Alþýðublaðið - 05.10.1920, Síða 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
blaðsins er í Alþýðuhúsimi við
Ingólfsstræti og Hverfisgötu.
Sími 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða í Gutenberg í síðasta lagi kl.
10 árdegis, þann dag, sem þær
eiga að koma i blaðið.
Áskriftargjald ein lz. r . á
mánuði.
Auglýsingaver»ð kr. 1,50 cm.
eindálkuð.
Útsölumenn beðnir að gera skil
til afgreiðslunnar, að minsta kosti
ársfjórðungslega.
Fyrstu hús þess fullgerð.
Fyrir forgöngu verklýðssam-
bandsins var stofnað félag meðal
efnalítilla manna hér i bæ, 15.
dag júlímánaðar 1919. Félagið
var nefnt ^Byggingarfélag Reykja-
víkur, samvinnufélág«, og ætlun
þess „að koma upp húsum, í
þeim tilgangi, að útvega efnalitlu
fólki holl, hentug og ódýr íbúðar-
hús til leigu eða til kaups.“
í framkvæmdarstjórn félagsins
voru kosnir: Jón Baldvinsson, for-
maður, Pétur G. Guðmundsson og
Þorlákur Ófeigsson, sem ráðinn
var framkvæmdarstjóri þegar f
byrjun.
Félaginu stjórnar einnig gæzlu-
stjórn 9 manna, og vinnur hún í
samráði við framkvæmdarstjórn-
ina og hefir strangt eftirlit með
öllum framkvæmdum félagsins.
Hún getur krafist skýrslna af fram-
kvæmdarstjórn um öll félagsmál,
skoðað eða látið skoða bækur
hennar og skjöl og gert ráðstaf-
anir til að laga misfellur þegar
henni þykir þurfa.
Félagar geta orðið: Eínstakir
menn, almennar stofnanir að lög-
um og opinberar stofaanir. Og
sendast upptökubeiðnir skriflega
til formanns félagsins. Viðtöku-
gjald er 25 kr. og auk þess verð-
ur hver íélagsmaður að gangast
undir að leggja að minsta kosti
einn hlut, sem er 100 kr., í fé-
lagið. Um leið og félagsmaður
verður eigandi að hiut, skal hann
undirskrifa yfirlýsingu um, að
hann ábyrgist sem sjálfskuldará-
byrgðarmaður fjárhagsskuldbind
ingu félagsins með jafnmikilli upp-
hæð sem hlutnum nemur auk hlut-
arins sjálfs.
Félagsmenn bera ekki ábyrgð
á skuldbindingum félagsins um-
fram hluteign sína í því, og þessa
sérstöku ábyrgð fyrir jafnhárri
upphæð.
Ekkja eða barn látins félags-
manns heldur fullum réttindum
hans, ef hún eða það æskir þess
innan 6 roánaða frá láti mannsins.
Félagsmenn ganga fyrir öðrum
um leigu á félagshúsum. Er leigan
að jafnaði óuppsegjanleg af hálfu
félagsins.
Sérstrkar reglur eru samdar fyrir
leigu á húsunum, og er þar með-
al annars ákveðið, að leigjandi
skuli eiga svo marga hluti (100
kr.) 1 félaginu, sem rnörg eru í-
búðarherbergi í íbúð þeirri, sem
hann óskar að fá leigða (eldhús
talið íbúðarherbergi), og að hlut-
kesti skuli ráða, ef fleiri en einn
jafn réttháir félagsmenn sækja um
sama leigubústaðinn.
Þetta, sem hér er sagt á undan,
er að mestu tekið úr löguin fé-
lagsins, en auðvitað aðeins stutt
yfirlit. Mjög mikilsvarðandi ákvæði
eru í lögunum, um sölu húsanna
og um meðferð ábata og halla,
sem of langt yrði upp að telja.
Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika, hefir
félagið, á því eina ári sem það
hefir staríað, Iokið að fullu við 3
steinhús, samsteýpt og 3 timbur-
hús, sundurlaus, yfir 28 fjölskyld-
ur alls.
Húsin standa við Bergþórugötu,
sem Iiggur samhliða við Njálsgötu
og Grettisgötu. Hefir félagið fengið
leyfi fyrir lóðum undir hús sín á
allstóru svæði austan í Skólavörðu-
holtinu.
Steinhúsin eru samtals 37 metra
á lengd, tvö þrilylt og miðhúsið
tvílyft. í öllum húsunum eru 16
fjölskylduíbúðir og 7 herbergi
handa einhleypum. En vegna
geysimikillar aðsóknar hefir 22
fjölskyldum verið komið fyrir í
húsunum til bráðabirgða. Frágang-
ur allur við smíði húsanna er fyrsta
flokks, og ekkert til sparað að
gera íbúðirnar sem beztar og full-
komnastar. Og þeim fylgja öll nú-
tíðarþægindi. Öll kostaði álma
þessi um 200 þús. kr. Lánaði
Landsbankinn fé til hennar, gegn
ábyrgð bæjarstjórnar. Bæjarsjóður
hefir veitt félaginu 12 þús. kr.
styrk, og landssjóður 6 þús. kr.
styrk.
Timburhúsin, sem öll eru tvílyft
og handa 4 fjölskyldum hvert,
bygði félagið fyrir reikning bæj-
arins og lánaði íslandsbanki fé tií
þeirra, að upphæð 110 þús. kr.
Ganga húsin algerlega til félagsins
eftir ákveðinn tíma.
Óhætt er að fullyrða það, að
engin hús, reist á sama tíma,
munu haía orðið jafn ódýr og þessi
hús Byggingarfélagsins. Og má
gera ráð fyrir þvf, að aðsóknin £
félagið muni aukast stórum, þeg-
ar menn frétta það, að 4 herbergja
íbúðir, sem víða mundu leigðar á
25°—350 kr. um mánuðinn, kosta
aðeins 145 kr. í steinhúsum fé-
lagsins.
Með dugnaði sfnum og hagsýni
hefir framkvæmdarstjórninni, með
aðstoð framkværodarstjórans, sem
gert hefir allar teikningarnar og
staðið fyrir verkinu, sýnt það að
hér er fundin Ieið, sem fær er
efnalitlu fólki ti! þess að fá hollar
og tiltölulega mjög ódýrar íbuðir.
Er vonandi að bæjarstjórnin og
borgarstjóri geri sitt til að íyrir-
tæki þetta megr blómgast og vaxa,
því ekki mun af veita að ekki
verði hlé á starfsemi félagsins
næstu árin.
Enn er óráðið hvort byrjað
verður á viðbótarbyggingu í haust,
en æskilegt væri að það gæti
orðið; er nærri furða að menn
skuli heldur leggja fé sitt og krafta
í léleg smáhýsi og dýr, en í jafn
ódýr og í alla staði vistleg hús
og hús Byggingarfélagsins eru.
Afleiðingur stríðsíns fyrir
Pýzkaland.
í stríðinu féllu og týndust 1
miijón S03 þúsund menn. 1 mil-
jón 130 þúsund börn urðu mun-
aðarlaus. 520 þúsund konur urðu
ekkjur. 1 miljón 350 þúsund menn
urðu örkumla og 164 þúsund for-
eidrar mistu börn sín. Þrátt fyrir
þetta er heili fiokkur manna sólg-
inn í það, að komast f strfð aftur
við Frakka, aðallega herforingjar
og aðalsmenn.