Tíminn - 07.09.1965, Síða 3

Tíminn - 07.09.1965, Síða 3
ÞRH>JUDAGUR 7. september 1965 TÍMINN Arbeiderblaðið í Þrándheimi segir um myndir Gunnlaugs Schevings: „hann segir okkur frétlir af traustu fólki í harðbýlu landi.“ (SIEN2KU fk GðDA USTAVERKIN DÚMA I NOREGI Sýning Norræna listbanda- lagsins var að þessu sinni haldin í Þrándheimi í Noregi. Hún var opnuð 20. maí og stóð í mánuð. Sýningin var til húsa í Trondheims Kunst- forening, sem er í senn lista- safn og sýningarsalur. Gustaf Lindgren, ritari Norræna Listbandalagsins, opnaði sýning- una, en Helge Sivertsen, mennta- málaráðherra Noregs, hélt aðal- ræðuna. Sýningin vakti óskipta athygli, og var mikið um hana rætt og ritað. Sérstakur þáttur var um hana í norska sjónvarpinu, og blöð í Þrándheimi og Osló birtu fréttir og gagnrýni. Umsagnir hafa borizt seint, en hér fara á eftir glefsur úr gagnrýni þeirri, er íslenzka deildin hlaut. Afteniposten, Osló: Greinarhöf- undur Even Hebbe Johnsrud. f upphafi greinar sinnar talar höfundur um kosti þess að tak- marka fjölda þeirra listamanna er taka þátt í sýningunni, en það eru sex frá hverju landi, myndhöggvar ar, málarar og graflistarmenn. Síð an segir um íslenzku deildina, að hún verki sterkar en sú danska, sem var í næsta nágrenni við þá íslenzku, án þess þó að vera ný- tízkulegri eða alþjóðlegri. Mynd Gunnlaugs Schevings „Búðin“ birt ir þann sterka litsamhljóm, sem við munum eftir frá fyrri verk- um hans, en við könnumst við þau frá sýningum í Osló, en nú virðist hann hafa stillt í hóf lit- skala sínum samtímis því, að hann stílfærir form sín meir og meir, þannig virðast þau nálgast hreint skreyti. í næsta nágrenni við hann sýn- ir Guðmunda Andrésdóttir óhlut- bundna myndbyggingu í hvítum, gulum og gráum litum eða svört um, hvítum og bláum með var- færnislegum litaáherzlum en form in eru eins og rúðuð á léreftið Nærmyndir Steinþórs Sigurðs- sonar „Stórir og smáir steinar“ sýna örugga formbyggingu, og Ei ríkur Smith virðist birta m. dökk um og hraustlega máluðum mynd um áhrif frá náttúrunni. Þó vitna hraunlaga myndir Jóhanns Eyfells sterkar um áhrif af íslenzkri nátt úru. Þær eru áhrifaríkar í efnis- meðferð og uppbyggingu, sumar eru mótaðar í alúmín og járn, aðrar í kopar. Hinn ákveðni svip- ur og blæbrigðaríka yfirborð högg mynda hans vekja meiri áhuga en myndir Jóns Benediktssonar, sem eru mjög stílfærðar og rengluleg ar, reyndar einnig unnar úr al- úmín og kopar, en með mismun- andi áferð. Dagbladct, Osló: Greinarhöfur*i ur Ole Mæhle: Áhrifin af íslenzku deildinni eru að þvi leyti lík og af finnsku deildinni, að íslendingarnir sýna andstæður milli raunsæisstefnu eldri kynslóðar, sem Gunnlaug- ur Scheving er fulltrúi fyrir. <>g hinni óhlutbundnu afstöðu yngri kynslóðar eins og við sjáum hana birtast í verkum Eiríks Smiths og Guðmundu Andrésdóttur. Sá fyrr nefndi með djörfum og hljómmikl um litsmíðum sínum, þar sem svart er ráðandi afl, sú síðar- nefnda með björtum krystalmynd uðum