Morgunblaðið - 05.09.1986, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.09.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986 B 11 MisHima Mishima ★ ’/i Leikstjóri: Paul Schrader. Handrit: Paul og Leonard Schrader. Kvikmyndataka: John Baily. Tónlist: Philip Glass. Aðalteikendur: Ken Ogata, Kenji Sawada, Yasosuke Bando. Bandarfsk. Warner Bros. 1986. 116 mín. Þá er hún komin, hin for- vitnilega mynd Bandaríkja- mannsins Paul Schraders, (American Gigolo, Cat People, Hardcore), um einn frægasta rithöfund Japana á þessari öld, Yukio Mishima. Þessir tveir listamenn eru í órafjarlægð hvor frá öðrum í anda og menningu, enda er myndin því miður í flesta staði misheppnuð. Ævisaga Mishima er eftir sem áður stórbrotið mynd- efni. Líf hans var einstakt, mikilfenglegt í flesta staði. Á unga aldri var hann orðinn eitt af höfuðskáldum þjóðar sinnar en átti litla samleið með samtíðinni. Líf hans mótaðist m.a. af hrifningu á gömlu keisaratímunum, fom- um heföum, hetjuskap og einurð samúrajanna, andúð á erlendum áhrifum, ást á báð- um kynjum. Æviferli Mishima og brot- um úr verkum hans klambrar Schrader saman í fjóra þætti. Hann notar ekki náttúrlegt umhverfi heldur leikmyndir sem eru það listrænasta og minnisstæðasta í annars ein- staklega daufri, þungri, hreint út sagt leiðinlegri mynd. Þar sem ólánlega tekst til aö lýsa upp kynngimagnaöa veröld skáldsins og draga upp af honum mynd. Það sannast hér sem svo oft áður hversu erfitt það reynist Vestur- landabúum að höndla hugar- heim þeirra austurlensku. Myndbönd Umsjón: Sæbjörn Valdimarsson Damnation Alley Damnation Alley ★ Leikstjóri: John Guillermin. Handrit: Alan Sharp og Lukas Heller, byggt á samnefndri skáldsögu e. Robert Zelansky. Tónlist: Jerry Goldsmith. Aðalleikendur: George Pepp- ard, Jan-Michael Vincent, Dominique Sanda, Paul Win- field. Bandan'sk. 20th Century Fox 1977. 91 mín. Þó kvikmyndagerðarmönnum verði fátt um svör, fjallar Damna- tion Alley um spurninguna hvernig ástandið verður á henni jörð eftir kjarnorkustyrjöld. Ráð- ist er á Bandaríkin, örfáar hræður komast af í neðanjarðarbyrgi í Nevadaeyðimörkinni. Þetta eru hermenn sem svo tveimur árum síðar freista þess að brjótast þvert yfir Bandaríkin til Albany. Þaðan hafa þeir náð útvarps- sendingum og vona að finna þar einhverjar leyfar siðmenningar. Eiginlega það eina skemmti- lega við þessa mynd er að bera saman brellugerð hennar og framtíðarhugmyndir — ekki síst í tæknibúnaði — við vísindaskáld- sögumyndir dagsins í dag. Hér ber Ijósár á milli. En ef við höfum í huga að umrædd mynd og Star Wars eru jafnaldrar, þar að auki framleiddar hjá sama fyrirtæki (Fox), og fyrir svipað fjármagn, þá blasir við að það er ekki ein- ungis tíminn sem gert hefur D.A. svona fjári hallærislega heldur hafa slakir fagmenn verið að verki. D.A. er ekki aðeins illa unnin tæknilega, ef undan eru skildir ábúðarmiklir farkostirnir, heldur skilur hún eftir sæg af óútskýrð- um götum og ósvöruðum spurn- ingum. Hvar fékkst bensín á vagnana? Hver lagði slóðann austur yfir? Eru fleiri ára birgðir af tóbaki geymdar í forðageymsl- um hersins ef kemur til kjarnork- ustríðs? Á svona hallærisskerj- um er áhorfandinn sífellt að steyta út alla myndina. Hér er illa farið með gott efni. Ferðalagið þvert yfir heimsálfuna hefði getað orðið hrikalegt ævin- Death Wish III Showdown ★ ★ Leikstjóri og framleiðandi: George Seaton. Tónlist: David Shire. Handrft: Theodore Tayl- or. Saga Hank Fine. Aðalhlut- verk: Rock Hudson, Dean Martin, Susan Clark. Univers- al 1973. 