Morgunblaðið - 31.12.1985, Side 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER1985
ERLEND
fréttagetraun
Breska stúlkan Maureen Stirling vann mikið afrek á irinu, setti Bretlandseyjamet og hlaut gullmerki fyrir.
Hér situr hún flötum beinum á Piccadilly Circus í London og fagnar fraegðarverkinu. Hvert var það?
1.
Það uppgötvaðist, að aðrir áttu
fána, sem var nákvæmlega eins og
hinn nýi þjóðfáni Grænlendinga.
Þeir, sem áttu þennan fána, voru:
a) Lichtenstein
b) Taiwan
c) Fjórða alþjóðasamband Trotsky-
ista
d) Réðrarklúbburinn í Arósum
2.
Grammy-verðlaunin voru afhent
með viðhöfn í Los Angeles. Söng-
konan, sem hlaut þau, var:
a) DorisDay
b) TinaTurner
c) Madonna
d) BonnieTyler
3.
Kínverjar fara ekki troðnar slóðir
í lýtalækningum. Bóndi þar í landi
varð fyrir því óláni að rotta beit
bróðurpartinn af nefinu á honum
en málum var bjargað með því að
græða á bónda:
a) Trefjaglersnef
b) Brjósk úr svínsnefi.
c) Fuglsnef
d) Stálnef
4.
Bandarískur ellilífeyrisþegi, Her-
bert Epp, gat um skeið ekki snætt
annað en súpu og harðsoðin egg.
Ástæðan:
a) Fannst allt annað bragðvont
b) Vildiráðastáeggjafjaílið
c) Tannlæknir tók fölsku gómana
hans upp í skuldir.
d) Lífeyririnn dugði ekki fyrir öðr-
um mat
5.
Sovézk yfirvöld leita allra leiða í
skattheimtu og þóttu sýna mikið
hugmyndaflug er þau fundu gesta-
skatt, sem þau lögðu á:
a) Ferðamenn, sem gistu hjá vinum
og ættingjum
b) Alla, sem drukku gestaskál
c) Þá, sem tóku á móti gestum.
d) Þá, sem gistu Gúlagið
6.
Richard Cox, 31 árs gamall Breti,
lézt í sjúkrahúsi um páskana og
krufning leiddi í ljós að hann hafði
látist af:
a) Ofáti
b) Sólböðum
c) Vatnsdrykkju
d) Bjórdrykkju
7.
Geimfarar í geimskutlunni Dis-
covery fengu snúið verkefni er þeir
freistuðu þess að gangsetja bilað-
an gervihnött, sem rak stjórnlaust
á sporbraut um jörðu. Þeir reyndu
að gangsetja hnöttinn með:
a) Handsveif
b) „Flugnabana“
c) Hárþurrku
d) Rafknúnum tannbursta
8.
Nýr forseti tók við völdum í Brasil-
íu og er það í frásögur færandi þar
sem hann tók við af forseta, sem
veiktist skömmu fyrir embætti-
stökuna og lézt. Hinn nýi forseti
heitir:
a) Tancredo Neves
b) HjalmerdeJone.se
c) Tancredo Brages
d) JoseSarney
9.
Á ýmsu gekk við forsetakjör í
gríska þinginu í marzlok þegar
atkvæðagreiðsla stóð sem hæst:
a) Stóðu nokkrir þingmenn upp og
sungu Öxar við ána.
b) Réðst Melina Mercouri á Pap-
andreou með kossalátum
c) Þreif þingmaður í bræði atkvæða-
kassa og hljóp út
d) Birtist Sókrates afturgenginn
10.
Sovétríkin eignuðust nýjan leið-
toga á árinu. Áð svo stöddu skiptir
nafn hans ekki máli, en lýti hefur
hann nokkurt. Það er:
a) Brotið nef eftir slagsmál við John
Wayne í frægri kvikmynd, sem
gerð var í Hollywood þar sem
hann var leikari á árum áður.
b) Valbrá á höfði, sem hárleysinu
tekst ekki að fela.
c) Klofin tunga
d) Óvenjulega langur háls
11.
„Þjóðin er ekki agndofa, heldur
lömuð af skömm," sagði Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, i lok maímánaðar. Hvers
vegna?
a) Er upp komst um framhjáhald
eiginmanns hennar.
b) Vegna þess, að Liverpool tapaði
fyrir Juventus frá Ítalíu í úrslita-
leik í Evrópukeppni meistaraliða.
c) Er breskur sagnfræðingur upp-
götvaði, að Bretar töpuðu þorska-
stríðunum
d) Vegna þess, að tugir ítala létu
lífið á Heysel-íþróttaleikvangin-
um í Briissel í Belgíu vegna óláta
stuðningsmanna breska knatt-
spyrnuliðsins Liverpool.
12.
Bandaríska öldungadeildin sam-
þykkti einróma í byrjun maí að
beita Nicaraguastjórn viðskipta-
þvingunum. Hvers vegna?
a) Bandaríkin riðuðu á barmi gjald-
þrots vegna halla á viðskiptunum
við Nicaragua
b) Öldungadeildin vildi ekki fjár-
magna útflutning á byltingunni í
landinu.
c) Reagan fékk magakveisu eftir að
hafa borðað banana frá Nic-
aragua
d) Vegna stuðnings Nicaragua við
hægrisinnaðar fjöldahreyfingar á
Kúbu
13.
