Morgunblaðið - 05.07.1986, Side 14

Morgunblaðið - 05.07.1986, Side 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, LAU GARDAGUR 5. JÚLÍ1986 Það er kvöld á Akureyri. Sólin hefur skinið og dögum saman hefur veðrið verið eins og í heitum útlöndum. Bærinn skartaði sínu fegursta þegar þeir komu út úr rykmekkinum og þeystu á sænska gæðastálinu inn í bæinn. Tilefnið: Að spila dálítinn djass fyrir Akureyringa í nýjum og glæsilegum veitingastað, Fiðlaranum, þar sem gestir sitja og horfa yfir Pollinn á meðan þeir raða í sig krásunum. Morgunblaðið/Skapti Danirnir Ole Rasmussen, til vinstri, og Nils Raae, glaðir í bragði eftir að hafa leikið í Fiðlaranum í vikunni. Dönsk sreifla í Akureynirsól Kvöldmeð danska djassdúettinum FrítLejde Þeir eru tveir ungir Danir. Annar spilar á píanó og hefur því ekkert hljóðfæri í farteskinu. Hinn leikur á bandalausan rafbassa. Hann er í skottinu. Þeir kalla sig Frit Lejde. Ábyrgðarlitlir þýðendur geta snar- að því á marga vegu: Leiðin greið eða Með byr undir báðum vængjum. Raunar er þetta haft um ákveðin samskipti manna við lögregluyfír- völd, en það er önnur saga. Nafnið skiptir ekki máli heldur mennimir sjáifír og það sem þeir gera með tólum sínum ogtækjum. Píanóleikarinn heitir Nils Raae, bassaslagarinn Ole Rasmussen. Þeir eru rauðir og útiteknir. — Við skruppum í Mývatnssveit og gengum heilmikið um í sólskini og hita. Við fórum meðal annars upp á Hverfjall. Þeir ættu að fylla gíginn af vatni. Það yrði rosalega mikil sundlaug. — Já, og svo þyrfti að koma upp lyftu svo menn færu þama uppeftir í sund. — Og sólin og hitinn maður. Það var annað á Snæfellsnesi um dag- inn. Skyggni sjö metrar. Við sáum ekkert. — Ole sólbrann svo á öxlunum að það vora vandræði að láta bass- ann tolla á branarústunum í kvöld. — Það var gaman að spila í kvöld. Þetta er svo fallegur og góð- ur salur. Hann er lítill en hljómar óskaplega fallega. Það er örugglega út af timburloftinu. Salurinn er eins og eitt hljóðfæri. — Píanóið er nýtt. Það er mjög gott að spila á það. Það var dálítið falskt eins og ný píanó era oftast, en ég gat lagað verstu nótumar. Forsagan Ole: Ég byrjaði að læra á píanó þegar ég var 7 ára. Það var þessi venjulega rútína, blokkflauta og píanó. En svo fór ég að spila á bassa og er búinn að gera það í tólf ár. Ég veit ekki hvers vegna ég valdi bassann. Kannski vegna þess að hann er svo ryþmískur. Ég varð bara hrifinn af bassanum. Það var samt ekki fýrr en um síðustu ára- mót að ég byrjaði að spila á kontra- bassa. Hann er töluvert ólíkur raf- bassanum mínum. En ef maður er með mjög góðan rafbassa þá er hægt að láta hann hljóma næstum því eins vel og ekta bassa. Nils: Ætli ég hafí ekki verið 5 ára þegar ég byrjaði að spila. Á munnhörpu. Svo fíktaði ég eitthvað við orgel og píanó, en lærði svo í 10 ár á klassíska fiðlu. Hélt að hún væri aðalhljóðfærið. En svo snerist mér hugur og ég hljóp að píanóinu á ný. Það era samt ekki nema 6 ár síðan ég fór í almennilega píanó- tíma. Það var hjá Jörgen Emborg, sem spilar núna á hljómborð í Frontline, einni aðal-fönksveitinni í Danmörku. * Olar og Nílsar