Morgunblaðið - 05.06.1986, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986
63
Paraguay vann
Irak verðskuldað
SUÐUR-Amerísku liðin, Mexfkó
og Paraguay, hafa tekið foryst-
una í B-riðli heimsmeistara-
keppninnar, með tvö stig hvort
lið. Mótherjarnir f riðlinum, Belg-
ar og írakar hafa ekkert stig hlot-
ið. I gœrkvöldi unnu Paraguay-
menn l'raka með einu marki gegn
engu.
Þrír leikir
ídag
ÞRÍR leikir verða f heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu f dag,
tveir f A-riðli og einn í C-riðli. I
A-riðli leika Búlgarfa og S-Kórea
og Ítalía og Argentfna, en f C-riðl-
inum eigast við lið Frakklands og
Sovótríkjanna. Hörkuleikir sem
sagt.
Tveir þessara leikja verða ör-
ugglega einstaklega skemmtilegir
og jafnir. Leikur ítala og Argentínu-
manna ætti að geta orðið mjög
skemmtilegur en þó þarf það ekki
að vera því liðin gæti bæði sætt
sig fyllilega við markalaust jafntefli
þó svo ítalir séu ekki ánægðir með
jafnteflið úrfyrsta leiknum. Argent-
ínumenn eru ekki ánægðir með
leik sinna manna gegn Kóreu-
mönnum á mánudaginn og þeir
reyna því eflaust að gera betur í
dag.
Leikur Frakklands og Sovétríkj-
anna verður örugglega skemmti-
legur. Báöar þessar þjóðir hafa á
að skipa mjög góðum liöum og
eftir stórsigur Sovétmanna gegn
Ungverjum á mánudaginn búast
menn við miklu af þeim og Frakkar
eru einnig taldir til alls líklegir.
Nokkuð víst virðist vera að þessar
þjóðir komist áfram úr sínum riðli
en þaö gæti skipt miklu máli hvort
þau komast upp sem sigurlið eða
lið númer tvö. Lítið er hægt að
segja um það fyrr en úrslitin í kvöld
liggja fyrir.
Þriðji leikurinn í kvöld er viður-
eign Búlgaríu og Kóreumanna.
Búlgarar náðu óvænt jafntefli gegn
heimsmeisturunum á laugardag-
inn og Kóreumenn stóðu nokkuð
í Argentínu þannig að hér gæti
orðið um góðan leik að ræða.
Bæði liðin verða að fá tvö stig ef
þau ætla að eiga raunhæfa mögu-
leika á að komast áfram í milliriðl-
ana.
irakar voru ákveðnari til að byrja
með og á 15. mínútu átti stjörnu-
leikmaður þeirra, sóknarmaðurinn
Saeed, skalla eftir hornspyrnu sem
varnarmaður Paraguay náði naum-
lega að bjarga á línu. Paraguay átti
í vök að verjast, og byggði leik sinn
einkum á löngum sendingum fram
völlinn. í liði íraks átti hinsvegar
leikstjórnandinn Ali Hussein góðan
leik og mataði framherja sína með
góðum sendingum.
Það var því nokkuð gegn gangi
leiksins að að Paraguay skoraði.
En markið var glæsilegt. Þekktasti
og besti leikmaður Paraguay, Julio
Cesar Romero, sem leikur með
Fluminese í Brasilíu, tók þá við
langri stungusendingu frá Nunez
á snjallan hátt og lyfti knettinum
laglega yfir úthlaupandi markvörð
íraks.
Suður-Ameríkumennirnir voru
mun ákveönari í upphafi síðari
hálfleiks og tókst að skapa sér
nokkur ágæt færi. Leikmenn (raks
virtust þreytast þegar líða tók á
leikinn, og þó þeir næðu þokkaleg-
um sóknum annaö slagið, eyddu
þeir mestum tíma í vörn við sinn
eigin vítateig.
