Morgunblaðið - 05.07.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.07.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1986 B 7 Halldór í landsleiknum gegn írum á Reykjavíkurleikun- um á dögunum. hálfleikinn en þeim hluta af þeim seinni sem ég var inn á vil ég gleyma sem fyrst. Á æfingunum gekk mér ekkert illa — en hefði getað gengið mun betur. Ég er ekkert ofboðslega bjartsýnn vegna þess að í ieikjunum í deildinni, sem mér er sagt að Sigi Held hafi horft á, hef ég átt frekar slaka leiki. Síð- ast nú í Keflavík um síðustu helgi. En ef maður ætlar sér eitthvað þýðir auðvitað ekkert annað en að bíta á jaxlinn og reyna að gera sitt besta." I meistaraf lokk á eldra ári í þriðja flokki Halldór lék sem framheiji í gegn- um flesta yngri flokkana. „Ég hef alltaf veið „senter“ nema tvö eða þijú sumur sem ég fékk þá dellu að vera tengiliður. Svo prófaði ég einu sinni á æfíngu að leika sem bakvörður — en það þýddi ekki því ég var alltaf kominn fram áður en ég vissi af. Það var í „coaching game“ hjá Árna Njálssyni hér um árið.“ Halldór kom einmitt fyrst inn í meistaraflokkslið Þórs er Árni Njálsson þjálfaði það. „Fyrsti leik- urinn var í bikarkeppninni í Ólafs- firði 1981 — þá var ég 16 ára. Ég var á eldra árinu í þriðja flokki. Við féllum þetta ár í 2. deild og árið eftir meiddist ég eftir fjóra leiki, átti í meiðslum allt sumarið — missti til dæmis af ferð með ungl- ingalandsliðinu til Færeyja — en er ég náði mér voru ijórir leikir eftir í deildinni og ég spilaði þá. 1983, er Bjöm Árnason þjálfaði okkur fyrst, spilaði ég alla leikina og þá enduðum við í fjórða sæti sem var besti árangur liðsins fram að því.“ — Varð mikil breyting á liðinu þarna á milli ára? „Já, hugarfarslega sérstaklega. Við vorum að koma þarna, sveita- mennimir, upp úr 2. deild og þá er markmiðið yfirleitt það að „hanga“ uppi. En Bjössi fékk okkur til að hugsa öðruvísi. Hann var fyrsti þjálfarinn sem tróð því inn í hausinn á okkur að miklu skemmti- legra væri að stefna á eitthvað meira." — Fóruð þið að spila öðruvisi það ár? „Já, við spiluðum ofboðslegan pressubolta það ár. Hálfgerðan „mannætubolta" og það gekk mjög vel. Við vorum algjörlega óskrifað blað, byggðum yfirleitt upp á sókn- arleik, vorura með toppmarkmann — Þorstein Ólafsson — sem stjóm- aði allri vörninni og þetta gekk framar öllum vonum.“ — Nú eruð þið þekktir — og liðin spila því ef til vill öðruvísi á móti ykkur. Vantar kannski einhvern „karakter“ í liðið til að standa undir meiri pressu? „Ja, okkur hefur verið spáð sætum um miðja deild eða falli síðan við komum upp. En nú loksins, þegar við höfum sannað okkur og menn orðnir hræddir við okkur eftir metið á heimavelli, koma flest liðin norður með því hugarfari að ná jafntefli. Til dæmis KR-ingar og Breiðabliksmennirnir — og KR-ing- arnir fóru með stigin.“ — Þurfið þið þá kannski að breyta um stíl? í fyma komu liðin ekki með því hugarfari að „hanga" á jafnteflinu og þið fenguð frið til að spila ykkar skemmtilega bolta. „Það er miklu erfiðara að sækja en að veijast. Það er miklu þægi- legra að vera vamarmaður og senda boltann eitthvað hátt og langt út í loftið heldur en að reyna að senda hann inn í rammann þar sem allir em fyrir. Mér finnst að lið eins og KR, sem er farið að tefja eftir fimm mínútur og nær í öll stigin, eigi alls ekki skilið að verða íslands- meistari. Lið sem spilar upp á jafn- tefli frá fyrstu mínútu á það alls ekki skilið. Lið sem fær tvö eða þijú spjöld í leik