Ole: Ég fór fyrst í tíma hjá gítar- leikara, því miður. Það var ósköp vitlaust því það hentar ekki gítar- kennuram að kenna á bassa þó að þeir haldi það sjálfir. Þetta er svo ólíkt. Svo gutlaði ég eitthvað á bassann næstu 5-6 árin þangað til ég komst í tíma til Bo Steef. Það var alger upplifun. Þá fór ég að spila æfingar eftir almennilegu kerfí. Þetta var þá orðin alvara, ekki bara leikur. Svo komst ég til Niels-Hennings. Það gerði útslagið. Og ég er enn í tímum hjá honum — það er að segja þegar hann er heima. Það er bara alltof sjaldan. Hann er að spila út um allan heim og satt að segja fínnst mér við heyra alltof lítið í honum heima. Nils: Það er svolítið skemmtilegt að Ole lenti hjá Niels-Henning en ég hjá Ole Koch Hansen. Þeir tveir hafa fylgst að og spilað saman síðan þeir vora krakkar. Búa meira að segja á sama stað. En ég hef verið hjá Ole Koch í Konservatoríinu og lauk prófí í vor í píanóleik og upp- eldisfræði. Ég er sem sagt með bréf upp á að mega kenna. Ég hef prófað það svolítið, bæði í einkatím- um og í kvöldskóla. En ég er ekkert hættur hjá Ole Koch. Þetta er líka eltingaleikur hjá mér því hann er talsvert mikið í burtu eins og Niels- Henning. Ole: Þetta er samt ágætt. Þetta eru óreglulegir tímar, en því sjaldn- ar sem við hittum kennarana þeim mun lengri og ýtarlegri verða tím- arnir. Við sitjum lengi. Við spilum og spjöllum og skiptumst á hug- myndum og skoðunum. Það er oft spurt hvers vegna séu svo margir góðir bassaleikarar í Danmörku. Svarið er einfalt: Niels-Henning Örsted Pedersen. Hann er ekki nema fertugur en hann hefur haft rosalega mikil áhrif. Sjáðu til. Hann var ekki nema ijórtán ára þegar hann var farinn að spiia á fullu í Montmartre. Það sækja allir meira og minna til hans, bæði beint og óbeint. Aðferðir hans og hugmyndir endurspeglast í bassaleikurum út um allt. En hann er mikið í burtu, eins og ég sagði, og þeir sem mest ber á heima núna era trúlega Jesper Lundgaard og Mads Winding. Af hverju djass? Nils: Við spilum svo sem ýmis- legt annað en djass. Ole er til dæmis í fönsveit sem heitir Passepartout. Þar era líka Norðmaðurinn Svein Arve Hovland, sem var hér á ís- landi, og Guðmundur Eiríksson frá Selfossi. Þetta er svona alþjóða- sveit. Ég er svo í popp-fönkflokki sem heitir Fitstuff. Ole: Já, en af hveiju djass? Kannski vegna þess að hann gefur svo mikla möguleika á að impróvi- sera. Maður fær tækifæri til að láta tækin hljóma, vinna sjálfur úr eigin hugmyndum og tilfinningum. Nils: Samt lifír laglínan einhvers staðar innan í manni. Þetta er allt öðravísi tilfinning en að spila til dæmis popp eða klassík. Þar er allt miklu kerfisbundnara. Melódían gengur einhvern veginn í gegnum djassvélina í okkur sjálfum og vérð- ur að djassi. Við eram búnir að spila saman svo mikið að við getum verið samhljóma, fínnum hvor á öðrum hvert leiðin liggur og þannig vinnum við úr verkunum. Ole: Við byijuðum að spila saman í bigbandi, en svo höfum við verið með þennan tvímenning í 2 ár. Það er vissulega erfíðara að vera aðeins tveir. Það er til dæmis ekki hægt að fela mistök í fjöldan- um eins og í