Tíminn - 07.09.1965, Blaðsíða 5

Tíminn - 07.09.1965, Blaðsíða 5
5 ÞRIÐJUDAGUR 7. september 1965 TÍMINN Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN FramJrvæmdastjórl: Kristján Benedittsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og IndriSi G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug lýsingastj.: Steingrimur Gislason Ritstj.skrifstofui i Bddu húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur. Bankastraeti 7 Af greiSslusími 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar sknfstofur, sfmi 18300. Áskriftargjald kr 90.00 á mán innanlands — í lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f Nátttröllið glottir Óhætt er að fullyrða, að skrif íhaldsblaðanna hér á landi um för Eysteins Jónssonar, formanns Framsókn- arflokksins til Búlgaríu hafi vakið undrun og andúð hugsandi manna í landinu. Dag eftir dag reyndu blöðin með hvers konar dylgjum að gera hann tortryggi- legan fyrir það að þiggja opinbert boð um að heimsækja land austan járntjalds. Þetta var talin sérstök þjónkun við kommúnista og jafnvel hylling á stjórnarfarinu aust- tir þar. Má óhætt fullyrða, að slík skrif um ferð stjórn- málamanns austur fyrir tjald hefðu ekki sézt í neinu sæmilegu dagblaði um norðanverða Evrópu. Vitanlega var allur þessi óhróður marklaust raus, sem enginn hugsandi maður tók mark á, en það er hins vegar ekkert hégómamál, að slík skrif skuli sjást í stærsta blaði landsins og málgagni ríkisstjórnarinnar. Mönnum verður hverft við slíka starblindu og vitvana ofstæki í pólitískum málefnum. Þarna glottir afskræmt íhaldsnátttröllið við mönnum með svipmóti Goldwaters og McCarthys og annarra þeirra, sem þegar hefur dagað uppi í stjórnmálum annars staðar. Öllum skyni bornum mönnum er ljóst, að það væri að gera illt verra að loka öllum leiðum til kommúnista- landanna austan tjalds. Eina von manna um batnandi ástand er bundin við meiri samskipti, greiðari leið hugs- ana og skoðana, meiri mannlega snertingu. í flestum vestrænum löndum er litið á það sem eitt mikilvægasta ráðið til bættrar sambúðar austurs og vesturs að ferð- ast á milli, auka kynnin. Þess vegna sleppa stjórnmála- menn á vesturlöndum yfirleitt ekki tækifæri til slíkra ferða. Þótt Morgunblaðið á íslandi steyti nátttröllshnefa sinn framan í menn, hefur það til dæmis sézt gerla á dönskum blöðum, að þar líta menn slíkar ferðir stjórn- málamanna öðrum augum. Per Hækkerup, utanríkisráð- herra Dana, hefur verið í heimsókn í Póllandi. Politiken andstöðublað Hækkerups, segir t.d. í forystugrein: „Eigi að síður hefur þessi heimsókn mikla þýðingu, því að ýmsar leiðir eru að opnast milli Austur- og Vestur-Evrópu, þrátt fyrir örðugleika og ýmsar til- raunir til þess að girða fyrir það Öll pólitísk snerting yfir markalínuna er mjög mikilvæg, og yfir hana fara nú í vaxandi mæli ferðamenn, listamenn, vísindamenn, kaupsýslumenn, tæknifræðingar og fjöldi annars fólks”. Og síðar í greininni segir: „í öllum Austur-Evrópulöndum á sér nú stað ýmislegt umrót, sem er afleiðing þessarar þróunar, og við höf- um þó aðeins séð upphaf þess, sem þar er í framvindu “ Danska blaðið Aktueit skýrir frá því, að Hækkerup og forsætisráðherra Pólverja hafi rætt um að koma á hringborðsviðræðum danskra og pólskra áhrifamanna um sameiginleg áhugamál, og Pólverjar og Bretar hafi þegar byrjað slíkar viðræður. Morgunblaðsmönnum væri hollt að íhuga þetta nán- ar og kynna sér, hvernig sæmilegir stjórnmálamenn í öðrum vestrænum löndum líta á þessi mál. Andi Gold- waters sigldi ekki háan byr vestan hafs í síðustu forseta- kosningum, og íslendingar munu varla telja hann heil- agri. Hveitikaup og gullsaia Sovét- ríkjanna á Vesturlöndum Tillögur um afnám samyrkjubúskaparins hirtar í opinberum málgögnum kommúnistaflokksins. Tveimur árum eftir að Nikita Krústjoff varð að hefja geysimikil ínnkaup á hveiti í Bandaríkjunum og Kanada, hafa hinir nýju sovézku leið togar neyðzt til að ganga í spor hans og verða nú að selja mikið magn af gulli á heims markaðinum til að afla skot- silfurs til kaupanna. Haustið 1963 sögðu menn í Moskvu að menn myndu læra af þeírri landbúnaðrakreppu, sem þá ríkti, en þrátt fyrir það, að menn skelli skuld þeirrar kreppu, sem nú ríkir, á veðurguðína, er ljóst, að menn þar eystra hafa ekki kunnað að breyta þeim lær- dómi, sem þeir kynnu að hafa dregið 1963, í nýjar að- ferðir er gæfu hagkvæmari nið urstöður í landbúnaðarfram- leiðslunni. Á síðustu hálfri öld hefur Sovétstjórninni ekki tekizt að leysa vandamál landbúnaðarins. Uppskeran í Sovétríkjunum er nú mjög léleg og er langt frá því nægjanleg til að svara vax- andi neyzlukröfum sovéskra borgara eða til að fullnægja