Morgunblaðið - 04.04.1986, Blaðsíða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. APRÍL1986
Heilsufari skilnaðar-
barna er hætta búin
að er almennt viðurkennt
að hjónaskilnaðir hafi í för
með sér mikiö álag fyrir báða þá
aðila sem eiga beinan hlut að
máli, einkum tilfinningalegt og
fjárhagslegt. Upplausn fjölskyldu
hefur einnig neikvæð sálræn
áhrif á börn og þarf ekki spekinga
til að átta sig á því. Nú hefur
verið sýnt fram á það með vís-
indalegri rannsókn að skilnaður
foreldra hefur einnig þau áhrif á
börn að líkamlegu heilsufari
þeirra er hætta búin.
Rannsóknin tók til 358 barna
í fjölskyldum þar sem beggja
foreldra naut við og 341 barns úr
fjölskyldum þar sem foreldrar
höfðu skilið. Niðurstaðan varð
sú að heilsufar skilnaðarbarna
(og systkina þeirra og foreldra)
var miklu lakara en heilsufar
hinna. Vísindamennirnir sem
stóðu að rannsókninni telja or-
sakirnar fyrst og fremst þá víð-
tæku breytingu sem skilnaður
hefur á fjölskyldulífið. Reglu-
bundnir lifnaðarhættir raskast
mjög, a.m.k. fyrstu mánuðina
eftir að skilnaður á sér stað.
Hvað er til ráða? Vísindamenn-
irnir telja unnt að draga verulega
úr hinum neikvæðu áhrifum á lík-
amlega heilsu með einföldum
ráðstöfunum sem m.a. eru í því
fólgnar að tryggja reglulega
matartíma og hollt mataræði,
gæta þess að háttatími barnanna
fari ekki úr skorðum og sjá til
þess að þau fái næga hreyfingu.
Áhrif þess
sem fyrir
ber í frum-
bernsku
Því hefur löngum verið haldið
fram að fyrstu mánuði
ævinnar vaði manneskjan í villu
og svíma, þannig að myndir og
atvik séu í huga ungbarnsins líkt
og leiftur um nótt án þess að
barnið setji einstök atriði i sam-
hengi við önnur. Nýlega staðreyndi
barnasálfræðingur við Rutgers-
stofnunina í Bandaríkjunum að
tveggja mánaða barn hefur stál-
minni og kann að notfæra sér leikni
sem það lærði vikum fyrr.
Tilraunin fólst í því að 200 börn
á aldrinum 8—13 ára læröu að
hreyfa óróa sem hékk yfir vögg-
unni. Bönd sem hnýtt voru um
báða ökkla barnsins tengdust óró-
anum og síðan var barninu kennt
að hreyfa óróann í tveimur atrenn-
um sem hvor um sig tók 15 mínút-
ur. Þegar kippt var á böndin hélt
barnið áfram að sparka hið
ánægðasta enda þótt óróinn væri
hættur að hreyfast. Síðah var óró-
inn fjarlægður og þá hætti barnið
smátt og smátt að sparka. Nú
vaknaði sú spurning hvort minnið
tæki við sér og barnið tæki að
sparka á ný ef óróinn birtist. Tvær
vikur voru látnar líða en þá var
óróinn hengdur yfir vögguna og
hreyfður lítilsháttar. Engin við-
brögð. Sólarhringur leið en þá
færðist skyndilega fjör í leikinn og
nú var sparkað af meiri krafti en
nokkru sinni fyrr. Viöbrögð barn-
anna 200 voru mjög á sömu lund.
Barnasálfræöingurinn dregur þá
ályktun að áminningin hafi virkað
— það taki börn einungis dálítinn
tíma að rifja upp það sem fyrir þau
hafi borið. Lexían er hins vegar í
því fólgin að það sem kemur fyrir
börn í frumbernsku kann að hafa
meiri áhrif á sálarlífið en hingað
til hefur verið talið.
Varúð nauðsynleg í
meðferð Ijósritunarvéla
Ljósritun getur haft skaðleg
áhrif á heilsuna. Sérstakrar
aðgæslu er þörf ef Ijósritunarvélin
lyktar, ef hún er í herbergi þar sem
loftræstingu er ábótavant eða ef
langt er síðan hún hefur verið yfir-
farin. Ástæða er til þess að um-
gangast þau efni sem notuð eru
með sérstakri varúð. Varast ber
að snerta efnin eða anda að sér
gufu sem þau gefa frá sér. Loks
er varað við því sérstaklega að
horfa í Ijós vélarinnar.
Ózon er súrefnistegund sem
hætta getur stafað af og algengt
er að of mikið verði áf henni í
herbergjum þar sem Ijósritunarvél-
ar eru í gangi, einkum ef loftræst-
ing er ófullnægjandi. Nýleg rann-
sókn leiddi í Ijós að Ijósritun 83ja
skjala á tveimur klukkustundum í
herbergi þar sem loftræsting var
í lágmarki var heilsuspillandi. Óz-
on-magn þarf ekki að vera mikið
til þess að hafa neikvæð áhrif á
taugakerfið og orsaka þreytu og
sljóleika. Þá veldur það þurrki í
öndunarfærum um leið og þaö
ertir augu og háls. Þeir sem eru
að staðaldri í námunda við þessi
tæki geta orðiö fyrir varanlegum
lungnaskemmdum, auk þess sem
grunsemdir eru um að efnið trínít-
rósflúor sem notað er til að þekja
ákveðna vélarhluta í sumum gerð-
um geti valdið krabbameini.
í umgengni við allar Ijósritunar-
vélar er sjálfsagt að viðhafa eftir-
farandi reglur:
• Látið athuga vélina án tafar ef
hún gefur frá sér stæka lykt sem
stafað getur frá rafmagni eða
efnum.
• Krefjist þess að Ijósritunarvélar
séu hafðar þar sem vítt er til
veggja og loftræsting góð.
• Fylgist með því að vélar séu
hreinsaðar reglulega og að þeim
sé vel við haldið.
• Notið hlífina sem á að leggjast
yfir þau skjöl er Ijósrita skal og
horfið ekki í Ijósið.
• Notið gúmmíhanska og svuntu
ef nauðsynlegt er að eiga við
Ijósritunarefnin. Farið ykkur
Hundruð
manna í hálendisferðum
Landakot, fjallaskóli sunnan Eyjafjarðardala.
FERÐAMÁL
Umsjón/Sigurður Sigurðarson
Þ
þegar komnir á stjá. Á há
lendinu eru víðast þokkalec
snjóalög fyrir vélsleðafólk oc
gönguskíðamenn. Þeir fyrr
nefndu hafa nú þegar nýtt sér hina góði
tíð og farið víða um hálendið, en göngu
mennirnir þurfa að sætta sig við að bíð:
enn um sinn því skíðaferðir um hálendii
eru tímafrekar og vegalengdir miklar.
Með þessari grein birtast fjórar mynd
ir af þekktum fjallaskálum. Tveir þeirr:
eru sunnanlands, einn á miðhálendinu
og einn fyrir norðan. Þetta eru skálar
Ferðafélags íslands í Landmannalaug-
um, Veiðivötnum og Nýjadal og Landa-
kot, skáli í einkaeigu skammt sunnan
Eyjafjarðardala. Að þessum skálum eiga
fjölmargir vetrarferðamenn spor sín,
jafnt á gönguskíðum sem vélsleðum.
Gönguskíðaferðir að vetrarlagi verðra
sífellt vinsælli eftir því sem fleiri átta sig
á þeirri ágætu íþrótt sem gönguferðir á
I-