Morgunblaðið - 05.09.1986, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 05.09.1986, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986 T Ég reyni að hræra saman fomeskju og nútíma Rætt við Einar Má Guðmundsson um Eftirmála ~ regndropanna, „Eftirmáli regndropanna“ er nafn á skáldsögu sem Almenna BókafélagiÖ œtlar aÖ gefa út meÖ haustinu. Sagan er eftirEinar Má GuÖmundsson, hansþriÖja skáldsaga, en nú í haust eru liÖin þrjú ár frá því aÖ síÖasta bókhans, „ Vœngjasláttur íþakrennum", kom út. Fyrsta skáldsaga Einars, „Riddarar hringstigans“ kom út 1982, en hún hlaut 1. verÖlaun í bókmenntasamkeppni AB sem haldin var í tilefni af 25 ára afmœli félagsins þaÖ ár. norrænar ögusviðið er það sama og áður," segir Einar um nýju bókina, „hverf- ið með öllum þess íbúum. Frásagnarhátt urinn hefur þó breyst, og per- sónurnar eru ekki þær sömu. Strákarnir sem allt snerist um í hinum bókunum tveimur koma ekkert við sögu í þess ari. Söguhetjurnar sumar, svo sem Daníel prestur og söðlasmiðurinn, hafa raun- ar birst áður, bæði í Ridd- urunum og Vængjaslætt- inum. Og einsog nafn sögunnar gefur til kynna eru regndroparnir líka nokkurs konar persónur, svipað og dúfurnar í Vængjaslættinum. En Eftirmáli regndropanna er saga sögð í þriðju pe- sónu og er sjónarhornið því allt annað en í fyrri sögunum." Er Eftirmáli regndropanna samt sem áður einskonar fram- hald af þínum fyrri sögum? „Nei, sögurnar eru, hver fyrir sig, sjálfstæð verk. En auðvitað liggja milli þeirra þræðir og spott- ar. Það má segja að Vængjaslátt- urinn sé nokkurskonar brú milli Riddaranna og þessarar nýju sögu hvað frásagnarhátt varðar. Þeirri tilraun sem þar hófst er haldið áfram fyrir alvöru. Ég reyni að lýsa óskilgreindum nútíma- veruleika sem er um leið skáldaö- ur veruleiki. Skilin milli þess sem hugsað er og hins sem gerist eru ekki mjög greinileg, eða hvort tveggja á sér stað samtímis. Hug- arheimur fólksins er mér jafn- mikilvægur og hinn ytri heimur þess og ég vil ekki skilja þar á milli með mjög skýrum hætti." Hvað áttu við? „Ég reyni að láta þjóðsögur og þjóðtrú ganga upp í sögunni. Sjáöu til, þjóðsögurnar eru ekki skáldskapur í þess orðs fyllstu merkingu. Þær eru hluti af veru- leika eða hugarheimi fólks og í skáldskap eru veruleiki og hugar- heimur tvær hliðar á sömu mynt. í Eftirmála regndropanna ganga draugar Ijósum logum og eru lítið frábrugðnir öðrum persónum hennar. Veruleiki í skáldskap er túlkunaratriði. Þessvegna er ekki gerður greinarmunur á því hvern- ig fólkið í hverfinu upplifir drauga- ganginn og hvernig einhver tiltekinn raunveruleiki hafi verið og spurningin hvort draugar séu til eða ekki er engin spurning. Það er sagt aö skáldskapurinn sprengi brýrnar milli tímanna. Ég reyni að hræra saman forneskju og nútíma í sögunni svo allir tímar séu hinn eini tími. Það er ekki bara samlíking heldur veruleiki. Skáldskapur er hvort tveggja í senn, hin nálæga eilífð og eilífa nálægð." Á Ijóðlístar- hátíA í Osló Um miðjan ágúst var haldin í Osló alþjóðleg Ijóðlistarhátíð, þar sem reynt var að gefa mynd af því hvernig skáldskapur og listir yfirleitt hafa þróast gegnum tíðina, bæði að tækni og efnivið. Einari var boðið að taka þátt i hátíðinni. Þangað kom hann eftir að hafa verið á skáldaþingi í Dan- mörku þarsem menn höfðu grufl- að í stöðu bókmenntanna og þó aöallega sett sig inní finnskar bókmenntir. „í Osló las ég upp Ijóð sem hafa komið út eftir mig á dönsku og einnig las ég kafla úr nýrri danskri þýðingu á Vængjaslætti í