Morgunblaðið - 07.09.1986, Síða 19

Morgunblaðið - 07.09.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 B 19 Þeir hétu Shorty og Slim. Shorty var mikill forystuhundur. Hann var bráðvitur. Þegar ég var á leiðinni inn í skóg- inn aftur eftir að hafa dvalið um jól í Thicket Portage einu sinni sem oftar, var ég einnig með ungan hund sem ég hafði nýlega eignast. Þetta var hálfgerður hvolpur, en stór og sterkur. Ég lenti í vandræðum með hann er ég kom að stöðuvatni lengst inni í skógi. Hann vildi þá ekki draga og sneri til baka. Ég bisaði við þetta nokkuð lengi og komst að lokum eitthvað áleiðis inn í skóginn. Ég hefði átt að gista hjá indíánum sem voru þama stutt frá en var búinn að ákveða að sofa úti eins og ég gerði oft. En í þetta sinn var myrk- ur og grimmdarkuldi. Ég þóttist alltaf vera að spara peninga og not- aði bómullamærföt í stað ullamær- fata. Bómullamærfötin blotnuðu ef ég svitnaði og límdust síðan við skrokkinn. Mér varð því oft kalt. Þetta hafði þó ekki áhrif á mig í nokkuð mörg ár en síðar fékk ég gigt- Á ferðinni í 48 stundir En svo ég haldi áfram ferðasög- voru stundum dálítið latir indíánarn- ir og gerðu ekkert nema þeir þyrftu þess nauðsynlega með. Úldinn fengnr í otragildru Ég hvíldi mig þann dag en fór í veiðikofann daginn eftir til að vitja um gildrumar. Ég hafði fengið tvo otra sem vom orðnir úldnir. Samt tókst mér að ná af þeim skinnunum og þau litu sæmilega út. Það bar ekkert á að þetta væri af úldnum dýmm. í næsta þorpi við Thicket Portage hitti ég smákaupmann sem var besti karl og nokkuð glöggur á loðskinn. Ég bauð honum skinnin og sagðist þurfa að fá fyrir fari heim með eimlestinni. Hann vildi kaupa þau og borgaði gangandi verð þá, sem ég held að hafí verið 16 dalir fyrir stykkið. Þegar hann hafði borgað segi ég við hann: „Þú ert þá ekki gleggri en þetta. Þessir otr- ar vom báðir úldnir." Hann trúði nú samt ekki að ég væri að svíkja hann. En ég sagði honum að fara með skinnin á lestina og selja loð- dýrakaupmönnum þau og var hann fljótur að gera það. Hann tapaði víst einum dal á hvom skinni. Ég vann ýmis fleiri störf, til dæm- Guðjón R. Sigurðsson unni þá fór ég á fætur um hánótt og setti á mig þrúgumar. Ég hafði komist að því að betra var að nota þrúgur en skíði því nauðsynlegt var að troða götur fyrir hundana. Það gat maður ekki með skíðunum. Ég gekk fimm mílur á þrúgunum og kom svo til baka aftur. Þá spennti ég hundana fyrir. Nú sá hvolpurinn götumar og eftir það dró hann alveg á við hina. Eftir þetta fór hann að treysta mér og við urðum miklir vin- ir. Ferðin tók 48 klukkustundir og ég hvfldist aldrei. Ég ætlaði að gera skýli með grenigreinum, en það blés svo mikið að neistamir flugu um allt. Ég sá að ég mundi brenna fiður- svefnpokann minn og skýlið og ákvað að best væri að halda áfram. Á þriðja degi kom ég á skóglaust svæði þar sem ég tapaði götunni. Ég vissi ekkert hvert ég átti að fara. Á leiðinni suður hafði ég verið sam- ferða indíána. Það var um hánótt og ég sá ekkert. Nú datt mér í hug að ef til vill gætu hundamir ratað. Ég fór fyrir aftan sleðann og kall- aði: „Af stað með ykkur“. Þeir fóru strax af stað og við komumst á leið- arenda eftir hálftíma. Það var kofi sem indíánar áttu og aldrei