loforðum og skyldum við aust ur-Evrópuþjóðir og Kúbu og er gert.ráð fyrir, að Rússar verði að kaupa á næstunni um 70 miljónir tonna af hveiti. Þegar hafa verið gerðir samn ingar við Kanada um kaup á 5.3 milljónum tonna, við Árg- entínu um 2.2. milljónir tonna og um þessar mundir standa yfir samningar við Frakka um kaup á enn meira magni. Ólíkt því, sem Krustjoff gerði hafa sovézku leiðtogarnir ekki snú ið sér til Bandaríkjanna til hveitikaupa og valda því senni- lega bæði stjórnmálalegar og efnahagslegar ástæður. Það er erfitt fyrir Sovétstjómina að hefja nú mikil viðskipti við Bandaríkin vegna Víetnammál? ins og þeirra vísu árása frá Peking, sem slíkir viðskipta samningar við USA myndu kalla fram — og ennfremur vegna þeirrar ákvörðunar Bandaríkjastjórnar að 50% komflutninganna skuli fara fram með bandarískum skip- um, sem taka há flutnings- gjöld á sama tíma og verzlunar floti Sovétríkjanna er hvergi nærri fullnýttur. Nýlega gerði landbúnaðar- leiðtogi frá Kazakhstan W. Schulin það að tillögu sinni í opinberu málgagni Sovctstjórn arinnar, að stefna ætti að því að leysa upp hin stóru ríkis- reknu samyrkjubú og skipta í minni býli, og fengi ein fjöl sikylda hvert býli til umráða og eignar, þar sem ríkisafskiptum væri stillt sem mest í hóf. Menn hefðu Þegar gert tilraun ir með slíkt fyriiTcomulag í Kazakhstan með góðum árangri að því undanskyldu þó, að þar ættu bændumir ekki enn jarðirnar. Það þykja mikil tíðindi, að slíkar tillögur skuli fást birtar í opinberu tímariti og þykir það benda til þess, að leiðtog arnir í Kreml hafi hugleitt möguleika á svo róttækum breytingum, sem afnámi sam- yrkjubúskaparins. Það sem Schulin landbúnaðarleiðtogi í Kazakhstan leggur til er hið sama og hagfræðingurinn, próf essor Libermann, gerði fyrir nokkru en tillögur hans hafa þegar komið til framkvæmda að vissu marki í iðnaðarfram- leiðslunni, þar sem hagnaðar- vonin, hagræðing framleiðsl unnar eftir neytendakröfum og fl. fær að njóta sín- Breznev Hin miklu hveitikaup se.. Rússar verða nú að ráðast i, munu skapa halla á greiðslu jöfnuði Sovétríkjanna og fjár til kaupanna verða Þeir að afla með sölu á gulli á heimsmark aðinum. Þetta kann að hafa í för með sér, að nauðsynlegt verði talið að skera niður fjár- festingu í iðnaðinum. draga úr hjálp við vanþróuðu ríkin og meiri varfærni verði við höfð í vopnaframleiðslunm. þar sem leiðtogarnir munu ekki áræða að skera mikið niður af áætlunninni um meiri og betri neyzluvörur almennings í Sovétríkjunum. — Gullforði og gullframleiðsla Sovétríkj- anna er ríkisleyndarmál, en þvi verður samt ekki haldið leyndu, sem Sovétríkin selja á heimsmarkaðinn af gulli. Á síðustu 6 árum hafa Sovét- ríkin selt gull að meðaltali fyrir 210—260 milljónir doll ara. í landbúnaðarkreppunni 1963 dembdu Rússar hvorki meira né minna en 220 millj ónum dollara í formi gulls út á heimsmarkaðinn í september mánuði einum. Lenin sagði eitt sinn, að þegar kommúnisminn hefði orðið að veruleika gætu menn ekki notað gull til ann- ars en skreyta salerni. En Len in varð þó að endurskoða þetta álit sitt, að segja nokkrum ár- um síðar, að svo lengi sem gull væri alþjóðlegur gjaldmiðill yrði að safna þessum málmi og umgangast hann með varfærni. Stalin hafði raunsærra mat á þessum málmi og sendi gull sérfræðing sinn Serebrowsky til Bandaríkjanna á sínum tíma til að kynna sér nýtízku aðferð- ir víð gullvinnslu og bauð fjölda erlendra sérfræðinga þar á með 175 bandarískum verk fræðingum til Sovétríkjanna til að skipuleggja nýsköpun gull iðnaðarins í Sovétríkjunum. 1963 var talið að um 600 þúsund manns ynnu við gull vinnslu í Sovétríkjunum og að Sovétríkín væru þá í fremstu röð gullframleiðslulanda. Áætl að er að gullframleiðslan í Sovétríkjunum nemi um 25 milljörðum króna ári. Það eru bankar í London og París, sem annast sölu á rússneska gullinu á heimsmarkaðnum og meðal þeirra helztu sem kaupa er Rotchilds. ' Vegna hins mikla magns, sem Rússar denba nú inn á markaðinn hefur gullverðið lækkað verulega nú þegar og búizt er við enn meiri lækk un, þegar líður á september mánuð. Þessi gullsala Rússa kemur Bandaríkjunum til góða, sem hafa nú fyrst eftir langa hríð merkt aukningu á gull- forðanum í USA sem er bak trygging dollarans. Þá er talið að þessi gullsala muni verka til aukins jafnvægis á gjald- eyrismarkaðnum og styrkja stöðu sterlingspundsins og Koma í -æg fyrír þann sam- drátt í heimsverziuninni, sem menn höfðu óttazt. Það kemur út á eitt, hvað Lenin hefur sagt á sínum tíma, því Sovét ríkin geta ekki rifið sig upp úr stöðu sinni mitt í hinum kapítalíska heimi. Kosygin nw«ia*c.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.