95 mín. Sem kunnugt er þá lúra kvik- myndaver Hollywood-borgar á tugþúsundum kvikmynda sem ekki er farið að setja á mynd- bönd. Er fjöldi þeirra mörgum gæðaflokkum betri en stór hluti þeirrar framleiðslu sem bullað er nýrri og nýlegri út á markað- inn. Undantekningarlítið eru nýjar myndir gefnar út á mynd- böndum skömmu eftir frum- sýningu en lítið saxast á gamla lagerinn. Árlega koma þó út allnokkrir eldri titlar. Oftast er um þekktar myndir að ræða, en, merkilegt nokk, eru þær lítið færri sem ófrægari eru og vekur útgáfa þeirra furðu þegar haft er í huga hið mikla, góða, gamla efni sem óbirt er og menn bíða spenntir eftir. Ég segi ekki að Showdown eigi það tvímælalaust skilið að sofa svefninum langa í kjöllu- rum Universal-kvikmyndavers- ins, hinsvegar er það öllum Ijóst að þar er að finna hundruð eftir- sóknarverðari gamla titla. Showdown naut í upphafi lítilla vinsælda og sleppur svona í meðallagi sem afþreying. Þá skýrir það ekki útgáfuna að vestrar eiga ekki (því miður) upp á pallborðið hjá almenningi þessa stundina. Eina sýnilega ástæðan fyrir því að Show- down var öðrum fremur valin til útgáfu af háum herrum Uni- versal er sú að nafn Rocks Hudson hefur verið í fréttum og milli tannanna á fólki af hörmulegum ástæðum sem öll- um eru kunnar. Gömlu kempurnar, Hudson og Martin, leika roskna æskufé- laga. Nú liggja leiðir þeirra saman að nýju eftir nokkuð hlé, en breytingar hafa orðið á hög- um þeirra. Hudson orðinn fógeti en Martin drykkfelldur þjófur. Það örlar á Butch Cassidy- tilfinningu í þessari mynd um gamalt bræðralag þar sem kvenmaður á þátt í vinslitunum. Eins situr gamansemin gjarna í fyrirrúmi. En Seaton hefur ekki aðrar eins stjörnur og kol- legi hans George Roy Hill þó ánægjulegt sé að sjá til hinna rosknu kappa. Og það fer ekki framhjá neinum að hinn stæði- legi Rock Hudson hefur verið með karlmannlegri mönnum sem sést hafa á hvíta tjaldinu. Death Wish III ★ Leikstjóri: Michael Winner. Framleiðendur: Golan, Glob- us. Aðalhlutverk: Charles Bronson, Deborah Raffin, Martin Balsam, Ed Lauter. Bandarísk. Cannon 1986. Þegar Death Wish III var sýnd í kvikmyndahúsi fyrr á ár- inu gaf ég Bronson frí, búinn að fá mig fullsaddan af tilbreyt- ingarlausum barsmíðum og múgmorðum gamla mannsins. En í Murphy’s Law vænkaðist hagur strympu, þar stóð öld- ungurinn sig með ágætum í dágóðri hasarmynd svo ég gat vel hugsað mér að freista gæf- unnar og grípa karl glóðvolgan á myndbandinu. Hverra skyldi karl nú hefna þar sem búið er að murka líftór- una úr fjölskyldu hans í tveimur drápsmyndum? Ástæðulaust er að hafa áhyggjur af slíku. Það er engin þurrð á skjólstæð- ingum né fórnarlömbum frekar en fyrri daginn. Myndin hefst er Bronson kemur í heimsókn til gamals stríðsfélaga í niðurníddu borg- arhverfi í New York. En hann er heldur seint á ferð því vinur- inn deyr í höndum hans — afleiðingar „húsvitjunar" glæpagengisins í hverfinu og þar með er fullbúin væn gróðr- arstía fyrir morðmynd á borð við Death Wish III. Þessi mynd verður mér lengi minnisstæð fyrir þá einstöku drápsgleði sem hún býr yfir og gegndarlaust ofbeldi ofbeldis- ins vegna. Það má næstum sjá hnignunarmerki á vestrænni siðmenningu i atriðum sem því er Bronson beitir vopni sem hann stendur tæpast undir, á ótrosalýðinn. En það er í henni einhver déskotans sprengi- kraftur sem hrífur áhorfendur með sér gegn eigin vilja. Hann stafar fyrst og fremst af Ijótum en beinskeyttum tilgangi og innihaldi DW III. Hér er Bronson mættur til að skemmta. Aðeins eitt atriði er á dagskránni, en í fjölbreytilegum útgáfum: Dráp á dráp ofan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.