Morgunblaðið - 15.08.1984, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
35
Yfirleitt lítill verðmun-
ur á timbri og iárni
Verðlagsstofnun hefur
kannað verðlag á bygginga-
vörum í verslunum á höfuð-
borgarsvæðinu og fór verð-
athugun fram dagana 16. til
20. júlí sl. í frétt frá stofn-
uninni segir að þrátt fyrir
að könnunin nái ekki til
allra vöruflokka, sem seldir
eru í byggingavöruverzlun-
um og ekki til allra verzl-
ana á svæðinu verði að telja
hana nægilega umfangs-
mikla til þess að gefa vís-
bendingu um allmikinn
verðmun á einstökum vöru-
tegundum.
í úrvinnslu er könnuninni
skipt niður í fjóra flokka: timb-
ur, járn og fleira, efni til pípu-
lagna, hreinlætis- og blöndunar-
tæki og efni til raflagna.
Helstu niðurstöður könnunar-
innar eru eftirfarandi sam-
kvæmt frétt Verðlagsstofnunar:
1) Verðmunur á grófari bygg-
ingavörum eins og t.d. timbri og
járni var í flestum tilvikum lít-
ill. í öðrum vöruflokkum var
verðmunurinn hins vegar í
mörgum tilvikum verulegur.
2) Á efni til raflagna munaði
oft verulega. Sem dæmi má
nefna að verðmunur á Ioftdós
var mestur 154,5% og á tenglum
150%.
3) Á efni til pípulagna munaði
mestu á rennilokum eða 121,3%.
4) Á glerlistum munaði 105% á
hæsta og lægsta verði.
5) í hreinlætistækjum var verð-
munur á ákveðinni tegund af
handlaug 23% og á klósetti
16,4%.
„Leggja ber áherslu á að um
mismunandi gæði getur verið að
ræða á vörum, sem ekki eru
seldar undir ákveðnum vöru-
merkjum (t.d. timbur og rör). Þá
er ekki raunhæft að bera saman
verð á þeim vörumerkjum í
hreinlætis- og blöndunar-
tækjum sem í könnuninni eru
þar sem um mismunandi gerðir
getur verið að ræða. í þeim til-
vikum felst gildi könnunarinnar
í því að sýna að verð á nákvæm-
lega sömu merkjavöru getur
Allt að 154 %
verðmunur á
loftdósum og
121 % á efni
til pípulagna
verið mismunandi milli versl-
ana,“ segir í fréttinni.
Tilgangur með verðkönnunum
er að vekja athygli neytenda á
þeim mikla verðmun sem getur
verið á milli verzlana og örva
með því verðskyn neytenda. í
frétt Verðlagsstofnunar segir að
án öflugs aðhalds af hálfu neyt-
enda fái virk samkeppni ekki
notið sín. Það sé mikilvægt að
neytendur geri sér ljóst að verð-
kannanir og önnur verðgæzla af
opinberri hálfu sé liður i barátt-
unni við verðbólgu, en verðgæzla
geti aldrei komið í staðinn fyrir
vakandi eftirlit og dómgreind
hins almenna kaupanda.
Verðkynning Verðlagsstofn-
unar liggur frammi fyrir al-
menning hjá Verðlagsstofnun,
Borgartúni 7, og hjá fulltrúum
stofnunarinnar úti á landi. Þeir
sem þess óska geta gerst áskrif-
endur að Verðkynningu Verð-
lagsstofnunar sér að kostnaðar-
lausu.
Efni til raflagna Ratmagnsror plast, 16 mm verft pr. stk Loftdosir 8 stutar 50-60 mm verð pr. stk. Rofa- og tengladós verð pr. stk. Vir 1,5 q verð pr. m Lagspennustrengur 8lina verðpr.m Tengi verð pr. stk. Klo. 10 amp. m. jörð verð pr. stk. Lekastaumsrofi verð pr. stk.
