Morgunblaðið - 05.07.1986, Page 4

Morgunblaðið - 05.07.1986, Page 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1986 \ Morgunblaðið/Kristinn Reynir Antonsson ásamt tryggum vini — hnndinum Týra. Hann lætiir sjóndepruna ekki hindra sigílífinu — spjallað við Reyni Antonsson, rít- höfund, ferðalang og stjómmálafræðing REYNIR Antonsson er líklega flestum Akureyringum kunnur, þó ekki sé nema í sjón eða af afspurn. Margir hafa eflaust séð hann skálma eftir götuin bæjar- ins með kíkinn fyrir öðru auganu og hundinn Týra, sem hann segir mikinn félaga sinn, sem föru- naut. Reynir fæddist alblindur á báðum augum, en læknávísindin komu til hjálpar að svo miklu leyti sem það var hægt og færðu honum örlitla sjón á annað augað. Reynir hefur ekki látið sjóndepru hindra sig í lífinu, ferðast ótrúlega víða, numið við erlendan háskóla, flækst um nær alla Evrópu á putt- anum og verið ákaflega hændur að járnbrautarlestum sem ferðamáta. Hann hefur einnig fengist við skrift- ir af ýmsu tagi. Skrifað leikhús- gagnrýni fyrir Helgarpóstinn, verið með reglulegan dálk í Degi og síðast en ekki síst hefur hann fengist við að semja sakamálasögu, sem nú er tilbúin í handrit. Nám í Frakklandi og ferðalög Aðspurður hvort það hafi ekki háð honum mikið við nám, skriftir og ferðalög hversu litla sjón hann hefur sagði hann að það gæfi alveg augaleið. „Það hefur samt ekki háð mér mikið á ferðalögum minum erlendis, því þar er allt svo vel merkt, og síðan ég fékk kíkinn veturinn sem ég lauk 6. bekk menntaskóla þá hefur það ekki reynst svo erfitt að finna fótum sínum forráð," sagði Reynir. „Mönnum finnst það hins vegar skrýtið að maður með svona litla sjón skuli skrifa leikhúsgagnrýni en ég er ekki rétti maðurinn til að segja til um hversu vel mér hefur farist það úr hendi, það verða aðrir að dæma um.“ — Þú fórst strax eftir stúd- entspróf suður í Háskóla íslands og lærðir þar frönsku og ensku, hvernig atvikaðist það að þú fórst að læra stjórnmálafræði í Frakklandi? „Ég hafði verið að gutla þetta í háskólanum fyrir sunnan en ekki haft mikla ánægju af því. Ég kynnt- ist síðan frönskum sendikennara, Jacq Raymond að nafni, sem var staddur hér á landi og það var fyrir hans tilstuðlan að ég ákvað að halda til Frakklands. Þegar þangað kom var ég við frönskunám fyrsta árið en fékk svo upplýsingar um námið í stjómmálafræðinni og vegna nokkurs áhuga á slíkum málum varð úr að ég skellti mér í það nám.“ Reynir viðhefur síðan nokkur orð um þá dýrðardaga sem hann átti við háskólann í Grenoble, sem er borg í Suðaustur-Frakklandi. „Það- an er ákaflega stutt til Sviss og Ítalíu, til dæmis eru ekki nema um 100 km til Genfar. „Ítalía er land sem ég heillaðist mjög af enda er hún sannkölluð vagga menningarinnar. Hún er eins og eitt stórt listasafn, það er svo margt að skoða þar og mannlífið, ,sem ég hef alltaf hrifist mjög af, er svo dásamlega ijölbreytilegt. Enda er ég á leiðinni þangað í þriggja vikna frí innan skamms til að sóla mig og njóta lífsins á annan hátt.“ — Þú hyggst ekki skreppa til Frakklands að þessu sinni, til að rifja upp gömul kynni? „Ef tími gefst þá geri ég það. Ég reyni alltaf að fara til Frakklands sé þess nokkur kostur, og lít á það sem mitt annað föðurland. Hins vegar er óvíst að ég fari til Grenoble að þessu sinni.“ Brottför 23.23 fráGrenoble — Þú segist vera ákaflega hrifinn af ferðalögum í lestum. Saknar þú þess að geta ekki ferðast með þeim hér innan- lands? „Það geri ég svo sannarlega. Erlendis eru lestarferðir bæði ódýr og þægilegur ferðamáti. Ég man til dæmis sérstaklega eftir lest sem fór frá Grenoble klukkan 23.23, var ég ákaflega hrifinn af þeirri lest. Þetta var næturlest og á leiðinni frá Lyon til Parísar stoppaði hún ekki nema einu sinni og því var hægt að leggja sig á leiðinni og MYND jooaaoaaX VALh, íoaaaaaaaaaaac . SUNNUHLÍO 12 602 AKUREYRI ‘s. 7 r MYND jaaaaaaoV VALhf j jaaaaaaaoaaaac SUNNUHLÍD 12 602 AKUREYRI eru á: Siglufirði Vopnafirði Ólafsfirði Egilsstöðum Dalvík Seyðisfirði Akureyri á 4 stöðum Erum i'hjarta bæjarins. Bjóðum uppá ódýra og góða gistingu í 1-3 manna her- bergjum. \ Verið velkomin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.