Morgunblaðið - 05.09.1986, Side 12
VÍ2
' M0tó5ÚNBrAÍ)ÍÐ, FÖsÍ*Ud]ÍgÍJR 5. áEI^&BEtMá1^
Fréttaljósmyndasýningin
WORLD
PRESSPHOTO
Dómnefnd skipuð þrettán 12 ára gömlum
börnum valdi þessa mynd. Hún er síðasta
myndin (myndaröð sem sýnir björgun drengs-
ins Guillermo Cardozo eftir náttúruhamfarim-
ar í Amero í Kóiumbíu. Björgun hans var
einstök, Ijósmyndarinn Jorge Parga kom auga
á hann úr þyriu og náðist pilturinn heill á
húfi úr leðjunni.
í fktkki náttúrulifsmynda varð í öðru sæti mynd eftir
John Launois. Storkurinn er auðþekkjanlegur þar sem
hann svifur um loftin blá eins og ballettdansari.
L________________________________________
varfréttaljósmyndasýningin „World Press Photo
’86“ opnuð í Listasafni ASÍ.
Á henni eru um 180 myndir sem hlutu verðlaun i
alþjóðlegri samkeppni blaðaljósmyndara.
Margir hafa eflaust yndi af sýningunni, ekki aðeins
vegna listfengi höfundanna og þeirra sérstöku
augnablika sem þeir hafa náð að festa á filmu,
heldur og vegna þess að ýmsir liðnir atburðir rifjast
upp á ferskari máta í frábærri mynd en í löngu rituðu
máli. Og það minnir á þá staðreynd að nútíma
blaðaljósmyndari erekki aðeins að skrásetja
viðburði, heldur er hann einnig bæði höfundur og
túlkur er lætur í Ijós skoðanir sínar með því
sjónarhorni sem hann velur og þeim aðferðum sem
hann beitir í myndgerðinni.
Við fengum þá Árna Sæberg og Ragnar Axelsson
Ijósmyndara Morgunblaðsins í lið með okkur til að
velja sýnishorn af sýningunni.
Þess má til gamans geta að Ragnar Axelsson er
eini íslenski Ijósmyndarinn sem hefur nokkru sinni
tekið þátt í þessari alþjóðlegu sýningu
fréttaljósmyndara.
Vaxandi áhugi á útivist, hollri
hreyfingu og líkamsrækt hef-
ur trúlega átt þátt í að auka áhuga
fyrir ómenguðum heilsugjöfum
beint úr búri móður náttúru.
Eitt er það efna sem hefur selst
í ríkum mæli um langa hríð og
kallast í daglegu máli Gingseng
þótt í ýmsum myndum fáist.
Ekki skal kveðinn upp dómur um
mátt þess til bættrar heilsu og
hollustu, en blaðamaður átti þess
kost að sitja ráðstefnu í Sviss ekki
alls fyrir löngu þar sem einvörð-
ungu var fjallað um téð efni og er
rétt að greina nokkuð frá því sem
þar kom fram.
„Heiibrigð sál i hraustum
líkama". Það má segja að þetta
forna orðtak eigi upp á pallborðið
í samtímanum. Að leggja stund á
útivist og íþróttir, gæta vel að
matarræði og hafa gát á vigtinni,
slíkt er almennt talið veigamikill
þáttur til betri líöanar og besta
vörn gegn ýmsum sjúkdómum er
herja á fólk í velferðarsamfélaginu.
Þeir sem framleiða og selja efni
úr Gingseng telja sig samkvæmt
vísindalegum niðurstöðum hafa
sýnt fram á að fyrrgreind efni „slái
á“ veikleikamerki nútíma lífshátta,
bæti heilsufar og lengi lífdaga.
Á undanförnum árum hafa ýmis náttúruleg heilsuefni átt
síauknum vinsældum að fagna og verslanir sprottið upp,
einnig hér á landi, sem hafa slikar vörur á boðstólum. Að
vísu voru grasalyf algeng hér áður og ýmsar jurtir taldar
hollustugjafar, svo mörgum sýnist að seinni tíma áhugi sé
aðeins að staðfesta reynslu kynslóðanna á heilsugildi
náttúruefna. Vitað er og að margskyns lyf eru unnin úr jurtum.
Pharmaton-fyrirtækið í Lugano,
Sviss.
Panax Ginseng-jurtin.