Tíminn - 05.09.1965, Page 14
Minningarathöfn um hjartkæran eiginmann minn og föður okkar,
Guðmund Falk
og útför hjartans litla sonar míns og bróður okkar
Hjartar
fer fram í Kópavogskirkju mánudaginn 6. sept kl. 10.30 f. h. Athöfn
inni verður útvarpað. Blóm vlnsamlega afbeðin, ef ^einhver vildi
minnast hinna látnu láti Ifknarstofnanir njóta þess.
Helga Hjartardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn
Litli drengurinn okkar,
Þorvaldur Björn
Andaðist í Landakotsspftalanum 26. ágúst s. I. Jarðarförin hefur
farið fram.
Sigríður Þorvaldsdóttir
Friðrik Eiríksson.
Móðir okkar tengdamóðir og amma;
Elísabet Guðmundsdóttir
frá Meium, Árneshreppl,
verður jarðsungin frá Dómklrkjunni þriðjudaginn 7. september kl.
10.30 f. h.
Athöfninni verður útvarpað.
Blóm afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar iátnu, er bent
á að láta líknarstofnanir njóta þess.
Börn, barnabörn og tengdabörn.
« BILLINN
Rent an Ioeoar
ÞAKKARÁVÖRP .
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem sýndu mér
vinarhug á níræðisafmæli mínu með heimsóknum,
skeytum og öðrum vinarkveðjum.
Guð blessi ykkur öll.
Jósep L. Blöndal,
Siglufirði.
Til ykkar allra, sem sendu okur gjafir og skeyti á
silfurbrúðkaupi okkar og fimmtugsafmæli mínu og
sýndu okkur vinarhug á annan hátt, sendum við alúðar
þakkir.
Óskum ykkur öllum gæfu og gengis.
Með beztu kveðjum.
Sigrún og Sigurjón Jónasson,
Syðra-Skörðugili.
TÍMiNN
SUNNUDAGUR 5. september 19G5
VILDU ASNANN
Frarohald af 16. siðu
sýningarhæfar. Eg fór að mála
í mynd í morgun og skemmdi
hana! Það verða líklegast tveim
ur færri á uppboðinu, en stendur
í skránni. — Við sjáum nú til, seg
ir Sigurður, sem greinilega er
ekkert hrifinn af hugmyndinni.
— Af hverju ertu að selja þess
ar myndir?
— Átti ég heldur að gefa þær.
Þetta er úfdráttur úr stóru safni.
Einstöku myndir hef ég samvizku
út af að selja, en verð að fara að
taka mig saman og hreinsa til í
vinnustofunni minni. En svo er
fullt af myndum af mórölskum
uppruna, sem ég hef ekki fengið
mig til að selja.
— Hvemig líkaði Þér, að þeir
skyldu fara að gróðursetja tré
við sumarbústaðinn þinn fyrir
austan?
— Mér finnst það hefði verið
kurteisi að spyrja mig um það,
hvort ég hefði viljað skóg þar.
— Ertu hlynntur skógrækt?
— Hver er ekki hlynntur skóg-
rækt. Málefnið er svo heilagt, að
eignarrétturinn er forsmáður.
— Skrifarðu nokkuð núna?
— Eg er búinn að venja mig
af skrifa. Eg hef enga löngun
til þess. Mér finnst ég hafa gert
svo góða hluti.
— Er erfiðara að skrifa en
mála?
— Það er mjög skylt.
HERRAHÚSIÐ
Eramhald at lb. síðu
arinsson stjórna framleiðslu
„Kóróna“-fatanna, en þeir hafa
langa reynslu við slíka fram-
leiðslu.
Munu þeir annast alla þjón
ustu við söluna, og geta vænt-
anlegir viðskiptavinir ráðfært
sig við þá.
Auk mjög mikils úrvals
„Kóróna“-fata hefur verzlun-
in á boðstólum allar herravör-
ur.
Verzlunarstjóri í Herrahús-
inu verður Guðmundur Ólafs-
son, en framkvæmdastjórar
eru Björn Guðmundsson og
Þorvarður Árnason.
ÆSKULÝÐSRÁÐSTEFNA
Framhald af 5. síðu ,
ágúst, flutti Benedikt Jaokobsson
erindi um unga fólkið og þjóð-
félagið. Þetta er mjög yfirgrips-
mikið efni og ekki unnt að gera
því nokkur tæmandi skil á ráð-
stefnu sem þessari. Umræðuhóp-
arnir skiluðu niðurstöðum sínum
til stjórnarinnar, að umræðum
loknum.
