Morgunblaðið - 26.03.1985, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.03.1985, Qupperneq 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1985 Morgunblaötö/ Skaptl Hallgrimsson • Varnarmenn Metaloplastika tóku FH-ingana ekki neinum vettlingatök- um í leiknum á laugardaginn. Hór (til vinstri) er þaö Guöjón Arnason (no. 13) sem á í höggi viö risann sterka Veselin Vukovic. Á myndinni aö ofan er eitt 17 marka FH í leiknum aö veröa staöreynd — Hans Guö- mundsson er í þann veginn aö skora framhjá Basic úr vítakasti. Þaö liö er vandfundið sem leikur skemmtilegri handknattleik en Metaloplastika: Hroðalegur lokakafli FH gerði útslagið - skoraði fjögur mörk gegn tólf á síðustu sextán mínútunum og fimmtán marka tap varð staðreynd Sabac, Júgóslaviu, 23. mars. Fri Skapta Hallgrímssyni, Maöamanni Morgunblaösins. FH-INGAR uröu aö sœtta sig viö fimmtán marka tap gegn júgóslavnesku handknattleikssnillingunum í liöi Metaloplastika hér í Sabac í dag í fyrri leík liöanna í fjögurra liöa úrslitum Evrópukeppni meistaraliöa. Lokatólurnar 32:17, fimmtén marka munur. Leikmenn FH voru é því aö tíu marka tap heföi ekki veriö neitt til aö skammast sín fyrir, en skellurinn heföi veriö of stór. En hafa verður í huga aö mótherjarnir eru engir aukvisar — nénast landsliö Júgóslava eins og þaö leggur sig, núverandi ólympíumeistarar. í iiöi Metalo- plastika eru ekkert nema snillingar. Liðiö leikur stórkostlega og óg er ansi hræddur um aö þaö liö sé vandfundiö é jarðarkringlunni sem leikur skemmtilegri handknattleik. Orö fé vart lýst snilli þessara manna; mýktin er eins og hjé bestu fimleikamönnum, knatttæknin minnir meira é fjöllistamenn en „venjulega" handboltamenn og samæfingin er slík aö þaö er eins og einn heili hugsi fyrir allan hópinn. Skotharkan, stökkkrafturinn, línuspilió ... það vaari hægt aö telja upp öll hugtök sem fyrirfínnast í handknattleiksheim- inum og alls staöar eru þessir menn é toppnum. Jé, þetta hlýtur að vera besta félagslið í heimi í dag. Staóreyndin er sú aó FH-ingar stóöu sig meö prýói lengi vel — nénast jafn vel og hægt er aö ætlast til af þeim é útívelli gegn þessum mönnum fyrir troöfullu húsi éhorfenda sem studdu vel við bakiö é sínum mönnum þó svo aó FH-lióið eigi aó geta leikiö mun betur en það gerði þarna. Staöan í leikhléi var 14:8, sex marka munur, og júgóslavneskir fréttamenn sögðu mér í hélfleik að þeirra menn hefóu ekki néö sér nógu vel é strik. Þaö kom líka í Ijós í síðari hélfleiknum þegar þeir keyrðu upp hraðann aö það var gjörsamlega vonlaust aö stöðva þé. Leikurinn þróaöist svo þannig að FH-ingarnir hreinlega sprungu þegar rúmar fimmtén mínútur voru til leiksloka og þé skoraði Metaloplastika hvert markiö af ööru. FH-ingar ákveðnir í fyrri hálfleik Þeir sem hófu leikinn fyrir FH voru Haraldur Ragnarsson, sem stóö í markinu, Jón Erling, Hans, Þorgils Óttar, Guójón Árnason, Kristján Ara og Valgarö. FH-ingarnir byrjuöu með boltann og eftir langa sókn varöi Basic þrumuskot Kristjáns. FH-ingarnir náöu boltanum aftur og Hans skaut síðan yfir. Júgóslavarnir brunuöu fram og brotiö var á Mile Isakovic i dauóafæri. viti sem Vujovic skoraöi fyrsta mark leiks- ins úr. Áhorfendur fögnuöu inni- lega en þeir þögnuöu skyndilega er Þorgils Óttar sveif inn af linunni eftir sendingu Jóns Erlings og jafn- aöi 1:1. Portner kom Metalo yfir á ný og Vukovic, vöövabúntiö á línunni, geröi þriöja markiö. Portner gerði svo 4. markiö og staöan oröin 4:1. FH-ingar léku ekki nógu yfirvegað þarna um tima en síöan skoruöu þeir