Morgunblaðið - 15.08.1984, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1984
47
Frá Ólympíuleikunum:
Islendingarnir
stóðu sig með sóma
— eftir Þórarinn
Ragnarsson
ÍSLENSKA Ótympíunefndin
sendi stóran hóp œskufólks á
leikana hér í Los Angeles. Oft
hafa raddir verió uppi um þaö
aö ekki eigi aö senda stóran
hóp fólks á leikana, heldur ein-
göngu þá sem eiga þaö fyllilega
skíliö. En hverjir eiga skiliö aö
fara? Hverjir eiga aö sitja eftir
heima? Án nokkurs vafa á aó
senda hóp œskufólks á Ólymp-
íuleika sé þess nokkur kostur.
íslenskt íþróttafólk hefur lagt
hart að sér viö æfingar og keppni
um margra ára skeið og þaö,
eins og íþróttafólk annarra
þjóöa, stefnir aö því ótrautt aö
komast á hina stóru, miklu
íþróttahátíö sem Ólympíuleikar
eru, og þaö hlýtur aö virka sem
hvati á fþróttafólklö, aö vita aö
möguleiki er fyrir hendi aö kom-
ast á slíka leika.
Ef viö iítum á einkunnarorö
Ólympíuleikanna þá segir: Á
Ólympíuleikum er sigur ekki allt-
af þaö mikilvægasta, heldur eins
þátttakan, eins og sigurinn er í
sjálfu sér ekki þaö mikilvægasta
i lífinu heldur baráttan fyrir hon-
um. Þaö mikilvægasta er ekki aö
hafa sigraö heldur aö hafa staöiö
sig vel. Þaö er mikilvægt fyrir
íþróttafólk aö fá tækifæri til aö
fara á Ólympíuleikana og berjast
þar drengilegri keppni viö
iþróttafólk annarra þjóöa. Þá er
þaö líka sómi fyrir island aö geta
sent frá sér hóp íþróttafólks eins
og þaó geröi á Ólympíuleikana,
fólk sem kom og stóö sig meö
mjög miklum sóma.
Á Ólympíuleikunum sem var
aö Ijúka stóö íslenska íþrótta-
fólkiö sig meö afbrigöum vel.
Þaö er mikiö afrek, fyrir ekki
stærri þjóö en island, aö eignast
verölaunahafa á Ólympíuleikum,
og margar þjóöir sem senda
stærri hóp íþróttafólks mega
sætta sig viö aö vinna ekki til
neinna verölauna. Bjarni Friö-
riksson júdómaöur vann þaö
frækilega afrek aö vinna til
bronzverölauna í sínum flokki og
lagöi aö velli frækna júdómenn.
Einar Viihjálmsson varö í 6. sæti
í spjótkastskeppninni — glæsi-
legt afrek, og íslenska landsliöiö
í handknattleik náöi 6. sæti —
geröi jafntefli viö landsliö Júgó-
slava sem síöan fór heim meö
Ólympíugullverölaunin, og ís-
lenska liöið tryggöi sér rétt til
þess aö taka þátt í A-heims-
meistarakeppninni í Sviss 1986
og leika um sæti meöal bestu
handknattleiksþjóöa heims.
Sundfólkiö setti mörg ís-
landsmet á leikunum og stóö sig
þar af leiöandi betur en þaö haföi
gert áöur.
Aö vísu náöi sumt frjáls-
íþróttafólkið ekki sínum besta
árangri á þessum leikum og má
segja aö þaö hafi valdiö nokkrum
vonbrigöum. En hópurinn í heild
stóö sig mjög vel og var sjálfum
sér og landi sínu til mikils sóma.