þessu vant höfðu þeir hoggið eldivið. Þeir is við fiskveiðar, skógarhögg, hjá námafélagi og jámbrautarfélagi. Alls staðar var fólk frá ýmsum lönd- un. En það var áberandi með fólkið sem settist að á sléttunum hvað það kynntist fljótt og var hjálplegt hvert við annað. Einn átti skóflu, annar átti eitthvað annað og þetta var lán- að til og frá. Tíl íslands eftir 34 ár í Kanada Ég kom í heimsókn til íslands eftir að hafa verið í Kanada í 34 ár. Ég hafði miklar áhyggjur af því að ég hefði týnt niður málinu og að ég þekkti ekki lengur nokkum mann á íslandi. Það var mesta furða hvað ég þekkti marga eftir öll þessi ár. Ég varð yfir mig hrifinn af landslag- inu og útsýninu hér á íslandi. Náttúmfegurðin var svo mikil að ég tók það í mig að setjast héma að. Það var svolítið sögulegt hvers vegna ég fór til íslands. Ég var að vinna við að byggja búðir fyrir Hud- son-félagið. Við unnum alla daga, 10 tíma á dag, og þótt kaupið væri ekki hátt var þetta mesti peningur sem ég þénaði fyrir smíðar á ævinni. Ég ákvað því að skreppa nú til Is- lands. Þegar ég kem á Kennedy- völlinn í New York leist mér ekki á vélina sem átti að flytja mig til ís- lands. Ég var viss um að hún mundi detta í sundur. En hún komst nú frá Islandi og þá hlaut hún að komast til baka. Þetta var ekta veisla alla leið. Ef ekki var boðið upp á koníak þá var það matur. Hér á Islandi var ég í tvo mánuði hjá frændfólki og þegar ég kom aft- ur út til Kanada íangaði mig strax aftur til íslands. Það leið nokkur tími þar til ég fékk vinnu, en að lokum gekk það og ég fór að vinna við nickel-námurnar í Thompson í Norður-Manitoba. Ég vann í fjóra mánuði og gat ekki hugsað um ann- að en ísland. Hingað kom ég svo aftur árið 1959. Ég var þó ekki al- kominn fyrr en árið 1961. Trésmíðavinna á íslandi Ég flutti til frændfólks á Höfn í Hornafirði og fékk atvinnnu við smíðar. Ég vann lengst af við trésmíðamar og eftir að ég hafði fengið meðmæli frá Kanada og ís- landi fékk ég réttindi og fór að vinna upp á mínar eigin spýtur. Mest vann ég við að setja verksmiðjugler í glugga, við lagfæringar og nýbygg- ingar. Nú orðið geri ég lítið nema og hann spáði að það kæmi annar eins og hann. Hann er kominn og er í Indlandi. Ég hef lesið þessa bók um manninn sem heitir Sai Baba. Það er merkilegt að allur heimurinn skuli ekki vita um þetta. Þetta er alveg stórmerkilegt. Hann fékk til dæmis að velja sér foreldra á jörð- innj og svo hefur hann læknað sjúka. Ég hef svolítið kynnt mér spírit- isma, en læt hann alveg vera. Ég vil miklu frekar kynnast lifandi fólki en dauðu. Ég átti íslenskan vin úti í Kanada. Hann átti tonn af bókum um spíritisma og hugsaði ekki um annað. Þessi helgi maður sem ég nefndi áðan boðar breyttan hugsunarhátt, sem er það sem við þurfum mest á að halda núna. Við búum aldrei til frið með sprengjum og djöfulsskap." Ekki víst að breytingarnar séu til góðs — Þú hefur lifað miklar breyting- ar Guðjón, er ekki svo? „Jú það er rétt. En breytingamar hafa orðið mun örari eftir að ég flutti aftur heim til Islands. Sem dæmi má nefna borgimar í Kanada. Ég lenti einu sinni í því þegar ég Víkingamir höfðu kjark til þess að leita að þessari eyju í opnum bátum og setjast hér að.