Morgunblaðið - 29.08.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.08.1986, Blaðsíða 3
h MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986 1 hylki rauður pipar salt eftir smekk 1. Skerið kjötið í mjóar ræmur og snöggsteikið það í heitri feit- inni, þar til það er steikt í gegn. Hrærið i á meðan. Takið kjötið af pönnunni. 2. Setjið nú laukinn og allt cryddið, nema rauða piparinn í ag látið malla saman í um 3 nín., eða þar til laukurinn er irðinn mjúkur. Hrærið í á með- an. 3. Fínsaxið rauða piparinn. 3ætið honum og kjötinu á pönn- jna og látið allt malla saman í jm 5 mín. eða þar til þetta hef- jr samlagazt vel. Bragðið á og cryddið frekar, ef ykkur sýnist 5VO. Frískandi gúrkusalat: Á frummálinu heitir þetta sal- ít eða sósa raeta og fylgir ndverskum mat mjög oft. Hér jr notað jógúrt, en í þess stað jetið þið notað súrmjólk. Það er vel á að blanda saman 2'/z il af jógúrti eða súrmjólk og 'h fl rjóma. Látið standa í kæli yfir tótt eða um stund, áður en þið mið Evrópu, erum þó líklega enn sunnan Alpafjalla. Ef ítölum dytti í hug að matreiða hvalkjöt, færu þeir hugsanlega svona að. Svínafleskið gefur kjötinu ágætt bragð, saltað reykbragðið á vel við það. Hvernig skyldi annars reykt hvalkjöt vera? Það hlýtur eiginlega að vera lostæti. Von- andi gefur einhver kjötvinnslan okkur tækifæri til að bragða á því. . . En auk flesksins þá er hér með súrsætur laukur. In- dælt meðlæti með hvalkjöti eins og fleiru, t.d. lifur. 800 gr hvalkjöt 200 gr svínaflesk, meira ef vill 1 msk. af hvoru, olíu og smjöri 8 vænir laukar 2 msk. vínedik um 1 dl rúsínur 1. Skerið hvalkjötið í aflanga bita og vefjið þá í flesk. Athugið að það er auðvelt að teygja flesksneiðarnar til, svo þær passi utan um kjötið. 2. Hitið feitina, sneiðið lauk- inn fínt og látið hann malla á vægum hita í lokuðum potti þar Frændur okkar Fœreyingar hafa um langan aldur verið sólgnirí hvalkjöt, einkum grindhval sem hér sést í stórri vöðu. notið þetta, því þá samlagast aað súra rjómanum og hleypir nann og blandan verður þykk ag mjúk. 3 dl jógúrt eða annað, saman- ber hér að ofan '/2 gúrka, skorin í litla teninga 1 fínsaxaður laukur V2 tsk. salt eða eftir smekk V2 steinseljuknippi 'U—'/z tsk chiliduft 1. Blandið öllu saman og ber- ið fram ískalt. Hvalkjöt í fleskhjúp með súrsætum lauk (Handa fjórum) Hér erum við komin á kunn til hann er mjúkur. Gætið þess að ekki þorni í pottinum, svo laukurinn brúnist ekki. Bætið edikinu í og látið það sjóða niður við háan hita, gætið þess þó að brenna ekki laukinn. Bætið rúsínunum í, svo þær mýkist ögn. 3. Hellið svolítilli olíu á pönnu og steikið kjötið þar í, þar til það er hæfilega steikt. Raðið því yfir heitan laukinn og berið fram. Enn og aftur eiga soðin hýðis- hrísgrjón langbezt við. Texti: Sigrún Davíðsdóttir MYNDBAND VIKUNNAR Leiðin til Gorki Myndbðnd Sæbjörn Valdimarsson SHAKAROV^^Vz Leikstjóri Jack Gold. Hand- rit David W. Rintels. Kvikmyndataka Tony Imi. Tónlist Carl Davis. Aðal- hlutverk Jason Robards, Glenda Jackson, Frank Fin- ley, Nicol Williamson. Vestron Video—HB0 1984. I Sjónvarpsmyndin um - andófsmanninn, vísinda- manninn og hetjuna Andrei Shakarov var gerð í því skyni * að vekja athygli umheimsins ■ á hræðilegum örlögum ■ mannsins og óréttlæti og I djöfulskap rússnesks réttar- I fars. Nú eru u.