Morgunblaðið - 10.08.1986, Síða 26

Morgunblaðið - 10.08.1986, Síða 26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1986 Þjóðhátíð Bandaríkjanna og afmæli Frelsisstyttunnar eftir Sigurborgu Ragnarsdóttur Það hefur varla farið fram hjá neinum a.m.k. ekki íbúum Banda- ríkjanna að haldið var hátíðlegt 100 ára afmæli frelsisstyttunnar í New York nýlega. Óþarfí er að fara mörgum orðum um þessi miklu Qögurra daga hátíðahöld, svo vel hafa þeim verið gerð skil í fjölmiðl- um, en ekki úr vegi að minnast þeirra ofurlítið, þar sem þau hafa sett mikinn svip sinn á daglegt líf að undanfömu. Af frönsku bergi brotin Síðastliðið skólaár hafa bandarísk böm fengið tækifæri til að teikna, lita, skrifa og semja rit- gerðir um frelsisstyttuna. Þau hafa óneitanlega ekki farið varhluta af því að frelsisstyttan er frægasti innflytjandi Bandaríkjanna og af frönsku bergi brotin. Hugmyndin að byggingu frelsisstyttunnar mun fyrst hafa orðið til hjá frönskum lagaprófessor og frelsisunnanda Edouard-Rene Lefebre de Laboul- aye. í kvöldverðarboði sem Laboul- aye hélt rétt hjá Versölum 1865 minnist hann í fyrsta skipti á hug- mynd sína að gefa Bandaríkja- mönnum styttu í tilefni 100 ára frelsisafmælisins 1876. Svo sér- kennilega vildi til að í þessu sama boði var staddur 31 árs gamall höggmyndari Frederic-Auguste Bartholdi, sem svo að segja sam- stundis dró upp skyssur af væntan- legri frelsisstyttu. Hann ferðaðist víða og 1871 á ferð um Bandaríkin valdi hann Bedloe-eyju við innsigl- inguna inn í höfnina til New York sem framtíðarheimili styttunnar. Það liðu síðan 15 ár þangað til all- ar hugmyndir Bartholdi urðu að vemleika. Mikið skal til mikils vinna Þótt ekki væri á allra færi að vera viðstaddir hátíðahöldin í New York sáu sjónvarpsstöðvamar til þess að enginn missti af neinu. Síðustu daga júnímánaðar og 1. júlí byijaði CBS-sjónvarpsstöðin að gefa áhorfendum forsmekkinn af því sem koma skyldi með 6 klst. endursýningu sjónvarpsmyndarinn- ar „Ellis Island" (eyja rétt hjá frelsisstyttunni). í stuttu máli fjallar myndin um komu Qögurra innflytjenda til EIl- is-eyju í leit að frægð og frama í draumalandinu. Þrátt fyrir mikið stjömuregn er fram kemur í mynd- inni fékk hún slæma dóma gagn- rýnenda við frumsýningu. Richard Burton er einn margra leikenda er fram kemur í myndinni, en þetta varð síðasta mynd hans, þar sem hann lést á meðan á kvikmyndatök- um stóð. Fimmtudaginn 3. júlí var síðan bein útsending frá New York, þegar Reagan forseti tendraði á nýupp- gerðum loga gyðjunnar frægu, að viðstöddum Mitterrand forseta Frakklands og fjölda annarra gesta. Einnig sást um öll Bandaríkin þeg- ar Warren E. Burger forseti hæstaréttar Bandaríkjanna stjóm- aði eiðtöku 265 innflytjenda, en einn frægasti þeirra, Mikhail Barys- hnikov, dansaði síðar á hátíðinni Pas de deux, við tónlist Georges Gershwin. Fleiri stórstjömur á borð við Gregory Peck, Elizabeth Taylor og Frank Sinatra létu sig ekki vanta á þessa fjögurra daga stórhátíð. Eins og gera má ráð fyrir vom hátíðahöldin ekki að öllu leyti kostn- aðarlaus. Áætlaður kostnaður er um 32 milljónir dollara. Þar af greiddi ABC-sjónvarpsstöðin 10 milljónir dollara fyrir einkarétt á Bk 'JHMH||HH^HH^HjF&. \ «£tfiNH^^^HHHBHBEjuÉA »| Æ ;fl$ í F' 1 M r-: Meiríhhiti minjagripa bar keim af Frelsishátíðinni i New York. Jógi Björn í Limousine. sjónvarpssendingu frá allri hátíð- inni. 3.000 gestir