Morgunblaðið - 26.03.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ1985
B 5
Reykjavíkurmótið í
knattspyrnu hefst
á fimmtudaginn
KEPPNISTÍMABIL knattspyrnu-
manna hefst í vikunni. Fyrsti leik-
urinn i Reykjavíkurmótinu fer
fram nmstkomandi fimmtudag.
Þá mætast KR og ÍR. En ÍR-ingar
taka nú þátt í Reykjavíkurmótinu
í fyrsta skipti í meistaraflokki
karla. Leikur liðanna hefst kl.
20.30.
I ár veröur nýtt fyrirkomulag á
Reykjavíkurmóti meistaraflokks,
þannig aö liöin leika í tveimur riöl-
um, síöan veröa undanúrslit og
svo úrslitaleikur. Meö þessari nýj-
ung er veriö aö reyna að fá stíg-
anda í mótiö.
Dregiö var í riöla og eru þeir
þannig:
A-riöill: KR, Fram, Þróttur, ÍR.
B-riðill: Fylkir, Valur, Ármann,
Víkingur.
Gert er ráö fyrir aö allir leikirnir fari fram á gervigrasvellinum í Laug-
ardal.
Á undan mörgum þessara leikja fara fram leikir í meistaraflokki
kvenna.
Leikir á gervigrasvellinum í Laugardal á vegum KRR, í mars, apríl
28. mars KR — ÍR mfl. karla kl. 20.30
30. mars Fylkir — Víkingur mfl. karla kl. 14.00
31. mars Fram — Þróttur mfl. karla kl. 20.30
2. apríl Valur — Ármann mfl. karla kl. 20.30
9. apríl ÍR — Þróttur mfl. karla kl. 20.30
11. apríl Fram — Víkingur mfl. kvenna kl. 19.00
11. apríl Víkingur — Ármann mfl. karla kl. 20.30
14. apríl ÍR — KR mfl. kvenna kl. 19.00
14. apríl KR — Fram mfl. karla kl. 20.30
16. apríl Fylkir — Valur mfl. kvenna kl. 19.00
16. apríl Fylkir — Valur mfl. karla kl. 20.30
18. apríl Fram — iR mfl. kvenna kl. 19.00
18. apríl Fram — ÍR mfl. karla kl. 20.30
21. apríl Víkingur — Valur mfl. kvenna kl. 19.00
21. apríl Valur — Víkingur mfl. karla kl. 20.30
23. apríl KR — Fylkir mfl. kvenna kl. 19.00
23. apríl Þróttur — KR mfl. karla kl. 20.30
24. apríl Víkverji — KR Rvk.mót 1. fl. kl. 20.30
25. april Ármann — Fylkir mfl. karla kl. 20.30
28. apríl ÍR — Víkingur mfl. kvenna kl. 19.00
28. apríl Rvk.mót undanúrslit mfl. karla kl. 20.30
29. apríl Valur — KR mfl. kvenna kl. 19.00
29. apríl Rvk.mót undanúrslit mfl. karla kl. 20.30
Gervigras-
völlurinn vígð-
ur í kvöld
I KVÖLD verður gervigrasvöllur-
inn í Laugardal formlega vigður.
Þá leika á vellinum úrvalslið af
landsbyggðínni og Reykjavíkur-
úrval. Líðin eru þannig skipuð:
Reykjavík:
Fram: Ásgeir Elíasson, Ómar
Torfason, Guömundur Steinsson,
Guömundur Torfason.
KR: Sæbjörn Guömundsson,
Gunnar Gíslason, Stefán Jó-
hannsson.
Valur: Guöni Bergsson, Guö-
mundur Þorbjörnsson, Þorgrímur
Þráinsson.
Víkingur: Aöalsteinn Aöal-
steinsson, Andri Marteinsson,
Ámundi Sigurösson.
Þróttur: Guömundur Erlingsson,
Ársæll Kristjánsson, Kristján
Jónsson.
Úrvalslið af landinu sem leikur
gegn Reykjavíkurúrvalinu i kvöld í
Laugardalnum veröur þannig skip-
aö:
Þorsteinn Bjarnason ÍBK, Birkir
Kristinsson ÍA, Árni Sveinsson ÍA,
Erlingur Kristjánsson KA, Siguröur
Lárusson ÍA, Valþór Sigþórsson
ÍBK, Jónas Róbertsson Þór, Bene-
dikt Guömundsson UBK, Einar Ás-
björn Ólafsson Víöi, Njáll Eiðsson
KA, Karl Þóröarson ÍA, Sveinbjörn
Hákonarson ÍA, Jón Erling Ragn-
arsson FH, Ragnar Margeirsson
ÍBK, Halldór Áskelsson Þór.
