Morgunblaðið - 29.06.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.06.1986, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986 SIÐIR OG VENJUR Má bjóða þér kókaín, starfs- bróðir sæll? Alan Wills, sem er rúmlega tví- tugur, hafði ekki unnið í eina viku hjá kunnu rafeindafyrirtæki í Silicon-dal í Kalifomíu, þegar hann kom að þremur háttsettum starfs- mönnum þess hálfbognum yfir kló- settvaskinum. Þeir voru að taka kókaín í nefið. „Varaforseti fyrirtækisins kom inn á klósettið á hæla mér. í stað þess að hrópa upp yfir sig, bað hann mennina um einn skammt," segir Wills, „eins og þetta væri bara viðtekin venja hjá fyrirtæk- inu“. Brátt komst Wills að því, að kókaínið, sem var alls staðar ná- lægt, auðveldaði honum að halda út 80 stunda vinnuvikuna, sem er algeng hjá ýmsum fyrirtækjum í Silicon-dal. Að ári liðnu var Wills orðinn háður eitrinu og notaði til kaupanna meira en helming árslaunanna, sem voru nokkuð á þrettánda hundrað þúsunda íslenskra króna. Þá leitaði hann sér lækninga fyrir rúmlega 200.000 kr. „Jafnvel nú ætti ég bágt með mig ef einhver kæmi inn í herbergið með kókaín," segir Wilis. „Eg var farinn að sprauta mig daglega í vinnunni með heilu grammi." Wills var að lokum rekinn vegna eiturlyíjaneyslunnar og nú skyldar fyrirtækið alla starfsmenn sína til að gangast undir lyfjapróf öðru hveiju til að unnt sé að fylgjast með því hvort þeir neyti eiturlyfja, allt frá marijúana til heróíns. For- svarsmönnum fyrirtækisins eins og þúsundum annarra atvinnurekenda í Bandaríkjunum var farið að of- bjóða eiturlyfjaneyslan og þeir ákváðu að snúast til vamar gegn þessum vanda, sem bandaríska eit- urlyíjaeftirlitið segir að kosti þjóð- ina 70 milljarða dollara á ári. Finna má dæmi um eiturlyfja- neyslu, einkum kókaíns, í öllum greinum atvinnulífsins, hjá General Motors og kjamorkuverunum í Vænn skammtur - Menn úr alríkislögreglunni bandarísku sýna fréttamönnum 27 kíló af kókaíni sem fundust í fórum eiturefna- sala. Kalifomíu, í Rockwell-geimfeiju- smiðjunum, í verslunum og vöru- húsum. í mars síðastliðnum fór forsetanefndin, sem fjallar um skipulagða glæpastarfsemi, fram á það við öll fyrirtæki, að þau skyld- uðu starfsmenn sína til að gangast undir lyfjapróf, og berðust með þeim hætti gegn eiturlyfjasölu og smygli. Atvinnurekendur em á einu máli um, að ekki verði lengur beðið með að beijast gegn þessum vágesti, sem birtist meðal annars í miklum Qarvistum starfsfólks, minni starfs- getu og aukinni hættu á slysum og mistökum vegna eiturlyijaneysl- unnar. Margir lögfræðingar, borg- araréttindamenn, verkalýðsfrömuð- ir og milljónir verkamanna halda því hins vegar fram, að með því að neyða menn til að gangast undir lyfjapróf sé „endanlega verið að ijúfa friðhelgi einkalífsins" og um þetta mál hefur mikið verið deilt allt frá þvi á sjöunda áratugnum. Meirihluti bandarískra dómara og lagasérfræðinga háskólanna er aftur á móti hlynntur ströngu eftir- liti á vinnustöðum og í mörgum borgum er nú farið að nota það til að fylgjast með lögreglu- og slökkviliðsmönnum. Daryl Gates, yfirlögreglustjóri í Los Angeles, „höfuðborg kókaínneyslunnar í Bandaríkjunum", og starfsbræður hans um landið allt beijast nú fyrir því, að