Morgunblaðið - 18.10.1985, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 18.10.1985, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR18. OKTÓBER1985 B 13 Þótt franskan væri ekki kórsins sterkasta hliö gátu nokkrir kórfélaganna aðeins brugö- iö henni fyrir sig. i Haguenau voru þrír þessara fengnir til að kynna verkin sem viö sungum. Sú franska hefur varla verið gallalaus, en fólk- ió skildi hana, sem auövitaó skiptir mestu. Þaö hlýtur líka að vera betra aö hlusta á kór syngja framandi tónlist á framandi tungumáli, eftir að einhver kórfélaganna hefur stigiö f ram og skýrt efni textans. Á þessum tónleikum sungum viö meöal annars þrjú samstæö verk Jóns Ásgeirssonar við Ijóö Hannesar Péturs- sonar, Hjá fljótinu, Skeljar og Dveljum ekki, verk eftir Pál Pampichler Pálsson viö 2 limrur Þorsteins Valdimarssonar, Vísur Vatnsenda- Rósu í raddsetningu Jóns Asgeirssonar og Smávini fagra eftir Jon Nordal. Þaö er auðvit- aö stór munur aö þekkja efni þessara Ijóöa þegar maöur heyrir verkin flutt. Skipuleggjendur mótsins virtust hafa yndi af því aó stefna saman mjög ólíkum kórum frá löndum sem viröast lítið eiga sameigin- legt. Þannig vorum viö kynnt sem kór frá Skandinavíu á fyrstu tónleikunum og auk okkar sungu þar kórar frá Japan og Suður- Ameríku. Þaö sama virðist hafa vakaö fyrir þeim þegar raöað var saman kórum til aö halda sameiginlega smátónleika. Viö sungum ásamt japönskum stúlknakór í leikhúsi í miö- borginni sem hét því skemmt ilega nafni Palais de fete (Höll hátiöarinnar). Þeir tónleikar voru mjög mikilvægir fyrir okkur því þeir voru tekn- ir upp á segulband og munu lifa áfram okkur til lofseöa háöungar. Einn daginn var okkur stefnt á torg í gamla bænum til að syngja. Það var mjög tíókað að fá kóra til aó halda slíka útitónleika meöan á mótinu stóð, því yfir sumartimann er ævinlega fjöldi manns á rölti um bæinn án þess aó eiga nokkurt sérstakt erindi. Þessu fólki finnst gaman aö láta syngja fyrir sig Viö héldum því uppábúin af stað í stórri rútu og komumst loks á torgiö eftir aö hafa skoöaö ýmsar menjar sem Strassborgarar varöveita f rá fyrri öldum, sumt er ættaö frá Rómverjum sem sátu í borginni þegar veldi þeirra var sem mest. Þótt torgið væri afar smátt og lægi aö ánni rúmuðust þar að minnsta kosti fimm veitinga- staðir. Þarna var mikill manngrúi, h’klega hátt í þúsund manns. Fólkiö tók okkur mjög vel, en eftir á aö hyggja hefur því líklega líkað best við þjóólögin sem viö sungum. Þaö er merkilegt aö íslensk þjóölög, sprottin upp úr samfélagi svo gjörólíku því franska, skulu eiga svo vel upp á pallborðið þar, en þaö uröum viö vör við hvaö eftir annaö. Þegar tónleikunum var lokið tók viö mikil leit að bílstjóra okkar sem viriist hafa gufaö upp meöan við sungum. Hann fannst hvergi nokkurs staöar. Hinsvegar fundum við heilan hóp af spænskum eftirlaunaþegum sem voru á skemmtiferð í Frakklandi. Þetta fólk vildi endilega dansa við okkur ýmsa spænska dansa og lærói okkar eina dans, vikivakann, á svipstundu. Eftir drykklanga stund héldu Spánverjarnir