stórsveitum. Það verð- ur líka að gæta þess að spila nógu vel, fylla nógu vel upp í svo áheyr- endur fari ekki að velta því fyrir sér hvort einhver úr hljómsveitinni liggi nú veikur heima. Nils: Já þetta er ansi krefjandi. Við eram bara tveir og verðum að ;gera allt sjálfir. Ef maður er illa upplagður kemur það jafnt niður á báðum. En þetta gefur mikla mögu- leika. Hitt er svo annað mál að Ole er með bassann sinn með sér og þekkir hann út og inn. Það er ekki hægt að ferðast með píanó í tösku svo tónleikar geta staðið og fallið með því hvort píanóið á staðnum er gott eða vont. Við verðum stund- um að breyta dagskránni okkar eftir því hvemig píanóið er. Velja verkefni eftir því hvar og hvemig píanóið er falskt og allt það. Ole: Já það er ferlegt hvað víða era vond píanó, eins og þau kosta þó lítið þegar allt kemur til alls. Tæknin og tónlistin Nils: En nú era komin rafeinda- píanó, tölvuapparöt, sem geta hljómað eins oe ekta flyglar af dýr- ustu gerð. Þessi tækni nútímans getur gert mikið fyrir tónlistina. Sumir era á móti tölvutækninni i hljóðfæram og halda að á endanum spili allir eitt og sama verksmiðju- hljóðið. En tilfellið er að þeirs em á annað borð gefa sig að þessu af einhveiju viti laga hljómtölvumar að sjálfum sér, breyta þeim smátt og smátt þannig að þær fá eiginlega hluta af persónuleika mannanna. Tvö hljómborð af sömu gerð geta þannig orðið mjög ólík. Gersamlega ósambærileg. Ole: Sumum fínnst til dæmis frá- leitt að skuli vera hægt að spila á gítar svo að það hljómi eins og blokkflauta eða lúður, en í raun og vera skiptir það engu máli. Ef það er vel gert og af einhveijum metn- aði, — ef það gefur einhveijum eitthvað, þá er það gott. Það er tónlistin sem skiptir máli. Nils: Mér finnst þó alltaf best að koma í sal þar sem á gólfí stend- ur stór, fallegur og almennilegur flygill. Dagskráin o g framhaldið Nils: Við spilum mikið af göml- um, góðum djasslögum, en útsetn- ingamar geram við flestar í samein- ingu. Ole: Svo fljót með fáein lög eftir Nils. Hann semur líka og þetta er bara gott hjá stráknum. Ég hef hins vegar ekkert samið af því sem við spilum í dúettinum. En við semjum báðir tónlist sem við spilum í fönksveitunum okkar. Það er tals- vert annað en þetta. Nils: Þessi gömlu verk verða aldrei gömul í sjálfu sér. Þetta eru verk sem gefa sífellt kost á að breyta og bæta við. Þetta er lifandi tónlist, ekki dauð rútína. Ole: Og svo eram við á leið heim. Það hefur verið mikið að gera í Kaupmannahöfn. síðasta árið. Við spilum mikið á kaffihúsum hingað og þangað og á stöku tónleikum. Köbenhavns jazzfestival bytjar svo núna í fyrstu vikunni í júlí og stend- ur í 10 daga. Þá spilum við bókstaf- lega út um alla borg. Bæði úti og inni. Nils: Já, það er nóg að gera. Svo þurfum við líka að æfa, bæta nýju efni við dagskrána. Frístundirnar fara flestar í að hlusta á tónlist, lesa og æfa, finna nýjar leiðir og útsetja. Ole: Sko, við getum ekki spilað bara sömu lögin og núna þegar við komum aftur til Islands næsta sumar. Við ætlum nefnilega að koma aftur. — svpáll

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.