Bandarískir læknar hafa komist
að niðurstöðu um fiskneyslu. Þeir
teljaað:
a) Aukin fiskneysla í Bandaríkjun-
um geti komið efnahag íslands á
réttan kjöl.
b) Fiskneysla auki kynhvöt mið-
aldra karlmanna
c) Fiskneysla minnki líkurnar á
hjartasjúkdómum
d) Auki frelsis- og lýðræðisást lands-
manna
14.
Sjúkdómur, sem talinn er skyldur
ónæmistæringu, skaut upp kollin-
um í Afríku á árinu. Hann ein-
kennist af?
a) Mikilli matgræðgi og óhóflegri
neyslu sætinda.
b) Miklu tapi líkamsþyngdar og
dregur sjúkdómurinn þar af nafn
sitt
c) Naflapoti og sífelldum kláða
d) Öndunarerfiðleikum og harðlífi
15.
Gíslarnir 39, sem verið höfðu í
haldi hjá flugræningjum Trans
World Airlines-farþegaþotunnar í
ríflega hálfan mánuð, voru að
vonum frelsinu fegnir, þegar þeim
var loks sleppt um mánaðamótin
júní/júlí. Að skilnaði
a) báðu flugræningjarnir gíslunum
bölbæna og kölluðu þá heims-
valdasinna og svín
b) hófu skothríð á hæla þeim, svo
að þeir áttu fótum fjör að launa
c) slógu upp kokkteilveislu og báðu
Allah að blessa mannskapinn
d) kvöddu þá með handabandi og
færðu þeim rauðar rósir
16.
Hinn 10. júlí var skipi í eigu
Grænfriðungasamtakanna sökkt í
höfninni í Auckland á Nýja Sjá-
landi. Skipið bar nafnið:
a) Greenpeace
b) Rainbow Navigation
c) PrinsAlbert
d) Rainbow Warrior
17.
Hinn 21. júlí voru birt úrslit skoð-
anakönnunar um vinsældir Ron-
alds Reagan Bandaríkjaforseta. 1
Ijós kom, að forsetinn var vinsælli
en oftast áður. Hann hafði þá ný-
lega:
a) hækkað bætur almannatrygginga
um 35%
b) beitt sér fyrir 5% vaxtalækkun
til að draga úr atvinnuleysinu
c) gengist undir uppskurð
d) unnið frækinn sigur yfir Mikhail
Gorbachev í sjónvarpskappræðum
18.
I yfirlýsingu, sem gefin var út við
lok kvennaráðstefnunnar í Nairobi
í Kenýa aðfararnótt 27. júlí, sagði,
að það sem stæði konum aðallega
fyrir þrifum, væri:
a) ráðríki og lævís áróður karl-
rembusvína um heim allan
b) innbyrðis sundurlyndi kvenna og
vanmat þeirra á sjálfum sér og
öðrum konum
c) heimsvaldastefna, nýlendustefna,
útþenslustefna, aðskilnaðar-
stefna og kynþáttamismunun
d) kvennabarátta á villigötum
19.
í ágústbyrjun komst áhöfn sovésks
skriðdreka, sem tók þátt í heræf-
ingum í Tékkóslóvakíu, í heims-
fréttirnar. Hermennirnir:
a) brugðu sér yfir landamærin til
Austurríkis og tóku þátt í keppni
í torfæruakstri.
b) gerðu skyndiárás á sovéska bryn-
vagnaherdeild
c) seldu skriðdrekann fyrir tvo
kassa af vodka
d) flúðu yfir landamærin til Vestur-
Þýskalands og báðu um pólitískt
hæli
20.
í ágústmánuði gerðu þúsundir
manna sér ferð til smáþorpsins
Ballispittle á írlandi til þess að
skoða höggmynd af Maríu mey.
Ástæðan var sú, að fjöldi manns
hafði staðhæft, að styttan:
a) væri verk Leonardos da Vincis.
b) yki nærstöddum lífsþrótt
c) hreyfðist af sjálfsdáðum
d) felldi tár í viðurvist trúaðra
21.
Um miðjan ágústmánuð uppgötv-
aðist, að ítalskt vín, sem selt var
á almennum markaði í Bretlandi,
innihélt sérstakt bætiefni. Það
reyndist vera:
a) C-vítamín
b) Ödáinselexír
c) Frostlögur
d) Mysa frá Mjólkurbúi Flóamanna
22.
Herstjórnin, sem steypt var af
valdastóli í Nígeríu 27. ágúst, hafði
m.a. unnið sér það til óhelgi í
augum byltingarmannanna:
a) að hefta innflutning á íslenskri
skreið
b) að mistakast að rétta við efnahag
landsins
í Bandaríkjunum hefur allt þetta ár verið unnið að viðgerð á merku mannvirki og er henni nú lokið. Hér er
verið að fjarlægja verkpallana en hver var smíðin?