Morgunblaðið - 27.01.1985, Side 7
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANtJAR 1985
C 7
Sýningar i dag og annan i jólum
VRÓPUFRUMSÝNING JÓLAMYND 1984:
Í BRENNIDEPLI
rkuspemandi og vtóburOarlk alvag ny bandarisk Ittmynd. um Ivo mann
■n komast yfir turöutegan leyndar dom og barattu þetrr a tynr sanntwfcanum
■Ibfcrtvurk Krta Kmtolttrion, Traat WNfcenM og Taaa Harpar i etfcsiion
WHfcam Tannan
Manafcur taxti BAnnuO Mrmwi mnan 14 fcra. Synd kl. *, S, 7. • og 11.
hins vegar alvarlegastur. Ég hef
nefnt hann áður í þessum pistl-
um: Aldrei fyrr í mínu minni
hefur engilsaxneska einstefnan
verið jafn yfirþyrmandi og í
fyrra. Svo virðist sem öll kvik-
myndahúsin nema eitt hafi sem
næst gefist upp á að sýna aðrar
biómyndir en enskar og amerísk-
ar. Aðeins Regnboginn virðist
hafa fjölbreytni og dirfsku að
metnaðarmáli, og ef veita ætti
viðurkenningu fyrir merkasta
framlag til kvikmyndamenning-
ar á Islandi í fyrra þá ætti
Regnboginn að fá hana. Af á
annað hundraö myndum á tjald-
inu 1984 voru um það bil fimm-
tán til tuttugu frá öðrum lönd-
um en Englandi og Ameríku, —
franskar, þýskar, ástralskar,
norrænar (utan við þessa tölu
eru íslensku myndirnar). Þetta
er, með fullri virðingu fyrir
enskum og amerískum myndum,
afleitt. Allir hljóta að sjá hversu
brengluð mynd fæst af viðfangs-
efnum, aðferðum og möguleikum
kvikmyndagerðar með slíku úr-
vali. 90% af nýsköpun í kvik-
myndum fer ekki fram í Eng-
landi og Ameríku. Svo einfalt er
það nú. Og kvikmyndahátíð, sem
ekki heppnaðist vel 1984, og
norrænn kvikmyndaklúbbur,
sem lítið fer fyrir af einhverjum
ástæðum, bæta þessa þröngu
einstefnu ekki upp nema að tak-
mörkuðu leyti.
V
Topp-tíu listarnir okkar Sæ-
björns bera líka með sér að nýir,
ungir kraftar velja sér ekki eða
fá ekki viðfangsefni sem ein-
hverju máli skipta. Það eru
gömlu og miðaldra mennirnir,
sumir löngu dauðir, sem halda
uppi reisninni — Alfred Hitch-
cock og Fritz Lang, Ingmar
Bergman og Lewis Gilbert,
Francois Truffaut, Coppola og
Scorsese. Á þessu eru nokkrar
gleðilegar undantekningar, eins
og Roger Spottiswoode með póli-
tíska spennumynd sína Under
Fire, Lawience Kasdan með in-
dæla gegnumlýsingu á ’68-kyn-
slóðinni frægu í The Big Chill,
Graeme Clifford með vandað
ævisögudrama úr Hollywood,
Frances, og svo eru í grenndinni
við listana áhugaverðar myndir
eins og Silkwood eftir Mike Nich-
ols, Local Hero eftir Bill Forsyth
og fleiri.
Óskandi væri að ungir kvik-
myndagerðarmenn þróuðu
myndir sínar frá tækni og vél-
búnaði og bellibrögðum í átt til
venjulegs og óvenjulegs fólks,
legðu meiri áherslu á persónur
en dauða hluti. George Orwell
myndi fíla það. En hann borgar
víst ekki fleiri bíómiða úr þessu.