frá stórfyrirtækj- unum IBM og Prudential trygg- ingafyrirtækinu borguðu 5.000 dollara hver til að vera viðstaddir hátíðahöldin, svo nokkuð sé nefnt. Hátíðahöldin í New York enduðu með þriggja klst. skemmtun á Risa- leikvangi borgarinnar, þar sem 20 þúsund misvel þekktir skemmti- kraftar komu fram. 55 þúsund áhorfendur horfðu á listamenn hvaðanæva úr Bandaríkjunum skemmta. Flestir virtust ánægðir með hátíðahöldin á þessum síðasta og heitasta degi þeirra. Þó kvörtuðu minjagripasalar sáran og seldu vöm sína á niðursettu verði síðasta dag- inn, einungis til að losna við hana. Fjölskylduhátíð í stað popptónleika Þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna 4. júlí rann upp baðaður glampandi sólskini og u.þ.b. 30 °C stiga hita í höfuðborginni. Ákveðið var að bregða sér inn í miðborg til að kom- ast í þjóðhátíðarstemmningu. Ekkert var því til fyrirstöðu enda höfðu fjölmiðlar spáð helmingi færri gestum nú en mættu í fyrra. Þá vom gestimir 650 þúsund og mynd- aðist neyðarástand hjá neðanjarðar- lestum borgarinnar, auk þess tók fjóra daga að þrífa 300 tonn af msli sem hafði safnast saman þenn- an eina dag. Nú stóð til að breyta hátíðahöldunum og gera þau að meiri Qölskylduhátíð. I stað Beach Boys-hljómsveitarinnar, sem var hápunktur skemmtihalds siðasta árs, vom færri skemmtiatriði skipu- lögð í ár og þeim var dreift víðar um borgina. í fyrra hópuðust gestir í hnapp í kringum Washington- minnisvarðann, þar sem hljómsveit- in lék og sátu gestir á handklæðum og neituðu að hreyfa sig. Þeir gátu sig reyndar hvergi hrært og þegar hjálparsveit gerði tilraun til að kom- ast að fólki er þjáðist af of mikilli sól, flugnabiti eða ofdrykkju var leiðin ekki greiðfær. I þetta sinn léku herhljómsveitir fyrir framan tvö af mörgum söfnum er prýða miðborgina. Sinfóniu- hljómsveitin lék á vesturflöt þing- hússins undir stjóm Mstislaw Rostropovich með þátttöku Sarah Vaughan og Andre-Michael Schweb og Mamas og Papas-söngflokkur- inn kom fram á Robert F. Kennedy-leikvanginum. Við komum í bæinn skömmu fyr- ir hádegi og sáum aðalskrúðgöngu dagsins þar sem hún sveif eftir Constitution-breiðgötu á milli 7. og 17. stræti. Inn á milli mannQöldans mátti greina stóra skrúðvagna með japönskum karatesérfræðingum, mexíkönskum hljóðfæraleikurum, trúðum, Jóga bimi í Limousine, að ógleymdum Goerge Washington forseta. Stutt varð viðdvölin á Cont- itution-götu, enda við komin í nokkurs konar 17. júní-stemmningu innan um pylsu- og minjagripasala sem hver um annan reyndu að ota vörum sínum að vegfarendum. Áhrifa Frelsishátíðarinnar í New York gætti óneitanlega í höfuð- borginni. Stór húsveggur hafði verið skreyttur með mynd af frelsis- styttunni og meirihluti minjagripa bar keim af þessari miklu hátíð. Reagan forseti á gangi niðri í bæ? Yngsta fólkið í hópnum kvartaði undan hungri og þorsta enda komið vel fram yfir venjulegan matmáls- tíma. Nestið var skilið eftir heima af ásettu ráði enda fremur ólystugt að borða úti í miklum hita og raka. Það er engu að síður algengt að fólk taki með sér stórar kælitöskur fullar af mat og drykk og eyði öllum deginum á grassvæði (The Mall), sem liggur eins og ferhymingur á milli þinghúss og Lincoln-minnis- varðans. Á leið okkar inn á vinsælan stað, gamla pósthúsið (Post Office Tow- er) með stóra tuminum, rákumst við á Reagan forseta fyrir utan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.