Morgunblaðið - 10.08.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1986
Eru
þeir að
fá 'ann
-?
■
Gljúfurá lífleg-...
Veiðin í Gljúfurá er komin upp í
170 laxa, 30 löxum meira en síðasta
sumar, en þó er enn dijúgur tími
eftir í ánni, í tvennum skilningi, því
veitt er til 20. september og áin
gefur oft vel síðsumars, sérstaklega
í ágúst. Að sögn veiðimanna sem
veiddu fyrir skömmu er laxinn
dreifður um alla á, en líklega sé
mesta safnið í Eyrarhyl, a.m.k.
50—60 laxar og svo megi geta þess
að gamlagrónir veiðistaðir eins og
Geitaberg og Kálgarður sem hafa
verið lélegir síðustu árin, hafa kom-
ið aftur upp og eru nú í fremstu
röð á ný eins og vera ber. Þá er
bæði mikill lax í Fossgljúfrinu efst
og í ósnum og ekki síst við Kerling-
una, en þar veiddist 17 punda lax
fyrir skömmu og er það á við 25
punda lax úr „venjulegri á“, en lax-
inn í Gljúfurá hefur löngum verið
óvenjulega smár. Við Kerlinguna
voru samt nokkrir stórir til við-
bótar. Þrátt fyrir talsverðan lax
hefur veiðin verið upp og ofan og
kenna menn um mikilli birtu að
undanförnu og minnkandi vatni en
nú er von til þess að úr rætist.
Iðan heldur dauf ...
Það munu vera komnir um 160
laxar á land af Iðunni og þykir það
frekar dauflegt en besti tíminn þar
er eftir þannig að enn getur ýmis-
legt gerst. Bókað er í tvær bækur
við Iðuna og tjáði viðmælandi blaðs-
ins að í fyrradag hefðu 80 laxar
verið skráðir í aðra bókina, og eitt-
hvað svipað í hina. Flesta daga
veiðitímans til þessa hefur verið
jöfn og frekar lítil veiði, fáeinir fisk-
ar á dag og lítið upp „skot“, en 4.
ágúst gerðist það hins vegar að 11
laxar veiddust, 6 daginn eftir og 4
þar næsta eins og það hefði komið
lítil ganga. Stærsti laxinn til þessa
vóg 23 pund og a.m.k. einn 22
punda hefur einnig veiðst, annar
20 punda.
Meðalgott í Lang-
holti...
Um 200 laxar hafa veiðst í landi
Langholts í Hvítá fyrir austan fjail
og segir Hreggviður bóndi það
meðalveiði. Misjafnt hefur gengi
manna verið. Suma daga að undan-
fömu hefur lítið eða ekkert veiðst,
síðan komið allt að 13—15 á land
kannski strax daginn eftir dauðan
dag. Trúlega fer þetta að einhveiju
leyti a.m.k. eftir veiðimönnunum
sjálfum, en svæðið er afar vand-
veitt. Talsvert er af laxi á svæðinu
og veiðist best nú orðið í Sandvík-
i lukkupottinn, því veiðileyfin em
ódýr vegna þess að ekki er á vísan
að róa. Eitt sumar gæti allt verið
steindautt þarna en það næsta eins
og nú í sumar. Menn „taka sjens"
og fá stundum vinning eins og
nú ...
inni. Þar virðist liggja dijúgmikill
fiskur. Meðalþunginn er góður, þó
hefur smærri fiskur veiðst að und-
anfömu. Fimm laxar hafa veiðst á
bilinu 20—24 pund, þrír 20 pundar-
ar, einn 22 punda og einn 24 punda,
allir við „Fossana" efst á svæðinu.
Með betra mótí í
Snæf oksstöðum
Bakkinn á móti Langholti. Þar
hefur veiðin verið þokkaleg ef á
heildina er litið, yfir 100 laxar
komnir á land. Þama detta menn
Laxi landað frammi í dal i Langá á Mýrum. Þar hefur veiði verið góð
í sumar, andstætt síðasta sumri er þar sást varla uggi.
Sogið dauft
Menn eru enn að bíða eftir al-
mennilegu skoti í Sogið, rétt
rúmlega 100 laxar eru komnir á
land í það heila, kannski eitthvað
meira, því brögð em talin að því
að illa sé bokað á Alvirðu vegna
smáfyrirhafnar við að fara í veiði-
húsið til þess ama í lok veiðidags.
Varla em það þó nein uppgrip sem
vantar miðað við hvemig samvisku-
samari veiðimönnum hefur gengið.
Oþarfi er að tíunda hvert svæði.
Þau era öll dauf, daufast þó sjálf-
sagt á Syðri Brú þar sem aðeins
11 laxar hafa veiðst til þessa.
IV Heimreisa Útsýnar
til Austurlanda fjær
endurtekin í nóvember
vegna fjölda áskorana.
Það er samdóma álit farþega, að fáar
ferðir hafi tekist jafnvel og Heims-
reisa IV — Austurlandaferð Útsýnar,
sem nú verður farin í þriðja sinn. Ferð um furðuheima náttúru,
mannlífs og lista, svo framandi og fagra, að vart líður úr minni.
Hótel Austurlanda eru ævintýraheimur út af
fyrir sig og við höfum valið nokkur þeirra beztu:
BANGKOK - HILTONINTERNATIONAL - lúxus
BALÍ - NUSA DUA BEACH HOTEL—lúxus
SINGAPORE - MANDARIN HOTEL - lúxus
Brottför 7. nóvember
3 vikur VERÐ KR.
97.200
Kynnisferðir daglega undir leið-
sögn sérfróðra heimsreisu-
fararstjóra Útsýnar, m.a.
verður nú í fyrsta sinn farið til
Malasíu í dagsferð, meðan
dvalið er í Singapore.
BANGKOK
Fimm daga dvöl f hinni
litríku, glaöværu höf-
uöborg skemmtana-
lífsins í Austurlöndum
fjær mun seint gleym-
ast.
BALÍ
Rómantíska töfraeyj-
an, bústaöurguðanna,
jarönesk paradis, þar
sem fólkið og tilveran
brosir viö þér með
seiðmögnuðum töfr-
um. Baliervitnisburö-
ur um fegurö,
samhljóm og sam-
ræmi, sem lýsir sór
jafnt i fegurð landsins
og lífi fólksins.
JAVA
Heimsókn til Yogya-
karta, hinnarfornu
höfuöborgfar, þar sem
ævarforn menning
Indónesfu birtist f ótal
myndum, m.a.
Hindúamusterinu
PRAMBANAN og hinu
stórkostlega Budda-
musterí BOROBOD-
UR, semtaliö er eitt
af undrum veraldar.
SINGAPORE
Hin nýja, glæsilega
viðskipta- og menn-
ingarmiöstöð Austur-
landa. .HIiðAsíu"
háþróuð nutimaborg
„the Shoppers Para-
dise.“ Ótrúleg bianda
austrænna og vest-
rænna áhrífa með
marglitt mannlff.
GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ — SÆTAMAGN TAKMARKAÐ
Einstök ferð og stórkostleg lífsreynsla, sem aldrei gleymist!
símmi