Brynja, Laugavegi 29, R. 5,00 35,00
BYKO, Kópavogi 5,50 34,20 20,30 4,00 22,00
Glóey, Ármula 28, R. 7,00 42,00 2,61 27,00 4,00 32,00 1203,00
Gos hf„ Kleppsvegi 152, R. 6,00 22,00 22,00 2,03 2,00 26,00 940,00
Haukur og Ólafur, Ármula 32, R. 7,00 32,00 34,00 4,00 5,00 31,00 1304,00
Húsasmiöjan, Súðavogi 3-5, R. 4,80 35,67
JL byggingavörur, Hringbraut 120, R. 7,00 56,00 28,00 2,95 4,50 30,00
Málmur, Reykjavíkurv. 50, Hafnarfiröi 29,00
Rafvörur, Laugarnesvegi 52, R. 7,00 39,00 31,00 2,70 32,00 4,50 32,00 1536,00
Segull, Nýlendugötu 26, R. 7,20 55,15 24,30 2,95 3,95 29,00
Smiðsbúö, Smiðsbúö 8, Garöabæ 4,00 28,00
Hæsta verð 7,20 56,00 34,00 4,00 32.00 5.00 35,67 1536,00
Uegsta verð 5,50 22,00 20,30 2.03 27,00 2,00 22,00 940.00
Mismunur á hæsta og lægsta verðí % 30,9% 154,5% 67,5% 97,0% 18,5% 150,0% 62,1% 63,4%
Hreinlætis- og blöndunartæki
Handlaug Gustavs- bergnr. 640 Handlaug Ifö nr. 2842 Klosett Gustavs- berg nr. 325 Klosett Ifó nr. 3260 Blöndunart. f. baðk. Grohe nr. 25112 Blönd.t. f. handl Grohenr. 21154 Blónd.t. t. handl. Damixa nr. 30011 Blönd.t. f. baðkar Damixa nr. 63100
BB byggingavörur, Suðurlandsbr. 4, R. 3329,00 6944,00 19%,50 2757,65
Burstafell, Bildshöfða 14, R. 3912,00 7551,00
Bygg.v.versl. K. Auðunss., Grensásv. 8, R. 3500,00 7300,00 1900,00
Bygg.v.versl. Kj. Jónss., Tryggvag. 6, R. 3350,00 6695,00
BYKO, Kópavogl 3890,00 3329,00 6624,00 6487,00 1797,00 2482,00
Húsasmlðjan, Suðavogi 3-5, R. 1780,85 2487,00
JL byggingavörur, Hringbraut 120, R. 3871,00 3180,00 6950,00 2069,00 2747,00 1781,00 2478,00
Parma, Reykjavíkurv. 64, Hafnarfirði 3329,00 6945,00 1980,00 2747,00
SfS, Suðurlandsbraut 32, R. 3998,00 7119,00 1780,90 2487,00
Hæsta verð 3998,00 3912,00 7119,00 7551,00 2069,00 2757,66 1900.00 2487,00
- Lægsta verð 3871,00 3180,00 6624,00 6487,00 1797.00 2757,65 1780,85 2478,00
Mismunur á hæsta og lægsta verði % 3,3% 23,0% 7,5% 16,4% 15,1% 11,1% 6,69% 0.4%
Hópurinn sem hélt til Noregs í knattspyrnuferð.
MorguablaAiA/Kiri
Sauðárkrókur:
Ungir knatt-
spyrnumenn
til Noregs
SauAárkróki, júlí.
FYRIR skömmu lagöi upp héöan fríður
flokkur ungra knattspyrnumanna og er
feröinni heitið til Noregs. Þetta er 4.
flokkur Umf. Tindastóls, skipaöur 14
leikmönnum.
f Osló taka þeir þátt í mikilli al-
' þjóðlegri keppni drengja og stúlkna
11—16 ára, svokallaðri Norwey
Cup-keppni. Þátttakendur eru frá
öllum heimshornum, alls 24.600 aðB
tölu, sem skiptast i 1.370 knatt-
spyrnulið. Á þeirri viku er mótið
stendur yfir verða leiknir 3 þúsund
leikir. íslendingar munu ekki áður
hafa tekið þátt í þessari keppni. Að
vonum ríkti mikil eftirvænting og
tilhlökkun hjá strákunum, sem eru
13—14 ára. Fylgja þeim góðar óskir
bæjarbúa. Fararstjórar eru Matthí-
as Viktorsson, félagsmálastjóri og
Pálmi Sighvats, þjálfari liðsins.
Kári