Morgunblaðið - 05.06.1986, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986
7
<3
Eru
þeir að
fá 'ann
■?
■
39 stykki úr Norðurá
„Þeir fengu fimm laxa eftir hádegi
í gær og fimm til viðbótar í morgun,
helming laxanna á Stokkhylsbrot-
inu, en hina hér og þar. Þar með
eru komnir 39 laxar á land síðan á
sunnudagsmorgun, en stjómin fékk
29 laxa og veiddi til hádegis í gær,“
sagði Heba Sigurgeirsdóttir, starfs-
stúlka í veiðihúsinu við Norðurá, í
samtali við Morgunblaðið í gær. Síð-
ustu tíu laxar hafa verið 7—14 punda
og því af sömu stærð og veiddust
fyrstu dagana, þessari venjutegu og
góðu. Heba gat þess jafnframt, að
verulega hefði lækkað í ánni að
undanfömu og hafði það eftir veiði-
mönnum að um hálfs metra lækkun
á vatnsborði væri að ræða frá því í
fyrradag og til hádegis í gær, en
áin hljóp í talsvert flóð í rigningunum
um mánaðamótin.
Lax og plast í Elliðaánum
Það jaðrar við að veiðimenn sem
munu leggja leið sína til Eiliðaánna
á næstunni þurfi ekki að hafa með
sér plast undir laxinn. Ætti að duga
að fiska plastpoka upp úr ánni að
hverjum fisk veiddum, slíkt er
ástandið, a.m.k. fyrir neðan rafstöð,
þar sem mikið rusl er í ánni. Nú er
komið dálítið af laxi saman við
draslið, hópur vænna fiska er í
Fossinum, nokkrir fyrir neðan brú
og í gærmorgun höfðu 17 stykki
gengið í teljarakistuna. Þar vom
þeir flestir, með nefin klemmd upp
að kistulokinu, bíðandi þess að hinn
máttugi maður náðarsamlegast
leyfði þeim að halda áfram göngu
sinni með því að opna rimla„dymar“.
Það er því dálítil ganga hafin í ámar
og Davíð er óhætt að fara að biýna
önglana, tína maðkana og skipta um
línu, líklegast veiðist bara vel í
opnuninni, sem er næstkomandi
mánudag. Þá veroður einnig byijað
í Laxá í Kjós og nöfnu hennar í
Aðaldal.
Ljósmynd/H. Ben.
Laxi landað á Brotinu i Norðurá 1. júní síðastliðinn, veiðimaður er
Ólafur Ólafsson, en hjálparkokkur hans er Ólafur H. Ólafsson.
® LOKAÐÁ 0
LAUGARDÖGUN
Lægra vöruverð
Samkvæmt kjara-
samningi er heim-
ilt að hafa verslanir
opnar á mánudög-
um til fimmtudaga
til kl. 18:30, á
föstudögum til
kl. 21:00 ogá
laugardögum
til kl. 16:00.
ÞÓ SKULU
VERSLANIR VERA
LORAÐARÁ
LAUGARDÖGUM
MÁTiUÐINA JÚNÍ,
JÚLÍ OG ÁGÚST,
EN Á SAMA TÍMA-
BILI ER HEIMILT
AÐ HAFA OPIÐ
TIL KL. 20.00 Á
FIMMTUDÖGUM
OG TIL KL. 21.00
Á FÖSTUDÖGUM.
KAUPMANI'fASAMTÖK ÍSLANDS
Sigurður E. Haraldsson
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Magnús L. Sveinsson
Óskar Kristjánsson trúir því aö Preglandin
hjálpi sér að liía eölilegu liíL
* Óskar Kristjánsson íékk liöagigt þegar hann var
12 ára gamall. Sjúkdómurinn lagöist þungt á
hann. Þjáðist Óskar af stanslausum sviöa og
bólgum í liðamótum.
* Þessi einkenni huríu um nokkurra ára skeið en
þegar Óskar var tœplega þrítugur blossaði liða-
gigtin upp aftur. Lœknar sögðust lítið geta
hjálpað honum. Þeir kunna aðeins eitt ráð:
Að taka Aspirin í ómœldu magni!
* „Þetta var auövitað algjör vitleysa. Aspirin er aö-
eins kvalastillandi. Þaö lœknar ekki sjúkdóm-
inn," segir Óskar. Fyrir 8 árum rakst hann svo á
grein um Preglandin í dönsku blaöi. „Ég ákvaö
að prófa og lét kaupa fyrir mig nokkur glös í út-
löndum."
* Óskar byrjaöi að taka töflurnar og fljótlega fóru
áhrifin að koma í ljós. Bólgurnar hjöönuöu. Sviöi
og óþœgindi huríu skjótt. Brátt minnkaði hann
skammtinn úr 6 töflum á dag í 3. Liöagigtin
orsakaði engar þjáningar lengur.
* Preglandin inniheldur gammalynolensýru sem
er byggingarefni prostaglandin. Rannsóknir á
fólki meö liöagigt benda til aö ein af orsökum
hennar sé skortur á þessum mikilvœgu efnum.
Bati Óskars Kristjánssonar er ekkert einsdœmi.
Við í Heilsuhúsinu þekkjum mörg dœmi þess að
Preglandin hjálpi fólki með alvarlega sjúkdóma.
"ÁhiLÍ Preglandin eru einstaklingsbundin. Oiangieind irásögn er
byggð á reynslu eins ai þeim íjölmörgu, sem haia notið góðs ai
Preglandin.
Fœst í verslunum með heilsuvörur og apótekum.
Éh
eilsuhúsið
Skólavörðustig 1 Sími: 22966 101 Reykjavík.