Morgunblaðið - 29.06.1986, Side 10

Morgunblaðið - 29.06.1986, Side 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986 B; j enny var brautryðj- andi í jazztónlist. Hann mótaði ekki aðeins nýja stefnu heldur líka stíl, sem hafði mikil áhrif á aðra jazzleikara." Þannig komst víbrafónleikarinn Lionel Hampton að orði þegar hann frétti um lát hins heimskunna jazz- leikara, Bennys Goodman, sem nefndur hefur verið konungur sveiflunnar. Frank Sinatra tók í sama streng og sagði: „Að vinna með Benny var ekki eins og hvert annað starf, það var einstök reynsla." Benny var 77 ára að aldri þegar hann lést 13. júní. Þrátt fyrir háan aldur kom hann fram á hljómleikum allt fram á síðasta dag. Engin elli- mörk var á honum að sjá, enda má segja að óbilandi starfsorka hafi einkennt allan feril hans. Kom á Listahátíð Er þess skemmst að minnast að hann hélt hér tónleika á vegum Listahátíðar árið 1976. Fyrir hljóm- leikana dró til tíðinda þegar Benny leit inn í Laugardalshöll til að kynna sér aðstæður þar. Skipti þá engum togum að hann tók að skríða um gólf og banka á alla veggi. Við- staddir vissu ekki í hvom fótinn þeir áttu að stíga og héldu jafnvel að gamli maðurinn væri genginn af göflunum. En það var öðru nær. Skyndilega reis Benny á fætur og sagði: „Þetta gætu orðið góðir hljómleikar; hljómburðurinn er í Íí QMUNGUR SVEIFLUNNAR í 50 ÁR Bonny Ooodman gengur afavlðlnu f Laugardalshöll aftlr að áheyrendur rlsu úr smtum tllað hylla hann og aðstoðarmenn hans. Tll hægrl: Benny þakkar fyrlrfrá- baarar vlðtðkur fslenskra áheyrenda. aflýst í New York vegna þess að sýnt þótti að aðsókn á hljómleikana yrði dræm. Jazzunnendum virtist engan veginn falla í geð sú tónlist, sem hljómsveitin lék. Benny sagði síðar í blaðaviðtali, að hann hefði haldið að dagar hljómsveitarinnar væra taldir: „Við ætluðum að ljúka hljómleikunum í Kalifomíu, og taka síðan lestina til New York. Eg bjó mig undir að kveðja hljómsveitina og byija aftur frá granni." En á hljómleikunum í Palomar Ballroom urðu tímamót í lífi Good- mans og jazzinn tók nýja stefnu. Áður hafði Benny reynt að laga sig að þeirri tónlist, sem þá var í tísku, vals og ýmiss konar popp-stefjum, en á þessum hljómleikum ákvað hann að láta skeika að sköpuðu og leika eftir eigin höfði. Hann tók því sveifluna og hljómsveitin fylgdi honum. Lék hann flest eftirlætislög sín með hljómsveitinni s.s. Sugar Foot Stomp, Blue Skies, og Some- times I’m Happy. Og viti menn: Það hreif. Allt ætlaði um koll að keyra í salnum, og þyrptust áheyrendur að hljómsveitinni til að hylla hana. Þetta kvöld var konungur sveiflunn- ar krýndur. Það var sem æði hefði gripið um sig meðal yngri kynslóðarinnar, líkt og gerðist með Bítlana á sjöunda áratugnum. Þó að Benny hafi notið mestra vinsælda á fiórða áratugn- um, þá áttu fagnaðarlætin eftir að fylgja honum æ síðan. Nýtt tímabil fór í hönd, þar sem jazz og dægurlagatónlist rannu saman í eitt um skamma hrfð. Benny leitaðist einkum við að sámeina tvennt: Annars vegar var hann mjög agaður í hljóðfæraleik sínum og krafðist þess sama af öðram, og hins vegar vildi hann að félagar hans impróviséruðu eða lékju af fingram fram þegar við átti. Píanóleikarinn Jess Stacy sagði um Benny að hann hefði verið ein- staklega kröfuharðun „Hann komst mjög nærri þvi að ná fullkomnun í leik sfnum. Eg hélt að hann mundi deyja með klarinettuna í fanginu." Trompetleikarinn Harry James tók í sama streng: „Benny æfði að Oelrlaug Þorvaldsdóttlr tók á mótl Banny Qoodman þegar henn kom hlngað tll hljómlelkahalds árlð 1976. Iagi.“ Og meistarinn stóð við orð sín: Hann lék við hvem sinn fingur með fimm manna hljómsveit sinni, ogvarvelfagnað. Benny hafði mikinn áhuga á að koma hingað öðra sinni á Listahá- tíð og leika klassíska tónlist með Sinfóníuhljómsveit íslands, en ekki náðist samkomulag um hvemig því skyldi háttað. Hins vegar dvald- ist hann hér í nokkra daga við laxveiðar árið 1981. Varð frægur eitt ágústkvöld Bennys Goodman verður minnst fyrir margra hluta sakir, enda hlaut hann oft viðurkenningu fyrir leik sinn á löngum ferli. Reyndar er ekki lengra liðið en mánuður síðan hann var sæmdur heiðursdoktors- nafnbót frá Columbía-háskóla í New York. Þar var hann ákaft hylltur. Hrópuðu námsmenn og aðrir í kón „Benny, Benny, Benny." Og það vora einmitt þessi orð, sem glumdu í Palomar Ballroom í Hollywood eitt ágústkvöld árið 1935 þegar nafnið Benny Goodman skaust upp á stjömuhimininn. Þá hafði 14 manna hljómsveit hans leikið í útvarpi og á hljómleik- um án þess að slá í gegn. Þetta vora síðustu hljómleikamir í ferð- inni, og allt útlit var fyrir að hljóm- sveitin þyrfti að leggja upp laupana. Allt hafði farið úr böndum. Til dæmis var tveimur hljómleikum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.