Tíminn - 05.09.1965, Side 7

Tíminn - 05.09.1965, Side 7
SUNNUÐAGUR 5. september 1965 Mannkynsleiðtogi Þau tíðindi hafa borizt síð- ustu daga sunnan úr frumskóg- um Mið-Afríku, ag Albert Sch- weitzer lægi þungt haldinn og væri vart hugað líf. Hann bíður lokanna á vettvangi hins merki lega mannúðarstarfs síns, þar sem hann haslaði sér völl og barðist hinni góðu baráttu af fá- gætri atorku og fómarlund og vann ekki aðeins afrek með starfi sínu heldur og fordæmi, sem lýsa mun mannkyninu langt fram á veg. Hvort sem hreysti Schweitzers stenzt þessa sjúkdómsraun eða ekki, mun hinu langa lífsstarfi lokið, því að hann er rúmle'ga níræður að aldri. Með lífi sínu og starfi hef- ur Albert Schweitzer skipað sér á bekk með helztu mannkyns- leiðtogum, ekki aðeins í samtíð sinni, heldur allra alda. Hann bjó yfir ofurmannlegu andlegu og líkamlegu þreki og þjónaði göfugum hugsjónum í orði og verki með þeim hætti, að líf hans verður sem lýsandi viti um langa framtíð. Slíkir menn eru meiri og gifturíkari mannkyns- leiðtogar en alvaldir stjómar- herrar. Afreksmaður í fjór- um vísindagreinum Albert Schweitzer fæddist 14. janúar 1875 í Kaysersberg. Hann var af frönskum og þýzk- um ættum, elzti sonur lút- hersks prests. Hann gekk skóla- veg og nam við háskóla í Strass- bourg, París og Berlín. Schwweitzer náði þeim sjald gæfa árangri í vísindanámi að hljóta doktorsnafnbót í þremur megingreinum visinda og semja viðurkennt öndvegisverk um hljómlist Bachs. Fyrsta vísinda rit hans fjallaði um trúarheim- speki Kants, og hlaut hann dokt orsgráðu fyrir það. Aðra dokt- orsgráðu hlaut hann fyrir guð- fræðirit og hina þriðju síðar í læknisfræði. Schweitzer var því afreksmað ur í fjórum megingreinum há- skólamennta. Hann nam orgel- leik og varð svo snjall lista- maður í þeirri grein, að hann fórv í hljómleikaferðir um ýmis lönd. Þegar hann hafði samið doktorsrit sín í guðfræði og heimspeki, samdi hann hið mikla rit sitt um list Sebastians Bach, og er það talið bera af flestu því, sem ritað hefur verið um þann höfuðsnilling. Árið 1905 venti Schweitzer enn sínu kvæði í kross og hóf læknisnám þrítugur að aldri. Ætlun hans var þá þegar sú að helga sig hinu mikla líkn- arstarfi meðal frumstæðra þjóða í Afríku. Hann lauk öllum stigum læknisnámsins og varð fullgildur skurðlæknir og meira að segja vísindamaður í lækn- isfræði. Árið 1912 kvæntist Schweitzer Helenu Breslau, dótt ur kunns sagnfræðings í Strass bourg, og hún hóf þegar hjúkrunarnám til þess að geta stutt mann sinn í væntan- legu starfi. Þau héldu árið 1913 til Gabon-héraðsins í frönsku Mið-Afríku, og þar stofnaði hann trúboðs- og sjúkrastöð sína í Lambarene á bökkum Ogowo-árinnar. Hann vann meira að segja hörð- um höndum við byggingu hús-; anna sjálfur með hjálp hinna frumstæðu heimamanna. Þar hóf hann baráttu sína við að lina þrautir manna og lækna hina skæðu hitabeltissjúkdóma.. Jafnframt þrotlausu starfi sínu þama samdi hann margar stór- merkar bækur og vísindarit. Mikil þakkarskuld Schweitzer er ofurmenni, ef hægt er að nota slíkt orð um mann eins og hann vegna of- notkunar þess fyrr og síð- ar. Afburðagáfur hans virt- ust jafnvígar á hinar fjarskyld- ustu visindagreinar eins og and leg afrek hans bera vott um. Siðgæðisþrek hans og fómar- lund átti sér æðri mið en ann- arra. Líkamleg orka hans og skapstyrkur gerði hann margra manna maka í starfi. En hið merkilegasta við