komið verði á skyldueftirliti með öllum, sem vinna ábyrgðarmik- il störf, svo sem læknum, starfs- mönnum kjamorkuvera og þeim, sem vinna við eitraðan úrgang. Máli sínu til stuðnings benda lögreglu- stjóramir á Qöldamörg dæmi um dauðsföll, glæpi og slys af völdum eiturlyfjaneyslunnar auk þess sem oft hafi legið við stórkostiegum óförum: + I fyrra kom það fyrir í New York, að flugumferðarstjóri, sem sprautaði sig með þremur grömm- um af kókaíni daglega, stefndi saman í lofti DC-10-breiðþotu og einkaþotu, og það var aðeins að þakka viðbrögðum einkaþotuflug- stjórans, að ekki hlaust af stórslys. + Leynilegir útsendarar eitur- lyfjaeftirlitsins komu fyrir nokkm upp um mesta tövlubitaþjófnað, sem um getur í Silicon-dal í Kali- fomíu. Hópur starfsmanna hafði stolið kísilbitum, sem virtir voru á meira en þijár milljónir dollara, til að íjármagna kókaínkaup af eitur- lyfjasölum innan verksmiðjunnar. Rúmur þriðjungur fyrirtækjanna, sem nefnd em í „Fortune 500“, lista yfir mestu stórfyrirtæki í Banda- ríkjunum, krefst þess nú af öllum nýjum starfsmönnum, að þeir gang- ist undir lyQapróf. Meðal þeirra em IBM, Lockheed, TWA, New York Times og Los Angeles Times. - WILLIAM SCOBIE Með hákarla í kjölfarinu Enn á ný flýja Kúbumenn heimahaga sína í stómm hópum og stefna til Miami á Flórída. Farkostir þeirra em meðal annars gerðir úr hjólbarðaslöngum sem em njörvaðir saman með köðlum, netum og kartöflupokum. Rúmur tugur flóttamanna hefur komizt á áfangastað með þessu móti síðustu þijá mánuði. Þeir em sólbrenndir, uppgefnir og að- framkomnir af þorsta eftir að hafa farið um 150 km leið yfir opið haf frá meginlandi Kúbu til suðurstrandar Flórída og oft hafa hákarl- ar fylgt þeim á leiðarenda. Flóttamennimir hafa komið að ströndum Flórída ýmist tveir eða þrír saman og verið bjargað í land eða komizt þangað sjálfir eftir að hafa hafzt við í lélegum farkostum sínum dögum saman undir brennandi sumarsól. íbúar Miami telja og að fleiri leggi á hafið í von um að Golfstraumurinn beri þá alla leið. Juan Gonzales er 23ja ára gamall. Hann lagði af stað frá stað skammt frá Havana klukkan hálftíu að kvöldi 21. maí ásamt grönnum sínum tveimur og þeir komu að landi í Flórída tveimur og hálfum sólarhring síðar. Gonzales sagði að þeir hefðu gert sér grein fyrir því að þeir tefldu á tvær hættur — „en það var þó betra að deyja í sjónum heldur en búa á Kúbu,“ bætti hann við. Þremenningamir réra eins og þeir áttu lífið að leysa áleiðis til Flórída og hákarlar eltu þá alla leiðina. Tvívegis skall á þá stormur, en þeir hjúfraðu sig hver að öðram og ríghéldu í drykkjarföng sín. Maturinn þeirra, kíkir og áttaviti týndust á leiðinni. Menn á skemmti- báti komu loks auga á þá og fóra til móts við þá. „Eftir að þeir drógu okkur um borð, veiddu þeir einn af hákörlun- um,“ sagði Gonzales og brosti við. Samkvæmt bandarískum lögum njóta flóttamenn frá Kúbu for- gangs. í Miami búa um 800.000 kúbanskir flóttamenn og Gonzales og félagar hans hafa slegizt í hóp þeirra og eru fijálsir ferða sinna eftir stutta dvöl á sjúkrahúsi þar sem þeir náðu sér eftir volkið. Þeir eiga rétt á opinberri aðstoð og eftir nokkur ár geta þeir sótt um bandarískan ríkisborgararétt. Gonzales er