Alþýðublaðið - 11.12.1931, Qupperneq 3
iMfPSEÐUBlfJdSISl
8
Zamora forsetL
Madrid, 10. dez. U. P. FB. Zamora er kosinn forseti. lýðveklis-
ins.
Vold oo ráöleysi
Þegar Faraó gamli réð Egipta-
landi komu 7 hallærisár yfir
landið, en hann var svo forsjáll
að geyma afganginn frá góðu ár-
umiiii til hinna, svo að það sak-
aði ekki þjóðina. En það vitrðist
svo sem valdhöfunum sé að fara
aftur, ef maður lítur tiil ríkis-
stjórnarinnar hér á landi og bú-
skapar hennar. Hér hafa verið
góðæri síðan þessd stjórn tók við.
En hver er afgangurinn frá þeim
góðu árum? Hann virðist enginn
vera, þar sem hundruð manna
hafa verið atvinnulaus að miMlu
leyti síðan í fyrra haust, en
stjórnin hefir ekki hre;yft hönd
til að bæta úr því og stendur
þar Thlið við hlið gamla ihaldinu
í von um að geta svelt fólkið til
kauplækkunar. En við verkamenn
erum farnir að þekkja brellur í-
haldanna og höldum fast við okk-
ar rétt
Það eru slæmar efndirnar hjá
Jónasi og Tryggva og öllum
þeirra kosningasmölum, alt að
Helga bankastjóra, á öllum
mörgu og stóru loforðunum um
lækkun dýrtíðarinnar. Það hefir
verið annað í reyndinni seinustu
mánuðina, þar sem flest hefir
hækkað og hækkar þó mikið
meira. Verkalýðurinn stendur
uppi atvinnulaus, en hækkandi
verðlag.
Það er sagt, að stjómin sé treg
á að opna Bjargráðasjóðinn og beri
það fyrir sig, að hans starfssviði
sé ek/ri að bæta úr öðru hallæri
en sem komi frá náttúrunni, en
ekki frá vitlausu þjóbskilpulagi,.
En svo halda sumir, að sjóður-
inn sé ekki til nema á pappírn-
um; en þetta kemur í Ijós á sín-
um tíma.
Hitt verða þeir að hafa, að
þeir þrír eru minni stjórnendur
en Faraó var. Að þeir hafi ekki
verið aðvaraðir eins og hann, það
geta þeir ekki haft sér til miáls-
bóta, því jafnaðarmenn hafa bor-
ið fram bjargráðafrumvörp á
undanförnum þingum, sem íhöld-
in hafa hjálpast að að eyÖileggja.
Jafnaðarmenn vita það, að
kreppur Roma yfir löndin meðan
þetta skipulagsleysi, sem nú er,
er á allri framleiðslu.
Einn úr kjördœmi Tryggva.
AfeaoisbroBoari tefeiim.
I gær handtók lögreglan norsk-
an mann, sem staðinn var að á-
fengisbruggun, Var hann úti í
línuveiðara á höfninni, var tal-
inn vera varðmaður á honum, en
reyndist vera að brugga áfengi.
Þegar lögæglan kom að rann á-
fengið út úr bruggunaráhöldun-
um hjá honum. Hafði hann mik-
inn bruggunar-útbúnað og hafði
ráðgert að setjast að í námunda
við Reykjaví/c með brugg sitt.
Maður þessi hefir verið hér í
bænum síðan árið 1925, en nú er
hann hvergi skrifaður eiga heima.
Hann var settur í gæzluvarðhald
og er búist við, að hann muni
verða sendur til Noregs eftir að
hann hefir sætt nefsingu fyrir
bruggunina.
Gengi erlendra mynta hér í
dag:
Sterlingspund kr. 22,15
Dollar — 6,73
100 danskar krónur — 122,38
— norskar — 121,76
—• sænskar — 122,38
— þýzk mörk 159,70
Vedrid. Lægðin, sem var yfir
Grænlandshafi í gær, er nú kom-
in norður fyrir Jan Mayen og
veldur vestanátt um allan norð-
urhluta Atlantshafsins. Veðurút-
lit í dag og nótt á Suðvestur- og
Vestur-Iandi: Suðvestan eða vest-
an-kaldi með allhvössum snjóélj-
um öðru hverju.
íslenzka krónan er í i@(ag! í (55,45
gullaurum.
Bezta Gioarettan í 20 stk pöfefeum
sem kosta 1 krónn, er:
Commander,
Westminster,
Viroinia,
&
Cigarettar*
Fást í ollum verzlunum.