líf hans er þó það, hvernig hann beitti vísind- um og æðri menntum nútímans til þess að hefja hina lægstu á æðra stig, hvernig hann fómaði sér og þjónaði göfugustu hug- sjónum mannkynsins. Fyrir það stendur mannkyn- ið allt í meiri þakkarskuld við hann en flesta aðra samtíma- menn hans. í lífsdæmi hans birtist eitt mesta fyrirheit okk- ar um einn heim og betra mann Hf. Schweitzer hlaut friðarverð laun Nóbels 1952. Lágkúran uppmálu? Eitt skýrasta dæmi, sem sézt hefur um lágkúm og hælbíts- hátt í stjórnmálabaráttu birtist þjóðinni fyrir svo sem hálfum mánuði, þegar stjómarblöðin, öll þrjú með tölu tóku að fjarg virðast yfir því dag eftir dag, að Eysteinn Jónsson, formaður Framsóknarflokksins, hefði þeg ið boð um að heimsækja land austan járntjalds. Blöðin blésu þetta út sem einstakt ódæði og gerðu því skóna með ógeðslegu smjatti, að hann ætti þangað einhver vafasöm erindi og væri með þessu að hylla ofbeldi og einræði stjórnarfarsins austur þar. Á þessu var klifað dag eft- ir dag jafnt í fréttum, forystu- greinum sem smápistladálkum. Menn lásu þessi skrif með vax andi undrun yfir því, hve lágt væri hægt að leggjast í smá- mennskunni, og svo fór að lok- um, að forsætisráðherrann sjálf- ur og formaður Sjálfstæðis- flokksins sá sér þann kost vænztan til þess að bjarga and- litinu að lýsa því yfir í sunnu- dagspistli sínum í Mbl., að auð vitað væri fráleitt að finna að því, þótt Eysteinn Jónsson þægi boð um að heimsækja land aust an tjalds. Slík boð hefðu stjórn málamenn vesturlanda þegið hundruðum saman, og enginn vændi þá um ódæði með því, þvert á móti væru slíkar heim- sóknir taldar gagnlegar, bæði til þess að menn kvnntust mál- efnum þessara landa og legðu grundvöll að vinsamlegri sam- búð landa með ólíka stjórnar- hætti. sem ekki væri vanþörf á. Lágkúra stjórnarblaðanna kemur bezt í ljós, þegar þess er gætt., að tveir ráðherrar Gvlfi og Ingólfur. voru báðir i þann veginn að fara í heimboð aust- Albert Schweltzer v!8 skrlfborð sitt í Lambarene. ur fyrir tjald, Emil nýkominn þaðan, og fjölmargir framá- menn Sjálfstæðisflokksins hafa fyrr og síðar farið slíkar ferðir. Og þegar Gylfi lagði af stað fyr- ir nokkrum dögum, vantaði mjög á, að honum fylgdu svip- uð kveðjuorð í stjómarblöðun- um og Eysteini Jónssyni. Þetta er allt saman ofur ómerkilegt og lítið mál en eigi að síður tölu- vert lærdómsríkt og spegil- mynd um^ pólitískan þroska, þeirra fyrirmanna, sem tala máli stjórnarflokkanna á íslandi þessa haustdaga. Ómyndarskapur Kalskemmdirnar á Austur- landi eru illar búsifjar, sem eng inn bóndi getur staðið jafnrétt- ur undir. Það blasir nú við, sem raunar sást gerla fyrir mitt sum ar, að margir bændur eystra hafa ekki nema hálfan heyfeng eða rúmlega það eftir sumarið. Öllum sæmilegum mönnum þykir sjálfsagt að hjálp sé veitt þeim, sem verða fyrir áföllum, og þegar um heil hér- uð eða fjölmenna stéttahópa er að ræða, er sjálfsagt að ríkið hlaupi undir bagga eða beiti sér fyrir hjálp. Slíkt er og augljós þjóðarhagur, því að annars geta önnur og meiri áföll fylgt í kjöl farið. í fulla tvo mánuði hafa menn rætt um kalið á Austur- landi og sjálfsagða hjálp samfél agsins. Samt hefur ekki enn fengizt um það skýr yfirlýsing frá landbúnaðarráðher'ranum, hvort eða hvernig þessa hjálp skuli veita. Þótt komið sé fram á haust vita bændur eystra ekki um það með neinni vissu enn, hvort þeir eiga að stórskerða bú stofn