Morgunblaðið - 05.07.1986, Síða 6

Morgunblaðið - 05.07.1986, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JUU 1986 Halldór Áskelsson landsliðsmaður í knattspymu hjá Þór: Eftir árið ífyrra héltfólk að það væri formsatriði að spila deildina ísumar— viðmyndum vinna Morgunblaðið/Skapti Halldór Askelsson í landsliðsskyrtu Spánar, sem hann fékk hjá einum spönsku leikmannanna, eftir U-21 árs landsleik. Á hægra hné hans er landsliðspeysa Bahrain sem hann fékk með sama hætti og á hinu er ein íslensku landsliðstreyjanna hans. Hann heldur svo á knettinum sem leikið var með er Þór og FH áttust við i 1. deildinni á Akureyri í fyrra — Þórsarar sigruðu 6:1 og HaUdór skoraði fimm mörk. Honum var því gefinn knötturinn i tilefni dagsins! mikilvægir. Það yrði frábært að vinna Val — ef það tækist yrði stórt skref stigið. Það hefur aldrei gerst aður og ef við gerum það yrði það eins og vítamínsprauta — menn tryðu þá kannski á kraftaverk. Við erum búnir að bíða eftir þessum Valsleik í heilt ár. Það hefur alltaf verið ótrúlegt slen yfir okkur á Valsvellinum — höfum aldrei spilað okkar bolta heldur farið niður á eitthvert ótrúlega lélegt plan. Mað- ur var hálfpartinn farinn að trúa að þetta væru álög!“ „FH-skórnir“ því miður að verða ónýtir! — Þú spilaðir mjög vel í fyrra — skoraðir níu mörk í deildinni, þar af fimm í síðasta leiknum. Finnurðu einhveija breytingu á sjálfum þér? Nú hefurðu ekkert skorað í sumar! „Ég hélt nú að ég væri búinn að finna leiðina í netið eftir FH-leik- inn í fyrrahaust, en það hefur ekki gengið. Það hefur þó ekki vantað færin. Maður hefur látið veija frá sér í dauðafærum, skotið í slárnar og skeytin, skotið framhjá. Það er ekkert eftir nema að koma „honum" í netið — en maður er næstum farinn að trúa því að þetta sé hrein- lega ekki hægt. Ég hef reynt að troða því í sjálfan mig að það hljóti að koma núna, fyrir hvern leik, en það kemur ekki, á köflum er maður farinn að missa trúna á sjálfum ser. En ef mér tekst að skora einu sinni þá yrði framhaldinu eflaust bjargað." — Þú hefur ekki reynt að skipta um skó!? Nei, en ég á FH-skóna ennþá! Ég hef ekki spilað á þeim í sumar — þeir eru alveg að syngja sitt síðasta, því miður! En auðvitað eru það ekki skómir sem skipta máli, heldur maðurinn." — Þú hefur leikið með öllum landsliðum íslands í knattspyrnu — og reyndar náð þeim árangri að skora með þeim öllum. Hvern- ig hefur þér gengið á þeim vett- vangi að eigin mati upp á síðkast- ið? „Ég var nú alls ekki nógu ánægð- ur með frammistöðu mína í leiknum við íra á Reykjavíkurleikunum. Það var kannski allt í lagi með fyrri „ÉG ER langt frá því að vera ánægður með liðið í sumar hingað til. Eg er líka óánægður með sjálf- an mig — finnst ég ekki hafa sýnt það sem ég á að geta. Maður er eins og ,jó-jó“, á einn góðan leik en dettur síðan niður í að geta hreinlega ekki neitt. En þó að flestra mati hafi liðinu gengið illa þá erum við aðeins með tveimur stigum minna en eftir fyrri um- ferðina í fyrra og eigum þau inni hjá blessuðum línuverðinum í Breiðabliksleiknum á dögunurn." Það er Halldór Áskelsson, Þórs- ari, og eini A-landsliðsmaður Akureyringa í knattspyrnu um þessar mundir, sem hefur orðið. „Mér finnst við ekki hafa spilað eins skemmtilega knattspymu fyrir áhorfendur og í fyrra — ekki ennþá — og við höfum líka fengið að heyra það. Það er miklu meira um það nú en áður að fólk skammi mann en hitt, þó ekki hafi gengið neitt hræði- lega. Kröfumar eru orðnar þetta miklu meiri og fólk farið að búast við velgengni sem sjálfsögðum hlut, sérstaklega eftir sumarið í fyrra." Sjálfstraust skortir Þið eruð óánægðir — er þá c eitthvað sérstakt að? Gerirðu þér grein fyrir því? „Ég held að það sé fyrst og fremst suma skortir að sjálfstraust. Okkur virðist ekki vanta getuna — en sýnum bara alltof sjaldan hvað í okkur býr. Nú höfum við til dæmis tapað niður þessu fræga „rekordi" á heimavelli. Það er auðvitað ekki hægt að ætlast til þess að við vinn- um allt hér heima — en engu að síður virtust menn vera hálf straumlausir þó þeir vissu að við væmm að tapa leiknum gegn KR. Það vantaði einhvem kraft og metnað. Kannski hefur spilað eitt- hvað inn í að eftir árið í fyrra hélt fólk að það væn bara , formsatriði að spila deildina í sumar — við myndum vinna hana. Fólkið hér í bænum var orðið svo svakalega bjartsýnt, það gleymdi hinum liðun- um! Og kannski hefur þetta stimpl- ast inn í okkur líka.“ — Hvað með framhaldið í sumar? „Það er Valur næst í Reykjavík. Okkur hefur gengið afleitlega með Valsmenn þar — höfum reyndar ekki enn náð að skora mark á Hlíða- renda og það er kominn tími til. Og það er einmitt sérstaklega grát- legt að hugsa um leikinn þar í fyrra, sem er sennilega lélegasti leikur okkar allra frá fæðingu. Sárgrætilegt til þess að hugsa að það var enginn áhugi eða metnaður til að vinna. Þegar maður hugsar til baka kemur í ljós að ef við hefð- um unnið þann leik hefðum við orðið Islandsmeistarar!" — En hvemig er hugarfarið þá núna hjá mannskapnum — trúa menn því ekki enn að þeir séu nógu góðir til að vinna Is- landsmótið? „Jú, sigurinn gegn Keflvíkingum var gífurlega sterkur móralskt Ég held að menn hafi fengi trúna á að þetta geti gengið eftir þann sigur. Við höfum verið að tapa stig- um og mönnum fannst draumurinn vera að íjarlægjast, en sigurinn á ÍBK hleypti blóðinu af stað! Menn trúa því að þetta sé ekki búið. Við. eigum eftir Framarana hér heima — okkur hefur gengið vel með þá og það verður engin breyting þar á! Það eiga öll lið eftir að reyta stig hvert af öðru. Við verðum að ná hagstæðum í Valsleiknum um helgina og þá er Framleikurinn næstur. Þessir tveir eru rosalega

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.