fyrir að tefja — þetta skemmir fótboltann gífurlega rnikið." — Þú fékkst atvinnutilboð frá Belgíu í haust sem þú hafnaðir. Hvemig horfir þú á framhaldið íþeim efnum? „Síðan Sigurður Grétarsson hringdi í mig í haust fyrir Willy Reinke hefur ekkert gerst annað en að þegar Ómar Torfason gerði sinn samning hafði Reinke samband við mig og reyndi að fá mig til að skipta um skoðun. Mér fannst þetta bara ekkert spennandi — fannst að hann ætlaði að setja mig niður bara einhvers staðar, og ef það gengi ekki þá einhvers staðar annars staðar. Það virtist engu máli skipta hvert ég færi — bara að hann kæmi mér eitthvað svo hann fengi sína peninga. Mér skilst þó á Sigga Grét- ars að Reinke sé fínn karl — hann hefur alltaf skipt um félag í gegnum Reinke og allt verið pottþétt, en svo hefur maður líka heyrt hinar sög- urnar af honum. En ég er ákveðinn í að klára skólann áður en ég hugsa mér til hreyfings og það er ár í það. Ef eitthvað kemur upp — meiðsl eða annað sem alltaf getur gerst — er gott að hafa stúdents- próf í bakhöndinni. En ef maður verður í formi eftir að hafa klárað skólann þá er ég tilbúinn að skoða málið.“ •• Orugglega draumur að spila í Frakklandi — Er það ekki draumurinn að komast í atvinnumennskuna? „Jú, það væri gaman að prófa það. Þetta er allt öðruvísi hér — maður er í vinnu allan daginn og nær því ekki öllu fram sem maður á einhvers staðar. Maður fer oft dauðþreyttur á æfingar og það væri gaman að fá að vera við topp- aðstæður og þurfa ekki að hugsa um neitt annað. Spennandi að sjá hvort maður gæti staðið sig. Það er engin spurning að maður yrði betri knattspyrnumaður fyrir vikið en spurningin er hvort maður myndi standa sig.“ — Einhver draumastaður? „Það yrði örugglega gott að vera í Frakklandi. Svo finnst mér mikill „sjarmi“ yfir Sviss núna. Það er líka svo fallegt þar. Ef ég færi út vildi ég vera einhvers staðar í almenni- legu umhverfí. Ekki í einhverri stór- borginni þar sem ekki sér út úr augum fyrir mengun! Maður er alltaf hálfgerður sveitamaður í sér. En fótboltinn er miklu betri í Frakklandi — það hlýtur að vera draumur að spila þar,“ sagði Hall- dór — og síðan verða menn að bíða og sjá hvað verður! ALLT FYRIR VEIÐIMANNINN Daiwa Eigum fyrirliggjandi stangir og veiðihjól frá I_____ 00 J Daiwa Sports Ltd. Einnig allar aðrar veiðivörur: Spúna — flugur — línur — veiðivesti — vöðlur — bússur — flugnanet — veiðihatta. ALLT í ÚTILEGUNA Tjöld 3,4,5 og 6 manna. Tjaldhimnar — svefnpokar — borð — stólar — útigrill — grillkol og m.fl. Opið laugardaga frá 9-12. EYFJÖRÐ Hjakeyrargötu 4, sími 96-22275. HP Vectranv Vectranv Vectra ^HP Vect itrauv Vt 'ectrauv ' Vectrau.] — HP Vecl íldHVVt öraHP l Vectram P Vect/af tP Vectro trp \/pri Lw Öflug HP VECtíB er ný tölva frá Hewlett Packard sem vinnur allt að þriðjungi hraðar en sambærilegar tölvur. Ytra minni hennar er stækkanlegt frá 360 þúsund stöfum í yfir 40 milljón stafi og innra minnið frá 256 þúsund stöfum í yfir 3 milljón stafi Binföld LyklaborðHPVÖC//a tölvunnar hefur bæði sérstaka örvastýrilykla og talnalykla ásamt átján aðgerðarlyklum. Snertiskjárinn einfaldar alla stjórnun hennar ogeykur hagnýtinguna. Ijölliæf YlWectfder fullkomlega samhæfð IBM-PC/AT tölvum og getur nýtt allan þann hugbúnað sem gerður er fyrir þær, auk þess hugbúnað sem er sérhannaður fyrir HPVÖC/79. r TÖLVUTÆKI s.f - Cð packarÍ GRÁNUFÉLAGSGÖTU 4, AKUREYRI s:96-26155 HEWLETT PACKARD At^Iir/slA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.