nú að leita sér að vinnu og þarf ekki að hafa áhyggjur af því þótt hann kunni lítið í ensku. Síðar ætlar hann að komast í einhvers konar nám. En það era ekki allir svona heppnir sem leggja á sig hættulega sjóferð til að komast til Bandaríkjanna. Fyrir skömmu komu 24 flóttamenn frá Haiti til Florida Keys. Þeir höfðu farið sjóleiðis 950 km leið til að flýja sultar- kjör í landi sínu. En þeim var ekki fagnað við komuna eins og kúb- önskum flóttamönnum. Þeir verða hafðir í haldi þar til unnt verður að senda þá til baka. Gonzales segist vilja tala sem minnst um ástandið á Kúbu því að íjölskylda hans hafi orðið þar eftir og þar á meðal eiginkona hans og komung dóttir. Hann segir þó að kúgun sé mikil í landinu, lög- reglan geri ungu fólki erfitt fyrir og frelsið sé vissulega ekki upp á marga fiskana. — BEN B ARBER KÆRLEIKSVERK Verður læknirinn loksins tekinn í dýrlingatölu? Innan tíðar kann svo að fara að Jose Gregorio Hemandes verði tekinn í dýrlingatölu. Hann er raunar þegar tilbeðinn sem slík- ur í Rómönsku-Ameríku þótt ekki hafi ennþá verið gengið frá forms- atriðum. Jose Gregorio Hemandes var hæverskur, guðhræddur og virtur læknir. Hann var borinn og bam- fæddur í Venezuela og hlaut þar sæmdarheitið „læknir smælingj- anna“, en hann bauð ókeypis læknisþjónustu og greiddi úr eigin vasa lyf handa þeim sjúklingum sínum sem verst voru staddir. Hann lézt árið 1919 og var á meðal þeirra fyrstu sem létu lífið í bílslysi í Rómönsku-Ameríku. Hann var á leið í sjúkravitjun með læknistösku sína í hendi er hann varð skyndilega fyrir bfl. Þúsundir manna fylgdu hinum ástsæla lækni til grafar, og aldrei hefur fymzt yfir mannúð hans og aðrar dyggðir. Minningin um hann hefur smám saman orðið að goðsögn og nú lítur svo út sem hann verði brátt tekinn í dýrlingatölu en um það hafa trúaðir íbúar Rómönsku- Ameríku þráfaldlega beðið. Allt frá því að Hemandez lézt hafa honum verið eignuð þúsundir kraftaverka. Árið 1959 hóf erki- biskupinn í Caracas rannsóknir sem miða skyldu að því að fá hann tekinn í dýrlingatölu. En í Rómönsku-Ameríku hefur sem fyrr var getið lengi verið litið á Hemandes sem dýrling. Áratug- um saman hefur mynd af honum verið á ölturum og öðram til- beiðslustöðum í álfunni, einkum í Venezúela, Colombíu og Ecador. Hann er jafnan sýndur í hvítum slopp með hlustunarpípu um háls- inn. En hvemig stendur á því að Herandes er tilbeðinn svona löngu eftir að hann er allur? Enginn vafi leikur á því að hann var framúrskarandi góður læknir sem gekk að starfi sínu af lífi og sál og var þar að auki mjög guð- hræddur. Hann lagði stund á læknavísindi í Frakklandi og stundaði síðan athyglisverðar rannsóknir á gulu og lungnasjúk- dómum. Þar að auki skrifaði hann ritgerðir um heimspeki. Tvisvar var hann kominn á fremsta hlunn með að láta af störfum sem læknir og ganga í klaustur en klerkar gátu sannfært hann um að hann þjónaði guði sínum bezt með því að halda lækningum áfram. Hann var 55 ára að aldri er hann lézt og þá þegar hafði því verið lýst yfir að hann hefði gert kraftaverk. Sagt var að á meðan hann lifði hefði hann læknað dauðvona sjúklinga með því að biðja guð og húðstrýkja sjálfan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.