Á síðustu mínútum leiksins áttu
Paraguaymenn tveisvar skot í
stöng, en leiknum lauk með örugg-
um sigri þeirra.
, nnHginrt -innf-'r íf* ■■■■
»*>»■" i’warwjii|iww»wi(i» .«■ ■■ • >*■ ~
Símamynd/AP
• Mikil harka var í leik Þjóöverja og Uruguay í gærkvöldi og hér má sjá Nelson Daníel Gutierrez nær
aö krækja fótunum undan Rudi Völler snemma f leiknum.
Jafntefli þrátt fyrir
stöðuga sókn Þjóðverja
„ÞETTA var dæmigerður leikur f
heimsmeistarakeppni,u sagði
Franz Beckenbauer, þjálfari Vest-
ur-Þjóðverja, eftir 1:1-jafnteflis-
leikinn við Uruguay f gærkvöldi.
„Leikurinn var grófur, en innan
þeirra marka sem eðlileg mega
teljast í svona mikiivægum leik.“
Beckenbauer hrósaði sérstak-
lega Rumennigge, sem hann
sagði að hefði drifið upp baráttu-
andann í liðinu þegar hann kom
inná í síðari hálfleik. Omar Borr-
as, þjálfari Uruguay, fullyrti hins
vegar að dómarinn hafi dregið
taum Þjóðverja í leiknum. „Dóm-
arinn hafði af okkur augljósa vfta-
spyrnu í fyrri hálfleik þegar Fran-
cescoli var kominn einn innfyrir
og Augenthaler sparkaði hann
niður. Hefðum við komist tveimur
mörkum yfir þá, hefðum við unnið
leikinn,“ sagði Borras.
Leikurinn var annars ágæt
kennslustund í því hvernig „drepa“
á knattspyrnuleik. Strax á sjöttu
mínútu leiksins byrjuðu leikmenn
Uruguay að tefja hann. Þeir beittu
öllum brögðum og svo útsmognum
að ekki var nokkuð leið fyrir ágæt-
an dómara leiksins að sjá við þeim.
í hvert sinn sem þeir fengu auka-
spyrnu lagðist einhver niður og
þóttist meiddur og ef dómarinn
reyndi að reka þá á fætur gafst
þeim upplagt tækifæri til aö mót-
mæla og láta eins og heimurinn
væri að farast — og tefja í eina
mínútu eöa svo. Þá pössuðu þeir
sig yfirleitt á því að taka innköst
og aukaspyrnur á röngum stað —
svo dómarinn þyrfti að reka þá til
baka. Þetta er að sjálfsögðu niður-
drepandi aöferö viö að leika knatt-
spyrnuleik, bæði fyrir mótherjann
og áhorfendur, ekki síst vegna
þess að Uruguay-menn geta aug-
Ijóslega leikið stórgóða knatt-
spyrnu vilji þeir það viöhafa.
Það var því gott bæði fyrir
Vestur-Þjóðverja og knattspyrn-
una í heild að Uruguay komst ekki
upp með þetta. Það var Alzam-
endi, sem gerði mark Uruguay á
fimmtu mínútu, eftir hörmulega
misheppnaða sendingu frá Lothar
Matthaus. Þjóðverjarnir sóttu síð-
an og sóttu, eins og sjónvarpsá-
horfendur gátu séð í gær, en eftir
að Augenthaler hafði átt hörkufal-
legt skot í þverslá og út virtust
þeir vera að gefast upp. En mark
Klaus Allofs þegar 5 mínútur voru
eftir bjargaði deginum.
Danir sigruðu Skota í
fjörugum leik í gærkvöldi
• Danir höfðu ærna ástæðu til að fagna f gærkvöldi.
DANSKA knattspyrnulandsliðið
brást ekki aðdáendum sínum f
leiknum gegn Skotum í gær-
kvöldi. í líflegum og spennandi
leik voru þeir betri aðilinn og
unnu verðskuldað með einu
marki gegn engu.
