Morgunblaðið - 05.07.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1986
B 13
Morgunblaðið/Kristinn
„Þeir eru sumir hverjir ekki háir í loftinu ...“ segir Gísli. Þessir
pjakkar voru að spila á vellinum er blaðamaður kom hancrað með
Gísla.
við þá sem lengra eru komnir vegna
þess að komið hefur verið upp
ákveðnu kerfi þar sem þátttakendur
fá úthlutað mismunandi rnörgtim
höggum í forgjöf eftir getu.“
Gísli Bragi gat þess síðan að
ákveðið hefði verið að feta fótspor
Golfklúbbs Reykjavíkur og ráða
hingað erlendan golfkennara, David
Barnwell að nafni, en undanfarin ár
hefúr GR haft erlendan mann á
sínum snærum við að leiðbeina fé-
lagsmönnum. „Hann hefur haft
alveg yfirdrifið að gera síðan hann
kom hingað í apríl og hefur haft
góð áhrif á starfið. Hann er ráðinn
til sjö mánaða að þessu sinni en
við stefnum að því að fá hann
hingað aftur á næsta ári,“ sagði
Gísli Bragi.
Samtalið hafði fram að þessu
farið fram heima í stofu hjá Gísla
Braga sem nú vildi ólmur fara upp
á golfvöll að sýna aðstöðuna. Það
var því þeyst þangað og fylgst með
nokkrum ungum sveinum sem voru
lítið hærri en kylfumar, leika
nokkrar holur.
Sumir hverjir ekki
háir í loftinu
„Þeir eru sumir hveijir ekki háir
í loftinu sem koma hingað í fyrsta
sinn til að munda kylfumar," segir
Gísli Bragi. „Sumir eru ekki nema
sex ára þegar þeir spreyta sig í
fyrsta sinn og tíu ára gamlir em
þeir orðnir nokkuð slungnir. Það
er mikið um að hingað komi heilu
fjölskyldurnar og leiki saman sér
til heilsubótar og skemmtunar.
Mikill áróður hefur verið rekinn
fyrir aukinni hreyfingu og golf
virðist vinsælt af mörgum þeim sem
vilja taka þátt í einhveijum íþrótt-
um. Ég mæli líka með þeirri íþrótt
við hvem einasta mann. Það er
ákaflega afslappandi að koma hing-
að upp á golfvöll að afloknum
vinnudegi og gleyma bókstaflega
öllu öðm en því að það þurfi að
koma kúlu ofan í holu með fæstum
höggum. Svo er einnig hægt að
setja markið hærra og taka þátt í
keppni. Við setjum markið hátt og
ætlum að reyna að standa fyrir
alþjóðlegri keppni einu sinni á ári
í framtíðinni á þessum nyrsta golf-
velli í heimi. Þá emm við einnig
með innanfélagsmót og nýliðamót,
það ættu því allir að finna eitthvað
við sitt hæfi að ég held.
Skálinn hefur einnig haft sitt að
segja varðandi aukinn áhuga fólks.
Það er alltaf gott að hafa einhvern
stað þar sem hægt er að setjast
niður og skeggræða árangur dags-
ins á golfvellinum. Við seljum þar
veitingar og nú nýverið tókum við
það upp, að gefa myndlistarmönn-
um kost á að sýna verk sín í skálan-
um, og þess em dæmi að fólk hefur
komið á myndlistarsýningar og
endað í golfi."
Degi var nú vemlega tekið að
halla en samt mátti sjá marga enn
vera að. Drengimir sem verið höfðu
að slá hjá okkur vom nú famir að
fást við að koma kúlunni niður í
næstu holu og sennilega brotið
heilann um hvort hentugra væri að
nota jám sex eða átta, eða kannski
sjöuna. Þeir virtust ekki hafa neinar
áhyggjur af hvað tímanum leið og
einbeittu sér að íþróttinni. Skyndi-
lega mátti heyra hvella stúlkurödd,
var þar komin systir einhvers þeirra
og sagði þeim að koma heim hið
skjótasta, þeir ættu að fara að sofa.
Þeir vom ekki alveg á þeim buxun-
um, vildu fá að klára hringinní friði
en létu samt undan að lokum.
HÓTEL VARÐBORG
í hjarta borgarínnar.
Við bjóðum þægi-
leg herbergi, góð-
an mat og mjög
góða þjónustu í
þægilegu um-
hverfi. Geislagata 7
P.O. Box 337
S. (96) 22600
TelexlS2157
KOMPAN
SIGILD LISTHÖNNUN
FALLEGIR MUNIR MEDNOTAGILDI
Húsgögn, hillusamstæöur, trévörur, handunnar bastvörur,
eldfast fxjstulín, kaffi- og matarstell, munnblásið íslenskt gler,
silfurskartgripir með ekta steinum, handunnir íslenskir
leirmunir, gjafakort, eftirprentanir, plaköt, handunnin kerti,
lituð í gegn, serviettur o.m.íl., gjafapappír, pokar, bönd,
kort, límmiðar • Allt í stíl.
Póstsendum um allt land
KOMPAN
SKIPAGOTU 2
AKUREYRI
SÍMI 96 25917
Við eigum á lager
• LYFTIBUKKI MEÐ VELTIBUNAÐI • URREK
• VASAHNÍFAR • FISKIHNÍFAR • STÁL-
BRÝNI • SLEGGJUR • SLAGHAMRAR •
NETANÁLAR •VÍRAKLIPPUR •ÍSSKÓFLUR
• BÚNAÐUR TIL LÍNUVEIÐA • BÚNAÐUR
TIL HANDFÆRAVEIÐA • KAÐLAR • GARN
• ÞORSKANET OG TEINATÓG • DÝPTAR-
MÆLAPAPPÍR • FLOTVÖRPUR • STÁLVÍR-
AR •TOGVÍRAR • VINNUVÍRAR •SPLÆST-
IR (ÞRYKKTIR) VÍRAR • STÁLKEÐJUR •
BAKSTROFFUR OG GILSKRÓKAR • STÁL-
BOBBINGAR OG MILLIBOBBINGAR •
GÚMMÍBOBBINGAR • PLASTBOBBINGAR
• BOTNVÖRPUHLERAR • LÁSAR • SIGUR-
NAGLAR • FLATHLEKKIR • SYLGJUR
•STOPPNÁLAR • G-KRÓKAR •ROSSKEÐJ-
UR • ROSSSTAUTAR • ROSSKLAFAR •
SPANNAR • MELSPÍRUR •LANDFESTAR-
TÓG •HÚÐIR •POKAHLÍFAR •TROLLKÚL-
UR •FISKIKASSAR •FISKIKÖRFUR • FISKI-
KER
Höfum umboð fyrir:
HAMPIÐJUNA, VÉLSMIÐJUNA ODDA,
PLASTEINANGRUN, J. HINRIKSSON,
FRAM (KEÐJUR), MORIRIN (NET)
Oddeyrarskála Akureyri, sími 96-26120
Strandvegi 77, Vestmannaeyjum, sími 99-2975
Suðurtanga, ísafirði, sími 94-3500