Morgunblaðið - 05.07.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.07.1986, Blaðsíða 18
m_ 11. ?PP, i.VTT. i VI/ :v4--T-. 18 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1986 Morgunblaðið/Kristinn Skákstrákarnir frá Akureyri sem fara til Bandaríkjanna, frá vinstri: Skafti Ingimarsson, Rúnar Sigur- pálsson, Tómas Hermannsson og Bogi Pálsson. Óskenwitilegast aö fella kónginn — spjallað við fjóra unga skákmenn sem eru á leið til Bandaríkjanna að tefla við jafnaldra sína V ISLENDINGAR hafa æ oftar verið í sviðsljósinu vegna glæsilegs árangurs í skák og þótt ná betri árangri með hveiju árinu sem liðið hefur. Fjöldi íslenskra stórmeistara hefur aldrei verið meiri og alltaf má heyra fleiri og fleiri unga skákmenn nefnda sem stórefnilega. Flestir eru þessir ungu menn frá höfuðborgarsvæðinu en þó er ekki svo að skák sé ekki iðkuð utan þess og nú er svo komið að á Akur- eyri hafa komið fram á sjónarsviðið fjórir ungir piltar sem hafa unnið sér það til frægðar að hafa verið valdir í 20 manna unglinga- sveit sem um miðjan þennan mánuð heldur til Bandaríkjanna að tefla við jafnaldra sina þar. Þessir ungu drengir heita Bogi Pálsson, 14 ára, Rúnar Sigurpáls- son, 13 ára, Skafti Ingimarsson, 14 ára, og Tómas Hermannsson, 14 ára. Ungir að árum fengu þeir að kynnast leyndardómum mann- taflsins og brátt kom að því að íþróttin átti hug þeirra allan. Það var síðan eina kvöldstund þegar færi gafst að blaðamaður Morgunblaðsins hitti þá félaga að máli ásamt Þór Valtýssyni, kenn- ara, en hann hefur átt sinn þátt í því að efla áhuga ungra drengja á skákiðkun á Akureyri. Drengimir voru fyrst að því spurðir hvernig þeim litist á að fara alla leið til Bandaríkjanna til þess að taka nokkrar bröndóttar. „Okkur líst bara vel á það,“ sagði Tómas, „við erum allsendis óhræddir að tefla við þá,“ bætti Rúnar við, snöggur upp á lagið. Nú eru ekki nema fimm í þessum tuttugu manna hópi sem búa utan höfuðborgarsvæðisins, ogþar af eru þið flórir frá Akureyri. Stendur skáklíf með svona miklum blóma hér? Þeir velta spurningunni svolitla stund fyrir sér en komast síðan að þeirri niðurstöðu að það hljóti eigin- lega að vera. „Það vantar samt fleiri mót fyrir okkur," segir Skafti, „það eru alltaf þeir sömu sem við er að etja og þegar til lengdar lætur er það ekki mjög skemmtilegt." Þór Valtýsson, kennari þeirra, lætur þess þó getið að ekki megi taka þessi orð of bókstaflega því fyrir utan öll þau mót sem haldin eru í skólunum þá sé haldið haustmót, Akureyrarmót, Skákþing Norðlend- inga og Minningarmót um Júlíus Bogason. „Það er hins vegar nokk- uð Ijóst að möguleikarnir úti á landi eru ekki þeir sömu og hjá skák- áhugamönnum í Reykjavík," segir Þór. „Svo er til dæmis ekki hægt að kaupa neinar skákbækur hér á Akureyri," segir Rúnar og félagar hans taka undir það og fínnst greinilega súrt í broti að geta ekki fylgst með af fuilum krafti. „Það er bara í Reykjavík sem hægt er að kaupa skákblöð eins og Informa- tor og News in Chess," bætir einn þeirra við. En skyldi ekki fara mikill tími í að lesa allar þessar skákbækur og kynna sér allar nýjungamar í blöð- urtum, tekur skákiðkunin ekki mikinn tíma frá skólanáminu á vetuma? Jú, allir