Morgunblaðið - 29.06.1986, Qupperneq 32
32 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986
■
© 1984 Universal Press Syndicate
„ vciðt o&þúerb l megmnarKör.
Af h\jerju e.rku ab p\na. 6)á.[fan Wg?"
.. .að gefa reglulega
blóð.
TM Rm. U.S. Pal Off.-all rlflhts reserved
e 1981 Los Anfleles Tlinas Syndlcale
Sem svar við flöskuskeyti
yðar frá 9. desember 1980
vil___
Með
morgunkaffinu
POLLlUf
Með sífelldum hækkunum
á þessum nauðþurftum
kemur það í okkar hlut að
stoppa í fjármálag-atið ...?
HÖGNI HREKKVÍSI
//(?AE> MINNIJ? rtilG’A... Eprnj BO/NN
/AE> RA /vnoLKiNA þiNA i ÞA6 ?"
Tónlistarhúsið verður
landi okkar til sóma
Til Velvakanda.
Mér sýnist að við íslendingar
höfum eignast einn afburðamann-
inn enn, og ættum að vera stoltir
af. Á ég þar við ungan arkitekt,
Vísa vikunnar
Urrandi slíta og rífa roð,
en ráðgera núna fundarboð
með deiluefnið ekkert moð;
æru ogheiður Gvendar J.
Hákur
Guðmund Jónsson að nafni, sem
bar sigur úr býtum í verðlaunasam-
kegpni um teikningu Tónlistarhúss
á Islandi. 75 aðilar tóku þátt í
þessari samkeppni, frá öllum Norð-
urlöndunum þ.á m. þekktir arki-
tektar og fyrirtæki sem þekkt eru
á þessu sviði. Dómnefndina skipuðu
færustu arkitektar og sérfræðingar
í þessum málum frá ýmsum löndum.
Verðlaunin voru vegleg. Það var
haldin veisla. En hvað skeður? Þessi
ungi maður og teikning hans hefur
orðið bitbein fólks sem vill láta ljós
sitt skína. Fjöldi fólks gerir sér
ekki grein fyrir hvað hér er að
gerast, því allt er þetta óviðkomandi
þessum unga manni og teikningum
hans.
Húsið verður landi okkar og borg
til sóma þó nokkrar manneslqur
felli sig ekki við það. Það verða nóg
not fyrir húsið þegar heimsfrægir
listamenn koma í heimsókn en þeir
hafa ekki átt í nein hús að venda
hér hingað til. Það verða ábyggilega
margir sem vilja styrkja byggingu
þessa húss landi og þjóð til sóma.
Líklega hefði engin sagt neitt ef
útlendingur hefði sigrað í þessari
samkeppni. Óskandi væri að þessi
sérkennilega þjóð, sem telur rúm-
lega 200 þúsund manns, kunni að
meta afrek þessa unga manns og
margra fleiri, sem eru þjóðinni til
sóma á erlendum vettvangi. Þetta
umrædda hús heitir Tónlistarhús á
Islandi og Island er meira en bara
Reykjavík.
íslendingnr
Skrifið eða
hringið til
Velvak-
anda
Velvakandi hvetur lesendur
til að skrifa þættinum um hvað-
eina, sem hugur þeirra stendur
til - eða hringja milli kl. II og
12, mánudaga til föstudaga, ef
þeir koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilis-
föng verða að fylgja öllu efni
til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til
að beina þvi til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir
liggja hér í dálkunum.
Geymið lyf þar sem börn ná ekki til.
Víkyerji skrifar
Ymis merki vaxandi velmegunar
skjóta upp kollinum hér og
þar. í gær sagði Víkvetji frá hækk-
andi fasteignaverði í sjávarplássi á
landsbyggðinni. Afgreiðslumaður í
byggingarvöruverzlun sagði við-
skiptavini sínum frá því, að hann
hefði nú þegar selt fleiri garðsláttu-
vélar en allt sl. sumar og raunar
væru þær að verða uppseldar.
Ferðaskrifstofumenn segja, að eftir
einhvem afturkipp á tímabili í vor
hafi sala á skipulögðum hópferðum
stóraukizt og a.m.k. ein ferðaskrif-
stofa er búin að selja mestan hluta
ferða sinna í sumar. Þetta er áreið-
anlega engin tilviljun. Við búum nú
við góðæri. Nú eru áhrif olíuverðs-
lækkunar, hækkunar á fiskverði og
vaxandi afli að koma fram í daglegu
lífi fólks. Það var tími til kominn
eftir þær þrengingar, sem við höf-
um lent í undanfarin ár.
XXX
Tenging okkar við hið alþjóðlega
Qármála- og greiðslukerfí
verður stöðugt meiri. Nýlega hefur
Visa-fyrirtækið skýrt frá því, að
korthafar muni senn fá sent innsigl-
að umslag með svokölluðu PIN-
númeri, eða persónulegu innsláttar-
númeri, sem mun gera korthöfum
kleift að nota kortin í hraðbönkum
elendis til þess að taka út reiðufé
eða til nota í öðrum búnaði eins og
t.d. símasjálfsölum, sem taka við
greiðslu með kortunum.
Hraðbankamir eru orðnir ótrú-
lega algengir víða um lönd a.m.k.
í Evrópu og Bandaríkjunum. Þeir
sýnast víða ekki vera innandyra
eins og hér heldur einfaldlega í
vegg viðkomandi banka og má sjá
fólk á götum úti ganga að þessum
hraðbönkum og reita út úr þeim
peninga! Sú bylting, sem orðið hefur
í bankaviðskiptum íslendinga á
örskömmum tíma, er nánast ótrúleg
og hefði enginn trúað því fyrir
nokkrum árum, að þessi þróun ætti
eftir að verða svona ör.
XXX
En m.a.o. ósköp eru hraðbank-
amir oft lokaðir. Hvað veldur?
Er tækjabúnaðurinn í ólagi? Er
álagið of mikið? Það þýðir lítið að
auglýsa hraðbanka, sem eiga að
vera opnir allan sólarhringinn, en
em lokaðir oftar en góðu hófi
gegnir.
XXX
Blóðbankinn er merkjleg stofn-
un. Þar ríkir skemmtilegt
andrúm og þess vegna ánægjulegt,
að koma þangað. Starfsfólkið kann
vel til verka og vinnur hratt og
skipulega. Stundum er álagið á
þetta fólk bersýnilega mjög mikið,
þegar útvega þarf ákveðið magn
af blóði tiltekinnar tegundar með
skömmum fyrirvara. Þetta em mikil
vísindi, eins og flest annað, sem að
læknisfræði lýtur. Víkveiji stendur
í þeirri meiningu, að Blóðbankinn
sé búinn að vera í þessu sama litla
húsi á homi Eiríksgötu og Baróns-
stígs í áratugi. Ekki er útþenslunni
fyrir að fara í húsnæði þótt umsvif-
in hljóti að hafa margfaldast. Fólk
ætti að sinna Blóðbankanum vel.
Það er aldrei að vita hvenær þú og
þínir þurfa á aðstoð hans að halda.
Auk þess er kaffið og kexið einstak-
lega gott!