Morgunblaðið - 07.09.1986, Page 18

Morgunblaðið - 07.09.1986, Page 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 Þið voruð heppin að hitta á mig. Það munaði minnstu að ég kæmist ekki hingað í_ gær,“ sagði Guðjón. „Ég fór á Djúpavog með Svía sem er hér í heimsókn hjá mér. Við fórum þang- að aðallega til að fara út í Papey. Ég vildi endilega sýna honum eynna." Guðjón bauð okkur inn. Hann var að eida eitthvað á kola- eldavél, en færði pottinn síðan á rafmagnseldavél inni í litla eldhús- inu. Fyrir utan voru tveir stórir og stæðilega fuglar. Þetta voru skúmar sem Guðjón hændi að sér fyrir mörg- um árum. Þeir hafa haldið tryggð við hann í öll þessi ár og sagði Guð- jón það merki um mikla vináttu. „Ég ritaði einhvem tíma grein um vin- áttu,“ sagði hann. „Ég var nefnilega tvö sumur í Kanada eftir að fuglam- ir fóru að venja komur sínar hingað. Ég hugsa að ef ég hefði átt vinkonu þá hefði hún nú varla setið á sömu þúfunni allan þann tíma og beðið eftir mér. En svona eru nú dýrin, til dæmis hundar. Þeir gleyma aldr- ei.“ — Hefúr þú aldrei haft hund héma hjá þér? „Nei ég hef ekki haft hund síðan ég var á dýraveiðunum í Kanada." — Hvemig atvikaðist það að þú fórst til Kanada? Fátækt „Ég fæddist 1903 að Hömmm á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu. Foreldrar mínir, Runólfur Sigurðs- Guðjón með sýnishorn af styttunum sem hann tálgar út og málar. Náttúrufegurðin dró mig’ aftur til Islands íheimsókn hjá Guðjóni R. Sigurðssyni sem meðal annars vann við dýraveiðar í skógum Kanada í sjö ár Það var fallegt á Fagurhólsmýri þennan síðsumarsmorgun þegar við ókum niður að flugvellinum til að hitta Guðjón R. Sigurðsson. Við höfðum mælt okkur mót við hann til að ræða um viðburðaríkt líf hans í Kanada og einnig hér á ísiandi. Okkur hafði verið sagt að hann hefði örugglega frá mörgu að segja. Þegar við komum niður á flugvöllinn blasti við agnarlítið hús með fallegum garði í kring. Þarna hlaut hann að búa. Hurðin var opin. Við bönkuðum upp á og Guðjón kom til dyranna. son frá Svínafelli í Óræfúm og Steinunn Jónsdóttir frá Odda á Mýr- um, og þrjú böm þeirra fluttust til Kanada þegar ég var tveggja vikna gamall. Það þýddi ekkert að fara með svona lítil böm á þessa dalla sem þá voru. Ég var því skilinn eft- ir hjá ömmu minni og afa, Guðnýju Benediktsdóttur og Jóni Bjamasyni sem þá bjuggu á Odda á Mýrum. Þegar Oddi lagðist í eyði árið 1907 tók Ingunn móðursystir mín og maður hennar Einar Þorvarðarson mig í fóstur. Það var mikil fátækt á íslandi á þessum árum þegar ég var að alast upp. Þetta voru erfíðir tímar, hafís og dauði, svo það var afsakanlegt að fólk flýði til Ameríku og vildi reyna eitthvað betra. Auðvitað vissi fólkið ekkert út í hvað það var að fara. En þrátt fyrir alla þessa fá- tækt alls staðar í kringum mig fékk ég alltaf nógan mat. Svo át maður allt. Bændur voru yfirleitt bláfátæk- ir. Áttu nokkrar skepnur, en lifðu aðallega á silungnum í lækjunum. En HomaQörðurinn var gjöfull. Þar veiddist lúra. Menn gátu hlaðið bát- inn, dregið fyrir á einu flóði og fengið þar mikinn forða. Fjörðurinn hélt meira og minna lífínu í fólkinu á Mýrum og í Nesjum. Talið berst aftur að fólki Guðjóns. „Jón Bjamason afi minn var kátur maður. En nokkuð drykkfelldur," sagði Guðjón. „Ef áfengi fékkst þá var farið í verslun á Djúpavogi. Þar sem hann gisti var hann venjulega beðinn að vera annan dag, sérstak- Iega á meðan entist í kútnum. Það tók ailtaf hálfan mánuð þegar afi minn fór frá Mýrunum á Djúpavog. En þegar hann var orðinn sjötugur vildi hann ekki lengur smakka áfengi." Til Kanada Þegar Guðjón var 22 ára ákvað hann að fara til Kanada til föður síns. Þá hafði hann unnið ýmis störf til sjós og lands og dvalið einn vetur í Hvítárbakkaskóla í Borgarfírði. „Það var ákaflega erfitt að skilja við Guðnýju ömmu mína þegar ég fór til Kanada. Hún var þá orðin háöldmð. Hún grét hástöfum svo það heyrðist um allan bæ og spurði hvort ég ætlaði að fara frá sér eins og mamma mín gerði. En þó að þetta hafi verið erfitt verður maður að hafa það í huga að hver og einn Iifir fyrst og fremst fyrir sjálfan sig.