Morgunblaðið - 04.04.1986, Síða 1
fltagmiMafttfe
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL1986
!
!
sem átta texti'-
konurhannaog |
seljaþar.aukþess
að reka ga"er".fn
og sýningarsa nn
Haligerði. Við lit-
um á línuna i
ssssar
I sést hér á mynd-
inni.enkjólarmr
eru eftirValgeröi
1 Torfadóttur hatt-
1 arnir.eymalokkar
- og hálsfestar eftir
I Önnu Þóru Karls-
J dótturoga veggr
1 umeruverkeftir
J ÞriSiy'íí?^
Myndbönd
Útvarp og sjónvarp næstu viku
Hvað er að gerast um helgina
Það er ýmislegt hægt að gera með hugmynda-
flugi, myndavél og myrkrakompu í „þvottahúsinu
heima“. Hér á forsíðunni gefur að líta Ijósmyndir
sem tveir myndlistaskólanemendur á 2. ári, þeir
Tryggvi Þórhallsson í grafíkdeild og Magnús S.
Guðmundsson málaradeildarnemi tóku og sýna
á Mokka þessa dagana. Alls eru myndirnar á
sýningunni 17 talsins, hver og ein í þremur ein-
tökum, stækkaðar með cibachrome-tækni. Á
sýningunni eru myndirnar settar upp við Ijóð
Pjeturs Hafsteins Lárussonar, Vor:
Vorið glitrar á regnvotum strætum
og seytlar um föla vanga,
uns sól vermir laufskrúð
og vetrarkuldinn gleymist heitum hjörtum.
- Sautján orða Ijóð sem gefur myndunum
sautján nöfn sín.
Hugmyndina að myndunum segja þeir hafa
vaknað í formfræði, markmiðið verið að leysa
formin upp og það hafi þeir gert með því að
taka macro-myndir, þ.e. að fara eins nálægt
myndefninu og hægt er, jafnframt því að litá
myndefnið með Ijósum. Hver myndefnin ná-
kvæmlega eru gefa þeir hins vegar ekki upp, en
kveða engar Ijósmyndabrellur á ferðinni - „þetta
eru bara abstraksjónir sem eru nákvæmlega það
sem hver og einn sér út úr þeim. Myndirnar eru
mismunandi, sumar mjög geómetrískar og reglu-
legar, aðrar bland reglu og óreglu og svo myndir
sem eru hreint formaflæði," segja tvímenning-
arnir sem ætla sér ekki að setja punktinn yfir
i-ið með þessari sýningu. Á síðustu mánuðum
þessa árs stendur til að setja upp sýningu númer
tvö og verður þá farið með myndavélina enn nær
myndefninu og sumarið 1987 vonast þeir til að
geta sýnt þá þriðju og síðustu og þá situr þrívídd-
in í fyrirrúmi.
2/5
8/10
14/15