Alþýðublaðið - 02.10.1920, Side 2

Alþýðublaðið - 02.10.1920, Side 2
2 ALÞYÐUBLAÐIÐ biaðsins er í Alþýðuhúsinu við Ingólfsstræti og Hverfisgptu. Sími Ö88. Auglýsingum sé skilað þangað eða í Gutenberg í síðasta iagi kl. io árdegis, þann dag, sem þær eiga að koma í blaðið. Áskriftargjald ein Is;r’. á mánuði. Auglýsingaverð kr. 1,50 etn. eindálkuð. Útsölumenn beðnir að gera skil til afgreiðslunnar, að minsta kosti ársfjórðungslega. Stönðum saman. 1 öllum nágrannalöndum vorum skilst verkalýðnum betur og betur hve áríðandi er að hann standi sem fastast saman í baráttunni fyrir tilverunni og endurbótum á núverandi þjóðfélagsskipulagi. Með aðstoð ýmsra beztu manna þjóð- anna þokast hann nær og nær takmarkinu, og fáir eru það nú orðið, sem ekki vita það með vissu, jafnvel þó þeir viðurkenni það ekki, að hugsjónir og kenn- ingar jafnaðarmanna munu að lok- um sigra. Fieiri og fleiri stéttabrot ganga saman í eina fylkingu, þegar þau sjá að hverju stefnir, og þegar augu þeirra uppijúkast fyrir því, að í raun og veru eru aðeins fil tvær stéttir manna: þeir sem á einhvern hátt, andlega eða líkam- lega, vinna fyrir sér þannig að fá ákveðinn skamt af arði vinnu sinn- ar, skamtaðan af þeim sem tækin hafa, og hinir, sem eru í stórum minnihluta, er vegna afstöðu sinn- ar taka meirihluta arðsins af vinnu hinna, en starfa kannske lítið sjálf- ir. Með öðrum orðum; ált stefnir að því, að aðeins verði til öreigar og auðmenn. Einstakir menn hafa fyrstir séð þetta og þegar skilið hver hætta stafar af slíku, fyrir mannkynið í heild. Þeir hafa rannsakað ástand- ið eins og það er, og tekið að útbreiða kenningar sínar. Almenn- ingur átti bágt með að trúa þessu í fyrstu, en sannleikanum verður ekki mótmælt, þó hann um stund verði að lúta í lægra haldi. Er- lendis eru það engir af flokki al- þýðunnar, þeir sem nokkuð hugsa, sem ekki sjá það, að annaðhvort verður að duga eða drepast — að ekki er nema um eitt að gera til þess að ná sigri, að sameinast. Hér á landi er alþýðuhreyfingin ung og skamt á veg komin — svo skamt, að jafnval ýms stétta- brot, sem erlendis helzt standa fyrir samtökunum, þykjast upp úr því vaxin að eiga samleið með algetigum verlramönnum og sjó- mönnum. Þetta er hinn mesti mis- skilningur, sem er að lagast, sem betur fer. Takmark allra vinnandi manna á að vera það fyrst og fremst, að styðja félagsskap stéttarbrots síns og koma skipulagi á hann, og ekkert verklýðsfélag á Iéngur að láta hjá líða að ganga í eitt alls- herjar samband, sem er Alþýðu- samband íslands. Jafnvel félag verzlunarþjóna á ekki að draga sig í hlé, því með því að bauka eitt sér fær það engu áork&ð. Þarf ekki annað en benda á tilraun þess til að bæta kjör sín nú í ár. Auðvaldið hefir á síðustu árum haldið innreið sína til íslands — móti því getur enginn heilvita maður mælt. En það er algerlega undir samheldni og samtökum al- þýðunnar komið, hvort það fær að þróast hér og verða til sömu bölvunar og í öðrum löndum. Því lengra sem líður, því meiri er hættan. Alþýðumenn! Minnumst þess að margar hendur vinna létt verk! Og hver dirfist að vinna gegn þróun mannkynsins ? Kvásir. frá Snmörka. (Frá sendiherra Dana.) 30. sept. Pýzka þjóðernið í Suðnr- Jótlanði. í tilefni af kosningaúrslitunum skrifar einn af velþektura foringj- um Þjóðverja í Suðurjótlandi, síra Muus, í „Hamborger Frem- denblatt", meðal annars þetta: „Þó leitt sé, stoðar ekki að neita því, að nýafstaðnar kosning- ar sýna, að mjög stór hundraðs- hluti hinna fyrverandi þýzku þegna hefir snúið bakinu algerlega við Þjóðverjum. Enda þótt þeir séu slésvíkskir, skoiia þeir sig Dani. Þeir heyra Stórþýzkalandi ekki lengur til, en hafa algerlega sam- Isgast stjórnmálalífinu í Dan- mörku." Sira Muus bendir líka á það, að í stað þess að við þjóðarat- kvæðagreiðsluna í febrúar hafi */« allra atkvæða verið með Þýzka- landi, sé nú aðeins V7 hluti at- kvæða með þýzk slésvíkska flokkn- um. Loftpóstur Norðurlanða. Danska flugfélagið hefir, eins og gert hefir verið í Svíþjóð, tek- ið að sér að flytja norskan póst: loftleiðina milli Kaupmannahafnar og Berlínar um Warnemúade, og; og Khöfn—London um Hamborg. Aðvörun hefir blaðinu borist, svohljóðandi t Hssfið þið ekki tekið eftir því, að Golfstraumurinn virðist hafa tekið sig á, við skrif S. Þ. í Morg- unblaðinu, og komið meira til austurs en hann hefir gert uppá síðkastið ? Að minsta kosti er það sennileg tilgáta, því í dag er svo> hlýtfe að undrum sætir svo síðla sumars. En meiningin með þess- um Iínum er að vara ykkur við að gera gys að skrifum S. Þ., þegar jafnvel höfuðskepnurnar virð- ast taka sönsum við Morgunblaðs- greinar hans. V1** Sanngjarn. IIi Oap 09 TegiDQ. Iíveikja ber á hjólreiða- og bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl. 61/2 í kvöld. Bíóin. Gamlá Bio sýnir: „Baj- adser“. Nýja Bio sýnir: „Riddara- líkneskið" og „Ekki allar ferðir til fjár“. „Yon á mögrum stúdentum", stóð I blaðinu í gærl Þó þetta gæti satt verið, átti nú samt að standa í þessu falli: mórgum stú- dentum, en prentviliumóra þótti

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.