Morgunblaðið - 07.09.1986, Síða 13

Morgunblaðið - 07.09.1986, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 Vegagerð í Dynjandisdal 1958. Ljósm./Jón Víðis. Vinnubúðir við Fjallsá í Öræfum 1962. Ljósm./Jón Víðis. Landmælingar á Dynjandisheiði 1957. F.v. Svanur Sveinsson, Jón Víðis, Jakob Hálf- dánarson og Þorsteinn Ólafsson. Fyrir tíð ámoksturstækja var efni til vegagerðar handmokað á vörubíla, eins og hér er gert. Ljósm./Geir Zoega. Nú er langt liðið á þann árstíma sem vegagerðarframkvæmdir eru í fullum gangi og sama virðist hvert á land haldið er, eftir greiðfomu malbikinu eða holóttum vegleysum, einhverstaðar verða vinnuflokkar við vegagerðarframkvæmdir á vegi ferðamanns. Svona er þetta og svona hefur það löngum verið. Saga Vegagerðar- innar hefur ekki verið rituð, en í gegnum tíðina hafa ýmsir starfsmenn stofnunarinnar safnað heimildum um vegavinnu og fram- kvæmdir, eins og þeir tveir menn sem eiga heiðurinn af ljósmjmdunum hér. Annar þeirra var Geir Zöega, fyrrum vega- málastjóri á árunum 1917-1856, en á þeim tíma urðu stakkaskipti í vegamálum sbr. það að akfærum brúm fjölgaði úr 11 og urðu 770 talsins, vegir lengdust úr um 300 km í um 9.000 km og vegakerfi var komið á sem tengdi flest byggðarlög landsins saman. Auk starfs vegamálastjóra gegndi Geir Zöega starfí formanns skipulagsnefndar og undirbjó lög um skipulag kaupstaða, auk þess að hafa eftirlit með landmælingum hér- lendis. Þá starfaði hann mikið hjá Ferðafélagi íslands og þekkti landið sitt vel, bæði úr starfi og leik. Er því ekki að undra að fyrir mann sem hafði gaman af að hafa myndavél í farteskinu skuli eftir liggja mikill fjöldi mynda frá ýmsum stöðum iandsins og vega- framkvæmdum þar. Annar maður sem ekki lét sitt eftir liggja í að safna heimildum um vegagerð í myndum og máli var Jón Víðis, landmælingamaður, en á skrifstofum Vegagerðar ríkisins er að finna margar myndamöppur þar sem Jón hélt til haga vel merktum myndum sínum úr starfinu víðsvegar um land. Jón hóf störf hjá Vegagerðinni 1922 og vann fýrstu 20 árin þar við mælingar og kortlagningu af skipulagsskyldum stöðum og kortlagði reynd- ar á þessum árum alla kaupstaði landsins nema Reykjavík og Vestmannaeyjar. Eftir að embætti skipulagsstjóra var svo stofnað á stríðsárunum starfaði Jón nær ein- göngu við vegamælingar hjá Vegagerðinni, eða til ársloka 1969, er hann lét af störfum. Það var eins farið með Jón Víðis og Geir Zöega, að báðir höfðu unun af ferðalögum um landið og var Jón virkur félagi í Ferðafé- lagi íslands. Við fengum að fletta í gegnum möppur Jóns og líta ofan í myndakassa Geirs og birtum hér nokkrar myndir úr ævistarfi þessara tveggja manna. - VE Unnið að gerð Suðurlandsbrautar nálægt EUiðaám. Ljósm./Jón Víðis. Vegagerð við Elliðaár. Ljósm./Jón Víðis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.