sinn eða fá aðstoð til þess að halda í horfi. Jafnvel þótt sér- stök nefnd hafi kannað málið, sagt hvers sé vant og lagt fram tillögur um aðstoð, eru við brögð ráðherrans þau ein að biðja um könnun á því, hvað betur heyjaðir bændur í öðrum : héruðum vilji gefa af heyi eða íláta af hendi, án þess þó að fyrir liggi nokkur bein yfirlýs- ing ríkisins um að það ætli að veita fé til fóðurkaupa eða lán, né heldur að annast flutning austur. Það sem öðru fremur var nauðsynlegt þegar í stað var skýr yfirlýsing ráðuneytisins um þetta, svo að bændur vissu hvort af nokkrum framkvæmd- um ætti að verða eða ekki. Sú jJirlýsing er ókomin enn. Þetta er einstakur ómyndarskapur og af honum stafar hættulegur dráttur. Bændur eystra verða nú næstu daga að taka sínar ákvarðanir um ásetninginn, hvað sem tvínóni ráðherrans líður, og þar er í sumum til- fellum um að ræða úrslit um það.hvort bóndi telur sér fært að halda áfram búskap eða ekki. Svo illa er margur leikinn þar eystra. Umhugsunarefni Að vísu ber að meta mjög mikils þann samhjálpar- vilja, sem birtist í því, er bænd- ur vilja hjálpa stéttarbræðrum sínum eystra með heygjöfum, og ekki ber að amast við því, þótt kannað sé, hve sú hjálp gæti orðið mikil eða víðtæk. Vel mætti hugsa sér slíkar gjafir sem einhvern lið í víð- tækari hjálparaðgerðum. En það er siðlaust af ríkisvaldinu að ætlast beinlínis til þess, að þetta sé aðalhjálpin eða jafnvel eina aðstoðin. Því ber að rétta fram án hiks hina stóru hjálp- arhönd alls samfélagsins en hina frjálsu gjafahjálp á aðeins að þiggja án tilætlunar, þegar svona stendur á. Ef ríkisvaldið ætlast til þess að bændur hjálpi sér sjálfir í slíkum vanda með þessum hætti, hlýtur það að verða mönnum umhugsunarefni, hvort ekki sé rétt að kerfið nái til fleiri stétta, og til þess sé ætlazt yfirleitt, að menn gefi af miklum aflahlut öðrum, sem minni feng bera frá borði. Yrði þá æði víða ástæða til þess í okkar misaflasama þjóðfélagi. Ekki hefur því verið hreyft, að mennirnir á hæstu síldarskip- unum létu þeim, sem lítinn feng hafa, eftir hluta af sinni fúlgu, og til þess mun vafalaust enginn ætlast. Hjálparábyrgðin í þessum efn um á að hvíla á herðum sam- félagsins, og enginn vafi má leika á því, að svo sé, né heldur tregða á því, að réttir ráða- menn viðurkenni þessa skyldu. Ilin frjálsa samhjálp einstakl- inganna á sitt rúm fyrir því og verður ætíð jafn vel þegin. Bændurnir á kalsvæðunum eystra hafa þegar orðið að bíða allt of lengi eftir skýrum svör- um landbúnaðarráðherrans. Sú tillaga, að heybirgir bænd- ur gæfu stéttarbræðrum sínu eystra hey, mun hafa komið frá bæhdum sjálfum austan fjalls á miðju sumri. Ef þetta góða boð hefði átt að þiggja í miklum mæli, hefðu opinberir aðilar þeg ar átt að bregða við og gera ráðstafanir til þess, að heyið væri tekið meðan það var enn úti í göltum. Nú er hins vegar nokkuð umhendis fyrir bændur að binda það út úr hlöðum sín- um. Sama er raunar að segja um það hey, sem nú er talað um að kaupa og flytja austur. Þetta er aðeins eitt dæmið um afleiðingar þess vítaverða sein- lætis, sem ríkt hefur í þessum málum í allt sumar og stafar fyrst og fremst af því, hve lengi hefur staðið á skýrum svörum ráðherra um það, hver hjálp eða aðstoð ríkisins á að verða. Havtt er við, að þetta verði ekki einu vandkvæðin, sem stafa munu af þessum drætti. S x \ , \

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.