I hverjm pakka er gnllfalleg fslenzk
mynd, og fœr hver sá, er safnað hefir 50
myndm, eina stækkaða mynd.
&
&
&
< 5
$r H
&
$
Grænlandsieiöangur Wepeaers.
Fyrirlestur um þetta efni flytur Jón Jónsson frá Laug á
sunnudaginn kl. 3 i Gamla Bíó. Aðgöngumiðar verða seldir á
morgun í bókaverzlun Sigf. Eymundssonar og i bókaverzlun Ar-
inbjarnar Svembjarnarsonar og Gamla Bíó á sunnudag eftir kL
1 og kosta 1 krönu.
Málverkasýning
Ólafs Túbals.
Ólafur Túbals hefir þessa dag-
ana málverkasýningu í sýningar-
stofunni á Laugavegi 1 (í bakhús-
inu). Sýnir hann þar fjölda mál-
verka. Eru þau flest af hálendi
Islands, einnig nokkur úr „Óð-
ins“-förinni s. 1. vor i námunda
Grænlands.
Sýningar Ólafs sýna, að hann
er að sækja fram á listamanns-
brautinni og vinna nýja sigra.
Með fegurstu myndunum, sem
verið hafa á þessari sýningu, var
„Vormorgun við Bleiksá". Hún er
nú seld og er veriö að flytja hana
til Englands. Þórsmerkurmyndin
frá Hamraskógii, nr. 2, er einkar-
fögur. Margar myndir eru frá
Þingvöllum, á ýmsum tímium árs
og dags og í blíðu og stríðu veð-
urlagii. Þar af eru tvær, er mér
virðast bera af hinum um fegurð,
nr. 15, morgunmynd, og nr. 7,
kvöldmynd. Margt er einnig fag-
urt um Tindafjallamyndina nr. 8,
útsýni frá Þórsmörk.
Tvær myndir af „Óðni“, önnur
þegar hann var að komast í
Grænlandsísinn, hiin i ísnum, seld-
ust fyrstar, stuttu eftir að sýning-
in var opnuð. (Þær eru kyrrar á
sýningunni.) Aðrar myndir úr
þessari för eru af ísborgum og
útsýni til Grænlandsstrandar.
Af smærri myndunum vil ég
sérstaklega geta tveggja, er mér
þykja einna fegurstar þeirra.
Eru það nr. 56, „Frá Rangárvöll-
um um kvöld" (ofarlega við
Eystri-Rangá) og Þórsmérkur-
myndin nr. 54, „Útsýn úr Húsa-
dal“.
Sýningin verður opin fram yfir
helgina næstu, en ekki mun enn
ákveðið, hvort eða hve lengi eft-
ir það. A. m. k. verður tækifæif
ámorgun og sunnudaginn til þess
að skoða hana. Hún er opin frá
kl. 10 árdegis tiil kl. 9 síðdegis.
Gudm. R. Ólafsson
úr Grindavik.
Síðustu forvöö.
Einkenniilegur viðburður skeði í
Kaposvar í Ungverjalandi um
daginn. Maður að nafni Sandor,
68 ára gamall bóndi, vel stöndug-
ur, hafði stefnt manni út af smii-
misklíð þeirra í millum.
Þegar fyrir rétt kom sagði
dómarinn, að hér væri um svo
lítið mál að ræða, að Sandor væri
bezt að sættast við manninn, enda
mundi hann hafa stefnt honum í
nokkurri bræði. Viðhafði dómar-
inn þau orð, að það væri bezt áðí
fyrirgefa smámunina meðan mað-
ur væri lifandi, þegar maður væri
dauður væri það of seint. i
Félst Sandor á þetta, sagðist
láta málið falla niður, og rétti:
mótstöðumanni sínum hendina.
En er þeir höfðu tekist í hend-
ur hneig Sandor niður, og héldu
menn hann hefði fallið í ómegin.
En þegar að var gáð var hann
örendur, hafði fengið hjartaslag.
Útvarpid í dag: Kl. 16,10: Veð-
urfregnir. Kl. 19,05: Þýzka, 1. fl.
Kl. 19,30: Veðurfregnir. Kl. 19,35:
Enska, 1. fl. Kl. 20: Erindi unt
varnir gegn sjóslysum, II. (Jón
Bergsveinsson). Kl. 20,30: Fréttir.
Kl. 21: Söngvélarhljómleikar.