Morgunblaðið - 18.10.1985, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.10.1985, Qupperneq 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR18. OKTÓBER1985 MYNDLIST UNNAR ÖR UNNARSSO sýnir í Gunnar Örn Gunnarsson, myndlistarmaður, heldur um þessar mundir sýningu á verkum sínum í velþekktum sýningarsal í New York. Nœstkom andi vor verður önnur sýningþar á verkum hans, aðallega teikningum og höggmyndum. Gunnar Örn fœddist í Reykjavík árið 1946; hann ólst upp hérlendis, en árið 1963 hélt hann til Danmerkur, þar sem hann var við nám í sellóleik. Hann hóf fyrst að mála árið 1964 ogsneri aftur heim til íslands árið EW YORK hún byrjaði að ráöskast með fólk í útkjálkabyggöum Indlands. Á sama tíma dáöist ég að þolinmæöi bíl- stjóra CARE-stofnunarinnar, sem þurftu að hlýða á skammarræður hennar ef áætlanir stóðust ekki. Þessir bílstjórar voru lagnir viö aö breyta um umræöuefni. Eftir aö Maggie hafði formælt seinagangin- um í umferöinni í stundarfjóröung benti einn bílstjórinn sposkur á örn, sem var aö hefja sig til flugs með bráö sína. „Konur í þessu héraöi hafa þá trú aö óbyrjur geti eignast börn ef þær dvelji nógu lengi í musteri því sem staösett er á f jalli arnarins.“ „Hvað gerir örninn til aö lækna þær?“ „Hann gerir ekkert. Þaö eru sér- stakir tantra yogar, sem búa í musterinu. Ef kona dvelur hjá þeim nógu lengi eru þeir vísir til að seröa hana. Hún veröur þó fyrst aö sýna í oröi og æöi aö hún veröskuldi blíðu þeirra." „Þetta kalla ég þjónustu," sagði Maggieogbrosti. Ljósmyndabakteríuna fékk Maggie á feröum sínum um Suöur- Ameríku. Eftir aö flökkulíf hennar endaöi var leitun aö starfi sem full- nægöi ævintýraþrá hennar. Hún fékk lánaöa myndavél í New York og byrjaöi aö titla sig Ijósmyndara. Fyrsta stóra verkefni hennar var aö taka myndir af forsetaframbjóö- anda demókrata, Jimmy Carter, fyrir Newsweek. Þessar myndir af Carter reyndust hrein gullnáma Hvað varð um öll eftir sigur hans í forsetakosningun- um. Hún leigöi sér stúdíó-íbúö í Greenwich Village og stundaöi dans, yoga og búddisma. Pílagrímsferðir eru mikilvægar fyrir hindúa og múslima. Hindúar leggja mikiö uppúr því aö geta eytt síöustu ævidögum sínum í borg Ijóssins; Varinasi (Benares, Kashi.) Því fylgir mikil blessun. Borgin er byggö viö árbakka Ganges-fljóts- ins. Návígi viö þetta heilaga fljót á að geta frelsaö manninn úr ánauð endurholdgunar. Jafnvel þó margir indverjar fari til Varinasi til aö deyja drottni sínum, þá fór ég þangaö til aö lifa lífinu meö Maggie. Hún flaug, ég tók lest, en viö hittumst eftir sem áöur i mannmergöinni í Varinasi. í fylgd meö henni var kunningjakona hennar, Nina Reznick, lögfræöing- ur frá New York. Þaö fór vel á meö okkur Nínu. Hún var gagnkunnug refilstigum bandarískrar kvik- myndaframleiöslu, enda umboös- maöur margra frægra handritahöf- unda. Vinskapur okkar fór eitthvaö fyrir brjóstiö á Maggie. Hún reyndi á lúmskan hátt aö sýna fram á eigin yfirburöi meö því aö benda á van- kantaNínu. „Hún labbar eins og froskur. Engin furöa meö tilliti til þess aö lappirnar á henni eru risastór lík- þorn.“ „Þaö geta ekki allir fariö í skóna hennar Öskubusku," sagöi ég og reyndi aö eyöa þessu tali. Ósann- gjarnast af öllu fannst Maggie þeg- ar Nína kvartaöi undan afskipta- semi hennar. „Þetta getur hún sagt eftir aö ég er búin aö útvega einu hreinu hol- urnar í Asíu. Hún um þaö ef hún vill búaíeinhverjum rottuholum." „Hvaö er þetta manneskja? Nína þarf aö leika efnaöan lögf ræöing tiu mánuöi á ári. Leyföu henni aö kynn- ast einfaldari lífsmáta í sex vikur. Til þess kom hún til Indlands.” Maggie var búin aö lifa hálfgeröu sultarlífi í New York meöan Nína velti sér uppúr peningum. Nú vildu þær ný hlutverk. Maggie vildi vera drottning, en Nína vildi vera betlari. Ég vildi hinsvegar bara vera ég sjálfur. Hlutverk Frasers átti ekki viö mig til lengdar. Enda kom þaö á daginn aö samband þeirra haföi ekki veriö neinn dans á rósum. Við vorum stödd í Nýju Dehli, þegar hennar lögöu undir ^gina.r i sw Francieco- barst bréf frá kappanum. Þar geröi hann grein fyrir ástæöunum fyrir skilnaði þeirra. „Þaö var ekki útaf þessu gúrú- greppi, sem var fluttur inná þig. Ég var bara búinn aö fá mig fullsaddan. Þetta gekk ekki lengur,“ sagöi hann í bréfinu. Þetta bréf snart einhverja sára strengi í brjósti Maggie. Hún trúöi mér fyrir því aö Fraser heföi John og Yoko á leiö út úr réttarsal. Hann var dæmdur í háa sekt fyrir aö hafa undir höndum cannabis. haldiö viö hverja einustu þýska drós, sem til Varinasi heföi komið. Á sama tima dvaldi hún viö fótskör andlegra meistara og leitaöi aö full- komnun. Eitt sinn þegar Fraser þóknaöist ekki aö vera heima bauö hún vini sínum gistingu. Fraser ætlaöi af göflunum aö ganga þegar hann kom aö þeim þar sem þau sátu i hugleiðslu. Hann tók þetta á versta veg og sagöi skilið viö hana fyrir fullt og allt. Maggie sat eftir meö sárt ennið og tóma buddu. Þessir hippaharmar breyttu engu um þá ákvöröun mína aö segja skiliö viö Maggie og byrja leitina aö Shangri La í Himalaya- fjöllunum. Síðast þegar ég hitti Maggie Hopp í New York haföi hún gengiö í eina sæng meö bandarískum viö- skiptajöfri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.