Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.12.1984, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1984 Spjallaö viö aöalleikara í Gullsandi, Eddu Björgvinsdóttur og Pálma Gestsson „Vitavöröurinn. Hún má til dæmis ekki vera lofthrædd — sem leikkonan Edda Björgvinsdóttir er aftur á móti. Ég lók nú hlutverkiö þrátt fyrir lofthræöslunal“ segir Edda Björgvinsdóttir um vitavöróinn í Gullsandi. Edda leikur annaó af aöalhlut- verkum myndarinnar, á móti Pálma Gestssyni. Önnur stór hlutverk eru í höndum þeirra Arnars Jónssonar og Jóns Sigurbjörnssonar. Alls eru leikarar í myndinní um 40 tals- ins, en hópurinn sem stóö að gerö hennar telur um 13 manns. Kvikmyndatökumaöur var Siguröur Sverrir Pálsson og hljóö- upptökumaöur Gunnar Smári. Um bún- inga sá Dóra Einarsdóttir, leikmynd geröi Halldór Þorgeirsson og útlit leikara var í höndum Margrétar Jónsdóttur. Fram- kvæmdastjóri myndarinnar er Guöný Halldórsdóttir. Pálmi Gestsson sést nú á kvikmynda- tjaldinu í fyrsta sinn, í hlutverki Eiríks. Eiríkur er formaöur Ungmennafélagsins og heitir reyndar Arnór samkvæmt hand- riti. „Þannig vildi til aö ég var aö leika Arnór í Fjöregginu hans Sveins Einars- sonar, þegar Ágúst talaöi viö mig um hlut- verkiö í myndinni. Þaö þótti til hlýöa aö breyta nafninu þannig aö ég lóki ekki tvo „Arnóra“ á sama tíma,u segir Pálmi. „Hins vegar hefur okkur tekist ákaflega illa aö hætta aö kalla Ungmennfélagsformann- inn „Arnór“l“. Lofthræösla og frunsa helstu vandamálin vernig leggst Hkvikmyndaleik- urinn síðan í Pálma, sem á undanförnum tveimur árum hefur leikiö á sviöi, í útvarpi og í sjónvarpi?. „Vel. Þetta var ákaflega skemmtilegt og sumariö eftirminnilegt í heild sinni,“ segir Pálmi. fslendingar eiga reyndar kost á aö sjá meira af honum yfir jólin, í jólaleikriti sjónvarpsins, Gullna hliöinu. Sama er aö segja um Eddu Björgvins- dóttur, sem skipar þann hóp kvenna sem annast áramótaskaup sjónvarps- ins aö þessu sinni. Hvaö finnst henni eftirminni- legast viö vinnuna á sand- inum? „Veðriö," svarar Edda eins og sannur íslendingur. „Þaö var yndislegt allan tímann, besta veöur sem ég hef nokkurn tima lent í. Reyndar fékk ég þessa hroöalegu frunsu og varö aö draga mig í hlé í nokkra daga! Mátti gjöra svo vel aö stoppa í tökum og sitja á stól þangað til aö frunsan var horfin. Svoleiöis er ekki hægt aö fela í filmu, þó aö þaö sé hægt á sviöi. En um vinnutímann í heild er þaö aö segja aö þaö var gott aó eyöa honum meö þessu samstarfsfólki og vinna þessa mynd." Þegar viö spyrjum hvernig frumsýningin legg- ist í hana hlær Edda og svarar: „Þegar ég sá „Hrafninn flýgur" á sínum tíma þá var ég nærri því dáin úr taugaæsing. Fyrir frumsýningu hafói ég ekki séð svo mikiö sem öröu úr myndinni og var bara veik, svitnaöi og kólnaöi til skiptis. Ég hélt nú aö þetta yröi ööruvísi núna, ég er t.d. búin aö sjá filmubúta úr myndinni. En svo bara finn ég aö þaö er aö mynd- ast hnútur í maganum á mér, þannig aö ég verö ör- ugglega nokkuö sveitt á frumsýningu! Þetta er töluvert önnur líöan en fyrir frumsýningar, t.d. á sviöi, vegna þess aö í Edda Björgvinsdóttir og Pálmi Gestsson langan tíma er leikstjórinn búinn aö vera aö kiippa myndina, án þess aö viö leikararnir getum fylgst meö framvindu hennar. Okkar hlutur er búinn og aörir sem sjá um myndina núna. Ég held aö þaö sé kannski sú hugsun sem veldur þessari spennu. Annars hef ég ekki spurt Pálma hvort honum sé far- iö aö líöa eitthvaö illa." „Kvíöinn. Ég er þaö allt- af,“ segir Pálmi aðspuröur um frumsýningarskjálfta. „Þaö er alveg sama í hvaö maöur er aö fara, ég hef aldrei losnað viö þennan skjálfta og reikna meö aö þaö veröi svipað á frum- sýningunni." Gullsandur er önnur kvikmyndin sem Edda leik- ur í, og þaö vekur kannski nokkra athygli aö kvik- myndahlutverk hennar hafa veriö „alvarleg" skv. mælikvaröa leiklistarinnar, en hlutur hennar í útvarpi, sjónvarpi og á sviói al- mennt veriö í kómískari kantinum. Hefur hún engar áhyggjur af því aö fólk t.d. tengi rödd vitavarðarins annarri góökunnri úr út- varpinu? „Ég held ekki. Allavega hef ég reynt aö passa þaö aö hætta, þegar eöa um þaö bil, sem persónur eru aö festast í fólki, samanber Túrilla og „konan hans Ella". Síöan er alltaf nauö- synlegt og gaman aö prófa eitthvaö nýtt og ég er ánægö meö aö fá tækifæri á aö sýna báöar hliöar sem leikari," segir Edda. Alvar- legu hliðina, ásamt ýmsum öðrum í Gullsandi, fáum viö síöan aó sjá um hátíó- arnar, en myndin veröur frumsýnd í Austurbæjar- biói á annan dag jóla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.