næstu tvö mörk. Fyrst Kristján eftir uppstökk og þá Jón Erling eft- ir hraöaupphlaup. Staóan oröin 4:3. Hornamaöurinn Mrkonja, sem lék frábærlega aö þessu sinni — var besti maöur liösins þó erfitt sé aö nefna einhvern einn, skoraói fimmta markiö á glæsilegan hátt og Þorgils Óttar minnkaöi muninn í 5:4. Þorgils, sem lék mjög vel i dag, skoraði þarna glæsimark eftir sendingu Kristjáns Ara inn á lín- una. Næstu þrjú mörk voru júgó- slavnesk og eftir fjórtán mínútna leik var staöan orðin 8:4. Hans skoraöi fimmta mark FH meö þrumuskoti og siöan geröi örv- henta skyttan Cvetkovic 9. mark Metalo — þrumuskot hans lenti í FH-markinu sem skalf og nötraöi á eftir. Hans skoraði aftur, úr viti eft- ir aö gróflega haföi veriö brotiö á Óttari. Staöan 9:6. Vantaði meiri aga Fram aö þessu höfóu FH-ing- arnir verið mjög ákveönir — þeir léku af festu í vörn og neituöu aö gefast upp þó andstæöingarnir kæmust nokkrum mörkum yfir. Sóknarleikurinn var á köflum ágætur en meiri aga vantaöi þó í hann. Mile Isakovic, sem talinn er Metalo — FH 32:17 besti hornamaður í heimi, náöi sér ekki vel á strik framan af leiknum. Fyrsta mark sitt geröi hann t.d. ekki fyrr en tiu min. voru til leiks- loka! Þegar staöan var 9:6 upp úr miójum fyrri hálfleik tók Mile víta- kast, hann hugöist plata Harald meö þvi aö þykjast skjóta, geröi það nokkrum sinnum og rússn- esku dómararnir dæmdu á hann töf. Þeir fengu aldeilis aö heyra þaö hjá áhorfendum, Rússarnir, baulaö var og flautaö á þá þannig aö undir tók í húsinu. Mile var heldur ekki sáttur viö dóminn og var rekinn af velli fyrir aö brúka kjaft. Næstu fimm mín. einkenndust af mistökum beggja liöa og næsta mark kom ekki fyrr en tæpum fimm mín. síðar. Mrkonja skoraöi þaö eftir hraöaupphlaup, staöan 10:6. Guöjón Árnason skoraöi 7. mark FH eftir uppstökk og 11. mark Metalo geröi svo línumaöur- inn Vukovic eftir frábæran undir- búning Portner. Kristján Arason geröi 8. mark FH eftir hraöaupp- hlaup en Vujovic svaraöi strax meö þrumuskoti, 12:8. Vujovic geröi einn næsta mark — stór- kostlegt „sirkusmark“ er hann greip knöttinn á lofti inni í teignum og skoraöi. Júgóslavarnir áttu síó- asta oröiö í hálfleiknum — stór- skyttan Kuzmanowski skoraöi með þrumuskoti. Hans skoraöi fyrsta mark síöari hálfleiksins meö fallegu skoti, staöan 14:9, en Kuzmanowski og Vukovic breyttu henni fljótt í 16:9. Hans geröi 10. markiö úr víti sem Þorgils Óttar fiskaöi og Mrkonja skoraöi svo 17:10. Vukovic geröi 18. markiö af linunni og Mrkonja síöan þaö 19. úr hraðaupphlaupi eftir hroöaleg mistök FH-inga. Þeir misstu boltann í tvígang hroöalega klaufalega á þessum tíma. Draga fer af leikmönnum FH Þorgils Óttar skoraöi 11. mark FH úr hraóaupphlaupi er átta og hálf min. var liðin af hálfleiknum — staöan þá 19:11, og Valgarö skor- aöi 12. markið laglega úr horninu. Vukovic geröi 20. mark Metalo og Þorgils geröi mjög fallegt mark af linunni eftir sendingu Jóns Erlings. Staöan þá 20:13. Sjö marka mun- ur, og ellefu og hálf mín. liöin af siöari hálfleik. Þegar hér var komið sögu fór aö draga verulega af FH-ingum og slíkt má ekki gegn liöi eins og Metaloplastica. Mörkin tóku að hrúgast upp — staöan breyttist t.d. úr 20:13 í 24:14 á stuttum tíma og síöan í 31:15. Hrun FH-inga var algert en júgó- slavnesku snillingarnir léku viö hvern sinn fingur og skoruöu hvert stórkostlega markiö á fætur ööru. Þegar staöan var 20:13 tók Vujovic vítakast, en Sverrir Krist- insson, sem kom inn á í staö Har- aldar þarna, varöi. Óttar skoraöi 14. markiö af línu, aöþrengdur