Morgunblaðið - 05.09.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986
B 3
með glæstustu höfundum heims-
bókmenntanna.
Með góðri samstöðu og sam-
vinnu hlýtur að vera hægt að
sigrast á þessu, því ég er viss um
það að margt af því sem skáld
og rithöfundar Norðurlanda láta
frá sér á mikið erindi við aðrar
þjóðir. í stað þess að vera sífellt
að þessu naggi útí norræna sam-
vinnu og blaðri um að Svíar séu
nú svona og svona væri nær að
menn athuguðu hvað raunveru-
lega er að gerast á menningar-
sviðinu í nágrannalöndunum."
Endurreisn
skáldsögunnar
„Það hefur margt breyst í
sagnagerð á síðustu árum. Það
er ekki svo langt síðan menn full-
yrtu að skáldsagan væri dautt
form, en nú hefur það verið ræki-
lega afsannað. Það er allt leyfilegt
í bókmenntum nú á tímum og
höfundar þurfa ekki lengur að
rígbinda sig á klafa einhverra til-
tekinna stefna og strauma í
sagnagerð. Það er Ijóst að skáld-
sagan, frásögnin, hefur lifað af
allar hræringar síðustu áratuga
og komið margefld til leiks. Skáld-
sagan er nefnilega alltaf að læra
af sjálfri sér.
Ég held að það sé enginn mið-
ill sem getur á jafn sterkan hátt
túlkað mannlegan veruleika og
skáldsagan. Það er að vísu ekki
nema um tvö hundruð ár síðan
farið var að skrifa skáldsögur
einsog við þekkjum þær, en frá-
sagnarhefðin hefur lifað með
mannkyninu frá örófi alda. Bíó-
myndir og aðrir miðlar sem
nútímamaðurinn hefur á valdi sínu
hafa ekki sömu breidd og skáld-
sagan, því oröin eru svo margræð
og hafa miklu fleiri augu en bara
tvö.
Það er ekki síst fyrir áhrif rit-
höfunda einsog Gunters Grass
og Gabriels Garcia Marquez sem
skáldsagan hefur lifað af stefn-
urnar ef svo má að orði komast.
Með þeirra verkum og margra
annarra má segja að upp sé runn-
ið alveg nýtt skeið í bókmenntum
sem hvílir þó á gömlum merg. í
bókum einsog Hundrað ára ein-
semd rúmar lýsingin á fólki og lífi
þess alla veröld þess og veru-
leika. Það er engin sérstök tækni,
hefð eða stefna sem höfundurinn
fylgir, hann er jafnvígur á allt og
leyfir sér allt. Stundum virðist frá-
sögnin verða helber „fantasía",
en það er mesti misskilningur.
Hið hugsaða er gert verulegt sem
er sannarlega ekki nýtt í skáld-
Göran Tunström og Rói Patursson. Þeir voru meðal þátttakenda á
Ijóðlistarhátíðinni í Osló.
MM
... ogíöllum
tískuvaðlinum
gleymast
kannski
sígildar
norrœnar
nútímabók-
menntir,
höfundar
einsog
Hamsun,
Strindberg,
Laxness,
Heinesen og
margir fleiri,
sem
tvímœlalaust
eru með
glœstustu
höfundum
heimsbók-
menntanna...
MM
Giinter Grass og Gabriel Garcia Marquez.
„Með þeirra verkum og margra annarra
má segja að upp sé runnið alveg nýtt
skeið í bókmenntunum sem hvílir þó á
gömlum merg,“ segir Einar Már.
skap. Um það bera íslendinga-
sögurnar glöggt vitni."
Vængjasláttur
í þakrennum á
dönsku í haust
Að lokum: Hvað er að frétta
af þýðingum á bókum þínum?
„Eg fór raunar ekki aðeins til
Noregs til þess að taka þátt í Ijóö-
listarhátíðinni heldur einnig til að
fylgjast með útgáfu á Riddurum
hringstigans sem Knut 0degaard
þýddi. Hún kom út á dönsku fyrir
tveimur árum og kemur á sænsku
nú í september.
Vængjasláttur í þakrennum er
svo væntanleg á markað í Dan-
mörku núna í haust í þýðingu Erik
Skyum-Nielsen sem einnig þýddi
Riddarana og Ijóðin. Ég geri mér
vonir um aö hún verði líka þýdd
á hin Norðurlandamálin, að
minnsta kosti áður en lengra er
haldið," segir Einar að lokum og
glottir ísmeygilega.
Viðtal/Jón Ólafsson
Mynd /Þorkell Þorkelsson
Fellagörðum — Breiðholti III
(í Dansskóla Heiðars)
Almenn námskeid
Karon skólinn kennir ykkur:
• rétta líkamsstöðu
• rétt göngulag
• fallegan fótaburð
Karon skólinn leiðbeinir ykkur um:
• andlits- og handsnyrtingu
• hárgreiðslu
• fataval
• mataræði
• hina ýmsu borðsiði og alla almenna fram-
komu o.fl.
Model námskeið
Karon skólinn kennir ykkur:
• rétta líkamsstöðu
• rétt göngulag
• fallegan fótaburð
• sviðsframkomu
• að vinna með Ijósmyndara
• látbragð og annað sem tilheyrir sýningar-
störfum
Öll kennsla í höndum færustu sér-
fræðinga.
Allir tímar óþvingaðir og frjálslegir.
Ekkert kynslóðabil fyrirfinnst í Karon
skólanum.
InnrRun og upplýslngar f sfma 38126
kl. 16—20.
Ksnnsla hefst mánudaginn 16. sept-
ambar.
Hanna Frímannsdóttir
ÚRVALS AMERÍSK HEIMILISTÆKI
GENERAL
ELECTRIC
Fullkomin varahluta-
og vidgerdaþjónusta
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
HF
Laugavegi 170—172. Simi 695550