Morgunblaðið - 05.07.1986, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1986
SLM
Ferðafolk
Munið okkar frábæru þjónustu í blómum og gjafavör-
um; erum í göngugötunni í miðbænum, Hafnarstræti
96, og Verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð, Glerárhverfi.
VoriA velkomin.
"Laufás,
BlómabúÖin
Hafnarstræti 96, sími 96-24250 og Sunnuhlíð 12, sími 96-26256.
Morgunblaðið/Magnús Gottfreðsson
Frá útreiðartúr í Krossaneshaga. Margir ferðamenn trúa því ekki að náttúran þar sé ekki búin til af
mannavöldum.
„Það sem okkur fslendingum
fínnst vem smáatríði eru oft
aðalatríði íáugum ferðamanna66
rætt við Reyni Hjartarson sem rekurhestaleigu á Brávöllum
AKUREYRI hefur löngum verið
nefnd perla Norðurlands. A hverju
ári streymir þangað fjöldi ferða-
manna , jafnt erlendra sem inn-
lendra. Reynir Hjartarson, bóndi
á Brávöllum í Eyjafirði, hefur um
nokkurt skeið rekið hestaleigu á
búi sínu. Að jafnaði eru 20-30 hross
til reiðu á hans vegum. Ferða-
mönnum gefst kostur á bæði lengri
og skemmri ferðum.
Blaðamaður Morgunblaðsins heim-
sótti Reyni að búi hans fyrir
skemmstu. Hann var tekinn tali og
fyrst inntur eftir því hvers konar
ferðir væri boðið upp á.
„Við eru mjög sveigjanleg í samn-
ingum hér. Ef ferðamenn vilja fara
eitthvert á hestbaki og við teljum það
hættulaust, þá verður þeim að ósk
sinni. Það má þó segja að einkum
sé boðið upp á fems konar ferðir. í
fyrsta lagi stutta útreiðartúra, 2-3
klst. Þá er boðið upp á þriggja daga
ferðir upp í Barkárdal, en hann er
inndalur úr Hörgárdal. Gist er í
Baugaseli, en þar er torfbær sem
gerður hefur verið upp. Við reynum
að gera þetta svolítið þjóðlegt og
leggjum áherslu á hina íslensku sér-
stöðu. Einu sinni á sumri er farið í
langa ferð. Þá er lagt upp frá tveimur
stöðum í einu, bæði úr Eyjafirði og
Skagafirði. Hóparnir mætast svo á
Hörgárdalsheiði og þar er skipt um
hesta. Nú, svo förum við nær hvert
sem er með fólk ef okkur sýnist það
hættulaust.
Ég man aðeins eftir einu dæmi
þess að ég hafi neitað mönnum um
ferð. Það var í vor. Þá komu til mín
þýskir ferðalangar sem voru í ein-
hvetjum ævintýrahugleiðingum. Þeir
höfðu fengið þá hugdettu að ferðast
umhverfís Vatnajökul á hestbaki —
hafa vafalaust séð jökulinn á korti
og fundist tilvalið að fara einn léttan
hring! Þetta var náttúrulega helbert
feigðarflan svo ég fór hvergi.
Að þessari ævintýraferð Þjóðverj-
anna slepptri hef ég alltaf reynt að
verða við óskum ferðamanna. Lang-
flestir þeirra er til okkar leita koma
erlendis frá, aðeins tíundi hluti er
Islendingar. Algengast er að þetta
fólk kunni lítið fyrir sér í hesta-
mennsku og þá förum við með það
í stutta ferð hér upp í Krossanes-
hagann. Þar er mikil náttúruparadís
og Qölskrúðugt dýralíf. Til að mynda
er hægt að sjá 14-18 fuglategundir
að jafnaði þar og svæðið er einnig
merkilegt frá jarðfræðilegu sjónar-
miði. Við höfum leitast við að grafa
upp ýmiss konar þjóðsögur og frá-
sagnir sem tengjast þessu svæði og
segjum fólki þegar riðið er um hag-
ann.
Þrátt fýrir nálægðina við Akureyri
held ég að því miður hafí fæstir
Akureyringar hingað komið. Þeir
Helgi Hallgrimsson og Steindór
Steindórsson hafa reynt að vekja
athygli fólks á þessum vangi, en fram
að þessu hafa fáir barið staðinn
augum,“ sagði Reynir.
Er talið barst að ferðamálum sagði
hann að íslendingar gerðu alltof lítið
af því að setja sig í spor útlendinga.“
Sannleikurinn er sá að erlendir ferða-
menn sem koma til Akureyrar staldra
of stutt við. Of margir þeirra koma
hingað einungis til að stíga upp í rútu
og þeysa til Mývatns. Þetta er ekki
jákvæð þróun, því ef rétt væri á
málum haldið held ég að lengja
mætti dvöl flestra útlendinga hér.
