Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 3
% %
blaði laganema, eftir Hörð Einars-
son hæstaréttarlögmann, um rétt-
arstöðu karls og konu er búa saman
í óvígðri sambúð.
Niðurstaða hans varð sú að ekki
bæri að leggja að jöfnu sambúð og
hjúskap. Þrátt fyrir þetta sagði
Hörður að það bæri að halda áfram
á þeirri braut að afnema það órétt-
læti sem oft kæmi upp við slit á
óvígðri sambúð vegna götóttrar
lagasetningar.
I lok greinar sinnar fjallar Hörð-
ur um nokkur atriði sem fyllsta
ástæða sé til að setja um ákveðnar
reglur svo bæta megi réttarstöðu
sambúðarfólks. Sumt af þéssu hef-
ur náð fram, svo sem samsköttun
sambúðarfólks, en annað, eins og
til dæmis ákveðin lagasetning um
fjárhagslegt uppgjör sambúðarfólks
við slit sambúðar, hefur ekki enn
orðið að veruleika.
Þetta síðasttalda atriði telur
Hörður mjög biýnt og undir það
hefur Guðrún Erlendsdóttir hæsta-
réttardómari tekið. Enda þótt hún
sé eindregið mótfallin því að sett
sé sérstök löggjöf um óvígða sam-
búð eða reglur hjúskaparlaganna
verði látnar ná þar yfír einnig, þá
bendir hún á að löggjafínn ætti að
gera sitt til að koma í veg fyrir
ósanngjöm fjárskipti þegar upp úr
sambúð slitnar.
Einnig er það skoðun Guðrúnar
að afnema eigi allar reglur sem
gera það fjárhagslega hagkvæmara
fyrir fólk að sleppa giftingunni en
búa þess í stað saman í óvígðri
sambúð.
„Því tel ég rétt,“ skrifar Guðrún,
„að réttur til framfærslueyris úr
hendi fyrrverandi maka falli niður,
ef rétthafí er í varanlegri sambúð,
svo og réttur langlífari maka til
setu í óskiptu búi. Rétt er að láta
sömu reglur gilda í þessum tilvik-
um, hvort sem gengið er í hjúskap
eða sambúð, því að svipuð sjónar-
mið koma til greina." (Fjármál
lyóna ogsambúðarfólks, bls. 144.)
Við þetta er því að bæta að í 14.
grein laganna um Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins er ákvæði þess
efnis að réttur til lífeyris fellur nið-
ur „ef hinn eftirlifandi maki gengur
í hjónaband að nýju, en kemur aft-
ur í gildi, sé hinu síðara hjónabandi
slitið. . . “ Samkvæmt þessu
lagaákvæði er þó ekki hægt að taka
lífeyri eftir nema einn maka.
Öryggisleysi eftir
sem áður
A undanfömum árum hefur lög-
gjafarvaldið á íslandi sýnt því
nokkum áhuga að bæta réttarstöðu
sambúðarfólks. Ljóst er að sú laga-
breyting, sem tekur gildi núna um
næstu áramót, þar sem skiptarétti
verður heimilað að §alla um skipti
á búum sambúðaraðila þegar upp
úr slitnar í heift, er enn eitt sporið
í rétta átt.
Eftir sem áður hlýtur óvissa hlut-
aðeigandi aðila um sinn hag að
vera mikil því engar reglur em til
um efnislegan rétt þeirra sem búa
saman í óvígðri sambúð. Vitaskuld
geta þeir tryggt sig í bak og fyrir
með því að gera í upphafí sambúð-
ar nákvæma skrá um eignir hvors
um sig. Til að þessi eignalisti komi
að fullum notum verða aðilar að
halda áfram að færa inn á hann
alla hluti sem bætast í búið á með-
an sambúð stendur. Þá verður að
þinglýsa íbúð í samræmi við borgun
hvors um sig í henni, bíllinn fer á
nöfn beggja og svona mætti lengi
telja.
En því miður láta flestir þeir sem
búa í óvígðri sambúð þetta undir
höfuð leggjast og út af því rísa oft
vond og mannskemmandi málaferli.
Að öllu samanlögðu virðist því
vera óhætt að taka undir orð Guð-
rúnar Erlendsdóttur, þegar hún
skrifar eftirfarandi í títtnefndri rit-
gerð um Qármál hjóna og sambúð-
arfólks: „Að mínu mati er hjúskapur
einfaldasta lausnin og best til þess
fallinn að mynda ramma um fjöl-
skyldulífíð og tryggja best öryggi
fólks bæði tilfinningalega og fjár-
hagslega."
Jón Hjaltason
Nýtt — Nýtt
Peysur, jakkar, pils, vesti og blússur.
Glugginn,
Laugavegi 40.
(Kúnsthúsinu.)
Fimleikar — Fimleikar
Innritun í alla flokka pilta og stúlkna næstu viku
frá kl. 18.00—19.00. Upplýsinga- og innritun-
arsími: 688470.
Fimleikadeild Ármanns,
íþróttahúsinu Sigtúni 20, Rvík.
Áskriftarsíminn er 83033
Eróbikk
Ný
stundaskrá
15.
september
álag
fsetU,mikið Þ°'
m
Minna
opt
VIÐ jafn
BJÓÐUM
•Góða aðstöðu,
130 fm sal
•Takmarkaðan fjölda
í tímana.
•Allt að 5 tíma
á viku.
•Vaktavinnukort.
• Morguntíma.
•Hádegistíma.
•Síðdegistíma.
• Kvöldtíma.
Eróbikkstúdíóið er
meðlimur í
IDEA
Innritun ífullum gangi
Byrjendur
l&ll
Konutímar
l&ll
Lengra komnir
III
Þrektímar
IV
Púltímar
V
Tímar fyrir
íþróttafélög, hand-
bolta, fótbolta,
körfubolta, blak.
Barnshafahdi
konur, konur
m/börn á
brjösti.
Kennarar
m/menntun og
reynslu
Jónína Ben.:
íþr.fræði McGill, alþj. eróbikkpróf.
Ágústa Johns.:
íþr.fræði Color. Univ., alþj. eróbikkpróf.
Mark Wilson:
Námskeið, Body Workshop, CA.
Ágústa Kristj.:
Námskeið, Sweat Shop, Colorado.
Sigrún A.: 4 ára eróbikkreynsla.
Kristín Gíslad.:
Fyrrv. íslandsmeist. í fimleikum, fimleika-
þjálfari.
Edda Guðgeirs.: (þróttakennari.
Hildigunnur Johns.: 4 ára eróbikk-
reynsla. ___
Allir kennarar m/próf
í skyndihjálp.
Izróbikk
00@B0@
W
Intematonal Dance-Exerose Assoöaton
Kynntu þér verð 0 Sími 29191 0 Opið í dag