á braut og var þá þolinmæöi okkar á þrotum. En í þann mund er flestir voru farnir að huga aö feröum strætisvagn- anna kom einhver auga á úfinn haus í fram- glugga rútunnar. Þaö var þá bílstjórinn aö vakna af værum blundi útsofinn en rúinn vin- sældum. Höföinglegar móttökur Fáir af þátttakendum mótsins geta líklega státaó af eins höföinglegum móttökum emb- ættismanna landa sinna í Frakklandi og viö íslendingarnir. Sendiherra íslands i Frakk- landi, Haraldur Kröyer, og ræöismaöurinn í Strassborg, Jean-Noél Riehm, héldu kórnum veislu fyrir fyrstu tónleika Hamrahliöarkórs- ins. Og þaó var ekki látið þar vió sitja, ræöis- maðurinn á nefnilega hótel í fjöllunum í ná- grenni Strassborgar og þangað bauö hann öllum íslenskum kórfélögum stuttu áóur en mótinu lauk, til aö drekka meö sér kaffi og boróa afar Ijúffengar kökur sem bakaöar eru í Elsass-héraöi, en því tilheyrir Strassborg. Europa Cantat '85 lauk meó pomp og prakt á sunnudeginum 28. júlí. Þann dag tókum viö þátt í flutningi á Te Deum sem viö höföum æft af miklu kappi ásamt rúmlega 450 öörum kórsöngvurum sem fyrr segir. Mikil kátína ríkti í aöalhöll mótsins og þegar formaöur kórasambandsins hafói flutt lokaræöu sína á þrem tungumálum risu flestir kórar mótsins úr sætum og sungu eitt eóa tvö lög svona eins og til aö þakka fyrir sig. Næst ætla Ungverjar aö halda Europa Cantat, en þaö veröur áriö 1988. Þaö verður í fyrsta sinn sem mótiö er haldið í Austur- Evrópu og veröur spennandi aö sjá hvort jafn- vel tekst til og í Strassborg. Mótiö þar var þaö f jölmennasta f rá upphafi og er vonandi aö enn fjölgi þátttakendum á Europa Cantat í fram- tíöinni. En þaó var ekki annaö aö sjá en aö hugur væri í fólki og líklega langar alla sem voru í.Strassborg aö bregða undir sig betri fætinum og fara austur fyrir járntjald aö þrem- ur árum liönum. Kannski veröur járntjaldið bara tekió niöur aö því móti loknu, hver veit. I öllu falli er markiö sett hátt. og Ameríkumönnum svo dæmi séu nefnd. Því þótt mótiö eigi aö heita evrópskt hafa fjöl- margar þjóöir utan Evrópu slegist í hópinn svo í raun má segja aö yfirbragö Europa Cantat sé alþjóólegt. Allt stuölar þetta aö auknum mannskilningi. Og þaö sem hefur mest áhrif á samskipti þjóóa þegar allt kemur til alls eru liklega ekki formlegar samþykktir, uppáskrift- ir eöa loforð, heldur tilfinningatengsl milli manna, vináttubönd. Partout la fete! Mótið stóö yfir í réttar tvær vikur. Fyrri vikuna voru haldnir öllu færri tónleikar en í þeirri síöari en þá sungu kórar á flestum tím- um sólarhringsins víösvegar um borgina og Á torginu litla við ána sungum við meðal annars Litlu börnin leika sér, sem Engel Lund gerði heimsfrægt á sínum tíma, í splunkunýrri kórútsetningu Atla Heimis Sveinssonar. Efni Ijóösins virtist snerta einhvern streng í hjörtum kórfélaganna, því þeir léku sér drykklanga stund viö börn á öllum aldri úr áheyrendahópnum aö tónleik- um loknum. Ef maöur er á íslenskum bún- ingi eöa íklæddur sérsaumaöri kórskyrtu eru sólgleraugun ómissandi. var svo mikiö um að vera