En á meðan hér er ekkert við að
vera er skiljanlegt að menn séu ekki
að staldra við hér lengur en nauðsyn
krefur — og meðan þeir stoppa ekki
skilja þeir ekki eftir peninga, svo
einfalt er það. Ég held að gönguferðir
geti átt mikla framtíð fyrir sér. Okkur
fínnst það ef til vill fáránlegt, en það
sem marga útlendinga vantar er leið-
sögn. Mér sýnist það viðhorf vera
ríkjandi hjá alltof mörgum íslending-
um að þeir vilji hafa gott af ferða-
mönnum, en séu ófúsir til að leggja
eitthvað á sig til að afla fjárins,"
sagði Reynir og dæsti.
„í ferðamálum okkar dugir ekkert
annað en hugarfarsbreyting. Við
verðum að átta okkur á því að fæstir
útlendir ferðamenn er leggja leið sína
hingað koma ekki til að baða sig í
sólinni eða gista á meiriháttar hótel-
um. Slík gæði geta þeir öðlast annars
staðar með minni tilkostnaði. Þegar
við hættum að reyna að selja útlend-
ingum það sem allir aðrir eru að reyna
að selja þeim mun okkur fara að
ganga betur. Mín reynsla er til að
mynda sú að útlendingar setja ekki
veðrið fyrir sig - svo framarlega sem
það helst innan vissra marka! Flestir
útlendingar eru mun betur búnir gegn
veðri og vindum en Íslendingar. Sem
dæmi um þetta get ég nefnt nokkra
þýska ferðamenn er komu til mín í
fyrrasumar og vildu fá að ríða upp
á Hlíðarfjall. Ég samþykkti það og
þeir voru ekki ánægðir fyrr en við
vorum komnir langt upp fyrir snæ-
línu. Þá fóru þeir að taka myndir og
færðust allir í aukana er veðrið versn-
aði — að þeirra sögn var það hápunkt-
ur ferðarinnar er fór að snjóa hressi-
lega framan í þá.
Mér fínnst oft þurfa furðu lítið til
að þetta fólk sé ánægt. Við getum
selt fólki svo margt sem við metum
lítils í dag. Sumir túristanna vilja
fyrst og fremst fara fetið, fara jafnvel
af baki og hlýða á fuglasönginn. Láta
sér slíka hluti nægja. Sumir eru meira
að segja sannfærðir um að Krossa-
neshaginn sé ekki „ekta“ — fínnst
stórfurðulegt að hér skuli vera hægt
að fínna „raunveruleg" hreiður með
eggjum eða ungum. Margir eru Hka
undrandi á því að ekki skuli vera
neinir fastákveðnir reiðstígar — eiga
að venjast því erlendis að allir verði
að fara sömu leið og eiga sekt á
hættu ef út af því er brugðið. Þetta
eru allt hlutir sem margir Islendingar
álíta sjálfsagða en margir ferðamenn
eru fúsir til að greiða fyrir að sja.
Það er þetta sem þeir sækjast eftir
— eitthvað óvænt og spennandi.
Við höfum haft það að reglu að
blanda aldrei saman hópum. Þarfír
fólks eru svo mismunandi að það fær
mest út úr ferðinni þegar það getur
sjálft stjómað hraðanum. Þetta finnst
mér vera sjálfsögð þjónusta. Svo er
fólki boðið í molakaffi á eftir og
rabbað saman. Við höfum eignast
marga góða vini, skrifast á við og
jafnvel fengið heimboð frá þessu
fólki,“ sagði Reynir er riðið var í hlað
á Brávöllum. Hann vatt sér af baki
og bauð upp á kaffísopa.
„Mín reynsla er sú að margir ferða-
menn koma hingað til þess að kynn-
ast landinu af eigin raun. Eru margir
hveijir búnir að fá nóg af þaulskipu-
lögðum pakkaferðum þar sem menn
eru eins og síld í tunnu. Það sem
okkur finnst vera smáatriði finnst
útlendingum oft vera aðalatriði og
ef við ætlum að reyna að selja þeim
eitthvað er frumforsenda að við get-
um sett okkur í þeirra spor.“
-V
□AIHAT8U □AIHATBU
DAIHATSU
bflar í björtum sýningar-
sal.
Allar
gerðir.
skiptinqum.
almennar
Sérhæfing
bflavið-
í sjálf-
Varahlutverslun.
BÍLVIRKI SF.
Fjölnisgötu
96-23213.
6, 600 Akureyri sími
Ibúðirtil sölu:
Erum að hefja sölu á 10 íbúðum í fjölbýlishúsi
við Melasíðu 6.
3ja og 4ra herbergja íbúðum fylgir bílskúrsréttur.
íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk, sameign
frágengin.
DRAUPNISGOTU 7m
23248 - Pósthólf 535 - 602 Akureyri