“ — Hefur þú ferðast mikið? „Já svolítið. Ég man eftir skemmtilegri ferð til Noregs. Þá rifj- aðist norskan upp fyrir mér. Svo hef ég kynnst Svíum og einn þeirra, Harald Theodorsson, er nú hér hjá mér. Við hittumst í Fjallabakstúr með Guðmundi Jónassyni hér um árið. Ætli það sé ekki sjö eða átta ár síðan. Mér þótti ósköp vænt um að hann kom í heimsókn. Það er gott að ferðast og hressandi. Maður yngist upp í hvert sinn.“ — Hefur þú aldrei verið Qöl- skyldumaður? „Nei aldrei. Eitt sinn hafði ég áhuga á að giftast stúlku, en hún valdi annan. Frelsið er ómetanlegt og ég var sjaldnast lengi kyrr á sama stað. Ef maður er fijáls þá bitnar það bara á manni sjálfum ef maður gerir eitthvað af sér.“ Kjötsúpuveisla og bátsferð á Jökulsárlóni „Þið verðið endilega að borða með okkur," sagði Guðjón. Þetta var þá kjötsúpa sem hann var að elda og Shorty og Slim, uppá- haldshundar Guðjóns á meðan hann dvaldi í skógum Norður- Kanada við dýraveið- ar. Bátinn notaði Guðjón í stað sleða á vorin þegar ísar á vötnunum voru orðnir ótraustir. þá að dunda mér við að tálga út karla og kerlingar, fjallkonur, jóla- sveina og fleira. Þetta selst voðalega lítið, þrátt fyrir að ég hafi þetta ódýrt. Það er alveg sama hvað mað- ur hefur þetta ódýrt. Það er ekkert langt síðan ég hætti að vinna við trésmíðar. Nokk- ur ár samt. Maður er hættur að taka eftir þessu. Árin líða hvert eftir ann- að og maður verður varla var við það. Ég er sæmilega hraustur og fólk segir að ég eldist ekkert. Ég veit það ekki. Maður gerir það nátt- úrulega. Ég er orðinn svolítið ónýtur að ganga. Ég hélt að ég ætlaði að drepast úr gigt um tíma, gat varla hreyft mig. Svo er hún alveg horfin aftur. Ég veit ekki af hverju. Úrvalsfólk í Öræfunum Ég fluttist til Fagurhólsmýrar fyr- ir 12 árum síðan. Ég byggði þennan kofa á Höfn, en skúrinn bak við byggði ég þegar ég kom hingað. Ég á frændfólk hér. Ari heitinn Hálf- .dánarson á Fagurhólsmýri var hálfbróðir ömmu minnar. Sigurður Arason bauð mér að koma hingað og kunningi minn keyrði kofann fyr- ir mig og hér var ég settur niður. Ég vildi nú vera nær hömrunum fyrst. En hvílík heppni. Það fennir aldrei að héma, en ef ég hefði verið nær hömrunum hefði sennilega fennt yfir kofann. í þessari sveit er alveg sérstaklega gott fólk. Þetta er úrvalsfólk og hjálplegt og vinnur mikið saman.“ — Hugsar þú eitthvað um pólitík? „Margir hafa reynt að kenna mér pólitíkina. En ég blanda mér ekkert í hana. Mér finnst það alveg óþarfí. Ég les ekki einu sinni blöðin. Ég hlusta nokkuð á útvarp, en hér er ekkert rúm fyrir sjónvarp. Ef það er eitthvað sérstakt sem mig langar að sjá, fer ég upp á bæ. Þá tefur þetta ekkert fyrir mér. Ég er nýfar- inn að lesa nýjar bækur sem ég rakst á fyrir tilviljun. Ég hef alltaf verið trúaður og hef trúað því sem Kristur sagði. Ég hef lesið mikið í Biblíunni en las hana þó eins og ævintýri. En allt sem Kristur sagði var sannleikur kom til Kanada að uppáhaldshótelið mitt var horfið. Enginn kannaðist við það, nema ef til vill gamalt fólk. Það er rétt að allt breytist, ekkert stendur í stað. En hvort það er til hins betra, það er spuming. Ég er hræddur við sjónvarpið. Það hefur mjög mikil áhrif á hugsunarhátt bama og er stórvarasamt. Sjón- varpið er ágætis tæki og ætti að