aö þótt maður heföi sig allan vlö var ekki hægt aö heyra nema brot af öllu sem fram fór. Partout la fetel (Alls staöar hátíö!) stóð feitletrað i blööunum. Viö héldum okkar fyrstu tónleika, sem sagt er frá hér á undan, í lok fyrri vikunnar. i seinni vikunni héldum viö hinsvegar þrenna. T vennir þeirra voru í Strassborg sjálfri, en eina héld- um viö í litlum bæ skammt frá Strassborg sem heitir Haguenau. Þangað bauö bæjarstjórnin okkur og sungum við undir beru lofti í þeim steikjandi hita sem einkennir þennan árstíma í Frakklandi. Bæjarbúar voru þó svo elskuleg- ir aö koma fyrir geysistórum sólhlífum fyrir ofan sviðið, sem liklega hefur bjargað okkur frá þvíaö stikna. grindur til aö fella utan um barrtré og aðrar viökvæmar sígrænar plönt- ur t.d. alparósir. Ýmsir sígrænir þykkblööungar þola illa vætu, eink- um þeir sem mynda blaöhvirfingu likt og klettá-frúin íslenska. Til aö koma í veg fyrir vatnssöfnun í miöju hvirf- ingarinnar er gott aö leggja yfir plönt- urnar tréhlera eöa glerplötu. Viðkvæmustu þykkblööungana hef ég úti í pottum yfir sumarmánuö- ina, pottarnir eru þá grafnir niöur í moldina eins og gróðursett sé á venjulegan máta, en á haustin tek ég pottana upp og geymi í sólreit yfir vetrarmánuöina. Til varnar gegn frosti er gott aö klippa blóm-ogblaöstönglaí 10—15 cm. hæö og leggja síöan afklippurn- ar niöur á moldina milli stubbanna sem upp úr standa. Eins er gott aö setja lauf af trjánum yfir beö meö fjölærum plöntum. í garöinum eru margar tegundir af rósum, þeim má skipta í þrjá aðal- flokka: háar villirósir, sem veröa allt að tveim metrum aö hæö, t.d meyjar- rós og skáldarós, runnarósir, sem veröa um einn meter á hæö, t.d hansarós og svo eru þaö ágræddar rósir eöa eöalrósír. Tvær fyrrnefndu geröirnar geta staöiö af sér vetrar- veöur en ágræddu rósunum þarf aö skýla. Hafi þær náö góöum þroska yfir sumariö og greinarnar trénaö vel læt ég nægja aö klippa dálítið ofan af þeim og leggja afklippurnar yfir rótarstæöiö og upp meö stofnunum líkt og meö aörar fjölærar jurtir. Af- skornar greinar hlífa vel viðkvæmum gróöri. Sem dæmi má nefna aö jóla- tréö okkar, tekiö sundur í greinar, endar sem yfirbreiösla yfir rósirnar og gegnir því sannarlega tvíþættu hlutverki. Viökvæmustu rósirnar, sem e.t.v. hafa ekki náð að opna alla knúppa eru illa undir veturinn búnar. Umhverfis þær set ég gjarnan stein- ullarplötur ásamt „indíánatjaldi". Að vori er svo klippt burtu þaö sem kalið hefur. Allt lauf, sem nú fellur til, ætti aö leggja yfir fjölæran gróöur, þaö sem ekki er notaö þannig ætti þá aö faraísafnkassann. „Mér finnst slæmt aö hugsa til allra þeirra sorptunna, sem fylltar eru af laufi og öörum gróöurleifum", sagöi Sigríður meö áherslu. Hún getur trútt um talaö þvi auðvitaö er safnkassi í garöi hennar. Kassinn er þrískiptur, þ.e. með misjafnlega gömlum gróöri, og þangaö fer allt nema blómstrandi illgresi. Þaö er því alltaf til gróöurmold ef bæta þarf í garöinn. „Sumariö í sumar hefur sannar- lega leikiö viö okkur garöeigendur sunnanlands", sagöi Sigríöur, „og