formum. Yngsti þátttakand- inn, Steinþór Sigurðsson, virðist við fyrstu kynni vera nokkuð rugl ingslegur í verkum sínum, sem bezt sést á mynd hans „Alheims óskapnaður1-, en litir hans bera vott um gáfur, sem munu bera ávöxt við strangari vinnubrögð Jón Benediktsson og Jóhann EyfeUs kynna höggmyndalistina, sá fyrrnefndi með dansandi kon- um, sem unnar eru í alúmín og kopar, en sá síðarnefndi í óhlut- bundnum myndum úr járni og alúmín. Arbeider-Avisa, Þrándheimi: Alb. Steen; Gunnlaugur Scheving er full- trúi hinnar ungu hefðar í íslenzkri list. í nokkuð hörðum og söld um expressionistískum stíl segir hann okkur fréttir af traustu fólki í harðbýlu landi. Dramatísk nátt úra íslands er auðsæilega inn- blástursefni þeim Eiriki Smith og Steinþóri Sigurðssyni og móta þeir áhrif sín í expressionistísk- ar og óhlutbundnar myndir, Smith eru sérlega hugleiknar and stæður ljóss og myrkurs, dags og nætur. hafs og hauðurs í sínum stóru og voldugu málverkum. Myndir hans verka mjög sterkt í andstæðum svarts og hvíts ann- ars vegar og hinnar finlegu ljóð- rænu hins vegar. Þær verka klárt og kröftugt, þrátt fyrir það, að þær standa hættulega nærri auð- veldu skreyti. Málverk Sigurðs- sonar eru í ætt við eldfjallanátt- úru íslands. f hinum líflega lita- skala hans birtast bæði hraun og hverir, en form hans eru ekki nógu ákveðin. Guðmundu Andrés- dóttur er sýnt um að túlka hin ljóðrænu áhrif, sem mynda uppi Framhald á bls 14 Á VÍÐAVANGI Byggt án teikninga f Ingólfi blaði Framsóknar Imanna í Reykjaneskjördæmi segir m. a. „Flestir ættu að geta verið sammála um, að ófært sé að reisa stórhýsi án fyrirfranj- gerðra teikninga af stónim <>g smáum hlutum hússins. Þeim mun furð'iilegra er, aö við skuli blasa sú staðreynd, að við ísl. Þjóðfélagsbygginguna hafi ekki verið notazt við „teikningar“ á u.ndanförnum árum nema að óverulegu ieyti. Handahófið og skipulagsleysið hafa verið þar ráðandi. fslendingar hafa ekki efni á þessu frekar en aðrir, nema síf'ur væri, því að bæði er, að síðar er hér byrjað á uppbygg ingunni en annarsstaðar og fá- menni og takmörkuð náttúru- * auðævi skera framkvæmdum ákveðinn stakk. Undanfarin ár hafa verið mikil u.ppgripaár til landsins og sjávarins og mikið verið gert á stuttum tíma. | Vinnuaflsskortur á Suð-Vest t urlandi og lánsfjávskortur um land allt hafa verið þær höml ur, sem takmarkað hafa fram kvæmdimar. Maður skyldi því ætla, að stjórnendur landsins hefðu gert til þess sérstakar ráðstafanir að tryggja u.ndir- stöðuatvinnuvegunum veruleg- an hluta Þessara eftirsóttu gæða. Koma þá í hu.gann í fyrstu röð þeir atvinnuvegir landsmanna, sem afla gjaideyr is fyrir þjóðina og þurfa að keppa á erlendum mörkuðum, sem oft eru verndaðir, gegn erlendri samkeppni. Þjóðin get úr ekki lffað í iandinu nema hún framieiði tii útflutnings. Það er því furðulegt að lieyra ýmsa kveða u.pp þá sleggju- dóma, að sjávarútvcgurinn, sem er eina gjaldeyrisöflunar atvinnugrein landsmanna, er nokkuð kveður