geta gert fólkið betra. En allur þessi hemaðarhugsunarháttur og allt þetta dráp á fólki verður að hverfa úr sjónvarpinu. Þetta hefur mikil áhrif á böm af því að þau sækjast eftir að sjá eitthvað nýtt. Ég var einu sinni samferða kennslukonu úr Homafirði. Hún kenndi yngstu bömunum. Þessi kona hélt því fram að það væri mest áríð- andi að kenna yngstu bömunum og leggja gmndvöll að hugsunarhætti þeirra í framtíðinni. Ég man hvemig það var með sjálfan mig. Það hafði afskaplega mikil áhrif á mig allt sem mér var kennt, bæði illt og gott. Það er svo sorglegt að til er fólk sem vill leiða böm í ógöngur og vitleysu. Það viil gera þau verri en ekki betri og hlæja síðan að þeim þegar þau gera vitleysumar." — Er fólk þá ekki nógu vel að sér í bamauppeldi? „Nei ég held ekki. Menn þurfa að gæta að því hvað þeir segja við bömin. Þau taka allt upp og gleyma því ekki. Hættumar eru margar, sérstaklega eiturlyfín og áfengið. Það er ekki bamauppeldi að reka bömin af heimilinu og út á götu. íslensku börnin eins og lítil bjarndýr Ekki má gleyma því að Islending- ar eru af góðum stofni. Ég tók sérstaklega eftir þessu þegar ég kom frá Kanada og sá íslensk böm í vöggu, innan við eins árs gömul. Þetta vom eins og lítil bjamdýr í samanburði við bömin fyrir vestan. Þar er allt til alls, eins og hér, til dæmis matur. Kannski er það þorskalýsið sem gerir þetta. En eitt er víst að stofninn er sterkur. nú var hún tilbúin. Guðjón kallaði á Harald og við settumst til borðs. Það er óhætt að segja að þetta var herra- manns matur og Guðjóni var óspart hrósað fyrir súpuna. Hann sagði að mörgum hafi þótt súpan hans góð og nefndi þá sérstaklega Friðjón Guðröðarson fyrrnrn sýslumann þeirra Skaftfellinga. Á meðan á borðhaldinu stóð stakk Guðjón upp á því að við fæmm að Jökulsárlóni. Þeir Harald höfðu verið þar nokkmm dögum áður og vom sammála um að það hefði vcrið skemmtileg lífsreynsla. Við stungum upp á því að þeir kæmu með okkur. Það má með sanni segja að það var " skemmtilegt að fara í bátsferð um lónið. Guðjón heilsaði öllum sem fóm um borð í bátinn og spurði hvaðan þeir væm. í þessari ferð vom tveir Svisslendingar og einn Israelsmaður fyrir utan okkur íslendingana og Harald. Guðjón var hrókur alls fagn- aður og kátur og hress þrátt fyrir árin áttatíu og þrjú. Á leiðinni til baka hafði Guðjón ffá ýmsu að segja. Það var auðheyrt á honum að hann hreifst af hinni stórbrotnu náttúmfegurð sem blasti við okkur. Hann naut þess að fræða okkur hin um þær breytingar sem orðið hefðu ffá því í hans ungdæmi. Hann sagði það vera áberandi hvað jöklamir hefðu hopað mikið. Þegar komið var að kaupfélaginu á Fagurhólsmýri spurði Guðjón hvort hann mætti ekki vera samferða okk- ur að Hofi þar sem hann átti að mæta hjá augnlækni. „En fyrst stoppum við í sjoppunni og ég býð öllum hressingu." Guðjón skemmti sér hið besta við að segja gamansög- ur, aðallega af Svíum því hann sagðist hafa svo gaman af því að stríða Harald. Eftir að hafa skoðað gömlu kirkj- una á Hofi í Öræfum var kominn tími til að kveðja. Þetta hafði verið góður dagur með Guðjóni. Við ' kvöddum þennan aldna mann, sem enn er unglingur í anda. Viðtal: Ásdís Haraldsdóttir Myndir: Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.