Ólympíuleikar veröa íþrótta-
fólki alltaf minnisstæöir og þaö
er stórt og mikið tækifæri sem
íþróttafólkiö fær þegar þaö er
sent á slíka leika. Þaö keppir viö
íþróttafólk frá mörgum þjóöum
án tillits til félagslegrar aöstööu,
litarháttar eöa trúarskoöana, og
víst er aö Ólympíuleikar eru einn
af fáum vettvöngum heimsins í
dag sem færir æskufólk alls
heimsins saman á einn staö í friöi
og þar sem fólk nýtur drengilegr-
ar baráttu i drengilegum leik.
Vonandi veröur um langa
framtiö möguleiki á því aö senda
keppendur frá islandi á slíka
leika.
Þórarinn Ragnarsson er einn
af íþróttafréttariturum Morg-
unblaðsins.
Morgunblaðiö/Arnl Sæberg
• Bjarni Friðriksson, hetja fslands á Ólympíuleikunum, hampar
bronzverðlaunum sínum við komuna til Keflavíkur ( gærmorgun.
Með honum é myndinni er frú Ragnhildur Helgadóttir, mennta-
málaráöherra.
Kristinn skor-
aði tvívegis
— er Njarðvíkingar lögðu Einherja
UMFN — Einherji
3:0
NJARÐVÍKINGAR sigruðu Ein-
herja 3:0 í 2. deildinni ( knatt-
spyrnu á Njarðvíkurvelii ( g»r-
kvöldi. Staöan í hálfleik var 2:0.
Njarövíkingar byrjuöu af miklum
krafti og héldu uppi miklum hraöa
í leiknum, og á 9. mín. skoraöi
Kristinn Guðbjartsson. Hann fékk
góöa sendingu frá Jóni Halldórs-
syni sem haföi leikiö á tvo Einherja
og upp undir endamörk og gefiö
vel fyrlr — Kristinn skoraöi meö
föstu skoti rétt utan markteigs.
Kristinn skoraöi aftur á 21. mín.
meö skalla eftir hornspyrnu. Undir
lok hálfleiksins jafnaöist leikurinn
nokkuö — en í síöari hálfleik skipt-
ust liöin á aö sækja en sóknarlotur
Njarövíkinga voru mun hættulegri.
Þeir áttu ótal tækifæri til aö skora
og voru miklir klaufar aö skora
ekki nema einu sinni í siöari hálf-
leik. Á 78. mín. skoraöi Jón Hall-
dórsson þriðja mark UMFN með
góöu skoti skammt utan mark-
teigshorns.
Sigur Njarövíkinga heföi átt aö
geta orðið mun stærri — eins og
áöur sagöi fengu þeir mörg mark-
tækifæri og geta aöeins sjálfum
sér um kennt aö vinna ekki stærra.
Páll Björnsson, Einherji, fékk
gult spjald í leiknum — svo og
Freyr Sverrisson, Njarövík.
Dómari var Eyjólfur Ólafsson og
dæmdi hann mjög vel. Guömundur
Sighvatsson og Jón Halldórsson
voru bestu menn UMFN en hjá
• Jón Halldórsson.
Einherja var markvöröurinn, Hreiö-
ar Sigtryggsson, langbestur.
— ÓT.
Golfnámskeið
ffyrir byrjendur
GOLFNÁMSKEIÐ á vegum GR
hefjast aftur næstkomandi mánu-
dag á Grafarholtsvelli, en á þeim
námskeiðum sem haldin voru (
júli var allt yfirfullt og því var
ákveðið að halda önnur núna.
Kennari á þessu móti veröur John
Drummond og leiðbeinandi um
golfreglur og golfsiöi veröur Þor-
steinn Svörfuður Stefánsson.
Kennt veröur þrisvar í viku, eina
klukkustund í senn, í um tíu manna
hópum.
Uppiýsingar og skráning þátt-
takenda fer fram i símum 82825 og
84735.
Sýning/Fjölskykluhátíð
Hefst í Laugardalshöll eftir
DAGA
Fullbúið hús í höllinni
Stórt Tívolí - Lego ævintýraland
Skemmtikraftar — Dirfskuatriði