Leikurinn hefst kl. 20.00.
• Sigurlið Vífilsfells, sem sigraði fyrir stuttu. Fv. Nikulás Jónsson,
í firmakeppni Þróttar i knatt- Birgir Sigurðsson, Gunnar Gunn-
•pyrnu innanhúss, sem fram fór arsson og Páll Ólafsson.
ASEA
rafmótorar
Nú eru ASEA rafmótorar í næsta nágrenni viðskiptavina sinna: —
AUSTURLAND: Rafmagnsverkstæði Leifs Haraldssonar, Seyðisfirði
VESTMANNAEYJAR: Geisli, Vestmannaeyjum.
SUÐURNES: Rafiðn, Keflavík
VESTFIRÐIR: Póllinn, ísafirði
NORÐURLAND: Raftækni, Akureyri. I /Í/Aff*
Sölumenn okkar veita frekari upplýsíngar ef óskað er. •/%//f/f
‘RÖNNING
Sundaborg,
simi 84000
i
Sjö„smá"atriði
sem stundum gleymast
viðval
á nýrri þvottavél
IÞvottavél sem á að nægja venju-
legu heimili, þarf að taka a.m.k.
S kfló af þurrum þvotti, þvf það ér
ótrúlega fljótt að koma í hvert kíló
af handklæðum, rúmfötum og bux-
um. Það er líka nauðsynlegt að hafa
sérstakt þvottakerfi fyrir lítið magn
af taui, s.s. þegar þarf að þvo við-
kvæman þvott.
2Það er ekki nóg að hægt sé að
troða 5 kílóum af þvotti inní
vélina. Þvottavélin þarf að hafa mjög
stóran bvottabelg og þvo í miklu
vatni, til þess að þvotturinn verði
skfnandi hreinn. Stærstu heimilis-
vélar hafa 45 lítra bvottahelo
3Vinduhraði er mjög mikilvægur.
Sumar vélar vinda aðeins með
400-500 snúninga hraða á mfnútu,
aðrar með allt að 800 snúninga
hraða. Góð þeytivinda þýðir ekki
aðeins að þvotturinn sé fljótur að
þorna á snúrunni (sum efni er reynd-
ar hægt að strauja beint úr vélinni),
heldur sparar hún mikla orku ef
notaður er þurrkari.
4Qrkuspamaður er mikilvægur.
Auk verulegs sparnaðar af góðri
þeytivindu, minnkar raforkunotkun-
in við þvottinn um ca. 45% ef
þvottavélin tekur inn á sig bæði heitt
og kalt vatn.
5Verðið hefur sitt að segja. Það
má aldrei gleymast að það er
verðmætið sem skiptir öllu. Auð-
vitað er lítil þvottavél sem þvær
lítinn þvott í litlum þvottabelg, tekur
aðeins inn á sig kalt vatn og þeyti-
vindur illa, ódýrari en stór vél sem
er afkastamikil, þvær og vindur vel
og sparar orku. Á móti kemur að sú
litla er miklu dýrari og óhentugri í
rekstri og viðhaldsfrekari.
6Þjónustan er atriði sem enginn
má gleyma. Sennilega þurfa eng-
in heimilistæki að þola jafn mikið
álag og þvottavélar og auðvitað
bregðast þær helst j>egar mest reynir
á þær. Þær bestu geta Ifka brugðist.
Þess vegna er traust og fljótvirk
viðhaldsþjónusta og vel birgur vara-
hlutalager algjör forsenda þegar ný
þvottavél er valin.
7Philco er samt aðalatriðið. Ef
þú sérð Philco merkið framan á
þvottavélinni geturðu hætt að hugsa
um hin „smáatriðin" sem reyndar
eru ekki svo lítil þegar allt kemur
til alls. Framleiðendur Philco og
biónustudeild Heimilistækja hafa
séð fyrir þeim öllum:
5 kfló af þurrþvotti, 45 lítra belgur,
800 snúningar á mfnútu, heitt og kalt
vatn, sanngjarnt verð og örugg
þjónusta.
Við erum sveigjanlegir
í samningum!
„Veríu
orugeur
velduFhilco
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI3 - 20455 - SÆTÚNI8 -15655