em þeir á sama máli hvað það varðar en fínnst það alveg þess virði. „Það þýðir ekkert að verða eftirbátur hinna," segir einn þeirra, „og láta þá vinna hvað eftir annað. Það verður að fylgjast með og það tekur tírna." Og allir em þeir sammála um að óskemmtileg- ast sé að þurfa að fella kónginn. Það hefur oft viljað brenna við að menn haldi að ekki þurfí annað en taflmenn, sextíu og íjóra svarta ' og hvita reiti og síðan tvo menn til að stýra taflmönnunum en til þess að hægt sé að stuðla að skáklífi þarf meira að koma tii og því er ekki úr vegi að spyija hvernig aðstaða skákmanna á Akureyri sé? „Aðstaðan er nokkuð góð,“ segir Þór, „en var samt betri fyrir fáein- um ámm, þegar skákfélagið hafði fuli afnot af húsi við Strandgötuna, sem síðan var rifíð vegna skipulags- breytinga. Síðan þá hefur unglinga- starfíð innan félagsins ekki staðið með sama bióma. Áður en við misstum húsið þá vomm við með að meðaltali 40 unglinga á hverri æfingu en í vetur sem leið vom það ekki nema um 15 strákar sem mættu að jafnaði. Ég held að það hafí mikið að segja að félagsskapur af þessu tagi hafí húsnæði þar sem hægt er að standa fyrir skákmótum, koma upp safni skákbóka og tíma- rita, og jafnframt halda uppi ein- hverskonar félagsstarfsemi í tengslum við starfíð. Það hefur einnig háð starfsemi skákfélagsins hversu fáir era raunvemlega reiðu- búnir til að sinna félagsstarfínu af miklum krafti, en eins og allir þeir þekkja sem nálægt félagsstarfí hafa komið þá er það mjög tímafrekt. Við höfum hins vegar verið svo heppnir að hafa drífandi mann sem formann félagsins, Gylfa Þórhalls- son, og honum eiga skákmenn á Akureyri mikið að þakka,“ sagði Þór. „Það þyrfti eiginlega að fá nokkra Gylfa í viðbót," heyrist einn Ameríkufarinn segja. „Yfirvöld hafa hins vegar sýnt málefnum Skákfélagsins mikinn skilning og hafa verið jákvæð í okkar garð,“ heldur Þór áfram frásögn sinni, „og nú er verið að vinna að því að fínna húsnæði handa okkur." Drengimir halda til Bandaríkj- anna 13. júlí og verða þar í rúma viku. Þeir mæta jafnöldmm sínum þar vestra sem stundum hafa verið kallaðir „strákamir hans Collins", en þeir hafa iðkað skáklistina undir hans stjóm, og má þess geta að Collins þessi var einn af fylgifískum Fischers hér á landi er hann varð heimsmeistari. Að Iokum em hér fjórar skákir sem þeir Bogi, Rúnar, Skafti og Tómas vom svo vinsamlegir að hafa með sér, áhugamönnum um skák sér til dægradvalar. Skýringar við skákimar em þeirra. Þúr Valtýsson kennari. 1. skák Skafti Ingimarsson tefldi þess skák á haustmóti Skákfélags Akur- eyrar árið 1984, og stýrir hann svörtu mönnunum. 1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rc3 — Bb4,4. a3 — Bxc3 Nú er upp komið svonefnt Samisch-afbrigði. 5. bxc3 — d5,6. Bg5 — dxc4!? Betra var að leika hér Rbd7. 7. e4 - Dd7, 8. f3 - c6, 9. Bxc4 - b6, 10. Re2 - Bb7, II. Bb3 - Dc7,12.0-0 — Rbd7 Hvítur hefur nú fengið rúmt og gott tafl út ur byijuninni. 13. Rg3 - 0-0, 14. Bc2 - e5, 15. Dd3-g6?! Þessi leikur svarts var óþarfa veiking. 16. f4 i Með þessum leik hyggur hvítur á sóknaraðgerðir. 16. — exd4,17. cxd4 — Hac8. Svartur undirbýr nú að leika peði á c5-reitinn. 18. Hf2 - Rg4! 19. Hf3 - f6, 20. Bh4 - c5!? 