að sé styrkþegi á þjóðinni! Meira öfugmreli er vart hægt að hugsa sér, því ef satt væri þýddi það, að ólífvæn legt væri í landinu. Myndarlegt mót ungtemplara Frá v. Sune Persson, Henry Sörman formaður NSUF o-q Arvid Johnson. Dagana 28. og 29. ágúst var haldin að Jaðri æskluýðsráðstefna á vegum Æskulýðssambands ís- lands. Ráðstefnuna sóttu rösklega 30 fulltrúar frá öllum aðildar- samböndum ÆSÍ, auk gesta og fyrirlesara. Fyrri dag ráðstefnunnar voru flutt tvö erindi. Hið fyrra flutti Reynir Karlsson, framkvæmda- stjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur, um þjálfun og starf leiðbeinenda í félagsmálastörfum. Mjög margt fróðlegt kom fram í erindi Reynis en hann hefur sem kunnugt er, mikla reynslu sem æskulýðsleið- togi. Að loknu erindi hans störf- uðu þrír umræðuhópar, og gerðu framsögumenn þeirra síðan grein fyrir niðurstöðum. Kom fram, að æskilegt væri, að Æskulýðssam- bandið gengist fyrir leiðbein- enda- og leiðtoganámskeiði hið allra fyrsta. Voru í niðurstöðum hópanna ýmsar tillögur og ábend- ingar um tilhögun námskeiðanna og var þeim síðan vísað til stiórn ar ÆSÍ til meðhöndlunar Síðara erindið þennan dag flutti Arvid Johnson frá Noregi im unga fólkið og áfengimálin Var erindi hanp hið fróðlegasta en hann hefur starfað mikið a veg um úndindissamtaka í Noregi. Var erindi hans meðhöndlað á sama hátt og erindi Reynis og á- litum nefndanna 'dsað til stjórn- arinnar. Siðari daginn. sunnudaginn 29 ágúst, flutti Benedikt Jakobsson erindi um unga fólkið og þjóð- félagið. Þetta er mjög yfirgrips- mikið erindi og ekki unnt að gera því nokkur tæmandi skil á ráð- stefnu sem þessari. Umræðuhóp- arnir skiluðu niðurstöðum sinum til stjórnarinnar að umræðum loknum. Ráðstefnu þessari stýrði Örlyg- ur Geirsson, varaformaður ÆSÍ. Æskulýðsráðstefnunni að Jaðri var einungis ætlað það hlutverk að gefa ungu fólki í félagsstörfum kost á að láta í ljós álit sítt, og ennfremur að gefa stjórn ÆSÍ á- bendingar til að styðjast við í starfinu. Virtist þetta gefast vel og mun stjórn ÆSÍ nota reynslu þéssarar ráðstefnu til hliðsjóuar við skinulaeningu frekari starfs. Drápsklyf jar Hitt er svo satt, að ítrekað hefir orðið að gera ráðstafanir innanlands til þess að koma í veg fyrir, að atvinnuvegur þessi stöðvist ekki, þegar erl. markaðsverðið hefir ekki stað ið undir framleiðslukostnaðin- um og „stólpagripuvinn“ er að sligast undir drápsklyíjunum, sem berast úr öllum áttum. Þessu verður að breyta og þeir, sem að Þessari atvinnu- grein standa verða að skera upp herör, betrumbæta það, sem aflaga fer i þeirra eigin húsi og umfram allt, kollvarpa því lögverndaða margarma og alltof dýra þjónustukerfi við útveginn, sem sýgur til sín alltof stóran hluta afrakstur vinnu sjómannsins og útvegs mannsins. Eitt megin skilyrði Þess, að þetta megi takast er að minnka verulega áhrif þess flokks, Sjálfstæðisflokksins, sem ver þetta ástand með kjafti og klóm.“

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.