og siöan geröi Metalo sex mörk í röö. Ekkert gekk upp hjá FH á því sjö mín. tímabili. Guöjón Guömunds- son laumaöi síöan inn einu marki er tveir Júgoslavarnir höfóu veriö reknir af velli — staöan þá 26:15. Þá kom annar langur kafli sem FH geröi ekki mark. Óttar skoraöi 16. markiö og þá voru ekki nema 1:47 mín. eftir. Eftir aö Guöjón gerói 15. mark FH skoruöu Júgóslavarnir fimm mörk í röö — staöan þá oröin 31:15. Óttar geröi 16. markíð eins og áöur sagöi og Mile Isakovic skoraöi svo síöasta mark Metalo. Kristján Arason skoraöi 17. mark FH beint úr aukakasti eftir aö leiknum var lokiö. Risarnir í Met- alo-liðinu stilltu sér upp til varnar en Kristján sá viö þeim. Ekki i fyrsta skipti sem Kristján afrekar þetta. FH-ingar geta mun betur Þaö væri tóm vitleysa aö ímynda sér aö FH-ingar hafi ein- hverja möguleika á aö komast áfram. Þaó er öllum Ijóst aö slíkan mun geta þeir ekki unniö upp á heimavelli en engum blööum er um þaö aö fletta aö þeir geta, og munu vonandi, sýna þessum snill- ingum í tvo heimana á góöum degi. Þaö er engin skömm aö detta út úr Evrópukeppninni gegn sliku liöi en munurinn í leiknum hér í dag var vitaskuld heldur mikill. Hraöinn í leik Júgóslavanna var gífurlegur. FH-ingar voru staö- ráönir í því fyrir leikinn aö beita löngum sóknum og reyna þannig aö halda hraöanum niöri. Leika agaö og reyna aö halda mistökum i sókninni i algjöru lágmarki því vit- aö var aö andstæðingarnir eru griöarlega fljótir aö færa sér slíkt í nyt. Þetta tókst FH-ingum alis ekki nógu vel. Aginn í sókninni var ekki nógu mikill — oft var skotió úr lélegum færum og of fljótt. Vörn júgóslavneska liösins var aö sjálf- sögöu gífurlega sterk. Leikmenn þess eru stórir og sterkir og þaö er enginn hægöarleikur aö koma boltanum fram hjá þeim. Þeir komu mjög vel út á móti skyttun- um, Kristjáni og Hans, og skipt- ingarnar voru góöar í vörninni. Ýmist léku þeir 6:0-, 5:1- eöa jafn- vel 3:3-vörn. Það hve vel þeir pössuöu skytturnar varö til þess aö Þorgils Óttar fékk nokkuð færi og nýtti þau vel. Þorgils lék geysi- lega vel og skoraöi oft úr þröngum færum af haröfylgi. Þaö gefur augaleió aö Kristján Arason hefur ekki náö sér á strik í sókninni. Hann skoraði ekki nema eitt mark eftir uppstökk, eitt úr horni og síö- an úr aukakastinu eftir leikinn. Hans á einnig aö geta betur. Skor- aöi 4 mörk þar af 2 úr vítum. Frábært lið Það er geysilega erfitt að leika vörnina gegn þessu júgóslavneska liöi. Helst er aö reyna aö leika maöur gegn manni því ef menn ætla aö hjálpa náunganum þá er annar mótherji orðinn laus í færi og undantekningarlaust búinn aö fá boltann í hendurnar áöur en menn fá deplaö auga. Þannig var þaö t.d. oft meö Vujovic og Vuko- vic. Sá fyrrnefndi ógnaöi hvaö eftir annaö meö uppstökkum eöa á annan veg og gaf síðan inn á lín- una á Vukovic, en hann skoraöi sex mörk í leiknum. Þetta liö er frábært i einu oröi sagt. Enginn veikur hlekkur. Mörk Metaloplastica geróu Jasmin Mrkonja 9, Veselin Vukovic 6, Veselin Vujovic 5, Mile Isakovic 4, Zlatko Portner 4, Jovica Cvetko- vic 2 og Slobodan Kuzmanowski 2. Mörk FH: Þorgils Óttar Mathie- sen 6, Hans Guðmundsson 4 (2 víti), Kristján Arason 3, Jón Erling Ragnarsson 1, Valgarö Valgarös- son 1, Guöjón Guðmundsson 1 og Guöjón Árnason 1. Dómarar voru rússneskir, Kisel- ev og Kijasko. Þeir voru hliöhollir Júgóslövunum (eins og venja virö- ist vera um Evrópuleiki, heimaliöiö hagnast á dómgæslunni) en ekki hafði þaö nein áhrif á úrslitin. — SH.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.