21. d5 - c4, 22. Dd2? - c3! 23. De2 - Dc5+ 24. Khl - Ba6! 25. Dxa6? - Rf2+ 26. Hxf2 — Dxf2,27. De2 —Dxf4 Svartur vinnur nú skiptamun. 28. Rf5 - gxf5, 29. Bg3 - Dd2, 30. Hel - Dxe2, 31. Hxe2 - He8 og svartur vann. 2. skák Hvítt: Rúnar Sigurpálsson Svart: Sveinbjöm Sigurðsson Skákin var tefld á Skákþingi Akureyrar á þessu ári. 1. e4 —c6 Það er greinilegt að svartur kýs að tefla Caro-Kann-vömina, sem stundum hefur verið nefnd vörn fátæka mannsins, af skiljanlegum ástæðum. 2. d4 — d5,3. exd5 — cxd5 Hvítur teflir uppskiptaafbrigðið. 4. Bd3 - Rc6, 5. Be3 - Db6 Hvítur fer ótroðnar slóðir. Al- gengara er að hvítur leiki í fímmta leik sínum peði til c3. 6. Rc3 - e6, 7. a3 - a6, 8. Rf3 - Bd6, 9. 0-0 - Rf6, 10. Re5 - Dc7,11. f4 - 0-0,12. Hf3 - g6 Hvítur hyggst nú blása til sóknar á kóngsvæng. 13. Del - Rh5, 14. g4 - Rg7, 15. Hh3 - f6?, 16. Dh4! - Rf5, 17. gxf5 — fxe5, 18. fxe5 — Rxeö, 19. dxe5 — Bxe5, 20. fxg6 — hxg6, 21. Dxg6 — Bf6, 22. Dg4 - e5, 23. Bh7+ - Kf7, 24. Bg6+ - Ke6, 25. Re4+ - dxe4, 26. Hdl+ - Kc6, 27. Dxe4 - Kb5, 28. Dd5+ - Ka4, 29. Db3+ og svartur gaf. 3. skák Hvítt: Þór Valtýsson Svart: Bogi Pálsson 1. D4 - Rf6, 2. Rf3 - e6, 3. Bg5 - Be7, 4. Bxf6 — Bxf6, 5. e4 — d6, 6. c3 - Rd7, 7. Bd7 - b6, 8.0-0-0-0,9. e5 Hvítur fómar hér peði en vinnur það síðan í framhaldinu. 9. — dxe5, 10. dxe5 — Rxe5, 11. Rxe5 — Bxe5, 12. Bxh7 — Kxh7, 13. Dh5+ - Kg8, 14. Dxe5 - Bb7,15. f3?! Þetta er fremur vafasamur leikur því hvítur lokar skálínu biskupsins. Eins veldur þessi leikur veikingu á annarri reitaröð, sem síðar reynist hvítum dýrkeypt. 15. - Dd7, 16. Ra3 - Hfd8, 17. Dg3 - Ba6, 18. Hel - Dd2, 19. Dxc7 Slæmur afleikur hjá hvítum því þessi leikur leiðir til taps á léttum manni. 19. — Dxb2,20. De7 Ekki dugði hvítum að leika Rc4 vegna framhaldsins: 20. — Dxc3, 21. Hacl - Dd4+ 22. Khl - Hc8 og hvítur tapar manni. 20. - Hd2, 21. Dg5 - Had8, 22. Khl — Dxa3, 23. h4 — Dxc3, 24. Hacl - Df6, 25. Dg4 - Dh6, 26. Da4 - H2d4, 27. Dxa6 - Hxh4+ 28. Kgl - Hhl+ 29. Kf2 - Hd2+ og svartur gafst upp um leið, enda með vonlausa stöðu. 4. skák Hvítt: Tómas Hermannsson Svart: Árni Þór Kristjánsson Þessi skák var tefld á móti sem fram fór á milli Skákfélags Akur- eyrar og Búnaðarbanka íslands. 1. d4 - d5, 2. c4 - e6, 3. Rc3 - Rf6, 4. Bg5 - Be7, 5. e3 - 0-0, 6. Rf3 - Rbd7, 7. Dc2 - c5, 8. 0-0-0 — cxd4 Allt er þetta innan marka „teórí- unnar" en algengara er þó að svart- ur leiki Da5 í stað þess að drepa á d4-reitnum. 9. exd4 — dxc4 Það hefði mátt Iáta þessi upp- skipti bíða betri tíma. 10. Bxc4 — Rd5,11. Bxe7 — Rxe7 Ekki hefði reynst svörtum nægi- lega vel að leika Dxe7 því þá hefði hvítur drepið með riddara á d5 og svartur þar með tapað peði. 12. h4 Hvítur hyggur á sóknaraðgerðir á kóngsvæng. 12. - h6,13. g4 - Rb6,14. Bb3 Ekki hefði reynst jafnvel að leika Bd3. 14. - Rbd5, 15. h5 - Rxc3, 16. bxc3 — Rd5, 17. g5! — hxg5, 18. Hdgl - Dc7,19. Kb2 - b5 Svartur reynir að ná mótspili á drottningarvæng. 20. Hxg5 Betri leikur en til dæmis Rxg5. 20. - f6, 21. Hxd5 - exd5, 22. Bxd5+ Svartur er nú kominn með tapaða stöðu. 22. - Hf7, 23. Bxa8 - Df4, 24. Bd5 - Kf8, 25. Rh4 - Hc7?? 26. Rg6+ og svartur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.