Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 10

Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 Morgunblaðið/Einar Falur „Við fögTium því að samningar tókust við eigendur Kremlar um dansleikjahald," sögðu þessir hressilegu laganemar. egar það fréttist að félag laganema, Orator, hefði tekið að sér dansleikja- hald Hótel Borgar haustið 1984 þótti það nokkur nýlunda. Aldrei fyrr hafði svo virðulegt skólafélag staðið fyr- ir almennum böllum á opinberum vettvangi og ýmsir eflaust haft á orði að þessum ungu háskólastúdentum væri nær að líta betur í skruddumar sínar. Hvað með það. Eftir að laganemar tóku við dansleikjahaldi á Borg- inni þennan vetur var alltaf fuilt út úr dyrum og komust færri að en vildu. En hver var ástæðan fyrir því að laganemar tóku þá ákvörðun að beita sér af slíku offorsi í skemmtanalífinu? Jú, það var vegna þess að sumarið éftir átti að halda hér norrænt mót laganema, eins og venja hafði verið til á tíu ára fresti. Stóðu nemamir frammi fyrir því að þurfa að safna um einni og hálfri milljón króna, því til íslands átti að bjóða 80 manns og þurfti að halda þeim uppi í viku. Nú vom góð ráð dýr. Leituðu laganemar margra leiða. Kom þá upp sú hugmynd að leita samstarfs við skemmtistað og nú er það Ari Edwald laganemi, sem segir frá: „Um þetta leyti var aðsókn frekar dræm á Borginni og við sömd- um um að reka staðinn fram á vorið. Þetta gekk mjög vel enda gengumst við fyrir öflugri kynningu á skemmtistarfsemi Orators meðal framhaldsskólanema og undir okkar stjóm varð staðurinn glimrandi vinsæll." — Og þið grædduð á tá og fíngri? „Ég segi það ekki. Þetta gekk þokkalega og við komumst í gegnum laganemamótið og áttum samt afgang. En þetta starf opnaði augu okkar fyrir möguleika til frekari fjáröfl- unar til rekstrar öflugu félagsstarfi. Því fyrir afraksturinn höfum við getað gefið út tvær bækur eftir Gunnar G. Schram um þjóðarrétt og umhverfisrétt. Síðan keypti Orator upp á eigin spýtur tölvur og prentara, sem laganem- ar hafa not af og eru þetta einu tölvumar, sem þeir hafa aðgang að í skólanum. Við stöndum fyrir útgáfu blaðs laganema, Úlf- ljóts, sem kemur út fjórum sinnum á ári. Mér hefur verið sagt að hvergi í Vestur-Evrópu sé gefið út jafn virt rit um lögfræðileg mál- efni og af hálfu laganema hér. í haust kemur svo út saga Orators, sem verður 250 síður að stærð með 150 myndum. Ritstjóri hennar er Jóhannes Sigurðsson lögfræðingur, sem hefur verið á launum hjá okkur um nokkurt skeið vegna útgáfunnar. í sumar tókum við þátt í ræðukeppni laga- nema, sem haldin var í Svíþjóð, og gekk ágætlega, við urðum í þriðja sæti af átta. Við eigum árleg samskipti við laganema bæði á Norðurlöndum og í Bandaríkjunum. Héðan fara nemendur til þessara landa í stutt- ar ferðir til fróðleiks og skemmtunar og eru þær að verulegu leyti kostaðar af Orator. Innan Orators eru starfandi ýmsir klúbbar sem hafa ágæt markmið eins og íþróttir og skák. Við förum í vísindaferðir og það eru haldin seminör. Segja má að hvergi í háskól- anum sé haldið uppi eins öflugri félagsstarf- semi eins og í Orator." — Nú hafíð þið skrifað undir samstarfs- samning við eigendur Kremlar, þar sem þið munuð standa fyrir dansleikjahaldi um helgar í vetur. „Já, því eftir að samningi okkar um dans- leiki á Hótel Borg var rift haustið 1985, höfum við verið að svipast um eftir möguleika til að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Því fögnuðum við mjög þegar samningar tók- ust með okkur og eigendum Kremlar um dansleiki föstudaga og laugardaga en aðra daga reka eigendumir staðinn. Við byrjum danslcikjahald 3. október næstkomandi og ætlum að reyna að ná samstöðu með fram- haldsskólanemum eins og áður." — Ætlið þið að brydda upp á einhveijum nýjungum? „Það má vel vera að við gerum það, en við leggjum áherslu á að vera með tónlist sem þessum hópum líkar, og það verður sami plötusnúður í Kreml og var á Borginni." — Hveiju eruð þið að safna fyrir núna? „Við höfum þegar ráðist í það mikið að okkur er ekki vanþörf á að bæta fjárhagsstöð- una. Við þurfum að greiða kostnaðinn af sögu Orators og svo er það þessi eilífa hít, sem er blaðið okkar Úlfljótur. Síðan höfum við í hyggju að ráðast í meiri útgáfu." — Hvemig hafið þið tíma til að sinna dans- leikjahaldi allar helgar, emð þið ekkert syfjuð í tímum? „Menn skipta með sér verkum og svo er nú ekki lesið allan sólarhringinn. Auk þess er námi okkar þannig háttað, að við eram næstum eingöngu í heilsársfögum og tökum því próf aðeins á vorin. Aðalatriðið hvað varð- ar námið er að mæta vel í tímum og detta aldrei út úr því sem þar fer fram og á vorin iæsir maður sig svo inni og les.“ — Hveijar haldið þið að verði undirtektir við þessu Kremlarævintýri? „Við eram ekki hrædd um að við munum ekki troðfylla staðinn, því við höfum getið okkur gott orð í skemmtanalífinu." HE í Kaupmannatiöfn FÆST I BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI HAUSTVÖRUR KJÓLAR, PILS, BLÚSSUR, PEYSUR, JAKKAR OG FRAKKAR Hagstætt verð Opið á laugardögum frá kl. 10-13 Iðnaðarmannahúsinu, sími 11845 Tónskóli Emils Kennslugreinar: • PÍANÓ • HARMONIKA •RAFMAGNSORGEL •GÍTAR • MUNNHARPA • BLOKKFLAUTA • HÓPTÍMAR OG EINKATÍMAR Allir aldurshópar Innritun daglega Símar 16239 og 666909, Brautarholti 4. Kennsla hefst 15. september.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.