Fyrri hálfleikurinn var fjörugur.
Bæði liðin áttu nokkur þokkaleg
marktækifæri og hvorugt reyndi
að hanga lengi á boltanum. Að
vanda reyndu dönsku sóknar-
mennirnir mikið upp á eigin spýtur,
sérstaklega Frank Arnesen, en
vörn Skotanna var traust að vanda.
Skæðasti sóknarmaður þeirra í
fyrri hálfleik var síðan bakvörður-
inn Richard Gough, en Danir áttu
í mestu vandræðum með aö átta
sig á honum þegar hann tók spretti
upp hægri kantinn og kom sér í
færi. Hann vann einnig flestöll
skallaeinvígi gegn dönsku varnar-
mönnunum. Lítið bar á Preben
Elkjær í fyrri hálfleiknum en Micha-
el Laudrup átti góða spretti. Troels
Rasmussen virkaði hinsvegar
taugaveiklaður og hafði ekki góð
áhrif á dönsku varnarmennina.
í síðari hálfleik komu Danirnir
ákveðnari til leiks og réðu gangi
leiksins á fyrstu mínútunum. Þá
kom líka eina markið í leiknum.
Preben Elkjær-Larsen fékk þá
knöttinn utan vítateigs eftir snöggt
upphlaup Dana og hreinlega
„ruddist“ í gegnum skosku vörn-
ina, eins og honum einum lagið.
Skot hans var hnitmiðað — í blá-
horn skoska marksins.
Eins og í öðrum leikjum á HM
til þessa dró liðið sem náði foryst-
unni sig til baka á vellinum. Danir
áttu þó mun hættulegri færi en
Skotar á síðasta hálftímanum eftir
skyndiupphlaup. Jesper Olsen,
Preben Elkjær, og þó sérstaklega
Michael Laudrup, áttu stórhættu-
legar rispur inn í vörn Skota.
Skosku leikmennirnir virtust mun
hugmyndasnauðari í sóknarleik
sínum. Þeir reyndu einkum að fara
upp kantana og gefa háar sending-
ar fyrir markið.
En sigurinn var sanngjarn og
nú eru Danir til alls líklegir. Jafn-
tefli Vestur-Þjóðverja og Uruguay
í hinum leiknum í E-riðlinum gerir
það að verkum að þeir þurfa að
öllum líkindum aðeins eitt stig úr
leikjunum sem eftir eru til að
komast í 16 liða úrslitin.
>x<
A-riöill:
Búlgaría — Ítalía 1:1
Argentfna — Suöur-Kórea 3:1
Staöan:
Argentína 1 1 0
Búlgaría 1 0 1
Ítalía 1 0 1
S-Kórea 1 0 0
B-riðill:
Belgía — Mexfkó 2:1
Paraguay — írak 1:0
Staöan:
Mexíkó 1 1 0
Paraguay 1 1 0
írak 1 0 0
Belgía 10 0
C-ríöill:
Kanada — Frakkland 0:1
Sovétrfkin — Ungverjaland 6:0
Staöan:
Sovótríkin 1 1 0
Frakkland 1 1 0
Kanda 1 0 0
Ungverjaland 1 0 0
D-ríölll:
Spánn — Brasilfa 0:1
Alafr — Noröur-íríand 1:1
Staöan:
Norður-írland 1 0 1
Brasilía 110
Spánn 100
Alsír 1 0 1
E-ríöill:
Þýskaland — Uruguay 1:1
Skotland — Danmörk 0:1
Staöan: Danmörk 1 1 0
V-Þýskaland 10 10
Uruguay 1 0 1
Skotland 10 0
F-ríöill:
Marokkó — Pólland 0:0
Portúgal — England 1:0
Staöan:
Portúgal 1 1 0
Marokkó 1 0 1
Pólland 1 0 1
England 1 0 0
1 0:6
1:1 1
1 1:3 0
0 1:0 2
0 0:0 1
0 0:0 1
1 0:1 0