þ.b. tvö ár síðan myndin var sýnd i flestum löndum vestan járn- tjalds, en hinn aldraði ® meðlimur rússnesku ■ vísindaakademíunnar, „faðir | vetnissprengjunnar" og frelsishetja, rotnar enn aust- Ylena Bonner og Shakarov. Hann fann upp vetnis- sprengjuna, var yngstur manna kjörinn í sovésku vísindaakademíuna. Stalín- verðlaunin fékk hann 1953 og Lenínorðuna 1953. Hann var handtekinn og sviptur öllum heiðursverðlaunum og sendur í útlegð til Gorki 1980. ur í Gorki. Þar hefur hann m.a. farið nokkrum sinnum í hungurverkföll í mótmæla- skyni. Yelena kona hans fékk reyndar að leita sér lækn- inga á Vesturlöndum en i dag er hún sem áður trygg við hlið manns síns í útlegð- inni í Gorki. Því má þó ekki gleyma að nafn þessa frægasta and- ófsmanns og gagnrýnanda hins ómennska stjórnkerfis í Sovét kemur öðru hvoru B 3 fram í fréttum því Ijóst og leynt er verið að vinna að því að frelsa manninn úr þessu risavaxna fangelsi. í því á myndin sinn þátt. Shakarov segir frá því er vísindamaðurinn hóf að gagnrýna kerfið, fyrst af- vopnunarstefnu Sovétríkj- anna og síðan að mótmæla frelsisskerðingu þegna þess. Ritskoðunar og al- gjörrar forsjár stóra bróður. Sýndar eru aðferðir stjórn- valda við að brjóta fólk niður með linnulausri gæslu og ofsóknum. Kvikmyndin er ekki ýkja sterk í sjálfu sér, málskrúðug en tilfinningadauf. Fyrst og fremst vegna tilfinningarú- ins leiks Robards, sem er flest betur gefið en túlka hjartahlýjan, hugrakkan mannvin. Glendu Jackson vegnar mun betur í hlutverki eiginkonu hans, Ylenu Bonn- er. Þá er myndin hvort- tveggja, drama og heimild- armynd, blanda sem oft vill verða dálítið stirð fyrir augu og eyru áhorfenda. Hinsveg- ar gefur hún fróðlega innsýn í hið ógnvekjandi stjórnarfar í austri, þar sem öll mann- réttindi eru fótum troðin enn þann dag í dag. Og minnir á að enn sitja fullhugarnir, Shakarov-hjónin, þar í út- legð og einangrun — austan marka hins byggilega heims. Húsnæðisstofnun ríkisins NÝJAR LÁNAREGLUR Hinn l. september 1986 taka gildi ný lög um Húsnæðisstofnun ríkisins og reglugerð um lánveitingar Byggingarsjóðs ríkisins. Meginbreyting frá fyrri reglum er sú að lánsréttur er í flestum tilfellum háður því að: a) Umsækjandi sé og hafi verið virkur félagi í lífeyrissjóði. b) Sá lífeyrissjóður hafi keyptskuldabréf af Húsnæðisstofnuninni fyrirverulegan hluta af ráðstöfunarfé sínu. HINAR NÝJU REGLUR VARÐA NÁNAR TILTEKIÐ ÞESSI LÁN: 1. Lán til að byggja eða kaupa nýjar íbúðir í smíðum. 2. Lán til að kaupa notaðar íbúðir. 3. Lán til meiri háttar viðbygginga, endurbóta og endurnýjunar á notuðu íbúðarhúsnæði. 4. Lán tii orkusparandi breytinga á íbúðarhúsnæði. Fræðslurit um hina nýju tilhögun verður fáanlegt nú á næstunni. NÝJAR REGLUR - ÓAFGREIDD LÁN Allir þeir, sem eiga óafgreidd lán eða lánshluta samkvæmt framansögðu, er eiga að koma til útborgunar eftir 1. september nk., eða sækja um slík lán fyrir 1. september nk„ geta óskað eftir því að með umsóknir þeirra verði farið eftir nýju reglunum. Sérstök eyðublöð fyrir sl íkar beiðnir fást hjá Húsnæðisstofnuninni, og þurfa þær að hafa borist fyrir 30. september nk. EFTIRTALIN GÖGN ÞURFA AÐ FYLGJA HINNI NÝJU LÁNSUMSÓKN: 1. Vottorð frá lífeyrissjóði um iðgjaldagreiðslur sl. 24 mánuði. 2. Frumdrög að kostnaðar- og greiðsluáætlun. 3. Vottorð um tekjur á sl. ári og um íbúðareign sl. þrjú ár, útfyllt af skattstjóra eða löggiltum endurskoðanda. Hin nýju umsóknareyðublöð ásamt fylgigögnum liggja einnig frammi á skrifstofum sveitarfélaga. Reykjavík, 26. ágúst 1986. Húsnæðisstofnun ríkisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.