VI
í íslenskri kvikmyndagerð
urðu þau tíðindi helst árið 1984
að til urðu tvær tegundir mynda:
Annars vegar „metnaðarfullar
myndir" og hins vegar „metnað-
arlausar myndir". Það voru
einkum tveir af reyndustu leik-
stjórum okkar, Hrafn Gunn-
laugsson og Þorsteinn Jónsson,
sem héldu á lofti nauðsyn þess
að íslendingar gerðu það sem
þeir kölluðu „metnaðarfullar
myndir". Þeir áttu þá við eigin
myndir — Hrafninn flýgur og At-
ómstöðina. Ekki var unnt að
skilja þá öðru vísi en svo, að
mynd væri ekki „metnaðarfull"
nema hún kostaði meira en inn-
anlandsmarkaður gæti borgað
og væri beint eða óbeint stíluð
fyrir erlenda áhorfendur. Þetta
er grundvallarmisskilningur,
sem því miður hefur ekki skilað
sér í öðru en fjárhagslegum
ógöngum, skuldafeni fyrir við-
komandi kvikmyndagerðar-
menn. Myndirnar voru hvor á
sinn hátt vandaðar, „metnaðar-
fullar", en alheimsmarkaðurinn
hefur látið á sér standa. Trúlega
urðu menn að reka sig á þetta
sjálfir. En báðar myndirnar, At-
ómstöðin og Hrafninn flýgur,
hafa að sönnu aukið á fagþekk-
ingu og reynslu sem okkar fólk
býr að. Á sínum forsendum er
Hrafninn flýgur óneitanlega
best heppnuð af innlendum
kvikmyndum ársins. Ég er sjálf-
ur ekki sáttur við forsendurnar;
hér eru spaghettivestrar Sergios
Leone notaðir sem nánast kalkí-
pappír fyrir íslenska miðalda-
sögu með endurtekningum í
drápsatriðum og dauft teiknuð-
um persónum. Én það er fjanda-
kornið kraftur og stemmning í
myndinni. Atómstöðin er lýs-
andi fyrir vandvirkni Þorsteins
og félaga. En hún er lika lýsandi
fyrir það að skáldsaga Halldórs
Laxness hentar ekki fyrir bíó-
mynd.
Tvær myndir á árinu gætu
flokkast sem „metnaðarlausar",
þ.e. þær eru fyrst og síðast gerð-
ar fyrir innfædda, tiltölulega
ódýrar og einfaldar í fram-
kvæmd. Þetta eru Dalalíf og Kú-
rekar norðursins. „Metnaðar-
leysi" er skynsamleg stefna þeg-
ar í því felst að gera myndir um
og fyrir íslendinga. „Metnaðar-
leysi“ er vond og hættuleg stefna
ef í því felst að gera jafn lélegar
myndir og þessar tvær. Góð
formúla, góðar hugmyndir og
kómisk kanóna á borð við Eggert
Þorleifsson duga hvergi þegar
kastaö er til höndum i allri úr-
vinnslu eins og í Dalalífi. Sama
fúskið háir Kúrekum norðursins,
og ef einhverjum finnst það
hæfa viðfangsefninu — norð-
lensk-amerískum sveitasöngvur-
um — ja, þá það. Þessar tvær
myndir eru dapurleg afturför
fyrir íslenska kvikmyndagerð á
síðasta ári.
Nýjustu íslensku bíómyndinni
sem frumsýnd var undir lok
1984, Gullsandi eftir Ágúst Guð-
mundsson, voru valdar skyn-
samlegar forsendur — tiltölu-
lega „metnaðarlítir í umfangi
og útgjöldum, „metnaðarfuir í
efnisvali. En hún olli vonbrigð-
um. Þessi netta pólitíska gaman-
mynd tollir ekki saman, gliðnar í
dramatíska frumparta sína. Eft-
irminnileg er aðeins afburða
tökuvinnsla Sigurðar Sverris
Pálssonar.
Ég hef á tilfinningunni að ís-
lenskir kvikmyndagerðarmenn
þurfi að taka í hnakkadrambið á
sjálfum sér. Ástæðulaus sjálfs-
ánægja er einkennandi fyrir ný-
liðið ár. Nú þurfa menn að gera
kröfur inn á við ekki síður en út
á við — horfa um öxl og líta í
eigin barm, jafnvel þótt hnykkur
komi á hálsinn í sveiflunni. Þá
verða framfarir, þá koma áhorf-
endur, þá koma meiri peningar i
kassann.
1984 er vonandi ekki „það sem
koma skal“ í kvikmyndagerð.
Annars fá fleiri grænar bólur en
George Orwell.
HÚS-
BYGGJENDUR
Til afgreiðslu af lager:
Niðurfallsrör
Rennubönd
Þakrennur
Þakgluggar
Þaktúður
Gaflþéttilistar
^öljárn, SY)
Klipptog \ </
beygt járn af
ýmsum gerðum
Öll almenn
blikksmíði.
'S
BREIÐFJORÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Leittö nánari upptýsinga
aðSigtúni7 Simit29022
Wterkurog
k3 hagkvæmur
auglýsingamióill!
Útsalan
í gjafavöru- og húsgagnadeild
heldur áfram
15%
afsláttur
á töskum frá
KRISTJfiíl
SIGGEIRSSOO Hfi
LAUGAVEG113. REYKJAVÍK, SÍMI 2S87D
VERZLUNIN
Fannv
Útsalan hefst á mánudaginn
Fanny
Laugavegi 87