aðra eins haustliti minnist ég ekki aö hafa séö. Nýútsprungin rós er í garö- inum núna, en þaö hefur þó komiö fyrir áöur í októbermánuöi. En þaö er óhætt aö segja, aö viö höfum fengiö þá bestu afmælisgjöf, sem hægt var að fá, í Garöyrk jufélag- inu, meö þessu gróöurríka sumri hór sunnanlands, en haldiö var upp á hundraö ára afmæli félagsins á Hvítasunnudag í sumar. Garðyrkju- fólag íslands var stofnaö á Hvíta- sunnudag 1885“, sagöi Sigríöur aö lokum. Þess má geta aö fyrsti fræöslu- fundur Garöyrkjufélagsins á vetrin- um var 16. október sl. og var þar rætt um óupphituö gróöurhús. Texti/Bergljót Ingólfsdóttir Myndir/Árni Sæberg ... á eftir sumri kemur haust Hver árstiö hefur sína fegurð. Þeirrar feguröar er hægt aö njóta á marga vegu. Þeir eru áreiöanlega margir sem dásamaö hafa hátt og í hljóði fegurö gróöurs og veðurfars hér sunnanlands í sumar og haust. Gróöur hefur ekki oröið fallegri svo lengi sem elstu menn muna og veöráttan hefur svo sannarlega leikiö viö okkur. Eftir yndislegt sumar kom haust, milt og fallegt meö þeirri litadýrö sem ekki verður meö oröum lýst. Þaö er óhætt aö segja aö lauf hafi haldist óvenju lengi á trjám hér i borginni. Þegar komiö er undir miöjan október eru enn laufguö tré viöa, þó einstaka tegundir hafi misst nokkuö af sumarskrúðanum. Sumarblóm standa enn nema viökvæmustu geröir, vegfarendum áreiðanlega til upplyft- ingar og ánægju. En samkvæmt almanakinu er veturinn á næsta leiti. Hann getur aö vísu gert lykkju á leið sína, orðiö seinn fyrir en hann getur líka komiö fyrr en varir. Á norölægum slóöum hefur löngum þurft aö hafa þá fyrirhyggju aö búa sig undir vetrarkomu. Þrátt fyrir bættar samgöngur og ýmsar framfarir tíökast þaö enn til sjávar og sveita á Islandi aö koma sér upp nokkrum matarforöa til vetrarins og skiptir þá nálægö viö matarverslanir og markaði ekki máli. Bændur þurfa aö sjálfsögöu aö birgja sig upp meö hey og fóöurbæti handa búfénaöi sinum áöur en vetur gengur í garö. Menn huga sömuleiöis að hlýjum fatnaöi til vetrarins. Prjónaöur er ullar- fatnaöur eöa keyptur tilbúinn til aö hafa til taks þegar veöur kólnar og klæöa þarf af sér kuldann. En þaö er fleira lifandi í kringum okkur en menn og málleysingjar sem þarf að komast í skjól áöur en veöur og vindar fara aö gnauöa. Gott fólk hugsar um gróðurinn og hlúir aö eins og um lifandi veru væri aö ræða. Þeir hinir sömu fá umbun erfiöis sins margfaldlega, eins og sjáanlegt er i göröum höfuðborgarinnar, bæði almenningsgöröum og þeim í einkaeign. Þaö er ekki aö efa aö eftir alla þá ánægju sem fallegur gróöur hefur veitt okkur í sumar, aö ekki sé nú talaö um logniö sem kraftmikil tré borgarinnar hafa án efa hjálpaö veöurguöunum viö að halda hér á vindasömu suövest- urhorninu, þá verði nú fleiri viljugir viö aö hlúa aö göröum sinum og gróðri og búa undir veturinn. Ekkert er sjálfgefið í þessum heimi. Þau sannindi eru okkur kennd á unga aldri og einnig, að aldrei má gleyma að þakka fyrir þaö sem vel er gert

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.