“ — Voru það ekki mikil viðbrigði að koma til Kanada? „Dvölin hjá föður mínum varð ekki löng. Ég var hjá honum aðeins í fjóra mánuði. Það var nú aðallega vegna þess að honum tókst ekki að kenna mér ensku. Svo verður að athuga það að ég þekkti hann nú ekkert meira en ég þekki þig. En faðir minn lærði aldrei ensku sjálf- ur. Hann var fertugur þegar hann fór vestur um haf og settist að í Mozart í Vatnabyggðunum. Það var eins með hann og marga aðra full- orðna menn sem fluttust þangað að þeir lærðu aldrei þetta nýja tungu- mál. Þama voru fleiri Islendingar og þeir héldu mikið saman. Gömlu mönnunum fannst þeir ekki þurfa að læra enskuna meðal annars vegna þess að þeir gátu alltaf bjargað sér á íslensku. Þama vora til dæmis íslenskir kaupmenn. Eftir að ég fór frá föður mínum vann ég við ýmis störf til að byija með, við þreskingu, fískveiðar, skóg- arhögg og fleira. Síðar varð ég svo heppinn að komast í vinnu með Svíum og Norðmönnum við að byggja komhlöður á sléttunum. Það var nú byijunin á trésmíðavinnu minni í Kanada. Þessir náungar töluðu auðvitað ekkert nema sænsku og norsku og ég lærði tungumálin af þeim. I þessum hópi var ég kallað- ur ísland. Á dýraveiðum í sjö ár Þegar kreppan skall á 1929 var enga atvinnu að fá í Kanada. Ungir menn höfðu ekkert að gera. Engir vegir vora byggðir og á sléttunum var bara rótað upp leimum. Þegar þurrt var í veðri var nærri ófært um þessa vegi fyrir lyki og þegar rigndi komst maður varla leiðar sinnar fyr- ir for. Þegar styijöldin skall á vildu ungu mennimir fara í herinn. Þar fengu þeir föt og eitthvað almenni- legt að borða. Þetta var meiri hörmungin allt saman. Þegar ég fékk ekki lengur vinnu við smíðar flúði ég bara norður í skógana og fór á dýraveiðar. Þessar veiðar stundaði ég í sjö ár.“ — Hvers konar líf var þetta? „Ég veiddi úlfa, refi, minka, gaup- ur, bjór á vorin og vatnsrottur, sem hafa ágætis loðskinn. En lífíð var mjög einmanalegt. Maður þurfti að hafa sterkan hrygg og vera andlega sterkur til þess að geta haldið þetta út. Oft liðu margir mánuðir án þess að ég hitti annan mann. Það gafst yfirleitt ekki vel ef menn vora tveir saman við þessar veiðar. Fljótlega fór þeim að leiðast hver annar og þeir byijuðu að rífast." — Vora indíánar á þessum slóð- um? „Já þama vora indíánar, ágætis fólk. Þeir vora líka mikið á dýraveið- um. En þegar styrjöldin skall á voru ungir indíánar líka kallaðir í herinn. Þegar heim kom vildu þeir fá sömu réttindi og hvítir menn, sérstaklega til að geta keypt sér áfengi. Hvíti maðurinn hafði smám saman tekið af þeim landið og að lokum höfðu þeir ekkert að gera. Þeir fóra að drekka meira, svipað og gerðist í Grænlandi. Þetta skemmir fólkið, því vinna er alltaf holl fyrir hvem sem er. Allir verða að hafa eitthvað fyrir stafni. Indíánamir reyndust mér ágæt- lega. Þeir era saklausir og gestrisnir. Þegar maður kom gaddfrosinn á vetuma að kofanum hjá þeim var ekki verið að úthýsa manni. Ekki aldeilis. Það var fámennt þama í norðurhéraðunum og gestir vora alltaf velkomnir. Þeir höfðu alltaf einhveijar fréttir að færa. En indíánamir söfnuðu aldrei neinum peningum. Þeir eru dálítið svipaðir og íslendingar. Sérstaklega ef þeir fara á fyllerí. Svona era Finnar líka. Annað hvort drekka þeir sig augafulla eða sleppa því. Til Thicket Portage á jólum Ég hafði bækistöð í þorpi sem hét Thicket Portage í Manitoba. Á jólun- um skrapp maður alltaf þangað og tók ferðin svona tvo daga. Þama hitti ég íslendinga sem vora nýflutt- ir þangað og unnu við fiskveiðar. Oftast dvaldi ég í þorpinu í þijá til fjóra daga en svo jiurfti ég að flýta mér til baka til þess að vitja um dýragildrumar. Sérstaklega otur- gildrar. Oturinn var fljótur að úldna ef hann var látinn liggja í gildrunni. Ég átti tvo uppáhalds hunda sem ég notaði fyrir sleða við veiðamar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.