Ráðstefnu þessari stýrði Örlyg
ur Geirsson varaformaður ÆSÍ.
Æskulýðsráðstefnunni að Jaðri
var einungis ætlað það hlutverk
að gefa ungu fólki í félagsstörf-
um kost á að láta í ljós álit sitt,
og ennfremur að gefa stjórn ÆSÍ
ábendingar til að styðjast við í
starfinu. Virtist þetta gefast vel
og mun ÆSÍ nota reynslu þess-
arar ráðstenu til hliðsjónar við
skipulagningu frekara starfa.
JÓN GARÐAR
þegar maður þurrkar upp á
síðunni. Vegna þessa verður
bilið stutt og lítið, sem þurrka
þarf á höndum, og nótin jafn
ast svo vel, þegar honum er
slegið svona fram eftir. Þó
er kannski enn ótalinn stærsti
kosturinn við hann. Þegar ver
ið er að taka nótina upp í vill
hún oft sækja aftur fyrir hekk
ið og þegar nót fer í skrúfuna
er það oftast þegar verið er að
taka inn endann. En með því að
geta slegið þessu svona framar
lega og langt út dregst nótin
frá að aftan. Strákunum finnst
þó kannski hvað mestur kost
urinn, hve hátt er unnt að
haekka arminn. Þá er hreint
engin vinna, miðað við það sem
var, að draga nótina úr blökk
inni.
Þá er það ákaflega miki!i
kostur, að unnt er að halla
blökkinni. Ofan á henni er
tékkur og úr honum hanga
tveir vírar niður i blökkina svo
við getum hallað henni eftir
Því hvort við viljum láta steína
teininn eða korkateininn drag
ast. Blökkin hangir í sigur-
nagla svo hún leggst alveg eftir
því sem fer á nótinni. Víð
þetta koma miklu síður pokar
í nótina, hún dregst miklu jafn
ar og slitnar ekki nærri eins
mikið.
BIFREIDASTJÖRI
óskast
SKEIFAN KJÖRGARÐI
Tilboð
Tilboð óskast í 2400 og 1200 fermetra stálgrind-
arhús. Verðin séu gefin upp CIF Reykjavík.
Ennfremur óskast tilboð í uppsetningu, fyrr-
nefndra húsa.
Útboðsgagna má vitja á teiknistofu Bárðar Daní-
elssonar, verkfræðings, Laugaveg 105, Reykjavík.
Tilboðsfrestur er til 1. október 1965.
TOLLVÖRUGEYMSLAN HF.
Reykjavík.
Atvinna óskast
Óska eftir atvinnu, helzt úti á landi. — Er vanur
vélum og hef bílpróf. — Herbergi þyrfti að fylgja-
Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 15. þ.m.
merkt „1004“.
Skrifstofustúlkur
Opinber stofnun óskar að ráða stúlkur til skrif-
stofustarfa. Umsóknir, er greini aldur, menntun
og fyrri störf, sendist afgreiðslu blaðsins eigi
síðar en 11. september, merktar “Opinber stofn-
un“.
Framhald af 16. síðu
kraftblökkum frá þessu fyrir ;
tæki er notuð í mjög mörgum j
íslenzkum síldveiðiskipum og :
hefur öðlazt míklar vinsældir ;
meðal sjómanna. Það sem ger
ir hina nýju gerð einkum svo
þægilega og örugga í meðför
um er það, að armurinn, sem
heldur kraftblökkinni, er fær
anlegur á ýmsa vegu. Til hliða !
er unnt að færa hann um 130
gráður og í lóðrétta stefnu um
90 gráður. Að auki er svo unnt
að halla kraftblökkinni. Arm-
urinn sjálfur er sex metrar á
lengd og tekur því yfir mjög !
langt haf. Maður getur bæði
verið með hann aftarlega á .
bátnum og eins framarlega, '■
STILLANLEGU
HÖGGDEYFARNIR
Abyrgð 30.000 km. akstur
eða 1 ár. — 9 ára reynsla
á íslenzkum vegum sannar
gæðin.
ERU I REYNDINNI ÓDÝR
USTU HÖGGDEYFARNIR.
SMYRILL
Laugav. 170, sími 1-22-60