byggð á mótettum, sem
hliðstæðir erlendir kórar hafa til
meðferðar. Það er kannski rangt
metið, en þetta er að nokkru leyti
gert til að læra af því, meta hvar
við stöndum og til að fá ábend-
ingar um hvort og hvar við getum
bætt okkur til að ná meiri árangri.
Og hvað úr efnisskránni verður
flutt á tónleikunum í Kristskirkju?
— Við munum flytja mótettur
eftir Duruflé, Mendelssohn,
Hassler, Scarlatti, Bruckner og
Britten. Meðal íslenskra verka eru
sálmalög, Kvöldbænir eftir Þorkel
Sigurbjörnsson og Sálmur 84,
verkið sem ég samdi fyrir nokkru.
Að lokum má taka fram að tón-
leikar Mótettukórs Hallgríms-
kirkju hefjast klukkan 20.30 í
Kristskirkju.
Það er ekki nóg að æfa tónlistina — vissara er að vera sómasamlega til fara
og hér eru nokkrar kvennanna við saumaskapinn. (Karlarnir notuðu hins
vegar herrabúðirnar.)
skáldskap, auk sýninga o.fl. í
Dortmund verða einnig kammer-
tónleikarnir sem áður var minnst
á en síðan er haldið til Dússeldorf
og gist þar síðustu 6 dagana. Þar
verða tvennir tónleikar og einn
daginn verður sungið í St. Ap-
osteln-basilikunni í Köln.
Stolt eða minni-
máttarkennd
En næst er Hörður spurður af
hverju farið er út í svona ferð:
— Það er tvímælalaust mikils
virði fyrir kórinn sem hljóðfæri að
taka þátt í ferð sem þessari og
öðlast þá reynslu að koma fram á
svo mörgum tónleikum við mis-
jafnar aðstæður. Félagslega er
þetta einnig mikilvægt og þegar
kórfélagar hafa sameinast í þessu
mikla átaki er enginn vafi á að
fram kemur samstæður kór sem
hefur alla burði til að geta verið
góður, þegar þessari persónulegu
og félagslegu samstillingu hefur
verið náð.
Auðvitað er líka í þessu eitt-
hvert stolt okkar — eða kannski
minnimáttarkennd — það hefur
alltaf þótt eftirsóknarvert að öðl-
ast viðurkenningu erlendis og mér
er það auðvitað metnaður að geta
sýnt gömlum starfsbræðrum
þarna úti hvers við erum megnug
eftir að við fengum fflltD
geislaofninn frá. RÖNNING
segja hjónin Guðmundur Einarsson, rafvirki og
Ólöf Sigurðardóttir, húsmóðir, sem hafa Frico
geislaofninn í garðhúsinu sínu í Garðabæ. Þau
kveikja iðulega á Frico geislaofninum þegar setið
er meðal blómanna, enda kostar slíkur ylur ekki
nema ca. kr. 20.00 í heila fjóra tíma.
Frico geislaofninn er tilvalinn vermir á svalir,
útiverustaði og garðhús þegar svalt er í veðri
góðviðrisdögum á íslandi.
LENGJUM SUMARIÐ
MEÐ fflltD GEISLAOFNI.