Morgunblaðið - 05.07.1986, Síða 19

Morgunblaðið - 05.07.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1986 B 19 Ólöf Ýr Atladóttir Sigurður Ingólfsson Ug-gi Jónsson Kveðið sér hlióðs ÞRJÚ ung skáld kváðu sér hljóðs á dögunum á Akureyri er bókin „Kveðið sér hljóðs“ kom út. Þau eru Ólöf Ýr Atladóttir, Sigurður Ingólfsson og Uggi JÓnsson. Tvö þau fyrrnefndu útskrifuðust sem stúdentar frá MA þann 17. júní en Uggi var í næst efsta bekk sama skóla í vetur. Gefin voru út 300 tölusett eintök af bókinni og hefur megnið af upplaginu selst nújþegar. _ I formála segja höfundar m.a.: „í kveri þessu er að finna skrif þriggja höfunda, sem fyrir tilviljun hittust, þá þeir áttu hver í sínu pokahomi bókarkom. Ákváðu þeir í samræmi við nýjustu tísku á Fróni að gefa út stórbók eða öllu heldur stórbókarkom, en sú komtegund mun harla fágæt á Fróni. Bókar- komið skemmist ekki við geymslu, en athuga ber að ekki er hægt að brugga úr því . . . nema launráð ef til vill.“ Morgunblaðið hefur fengið leyfí höfundanna þriggja til að birta ljóð úr bókinni og fara þau hér á eftir, tvö eftir hvert þeirra, en þess má geta að þremenningarnir lásu frumsamin ljóð á M-hátíðinni í íþróttaskemmunni á Akureyri fyrir nokkru. Ólöf Ýr Atladóttir Framtíðarsýn sumarið 1986 Krossgötur. Ólíkar merkingar ágötuskiltunum. Götumar mis-greiðfærar. Þó sýnir leiðarvísirinn aðþær liggjaallar aðsömublindgötunni. Skýjaborgir Rísaborgir hrannast upp hrattogauðveldlega. Hrynja borgir flosna upp hverfa útíbláinn. Eftir eraðeins opið sár vonarinnar sem þærerureistará. Sigurður Ingólfsson Oður til gamallar verkakonu Þú ert skorpin, þú ert ósköp lúin. Þú varst eitt sinn gefin fyrir vín. En núna ertu öllum gæðum rúin og átt að hvílast, veslings lifrin mín. En ég hef frétt að úti, í öðmm löndum, menn eygi von um nýtt og betra líf. Þeir stundi „livertransplant" högum höndum —og hjálparlæknar séu fögur víf. Og því skal haldið út til öðlings handa sem út þigrifa, gamla hróið mitt Þeir blanda sama formalíni og landa °g ieggja þig svo oní glasið þitt. Og þar þú bíður eftir efsta degi og ólgar tryllt, af víni gegnumsýrð. Þá upp þú stígur, upp af þínum legi, og inn í himins skorpulausu dýrð. Tilbrigði við málverk (Marcelle Lindner, eftir Lautrec) Hún dansar tryllt af tónum gítars strengja og töfrar menn og hlær til ungra drengja. Hárið liðast logagyUt Hún er drottning. Hún er líf og dauði. Hennar bros er þrungið lífsins auði. Augun glampa af æði villt. Um hálsinn ber hún gullband gleymdra vona, og pilsins faldur feykist til og fótur hennar skrifar orð í sandinn. Þá glymur tónn af gítars strengjum þöndum. Hún gengur, dansar hratt á lífsins söndum ogþurrkarút sínoið svo ekkert virðist lifa eftir dansinn. Hún fordæmdi ekkert, felldi engan dóm en fann sér gleði bak við gítarhljóm ogdansaði um lífíð léttum fæti og lifði, elskaði og grét og hló. Og eftir dansinn, eftir glaum og læti hún út af sviði lífsins gekk og dó. Uggi Jónsson Að týnast I Stundum finnst mér ég vera að týnast. Mér líður einsog regndropa sem fellur í hafíð. Regndropinn tapar sérstöðu sinni, ferskleika sínum og samlagast hafinu þegar selta þess smýgur inn í hann og gerir hann eins og aðra dropa í hafinu. Eg mun engu máli skipta - ég verð aðeins dropi í hafínu. II Stundum fínnst mér ég vera að týnast. Mér líður einsog agnarsmáum skýhnoðra á leið inn í dimma þoku. Ég tapa sjálfum mér í þokunni, renn saman við hana og mun aldrei komast í mitt fyrra horf - verð aðeins þoka upp frá því. III Stundum finnst mér ég vera að týnast Mér líður einsog ísjaka í hringiðu. ísjakinn hringsnýst í iðukastinu. Ég verð æ minni og hringimir einnig. Að lokum leysist ég upp eða sogast niður um iðuna miðja - alltént eyðist ég og hverf. VonlII égvildiaðéggæti svikið og blekkt sjálfsblekkingu mína - sýnt sjálfúm mér aðéger VonlV égvildiaðéggæti heyrt hvert hljóð séðallt —sýntsjálfummér aðtilveraner ÞAU VOLDU NORÐURMYND HVAÐ MEÐ ÞIG? nonðun mynd LJÓSMYN oastofa Sími 96-22807 • Pósthólf 464 Glerárgötu 20 • 602 Akureyri Við Ráðhústorg Opið kl. 10-18. Kaffihlaðborð á sunnudögum kl. 14-18. Léttir réttir í hádeginu. Expresso — Mokka — Capuccino. < llTomið c 'e' FLUGLEIDIR Eina sérverslunin með snyrtivörur í miðbæ Akureyrar. Snyrtisérfræðingur ávallt á staðnum. Mikið úrval af snyrtivörum, sólarvörum, sokkabuxum og ilmvötnum. Vörusalan, Hafnarstræti 104. AkuceycacApclek O. C. THORARENSEN HflFNflRSTRíTI 104 Akureyringar, ferðamenn, eigum ávallt sjúkrakassa fyrir heimilið og bílinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.