þakrennum. Það var feikilega gaman að koma þarna og fá tæki- færi til að kynna sín verk í öðru umhverfi en maður er vanur og líka að sjá og heyra hvað aörir eru að fást við, ekki síst aörir Norðurlandabúar. Auk mín lásu þarna upp Rói Patursson, Færey- ingurinn sem fékk bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs núna í vetur, Piet Hein og Pia Tafdrup frá Danmörku, Göran Tunström sem skrifaöi Jólaóratoríuna og auk þeirra jafn ólík skáld og enska „Ijóðapönkdrottningin" Joolz og rússneska Ijóðskáldið Andrej Voz- nesenskíj, svo einhverjir séu nefndir. Norðmenn eru auðugir um þessar mundir enda var mikið lagt í hátíðina, bankar og fyrirtæki styrkja hana. Þarna voru skáld og listamenn víðsvegar að úr heimin- um og áhersla lögð á að blanda saman öllum hugsanlegum list- formum. Blökkumenn frá Afríku voru með dagskrá byggða á sinni sagna- og danshefö og jógar frá Indlandi lyftu sér frá jöröu meö hugarorkunni. Og þarna voru tón- listarmenn frá Pakistan sem léku sígilda músík síns heimalands að ógleymdum gömlu Ijóðakempun- um Ed Sanders og Tuli Kupfer- berg úr dönsku hljómsveitinni Fugs. Á hinn bóginn voru allskyns dagskrár og sýningar sem byggðu á nýjustu tækni, leisigeislum og svoleiðis dóti. Þetta var eiginlega einstök hátíð og vert að gera fleira í þess- Einar Már Guðmundsson ásamt dætrum sfnum þremur, Rakel, Hildi og Önnu Björku. um dúr. Það kom til dæmis til umræðu að halda Ijóðlistarhátíð samtímis í mörgum löndum, og nota gervihnetti til að sjónvarpa á milli á sama hátt og gert var þegar Live aid-tónleikarnir voru haldnir. Margir óttast alla þessa nútímatækni og halda að hún gangi af öllum skáldskap dauðum. Það held ég sé mikill misskilning- ur. Það er einmitt um að gera að notfæra sér hana. Þar viö bætist að Ijóðlist og skáldskapur yfir- höfuð og ekki síst uppákomur einsog þessi, virðast njóta vin- sælda um þessar mundir. Fólk kemurtil að hlusta og fylgj- ast með og það væri vonandi að íslenskt atvinnulíf og yfirvöld landsins gerðu sér Ijósa þá mögu- leika sem felast í menningu. En í þeim efnum er ástandið því miður svart. Útá við leggjum við ekki áherslu á sérstöðu okkar og hæfi- leika til listrænnar sköpunar heldur alþjóðlegt samsuðumull og andlegan gjaldkeraskáldskap einsog Gleðibankann. ( Gleði- bankann voru lagðar, að því sumir segja, hátt á annan tug milljóna meðan 300 þúsund krónum er varið til kynningar á íslenskum bókmenntum erlendis. Ég veit ekki hvað Snorra Sturlusyni þætti um þessa tilhögun mála hjá sögu- þjóðinni." Norræn bókmenntabylgja „Það er mikil gróska í bók- menntum á Norðurlöndum um þessar mundir og ég er viss um að heimurinn á eftir aö upplifa norræna bókmenntabylgju á næstunni ekki ólíka þeirri sem kom frá Suður-Ameríku fyrir nokkrum árum. Sem stendur eru bókmenntir úr okkar heimshluta ekki metnar að verðleikum í hinum stóra heimi, hvorki meðal engilsax- neskra þjóða né þýskumælandi til dæmis. Það er litið á Norður- lönd sem einhverskonar útkjálka. Þetta verður að breytast og ég held að það sé á okkar valdi. Við höfum einhverja mínnimáttar- kennd og sjálfsvitund okkar er ekki nægilega sterk. Norður- landabúar líta á sjálfa sig sem hálfgerða sveitamenn á alþjóðleg- um vettvangi. Ómeðvitað lita þeir sjálfir á Norðurlöndin sem út- kjálka. Og i öllum tískuvaðlinum gleymast kannski klassískar nor- rænar nútímabókmenntir, höf- undar einsog Hamsun, Strind- berg, Laxness, Heinesen og margir fleiri sem eru tvímælalaust

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.